Morgunblaðið - 27.02.2001, Page 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞETTA er nú búið að vera hálfgert
letilíf á mér síðan ég hné niður ein-
mitt á þessum stað fyrir sex vikum,“
sagði Ingibjörg brosandi þegar hún
settist niður með Morgunblaðinu í
gær. „En það er gott að vera kominn
til baka – klár í slaginn,“ sagði hún.
Ingibjörg var, sem kunnugt er, í
viðtali í beinni útsendingu Sjónvarps-
ins þegar hún hné niður, 17. janúar
sl. Hún var þá ásamt Össuri Skarp-
héðinssyni, formanni Samfylkingar-
innar, að ræða við Jóhönnu Vigdísi
Hjaltadóttur fréttamann um ör-
yrkjafrumvarp ríkisstjórnarinnar.
Það var samþykkt síðar sem lög frá
Alþingi, en þá var heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra kominn í
veikindafrí. Óhætt er hins vegar að
segja, að hugur þjóðarinnar hafi ver-
ið hjá ráðherranum og Ingibjörg seg-
ist hafa orðið undrandi og þakklát
fyrir þann hlýhug sem almenningur
sýndi í veikindum hennar.
„Mér hlýnaði svo sannarlega um
hjartaræturnar. En um leið fannst
mér leiðinlegt að valda öllu þessu
fjaðrafoki,“ segir hún.
„Það má segja að ég hafi fengið
gula spjaldið,“ segir Ingibjörg bros-
andi þegar hún rifjar upp atvikið.
„Þetta er alveg eins og í fótboltanum.
Þú færð gula spjaldið, en mátt ekki fá
tvö. Þá ertu kominn út af. Þetta var
þannig mjög góð áminning.“ Ingi-
björg fjallar um veikindi sín í léttum
dúr, enda segist hún hafa verið hepp-
in. Að vísu dylur hún ekki að sjálf
hefði hún fremur kosið að hníga nið-
ur annars staðar en í beinni útsend-
ingu í sjónvarpi. „Þegar ég rankaði
við mér varð mér strax hugsað til
fjölskyldunnar sem væri eflaust
skelfingu lostin. Ég lagði því mikla
áherslu á að klára viðtalið, svo að fólk
sæi að ég væri nú enn á lífi.“
Ingibjörg segir að það sé kald-
hæðnislegt að hún sem heilbrigðis-
ráðherra og yfirmaður forvarna skuli
sjálf hafa fallið á því prófi. „Ég hef
síðustu sex árin í starfi mínu sem
ráðherra lagt geysimikla áherslu á
forvarnir. Mér hefði auðvitað verið
nær að fara betur eftir því sem ég var
sjálf að prédíka og forvarnaráðherra
sem ekki fer eftir eigin ráðleggingum
ætti náttúrulega bara að segja af
sér,“ segir hún og skellihlær.
Ingibjörg segist vera þeirrar gerð-
ar að hún taki mál inn á sig og leggi
allan sinn kraft í þau. Hún hafi aldrei
skilið þá sem geti farið úr vinnunni
kl. 5 og ekki hugsað um vinnuna fyrr
en morguninn eftir. Þetta fólk hljóti
hreinlega að vera einhverjir snilling-
ar.
„Þetta kann ég ekki. En ég hef
jafnan geysilegan áhuga á því sem ég
er að fást við og það þýðir að ég velti
viðfangsefnunum fyrir mér á kvöldin
og í frítímanum líka.“ Hún leggur þó
áherslu á að ekki megi tengja þetta
öryrkjamálinu sem svo mjög var
deilt um. „Þetta bara gerðist. Við eig-
um öll okkar takmörk og þetta var ef-
laust ágætis áminning fyrir fólk sem
vinnur mikið, að hver og einn verður
að gefa sér örlítinn tíma fyrir sjálfan
sig,“ bætir hún við.
Ekki áfram ritari flokksins
Ingibjörg segist vera klár í slag-
inn, en eflaust muni hún fara rólega í
sakirnar svona fyrst í stað. Hún seg-
ist þó hafa ákveðið að gefa ekki áfram
kost á sér sem ritari Framsóknar-
flokksins og ekki ætli hún að bjóða
sig fram til embættis varaformanns
flokksins. „Ég ákvað þetta fyrir
löngu og ætla nú að einbeita mér að
verkefnum mínum sem ráðherra og
þingmaður, en þau eru ærin. Eftir
fleiri vegsemdum sækist ég því ekki í
bili enda finnst mér sérstaklega
ánægjulegt hversu margir virðast til-
búnir að leggja mikið af mörkum í
þágu flokksins. Ég er auðvitað alsæl
með það.“
Ingibjörg Pálmadóttir komin aftur til starfa eftir veikindaleyfi
Undrandi og þakklát fyr-
ir hlýhug almennings
Ingibjörg Pálmadóttir hóf störf að nýju sem
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og
tók sæti á Alþingi í gær eftir nokkurra
vikna veikindaleyfi. Björn Ingi Hrafnsson
ræddi við ráðherrann í kringlu Alþing-
ishússins, einmitt þar sem hann hné niður í
beinni útsendingu sjónvarps.
Morgunblaðið/Golli
Ingibjörg Pálmadóttir fékk hlýjar móttökur er hún sneri aftur til starfa
eftir veikindafrí í gær. Hér tekur Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð-
herra á móti henni, en Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra er fjær.
77. fundur. Dagskrá Alþingis
þriðjudaginn 27. febrúar 2001
kl. 1½ miðdegis.
1. Kristnihátíðarsjóður.
2. Eftirlit með útlendingum,
3. Framkvæmd Rómarsamþ.
um Alþjóðlega saka-
máladómst.
4. Hjúskaparlög.
5. Framsal sakamanna.
6. Ranns. í þágu atvinnuv.
7. Stjórnarskipunarlög.
8. Sveitarstjórnarlög.
9. Þingsköp Alþingis.
10. Hlutafélög.
11. Umferðarlög.
12. Greiðslur hlunninda og
bifreiðastyrkja í ríkiskerf-
inu.
13. Sinubrennur og meðferð
elds á víðavangi.
14. Ráðuneyti lífeyris, al-
mannatrygginga og vinnu-
markaðsmála.
15. Tekju- og og eign-
arskattur.
16. Þingsköp Alþingis.
17. Húsaleigubætur.
18. Þjóðfáni Íslendinga í þing-
sal Alþingis.
ADOLF H. Berndsen, fram-
kvæmdastjóri, undirritaði í gær
drengskaparheit að stjórnarskrá ís-
lenska lýðveldisins, áður en hann
tók sæti á Alþingi sem varamaður
Vilhjálms Egilssonar, 4. þingmanns
Norðurlandskjördæmis eystra.
Adolf hefur ekki áður átt sæti á
Alþingi, en hann er annar varaþing-
maður Sjálfstæðisflokksins í kjör-
dæminu. Sá fyrsti, Sigríður Ingvars-
dóttir, gat ekki tekið sæti að þessu
sinni, en innan tíðar tekur hún sæti
á Alþingi þegar sr. Hjálmar Jónsson
hættir þingmennsku og gerist
prestur Dómkirkjunnar í Reykjavík.
Morgunblaðið/Golli
Drengskaparheit
undirritað
FIMM þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins, með Guðmund Hallvarðsson í
broddi fylkingar hafa lagt fram á Al-
þingi tillögu til þingsályktunar um
afnám eignarskatts á íbúðarhús-
næði. Verði tillagan samþykkt yrði
lagt fram stjórnarfrumvarp til laga
um breytingu á lagaákvæðum um
eignarskatt á íbúðarhúsnæði með
það að markmiði að eignarskattur
verði lagður af í áföngum á næstu
þremur árum.
Í greinargerð með tillögunni segir
að um langt árabil hafi það verið
metnaður ungs fólks hér á landi að
eignast íbúðarhúsnæði og svo sé
enn, enda þótt merkja megi breyt-
ingar þar á. Komi þar til mikil
óánægja fólks vegna þess forms á
eignarskattsstofni sem hafi verið við
lýði og sé íþyngjandi.
Þar kemur fram að nálægt 85%
þeirra sem eru 67 ára og eldri eru
eigendur þess íbúðarhúsnæðis sem
þeir búa í. Á stærstum hluta þessara
eigna hvíla litlar eða engar skuldir
og af þeim sökum greiða flestir
þessara íbúðareigenda eignarskatt.
Ennfremur er á það bent, að
álagning eignarskatts hafi íþyngj-
andi fjárhagsleg áhrif á ekkjur og
ekkla, enda þótt þau fái fimm ára
aðlögun frá andláti maka. Segir að
slíkar ráðstafanir hafi misst marks
vegna mikillar hækkunar fasteigna-
verðs. Eignarskattur komi misjafn-
lega niður á þessu fólki, og geti orð-
ið allt að fimmfalt hærri hjá
einstaklingi en hjá hjónum, enda
þótt um sambærilega eign sé að
ræða.
Í reynd um
tvísköttun að ræða
„Um fasteignir ætti að gilda sú al-
menna regla að á þær verði ekki
lögð önnur eignagjöld en fasteigna-
gjöld sveitarfélaga. Víðast eru fast-
eignagjöld aðaltekjustofnar sveitar-
félaga og er vægast sagt óráðlegt að
ríkið sé að seilast lengra ofan í vasa
skattborgaranna með því að gera
heimili þeirra og húseignir að tekju-
stofnum fyrir síhækkandi eignar-
skatta. Röksemd fyrir afnámi eign-
arskatts er að í reynd er um
tvísköttun að ræða.“
Þingsályktunartillaga fimm
þingmanna Sjálfstæðisflokks
Lagt til afnám
eignarskatts á
íbúðarhúsnæði
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, sagðist
vera óhress með þá niðurstöðu að
viðgerð á varðskipunum Ægi og Tý
færi fram í Póllandi. Hún sagði að
þrír ráðherrar hefðu beitt sér í mál-
inu, en niðurstaða Ríkiskaupa væri
sú að tilboð Pólverjanna væri lægra
en íslenskra skipasmíðastöðva og við
það yrði að una.
Ráðherra lét þessi orð falla við
fyrirspurnatíma á Alþingi í gær, en
Kristján L. Möller, Samfylkingunni,
beindi spurningum til hennar. Vísaði
hann til þess að VSÓ-ráðgjöf á Ak-
ureyri hefði komist að þeirri niður-
stöðu að viðgerð skipanna væri ódýr-
ari hér á landi.
„Mér er sagt að það sé óhjá-
kvæmilegt að ganga að lægra tilboð-
inu og það sé frá Póllandi,“ sagði
Valgerður. Hún sagði að nú væru
komnar nýjar tölur frá VSÓ og það
setti málið aftur í umræðuna. Hins
vegar kvaðst hún vona að þetta mál
yrði til þess að slík mál og raunar
fleiri yrðu skoðuð með öðrum huga í
framtíðinni, með það í huga að skapa
verkefni hér á landi.
Kristján Möller sagði í andsvörum
að hann væri ekki sáttur við svör
ráðherra og að með ólíkindum væri
að ekki hefði orðið meiri árangur af
átaki þriggja ráðherra í þessum efn-
um. Þá fór hann fram á að „óvilhall-
ir“ aðilar færu yfir útreikninga og
tilboð í þessu máli og sagði að Rík-
iskaup væru ekki slíkur aðili.
Telur Ríkiskaup hafa
staðið faglega að málum
Ólafur Örn Haraldsson, þingmað-
ur Framsóknarflokks, beindi fyrir-
spurn um sama mál til Sólveigar Pét-
ursdóttur, dómsmálaráðherra og
yfirmanns Landhelgisgæslunnar.
Sagðist Sólveig myndu skoða málið
enn frekar, en lagði áherslu á að þeg-
ar hefðu komið að því ráðherrar og
verið hefði fullur pólitískur vilji fyrir
nákvæmri skoðun með það fyrir aug-
um að koma þessu verkefni til ís-
lenskra skipasmíðastöðva. Engu að
síður hefði niðurstaðan orðið sú að
taka pólska tilboðinu. Ríkiskaup
hefðu staðið faglega að málum, en ef
til vill mætti í framtíðinni standa fyr-
ir námskeiði fyrir innlendar skipa-
smíðastöðvar um hvernig best væri
að standa að útboðum af þessu tagi.
Viðgerð á varðskipum
rædd á Alþingi
Ráðherra
óhress
með nið-
urstöðuna