Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. K rabbameinsfélag Íslandsmun í tilefni 50 ára af-mælis félagsins á þessuári efna til landssöfnun- ar til styrktar félaginu laugardag- inn 3. mars nk. og er þetta fjórða landssöfnunin sem félagið stendur fyrir. Um 1.040 krabbamein grein- ast nú árlega hér á landi og hefur tíðni þeirra í heild aukist um 1,2% á ári frá því að skipuleg skráning hófst árið 1954. Tíðni krabbameins í blöðruhálskirtli hefur nær fimm- faldast og er orðið algengasta krabbamein karla. Brjóstakrabba- mein er algengasta krabbamein kvenna og er orðið tvöfalt algeng- ara en fyrir fjórum áratugum. Tíðni lungnakrabbameins hefur nær þre- faldast hjá körlum og meira en fjór- faldast hjá konum en tíðni maga- krabbameins er nú aðeins þriðjungur af því sem áður var. Þá er tíðni leghálskrabbameins einnig aðeins þriðjungur af því sem var um skeið en þar hefur leit að sjúk- dómnum á forstigi haft áhrif. Markmiðið með söfnuninni að þessu sinni er að auka þjónustu við krabbameinssjúklinga. Ætlunin er að efla þátt endurhæfingar við að hjálpa sjúklingum til að komast út í lífið á nýjan leik eftir meðferð við sjúkdómnum. Þá er ætlunin að efla forvarnir og treysta aðra núverandi starfsemi Krabbameinsfélagsins. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er sérstakur verndari landssöfnunarinnar en Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er verndari Krabbameins- félagsins. Þau munu bæði leggja söfnuninni lið og eiga það sam- merkt að hafa þurft að glíma við krabbamein og afleiðingar þess í sínu persónulega lífi og leggja mikla áherslu á eflingu Krabba- meinsfélagsins og þess starfs sem þar fer fram. Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, kynnti söfnunina á blaðamannafundi í gær og sagði einkunnarorð söfnunar- innar byggjast á því að einn af hverjum þremur Íslendingum geti vænst þess að fá krabbamein á lífs- leiðinni. Hins vegar séu allir þannig gerðir að þeir vilji sleppa við það sem vont er, hvort sem það eru slys eða sjúkdómar, og því sé raunin yf- irleitt að þrír af hverjum þremur telji að þeir sjálfir sleppi við að fá krabbamein. Landssöfnunin verður tvíþætt að þessu sinni, annars vegar verður leitað til einstaklinga með margvís- legum hætti og hins vegar leitað sérstaklega eftir stuðningi fyrir- tækja í landinu. Gengið verður í hús í samvinnu við Kiwanis og Lions, safnað í samvinnu við út- varpsstöðvar og í þætti í Sjónvarp- inu, á vefsíðu söfnunarinnar krabbamein2001.is og tekið við framlögum í síma 907 5050 og 750 5050. Krabbamein ekki lengur dauðadómur Að sögn Guðrúnar er krabba- mein vaxandi vandamál á Íslandi, líkt og í flestum vestrænum sam- félögum. „Því miður þekkjum við ekki ástæðurnar fyrir því í mörgum tilvikum en fyrir 40 árum greindust 300–400 manns á hverju ári og nú eru það rúmlega 1.000. Norræn rannsókn krabbameinsskráa á Norðurlöndunum sýnir okkur að ef við höfumst ekkert að til að draga úr, má vænta þess að tíðnin auk- ist.“ Sé tekið mið af spám munu eftir einn áratug greinast 1.300 til 1.400 ný tilfelli af krabbameini hér á landi á hverju ári og samkvæmt upplýsingum Krabbameinsfélags- ins er nýgengi krabbameins hærra í Reykjavík og Reykjanesi en ann- ars staðar á landinu. Þá hefur tíðni húðkrabbameins hjá konum á aldr- inum 15 til 34 ára tvöfaldast á síð- ustu tíu árum og er það rakið til aukinna sólbaða og notkunar ljósa- bekkja. Samkvæmt nýjum útreikningum úr krabbameinsskránni getur þriðji hver Íslendingur búist við því að greinast með krabbamein einhvern tímann fyrir 85 ára aldur. Um 1.040 krabbamein eru greind hér á landi árlega, þar af 530 hjá körlum og 510 hjá konum miðað við meðaltal áranna 1995–1999. Að sögn Guð- rúnar er aldur þjóðarinnar megin- ástæðan fyrir þessari aukningu, ís- lenska þjóðin sé mjög ung og því hlutfallslega að eldast en krabba- mein er fremur sjúkdómur efri ára. Af þeim sem greindust með krabbamein á árunum 1995–1999 voru innan við 2% undir tvítugu, 6% á aldrinum 20–40 ára, 22% frá 40–60 ára, 54% á aldrinum 60–80 ára og 16% voru áttræðir eða eldri. Meðalaldur karla við greiningu er rúm 67 ár og meðalaldur kvenna er rúm 62 ár. Þrátt fyrir aukna tíðni krabba- meins hafa lífslíkur krabbameins- sjúklinga hins vegar batnað á und- anförnum árum vegna bættrar greiningar og framfara í meðferð- um. Guðrún segir að í dag lifi mun fleiri en áður, um 53% karla og 59% kvenna lifa í fimm ár eða lengur eftir að hafa greinst með mein. Fyrir 30 árum vo krabbameinssjúklingar á eru á lífi um 7.200 eins sem fengið hafa krabbam mennustu hóparnir eru 1.4 með brjóstakrabbamein, 8 með blöðruhálskirtilskra 450 karlar og konur m krabbamein og 380 karlar með þvagblöðrukrabbame „Krabbamein er ekki dauðadómur eins og leng margir óttast enn í dag. E sjúkdómur og oft erfiður ur sem hægt er að vinna segir Guðrún. Sífellt fleiri þurfa endurhæfingu að h Í samtali við Morgunbla Guðrún það líklega efst varðandi tilgang söfnunar skipuleggja ráðgjafateymi beitt sér fyrir aukinni e ingu við krabbameinssjúkl erum við fyrst og fremst a heilbrigðisstarfsfólk, læk fræðinga og sjúkraþjálf taka á móti sjúklingum s hafa meðferð. Eru kanns og veru orðnir líkamlega h ir, ef maður getur sagt sem ekki búnir að finna fótfestu að fara út í lífið. Okkur l styðja þá til þess og stytt batatíma þannig að fólk k að njóta þeirra lífsgæða þeirra.“ Guðrún sagði að aukn horfur á undanförnum á sem vonir stæðu til að a frekar, leiddu til þess a fleiri einstaklingar þyrftu hæfingu að halda til þess a í lífið á nýjan leik. „Þetta v veg í okkar heilbrigðiskerf mjög gott að mörgu leyt viljum beita okkur fyrir þessu verði komið á lagg gera okkar í því að veita þ gjöf. Til þess þurfum við fé Þá sagði Guðrún nauðsy treysta enn frekar það fo starf sem nú þegar væri u Krabbameinsfélaginu, t.d. efla forvarnir gegn reykin mesta heilsubót sem la ættu kost á væri að h reykja. Auk þess sagði Gu nauðsynlegt að treysta starf félagsins. Ríflega 1.000 gr með krabbamei Krabbameinsfélag Íslands kynnti í gær fyrirhugaða landssöfn verandi forseta Íslands. Á myndinni eru frá vinstri Guðrún A Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og verndari söfnunari seti Íslands og verndari Krabbameinsfélagsins, og Sigurður Íslendingar greinast sí- fellt fleiri með krabba- mein á hverju ári. Leit- arstarf og framfarir í meðferð sjúklinga hafa þó aukið lífslíkurnar og fleiri þurfa á endurhæf- ingu að halda til þess að komast út í lífið á ný. Eiríkur P. Jörundsson kynnti sér í gær mark- mið landssöfnunar Krabbameinsfélagsins. Fyrrverandi og núverandi forseti taka höndum sa RÉTTUR EÐA VERND DÝRA AÐILD AÐ ALÞJÓÐA- HVALVEIÐIRÁÐINU Mælt er með því að „Ísland geristaðili að Alþjóðahvalveiði-ráðinu á ný og að unnið verði markvisst að undirbúningi þess að hval- veiðar hefjist sem fyrst“, í þeim drögum að ályktunum flokksþings Framsókn- arflokksins sem til umfjöllunar voru á miðstjórnarfundi flokksins um síðustu helgi. Þetta er ekki endanleg afstaða flokksins, enda verður flokksþingið ekki haldið fyrr en í næsta mánuði. Engu að síður er athyglisvert og ánægjulegt að tillaga um inngöngu í hvalveiðiráðið skuli nú til umfjöllunar í öðrum stjórnarflokknum. Morgunblaðið lagðist eindregið gegn úrsögn Íslands úr Alþjóðahvalveiði- ráðinu er hún var ákveðin í árslok 1991. Rök blaðsins fyrir þeirri afstöðu voru m.a. þau að lítið ríki eins og Ísland verði að afla málstað sínum fylgis innan við- urkenndra alþjóðasamtaka og að sú ákvörðun að hverfa frá samstarfi innan hvalveiðiráðsins sé ekki í neinu sam- ræmi við þá starfshætti sem annars hafi einkennt þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi. Hæpið sé að ætla að byggja ákvörðun um að hefja hvalveiðar á nýj- an leik á aðild Íslands að Norður-Atl- antshafssjávarspendýraráðinu (NAMMCO) og að úrsögnin skaði í raun möguleika Íslands á að hefja hvalveiðar á nýjan leik. Raunar hefur ekkert kom- ið fram sem bendir til að úrsögnin úr Alþjóðahvalveiðiráðinu hafi styrkt stöðu Íslands á nokkurn hátt, enda sátu önnur hvalveiðiríki áfram í ráðinu. Því hefur með tilvísun til vísinda- legra rannsókna verið haldið fram, að ýmsir hvalastofnar hér við land séu ekki í neinni útrýmingarhættu og þoli veiðar. Morgunblaðið hefur bent á þá hræsni sem felst í afstöðu ýmissa ríkja, t.d. Bandaríkjanna, sem leggjast gegn hvalveiðum Íslendinga og fleiri þjóða en knýja á um undanþágur vegna hval- veiða frumbyggja í Bandaríkjunum og horfa fram hjá dauða fjölda hvala vegna hernaðartilrauna bandaríska flotans. Engu að síður dregur Morgunblaðið í efa, að forsendur hafi skapazt enn sem komið er til að hefja hvalveiðar á nýjan leik. Ástæður þeirrar afstöðu eru í fyrsta lagi að slíkt gæti haft neikvæð áhrif á markaði fyrir íslenzkar sjávar- afurðir erlendis vegna þess hversu út- breidd andstaðan við hvalveiðar er meðal neytenda í helztu viðskiptalönd- um okkar. Það er staðreynd sem við getum ekki horft fram hjá. Í öðru lagi er hætta á að hagsmunir ferðaþjónust- unnar bíði skaða af, ekki sízt vegna sí- vaxandi ásóknar erlendra ferðamanna í hvalaskoðunarferðir og vaxandi tekna af þeirri starfsemi. Í þriðja lagi hefur enn ekki verið sýnt fram á að neinn markaður að ráði sé fyrir hvalaafurðir. Þau vandkvæði, sem virðast á slíkum útflutningi Norðmanna þessa dagana, benda ekki til að sú forsenda hafi breytzt. Þær breytingar geta orðið í umhverfi okkar, að rétt sé að hefja hvalveiðar á ný. En þá skiptir höfuðmáli að sú ákvörðun sé tekin í sátt við önnur ríki og slíkt getur aðeins gerzt með því að Ísland eigi aðild að Alþjóðahvalveiði- ráðinu. Þess vegna er jákvætt að aðild sé nú til umræðu í stjórnarliðinu og vonandi er sú umræða aðeins fyrsta skrefið í átt til þess að Ísland gangi aft- ur í ráðið. Umræða um aðbúnað dýra semræktuð eru til manneldis og for- sendur manna til að nýta sér þá auðlind sem villt dýr eru hefur farið vaxandi undanfarna áratugi. Athygli vekur að sú umræða snýst ekki lengur eingöngu um dýravernd heldur er nú einnig farið að ræða um réttindi dýra á svipuðum nótum og rætt er um réttindi manna. Í grein Sigrúnar Davíðsdóttur sem birt- ist í Morgunblaðinu sl. sunnudag fjallaði hún um hugmyndafræði sem al- farið hafnar nýtingu dýra á hefðbund- inn máta á þeirri forsendu að eiginleiki dýranna til að þjást geri þau jafnrétthá mönnum. Samkvæmt þessari hug- myndafræði er allri neyslu á afurðum sem rekja má til dýraríkisins hafnað, hvort heldur sem um er að ræða kjöt, fisk, egg, mjólkurvörur, leður, skinn, matarlím eða annað þess háttar, þar sem fylgjendur hennar telja að dýr hafi rétt til lífs óháð hagsmunum manna. Hugmyndafræðileg stefnumörkun af þessu tagi er öfgakennd þar sem í henni felst að réttindi dýra og manna eru nánast lögð að jöfnu. Á undanförnum áratugum hefur töluvert áunnist í baráttu dýravernd- unarsamtaka fyrir verndun dýra og viðunandi aðbúnaði þeirra og er það vel. Sem dæmi um slíkt má nefna að neytendur í Evrópu virðast flestir vera tilbúnir til að borga hærra verð fyrir af- urðir á borð við svínakjöt, kjúklinga og hænuegg sem framleidd eru á búum þar sem horfið hefur verið frá fjölda- framleiðslu og hámarksafkostum í ómannúðlegu umhverfi. Þess í stað tek- ur framleiðsluferlið mið af eldri gildum hefðbundins búskapar til sveita þar sem náttúrulegt umhverfi er nýtt til skepnuhalds. Reynsla undanfarinna ára, m.a. af hörmulegum afleiðingum í nautgriparækt þar sem gengið var mjög langt í nýtingu á sláturúrgangi sem að lokum orsakaði kúariðufarald- urinn, hefur að sama skapi ýtt undir breyttar áherslur í framleiðsluháttum til að þjóna kröfum neytenda um heilsusamlega vöru. Einnig er ljóst að flestir neytendur sætta sig ekki lengur við að vörur sem tilheyra daglegu lífi, svo sem hreinlæt- is- og snyrtivörur, séu reyndar á dýr- um. Almenningur er sömuleiðis í sívax- andi mæli farinn að marka sér skoðun á því hvað sé réttlætanlegt þegar kemur að því að nýta afurðir unnar úr dýrum. Fæstir sætta sig núorðið við dráp á dýrum sem eru í útrýmingarhættu, svo sem skjaldbökum, nashyrningum og fílum, né heldur við að dýr séu drepin einungis til að nýta mjög takmarkaðan hluta þeirra í lúxusmatvöru. Skynsamlega afmarkaður réttur manna til að lifa af með því að nýta sér dýr á siðlegan og hófsaman hátt hlýtur að vera æðri rétti dýra, að því tilskildu að maðurinn beri tilhlýðilega virðingu fyrir umhverfi sínu og gæti þess að raska ekki náttúrlegu jafnvægi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.