Morgunblaðið - 27.02.2001, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 61
DAGBÓK
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
Vorvörur
Ný sending vikulega
Alltaf sama góða verðið.
Sjúkravörur ehf.
Blóðsykurs- og blóðþrýstingsmælingar
í dag milli kl. 14 og 16.
Kynning
á hinu vinsæla sælgæti fyrir sykursjúka
frá Estee með 15% afslætti
Tilboðsdagar
15% afsláttur af hinum geysivinsælu
Aðeins í þrjá daga.
25% afsláttur og meira af völdum tegundum.
Einnig veitum við 15% afslátt af sjúkra- og
stuðningssokkum.
Sjúkravörur ehf.
Verslunin Remedia í bláu húsi við Fákafen,
sími 553 6511.
Pennie
og Annie hi
ALLIR bridsspilarar eru
sannir auðvaldssinnar sem
svífast einskis í taumlausri
sókn sinni eftir hámarks-
slögum. Sex grönd er fínn
samningur – ellefu slagir í
verðtryggðum skuldbréf-
um og vaxtamöguleikar í
tveimur litum. En vandinn
er sá að varðveita hags-
munina í báðum litum:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ KG87
♥ DG
♦ K652
♣ G63
Suður
♠ ÁD6
♥ Á3
♦ ÁDG10
♣ ÁK97
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 2 lauf
Pass 2 tíglar Pass 2 grönd
Pass 6 grönd Allir pass
Útspil vesturs er spaða-
tía. Hver er áætlunin?
Fjórir á spaða, hjartaás,
fjórir á tígul og ÁK í laufi.
Samtals ellefu. Laufið er
mikill vonarpeningur og
vissulega kemur vel til
greina að taka á ásinn og
spila smáu að gosanum.
En eigi austur drottn-
inguna (og tían hefur ekki
látið sjá sig) er óþægilegt
að fá hjarta til baka. Þá
þarf að velja um svíningu
þar eða treysta á á að
lauftían falli þriðja. Eitt-
hvað betra hlýtur að vera í
boði.
Norður
♠ KG87
♥ DG
♦ K652
♣ G63
Vestur Austur
♠ 1094 ♠ 532
♥ K1054 ♥ 98762
♦ 97 ♦ 843
♣ D1052 ♣ 84
Suður
♠ ÁD6
♥ Á3
♦ ÁDG10
♣ ÁK97
Auðvitað. Spaðatían er
heldur ólíklegt útspil frá
fjórlit, þar eð 87 vantar í
litinn. Ef vestur á þrjá
spaða mest er hægt að
samnýta möguleikana í
hjarta og laufi. Sagnhafi
tekur ÁD í spaða, laufás
og ÁDG í tígli. Fer svo inn
á blindan á spaða og spilar
smáu laufi. Ef tían eða
drottningin kemur frá
austri er málið afgreitt, en
áttan er ágæt líka. Suður
lætur níuna og vestur
verður að spila hjarta frá
kóngi eða laufi upp í gaff-
alinn.
Af hverju mátti vestur
ekki eiga fjóra spaða? Jú,
sagnhafi getur ekki tekið
fjórða spaðann með góðu
móti því að þá þarf hann
að fleygja annaðhvort laufi
eða hjarta heima.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
STAÐAN kom upp á meist-
aramóti Taflfélagsins Hellis
sem lauk fyrir skömmu.
Þorvarður Fannar Ólafsson
(2055) hafði svart gegn
Sveinbirni Jónssyni (1640)
og tókst þeim fyrrnefnda að
knýja fram sigur
með einfaldri og
snoturri fléttu. 21.
...Dxf4! Hvítur á
sér ekki viðreisnar
von eftir þetta enda
fýkur í hafið að
minnsta kosti peð
og skiptamunur.
22. exf4 Rd3+ 23.
Ke2 Rxc1+ 24.
Hxc1 Bxf4 25.
Hcc2 Ba4 26. g3
Bxc2 27. Hxc2 Be5
28. Ke3 Hed8 og
hvítur gafst upp.
Lokastaða mótsins varð
þessi: 1. Davíð Ólafsson 7
vinningar af 7 mögulegum,
2.–6. Sigurður Daði Sigfús-
son, Sigurbjörn Björnsson,
Sævar Bjarnason, Róbert
Harðarson og Jón Árni
Halldórsson 5 v. 7.–10.
Björn Þorfinnsson, Þorvarð-
ur F. Ólafsson, Baldur A.
Kristinsson og Kjartan Guð-
mundsson 4½ v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins: Lang-
lundargeð þitt og skilningur
er fólki oft undrunarefni en
gagnvart sjálfum þér þarftu
fyrst og fremst að leggja
áherslu á innra jafnvægi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert með mörg járn í eld-
inum og þarft að hafa þig allan
við svo að ekkert fari nú úr-
skeiðis. Gættu þess samt að
teygja þig ekki of langt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Einhver óvænt uppákoma
verður til þess að draga að sér
athygli þína og það má engu
muna að þú missir tökin á því
sem þú ert að fást við.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það skiptir öllu máli að þú
leggir línurnar þannig strax í
byrjun að ekki fari á milli mála
hvert þú stefnir og með hvaða
hætti þú ætlar að hrinda hug-
sjón þinni í framkvæmd.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu það ekki á þig fá þótt
einhver smávandamál komi
upp í samskiptum þínum við
samstarfsmenn. Þessi vanda-
mál leysast af sjálfu sér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu ekki teygja þig út í rök-
ræður sem þú veist fyrirfram
að þú hlýtur að tapa. Einhver
ný manneskja kemur inn í líf
þitt með mikinn lærdóm.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Reyndu að sjá skóginn fyrir
trjám því þótt smáatriðin geti
verið heillandi þá skiptir öllu
að hafa heildarsýn og vita
hvernig vinna á henni braut-
argengi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er oft viturlegt að hverfa
frá verkefni sínu um stundar-
sakir til þess að líta það úr
meiri fjarlægð og öðlast nýja
sýn sem gefur ný sóknarfæri.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú þarft ekkert að blása í
lúðra til þess að koma málstað
þínum á framfæri. Reyndu að
temja þér meiri tillitssemi í
samskiptum við aðra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er um að gera að hafa eitt-
hvert það áhugamál sem gleð-
ur sálina en ávallt skyldi mað-
ur ganga hægt um gleðinnar
dyr og láta alvöru dagsins
ráða þar sem hún á við.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert nú í þeirri stöðu að þú
átt ekki annars úrkosta en
taka því sem að þér er rétt.
Sýndu þolinmæði á meðan að
þetta varir því fljótt skipast
veður aftur þér í hag.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú átt aldrei að missa trúna á
því að það sem þú ert að gera
getir þú borið fram til sigurs.
Allur efi hefur í sér fólginn
dauða og því máttu ekki
hleypa honum að.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Varastu að dæma hlutina af
fyrstu kynnum því oft ber yf-
irborðið ekki með sér hvað
undir býr. Gefðu þér því tíma
til þess að grandskoða málin.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
LJÓÐABROT
MÓÐURÁST
Fýkur yfir hæðir og frostkaldan mel,
í fjallinu dunar, en komið er él,
snjóskýin þjóta svo ótt og svo ótt.
Auganu hverfur um heldimma nótt
vegur á klakanum kalda.
Hver er in grátna, sem gengur um hjarn,
götunnar leitar – og sofandi barn
hylur í faðmi og frostinu ver,
fögur í tárum? En mátturinn þverr, –
hún orkar ei áfram að halda.
- - -
Svo, þegar dagur úr dökkvanum rís,
dauð er hún fundin á kolbláum ís.
Snjóhvíta fannblæju lagði yfir lík
líknandi vetur, – en miskunnarrík
sól móti sveininum lítur.
Því að hann lifir og brosir og býr
bjargandi móður í skjólinu hlýr,
reifaður klæðnaði brúðar, sem bjó
barninu værðir og lágt undir snjó
fölnuð í frostinu sefur.
- - -
Jónas Hallgrímsson.
70 ÁRA afmæli. Sjötug-ur verður fimmtu-
daginn 1. mars Sveinn
Teitsson, trésmiður og mál-
ari, Stangarholti 26,
Reykjavík. Sambýliskona
hans er Helga Guðjónsdótt-
ir. Þau taka á móti gestum á
Café Operu, Lækjargötu,
milli kl. 17 og 20 á afmæl-
isdaginn.
50 ÁRA afmæli. Í dagþriðjudaginn 27.
febrúar er fimmtug Halla
Guðmundsdóttir, Ásum í
Gnúpverjahreppi, Árnes-
sýslu. Eiginmaður hennar
er Viðar Gunngeirsson. Þau
hjónin eru að heiman.
50 ÁRA afmæli. Í dagþriðjudaginn 27.
febrúar verður fimmtug
Ásta Baldvinsdóttir, leið-
beinandi, Vallargerði 4,
Kópavogi. Hún og fjölskylda
hennar bjóða vinum og
vandamönnum að fagna
þessum áfanga með sér og
þiggja „brunch“ á heimili
hennar laugardaginn 3.
mars kl. 12.00 á hádegi.
FRÉTTIR
MARGRÉT Gústafsdóttir, dósent
við hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís-
lands, flytur fyrirlestur sem hún
kallar „Að gefa gaum að fjölskyld-
unni: Heimsóknir aðstandenda á
hjúkrunarheimili og viðbrögð starfs-
fólks við þeim“. Fyrirlesturinn verð-
ur haldinn fimmtudaginn 1. mars kl.
16.15 í hátíðasal Háskóla Íslands og
er haldinn á vegum Rannsóknastofu
í hjúkrunarfræði. Fyrirlesturinn er
öllum opinn.
Tilgangur þessarar rannsóknar
var að varpa ljósi á samskipti að-
standenda og starfsfólks á hjúkrun-
arheimilum og áhrif þeirra á umönn-
un. Í rannsókninni tóku þátt 15
aðstandendur og 16 hópar starfs-
fólks (4–5 starfsmenn í hverjum
hópi). Tekin voru tvö viðtöl við hvern
aðstandanda og eitt viðtal við hvern
hóp starfsfólks. Þá voru gerðar vett-
vangsathuganir á átta deildum á
þeim þrem hjúkrunarheimilum á
höfuðborgarsvæðinu sem rannsókn-
in tók til og var m.a. rætt formlega
og óformlega við heimilisfólk og
starfsfólk.
Heimsóknir á
hjúkrunarheimili
Fyrirlestur í hjúkrunarfræði
UNDIRSKRIFTASÖFNUN til
stuðnings vegabótum, lýsingu og
breikkun á Suðurlandsvegi um
Hellisheiði og Þrengsli hefur verið í
gangi undanfarið og nú þegar hefur
á annað þúsund manns skráð sig.
Listar til undirskriftar liggja
frammi á bensínstöðvum á Selfossi,
Eyrarbakka, Stokkseyri, Þorláks-
höfn, í Hveragerði, á Hellu og Hvols-
velli þar sem fólk getur skrifað nafn
sitt og tjáð með því hug sinn. „Vegna
mikils áhuga fólks sem oft leggur
leið sína austur fyrir fjall, m.a. sum-
arbústaðafólks og fleiri hagsmuna-
aðila af höfuðborgarsvæðinu,
Reykjanesi og víðar, hefur verið
opnaður möguleiki fyrir fólk að skrá
undirskrift sína á heimasíðu Sunn-
lenska fréttablaðsins á Netinu. Slóð-
in er www.sunnlenska.is,“ segir í
frétt frá samtökunum.
Vilja bæta Hellisheiðina