Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 26
ERLENT 26 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ SAMKVÆMT óformlegri talningu dagblaðsins Miami Herald hefði Al Gore ekki fengið nægilegan fjölda atkvæða í Flórída til að vinna sigur á George W. Bush í bandarísku for- setakosningunum, þótt hæstiréttur hefði heimilað að lokið yrði við hand- talningu atkvæða í ríkinu. Miami Herald fékk endurskoðun- arfyrirtæki til að handtelja atkvæði í Miami Dade-sýslu og niðurstaðan var sú að Gore hefði ekki bætt við sig nema 49 atkvæðum. „Þá hefði vantað 140 atkvæði upp á til að vinna upp forskot Bush, jafnvel þótt tekið væri tillit til aukningar Gores í Volusia, Palm Beach og Broward – þeim þremur sýslum öðrum þar sem Gore fór fram á handtalningu,“ seg- ir í blaðinu í gær. Enga merkingu að finna á nær helmingi kjörseðlanna Mark Siebel, fréttastjóri hjá Miami Herald, segir að um 15 blaða- menn og talningamenn hafi rann- sakað 10.644 vafaatkvæði frá þess- um sýslum og tekið er fram að talningarmennirnir hafi notað víð- ustu mögulegu skilgreiningu á því hvenær atkvæði teldist gilt. Taldir voru kjörseðlar sem talningarvélar höfðu afgreitt sem auða eða ógilda. Samkvæmt niðurstöðum Miami Herald mátti túlka 1.555 seðlanna sem atkvæði greidd Gore, en 1.506 sem atkvæði greidd Bush. 106 seðla mátti túlka sem atkvæði greidd öðr- um frambjóðendum og á 527 seðlum var merkt við fleiri en einn fram- bjóðanda. Á 4.892 seðlum var enga merkingu að finna en á 2.058 seðlum hafði verið gatað út fyrir þau svæði sem merkt voru frambjóðendum. „Margir áttu von á að talningin leiddi í ljós fjölmörg ótalin atkvæði greidd Gore, en svo reyndist ekki vera,“ sagði aðalritstjóri blaðsins, Martin Baron, á sunnudag. Eftir forsetakosningarnar 7. nóv- ember sl. fór Al Gore fram á end- urtalningu vafaatkvæða í nokkrum sýslum Flórída vegna þess hve mjótt var á munum í ríkinu, en nið- urstaðan þar réð úrslitum kosning- anna. Gore játaði sig sigraðan 13. desember, eftir að hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði að hand- talning atkvæða í nokkrum sýslum Flórída stangaðist á við stjórnar- skrána. Repúblikanar segja niðurstöðuna styrkja Bush Repúblikanar segja niðurstöður talningar Miami Herald benda til þess að George W. Bush hafi allan tímann verið réttmætur sigurvegari forsetakosninganna. „Bush var löglega kjörinn á kjör- dag. Hann hafði unnið sigur strax og niðurstöður fyrstu véltalningar- innar í ríkinu lágu fyrir,“ sagði Mark Wallace, lögmaður Repúblik- anaflokksins í Miami í samtali við AP-fréttastofuna í gær. Demókratar túlka niðurstöðu Miami Herald hins vegar þannig að hvorug fylkingin hefði getað séð fyr- ir um úrslit endurtalningar. „Þetta sýnir enn betur hversu óútreiknanleg endurtalning hefði verið fyrir báða aðila,“ hafði AP í gær eftir Doug Hattaway, fyrrver- andi talsmanni fyrir kosningabar- áttu Gores. „Þetta sýnir að viðleitni Bush til að tefja og koma í veg fyrir endurtalningu atkvæða kom honum í raun ekki til góða.“ Fleiri fjölmiðlar láta skoða vafaatkvæði Nokkur bandarísk dagblöð og fréttastofur hafa tekið sig saman og fengið óháða rannsóknastofnun til að skoða vafaatkvæðin í Flórída. Stofnunin mun fara yfir 180 þús- und kjörseðla frá öllum 67 sýslum ríkisins, sem talningarvélar höfðu afgreitt sem auða eða ógilda. Aðeins verður reynt að lýsa merkingum á seðlunum en ekki að fullyrða hvort þeir hefðu átt að teljast gild at- kvæði. Búist er við að talningunni verði lokið fyrir aprílbyrjun, en meðal þeirra fjölmiðla sem standa að henni eru The New York Times, The Washington Post, CNN, The Wall Street Journal og AP-frétta- stofan. Óformleg endurtalning dagblaðsins Miami Herald á atkvæðum í Flórída Gore hefði ekki haft sigur Miami. AFP, AP. Reuters Frá endurtalningu vafaatkvæða í Miami Dade-sýslu í desember sl. LÖGFRÆÐINGAR Banda- ríkjastjórnar og Microsoft komu í gær fyrir áfrýjunar- dómstól og þar ætluðu fulltrúar tölvufyrirtækisins að reyna fá hnekkt þeim úr- skurði annars dómstóls, að það hefði brotið lög um einok- unarfyrirtæki og skyldi skipt upp. Málflutningur fyrir áfrýj- unardómstólnum átti að taka tvo daga en ekki er vitað hve- nær hann kveður upp sinn úr- skurð. Mun hann annaðhvort staðfesta eða hafna dómi frá í apríl fyrir ári þar sem sagði að Microsoft hefði nýtt sér yf- irburði sína og reynt að koma í veg fyrir samkeppni. Þá vilja lögfræðingar fyrirtækis- ins, að afturkölluð verði fyr- irmæli um, að því verði skipt upp í tvö fyrirtæki og fram- leiði annað stýrikerfin en hitt hugbúnaðinn. Ýmsir lögspek- ingar telja að Microsoft geti gert sér góðar vonir um að fá sínu framgengt í þessu máli. Microsoft fyrir áfrýjunardómstól Vill fá fyrri dómi hnekkt Washington. AFP. ÓTTAST er að kindur, smitaðar gin- og klaufaveiki, hafi verið fluttar til annarra Evrópulanda frá Bret- landi en Bretar flytja út lifandi kind- ur fyrir 32 milljónir punda árlega. Í gær hittust landbúnaðarráðherrar Evrópusambandsins í Brussel, þar sem Nick Brown landbúnaðarráð- herra upplýsti starfsbræður sína um ástandið. „Allir verða að vera á verði og ferðir upp í sveit í nágrenni við hús- dýr ættu ekki að eiga sér stað,“ hef- ur Ben Gill, forseti bresku bænda- samtakanna, lýst yfir hvað eftir annað í breskum fjölmiðlum undan- farið. Það var þó misjafnt eftir hér- uðum, hvað fólk tók þær ábendingar til sín og kæruleysi sums staðar olli gremju hjá bændum er álitu fólk sýna lítinn skilning á alvöru málsins. Breska landbúnaðarráðuneytið er þegar komið með ítarlegar upplýs- ingar á heimasíðu sinni og breskur landbúnaður nánast í herkví, enda er gin- og klaufaveikin bráðsmitandi og leggst á öll húsdýr, sem eru klauf- dýr, en einnig á rottur. „Þetta var það sem breskur land- búnaður mátti síst við,“ sagði Tony Blair forsætisráðherra er hann heyrði af veikinni. Það má með sanni segja, því breskur landbúnaður er varla búinn að rétta við eftir að kúa- riða skelfdi neytendur og stöðvaði útflutning á nautakjöti 1996-1999. Margir óttast að pestin nú ýti enn undir samdrátt í breskum landbún- aði. Auk þess sem fólk er hvatt til að vera ekki á ferð um landbúnaðar- svæði Bretlands að nauðsynjalausu, er búið að koma upp sóttkvíum í kringum bóndabæi og sláturhús, þar sem smit hefur verið staðfest eða grunur leikur á smiti. Veiðar verða lagðar niður í viku til að byrja með, bændur eru hvattir til að leggja strámottur vættar sótt- hreinsandi efnum við aðkomu á land- areignum sínum og pósturinn er lagður við hliðin, en ekki borinn heim. Strax var sett flutningsbann á lifandi dýr og landbúnaðarafurðir. Eftir ný tilfelli um helgina, dreifð um allt land, er óttast að faraldurinn nú verði enn verri en 1967, þegar yf- ir 400 þúsund dýrum var fargað. Náðarhögg fyrir breskan landbúnað? Gin- og klaufaveiki smitar fólk ekki nema í hreinum undantekn- ingatilfellum, en er bráðsmitandi dýrasjúkdómur, sem smitast jafn auðveldlega og flensa milli manna. Þetta er vírussjúkdómur, þar sem vírusinn getur smitast bæði við snertingu og um loft. Einkennin koma í ljós innan 48 tíma frá smiti og eru lömun, lystarleysi og síðan vætl- andi útbrot við kjaft og klaufir dýr- anna. Útflutningsverðmæti nautakjöts fyrir bannið 1996 var 520 milljónir punda á ári, en í fyrra fluttu Bretar út nautakjöt fyrir fimm milljónir. Á undanförnum tíu árum hefur starfs- mönnum í landbúnaði, mörgum að- eins í hálfu starfi, fækkað úr 660 þúsund í 550 þúsund. Bændur eru um 250 þúsund í Bretlandi en 40 þúsund hafa lagt niður búskap und- anfarin tvö ár. Styrkir til bresks landbúnaðar, bæði innlendir og ESB-styrkir, nema um 4 milljörðum punda á ári, en framleiðsluverðmæti bresks landbúnaðar er um 7,6 millj- arðar punda svo um styrkina munar. Nútíma landbúnaðarhættir ýta undir smithættu Gin- og klaufaveiki hefur gætt í Bretlandi síðan á 19. öld. Árið 1981 komu upp nokkur tilfelli, en síðasti faraldurinn gekk yfir 1967. Pestin braust út í október, fyrstu vikuna komu upp tilfelli á 23 bæjum, á þriðju vikunni voru komin upp 400 tilfelli og samtals urðu þau 2.364, þegar allt var gengið yfir í júní árið eftir. Herinn aðstoðaði við að farga dýrum og 434 þúsund húsdýrum var slátrað. Margir muna hrækestina víða um sveitir, þar sem hræin voru brennd og þau síðan urðuð. Það er enn of snemmt að segja til um hver framvindan verður nú. Grunur leikur á að pestin hafi komið upp á ákveðnum bóndabæ, en það veit enginn fyrir víst enn. Kenning- arnar eru margar. Ólöglegur inn- flutningur dýra er einn möguleikinn, en samgöngur yfirleitt geta ýtt und- ir smit, hvort sem eru ferðamenn eða ólöglegir innflytjendur. Á und- anförnum árum hefur pestin komið upp víðar en nokkru sinni áður, í sextíu löndum, jafnvel þar sem hennar hefur ekki gætt í eina kyn- slóð. Auk þessa ýta aðstæður í nútíma landbúnaði einnig undir smithættu. Dýr eru ekki aðeins flutt milli lands- hluta, heldur milli landa. Um helgina kom upp tilfelli hjá bónda, sem á þrettán bæi um allt Bretland, flytur dýr á milli bæjanna og til útlanda og kaupir dýr á mörk- uðum, sem hann var einmitt nýbúinn að gera. Í fyrra fluttu Bretar út lif- andi sauðfé fyrir 32 milljónir punda, mest til Frakklands, en einnig til Hollands, Ítalíu, Þýskalands og Grikklands. Sláturhúsum hefur farið fækkandi undanfarin ár, litlum sláturhúsum lokað og sláturhús orðið færri og stærri. Ef smit uppgötvast í slátur- húsi eru þar samankomin dýr víðs vegar að af landinu og því margir staðir að leita á. Allir eru þó sam- mála um að skjótar aðgerðir og mikil aðgæsla skipti öllu máli og því reyna bresk stjórnvöld nú að framfylgja. Yfirvöld landbúnaðarmála í Bretlandi bregðast hart við gin- og klaufaveikinni í landinu Logandi hrækestir lýsa upp sveitirnar AP Eftir slátrun er skrokkunum safnað saman í stóra kesti og þeir brenndir. Breskar sveitir eru nánast í umsáturs- ástandi vegna tilfella gin- og klaufaveiki, enda mörgum í minni faraldur 1967 þegar meira en 400 þúsund búfjárdýrum var slátr- að, segir Sigrún Davíðsdóttir. Nú lýsa hræ- kestir, þar sem verið er að brenna skrokk- ana, aftur upp sveitirnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.