Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 23
ÚR VERINU MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 23 MOKVEIÐI hefur verið á loðnumið- unum út af Snæfellsnesi síðan fyrir helgi en loðna hefur ekki látið sjá sig aftur fyrir austan land. Um 400.000 tonn eru eftir af kvótanum og þar sem hrognafyllingin í göngunni fyrir vestan er komin yfir 20% óttast menn að erfitt verði að ná kvótanum, ekki síst ef ekki fer að birta til fyrir austan. Mikið var að gera í öllum loðnu- verksmiðjum landsins um helgina. Þrjú skip lönduðu t.d. ríflega 3.200 tonnum hjá Tanga hf. á Vopnafirði í gær og í fyrradag og þar á meðal var Sunnuberg NS, sem var með um 1.250 tonn. Lárus Grímsson, skipstjóri á Sunnubergi, fór austurleiðina til baka vestur í þeirri von að hitta á loðnu en varð ekki að ósk sinni frek- ar en öðrum. „Það er alltaf þessi möguleiki að hitta á hana fyrir aust- an og því er farið þennan spotta þótt það sé ívið lengra, því ef hún brestur á sparar það fleiri, fleiri klukkutíma. Samband var haft við öll fley á svæð- inu en enginn hafði séð neitt. Að vísu voru einhverjar hreytur úti í djúp- köntunum en það var ekki neitt, neitt.“ Að sögn Lárusar er nóg eftir í göngunni við Snæfellsnes en hrognafyllingin er skelfilega langt komin, eins og hann orðar það. Hann segir það mikinn misskilning að blanda hugsanlegu verkfalli við um- ræðuna fyrir vestan því loðnan í göngunni verði löngu búin að hrygna og horfin fyrir 15. mars. „Það eru svona 10 til 12 dagar eftir,“ segir hann. Tangi hefur fryst þó nokkuð af loðnu á Rússlandsmarkað en Lárus segir að hrognafyllingin sé of mikil fyrir Japansmarkað því Japanir vilji ekki að hrognafyllingin sé mikið meiri en 20%. „Þetta er skelfileg staða, en sem betur fer finnst Rússanum bara betra að hafa smá átu í loðnunni því hún kryddar hana svolítið. En við erum skelfingu lostnir því þetta eru engin afköst hjá okkur þegar túrinn tekur fjóra sólarhringa, ef allt gengur upp.“ Hann segir ennfremur að komi ekki loðna fyrir austan bitni það illa á bræðslunum á Austurlandi. „Ef eitthvað kemur fyrir austan eigum við möguleika á að ná kvótanum en staðan er ekki góð og jafnvel óskilj- anleg. Reyndar hefur hún farið utan við kantana og eitt árið kom hún upp við Reykjanes öllum að óvörum.“ Morgunblaðið/RAXLoðnusjómenn hafa veitt grimmt að undanförnu í skjóli Snæfellssjökuls. Morgunblaðið/Sigurgeir Ísleifur VE landaði um 1.100 tonnum af loðnu í Eyjum á sunnudag. Mokveiði út af Snæfellsnesi NIÐURSTÖÐUR bráðabirgða- skýrslu stjórnvalda á Nýfundnalandi gefa til kynna að ekki megi kenna aukinni selagengd á fiskimiðum við landið um hnignum fiskistofna. Sjó- menn á Nýfundnalandi hafa lengi haldið því fram að vöðuselir séu á góðri leið með að leggja fiskistofnana í rúst og hafa hvatt til stórfelldra sel- veiða til að halda selastofninum í skefjum. Sjómenn segja að selirnir bíti í kvið þorska, sjúgi úr þeim lifrina og skilji rotnandi hræin eftir. Nefnd sem skipuð var til að rannsaka afrán selanna heldur því hinsvegar fram að þótt selir éti mikið af fiski liggi ekki fyrir nein vísindaleg sönnun fyrir því að hnignun þorskstofnsins megi rekja beint til þess. Niðurstaðan hefur vak- ið hörð viðbrögð meðal fiskimanna á Nýfundnalandi en dýraverndunar- sinnar segjast í sjöunda himni, nú liggi fyrir að ekki þurfi að drepa seli til verndar fiskinum. Ekki selnum að kenna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.