Morgunblaðið - 27.02.2001, Síða 34

Morgunblaðið - 27.02.2001, Síða 34
MENNTUN 34 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ MBA-nám • Öll kennsla fer fram á ensku. • 11 mánaða almennt MBA-stjórnunarnám með áherslu á áætlanagerð, forystu og uppbyggingu víxlstarfandi liðsheildar. • Nemendur alls staðar að, hámark 40 á námskeiði. • Meðalaldur 32 ár og 7 ára starfsreynsla. • „Hands on“-ráðgjafarverkefni. MSc-nám • Öll kennsla fer fram á ensku. • Tveggja ára fullt nám. • Fjármálahagfræði. • Markaðsfræði. • Áætlanagerð og alþjóðaviðskipti. • Upplýsingatæknistjórnun. Við getum boðið þér eitt alþjóðlegasta MSc- og MBA-nám á Norðurlöndum Föstudaginn 2. mars kl. 17.00 fyrir MBA og 18.00 fyrir MSc á Hótel Sögu, fundarherbergi B. Kynningarfundur á Íslandi Netfang: msc@bi.no, mba@bi.no http://www.bi.edu UMRÆÐA um aðalnám-skrá tónlistarskólannasem menntamálaráðu-neytið sendi frá sér á liðnu ári hefur af einhverj- um ástæðum ekki farið hátt. Með nýju aðal- námskránni eru þó gerðar veigamiklar breytingar á umgjörð starfsemi tónlistar- skólanna og þá sér- staklega á samræmdu prófafyrirkomulagi þeirra. Undanfarna áratugi hafa hin svonefndu stigspróf verið notuð í tónlistarskólum um allt land til að meta hvar nemendur standa í námi. Stigsprófin, sem eru sam- ræmd próf, hafa verið átta talsins og hafa þann kost að nemendur geta stefnt markvisst á að ljúka hverju stigi eða áfanga á einu eða tveimur árum. Að ljúka næsta stigi hefur hjálpað mörgum nemandan- um til að hafa skýr markmið með námi sínu og gefið honum mögu- leika á að bera sig saman við sam- nemendur sína. Stigin hafa náð því að verða nokkuð traustur mæli- kvarði á framfarir nemenda og hafa skólar notað þau með góðum árangri til að meta hversu langt þeir eru komnir í námi, t.d. þegar nemendur flytjast á milli skóla. Stigsprófakerfið lagt niður? Í nýrri aðalnámskrá tónlistar- skóla er þetta stigsprófakerfi í raun lagt niður. Þess í stað koma nú þrjú samræmd áfangapróf: Grunnpróf kemur í stað 3. stigs- prófs, miðpróf kemur í stað 5. stigsprófs, og framhaldspróf í stað 7. stigsprófs. Þannig hefur áfangaprófum í um það bil tólf ára námi verið fækkað úr sjö í þrjú en áttunda stigið er nú talið til háskólanáms. Svo virðist sem megintil- gangurinn sé að sam- ræma tónlistarnám og almenna skóla- kerfið þannig að flest- ir sem taki grunnpróf í tónlist séu jafnframt að ljúka 7. bekk í al- mennum grunnskóla, þeir sem taki miðpróf séu að ljúka 10. bekk, og þeir sem ljúki fram- haldsprófi séu að útskrifast úr framhaldsskóla. Erfitt að fá börn til að hugsa fjögur ár fram í tímann Undirritaður telur að með nýju aðalnámskránni færist tvennt al- varlega til verri vegar, miðað við núverandi fyrirkomulag. Í fyrsta lagi hefur fækkun áfangaprófa úr sjö í þrjú þau áhrif að um það bil fjögur ár líða milli áfangaprófa í stað eins til tveggja ára. Þessi breyting hefur það í för með sér að kennarar geta ekki lengur notað áfangaprófin eins markvisst til að örva nemendur til dáða, enda augljóst að það getur verið mjög erfitt að fá börn til að hugsa heil fjögur ár fram í tímann. Með þessu er verið að taka af kennurum mjög mikilvægt örvun- artæki sem stigsprófin hafa svo sannarlega verið. Fyrir margan nemandann hefur það verið upp- spretta mikils stolts að hafa lokið tilteknum stigsprófum og hefur þar líklega vegið þyngst að prófin hafa verið samræmd þannig að kunningjahópurinn, a.m.k. þeir sem þekkja til hljóðfæranáms, hef- ur borið ákveðna virðingu fyrir prófunum. Ekki ósvipað lituðum beltum í sjálfsvarnaríþróttum og stigum í skák. Stigsprófin hafa þannig verið viðráðanleg þrep í tónlistarnáminu sem hafa haldið mörgum nemandanum við efnið. Í öðru lagi hafa tengslin við al- menna skólakerfið, sem koma ljós- lega fram í nafngiftunum grunn- próf, miðpróf og framhaldspróf, þann ókost að láta þeim nemend- um sem eru komnir lengra í al- menna skólakerfinu en í tónlist- arnáminu, til dæmis vegna þess að þeir hafa byrjað seint í tónlist- arnámi, finnst þeir vera einhvers konar eftirlegukindur. Með hlið- sjón af reynslu minni af tónlistar- kennslu unglinga tel ég að nem- anda í 10. bekk þyki ekki mikil reisn yfir því að ljúka grunnprófi í tónlist, sem leynt eða ljóst miðast við 7. bekkjar próf í grunnskóla. Með þessari tengingu er í raun verið að ræna tónlistarnám þeirri sérstöðu sem það hefur haft til þessa, þ.e. að vera vel skilgreint áfanganám óháð aldri nemenda. Sé markmiðið með þessari breytingu að samræma tónlistarnám námi í hinu almenna skólakerfi er reynd- ar alveg óskiljanlegt að ekki virðist hafa verið tekið með í reikninginn að hingað til hafa nemendur fengið 6. stigs próf metið til eininga í framhaldsskólum. Þetta stig hefur nú verið lagt niður. Þannig verða nemendur væntanlega að ljúka framhaldsprófi (fyrrverandi 7. stigi) með opinberum tónleikum til að fá nám sitt metið til eininga. Þetta er býsna langt frá því að vera raunhæf krafa fyrir náms- mann sem hefur tónlistina sem aukafag. Með þessu er verið að skerða möguleika tónlistarnem- enda til að fá nám sitt metið sem valáfanga í framhaldsskólum landsins. Útþynning prófakerfisins Í nýju aðalnámskránni er gert ráð fyrir að tónlistarskólar hafi frelsi til að haga prófum á milli grunn-, mið- og framhaldsprófa eins og þeir sjálfir kjósa. Þetta hljómar kannski víðsýnt og lýð- ræðislegt í fyrstu en þegar betur er að gáð hlýtur þetta fyrirkomu- lag, sem tekur til u.þ.b. 80 tónlist- arskóla á landinu, að verða til þess að fjöldi ólíkra prófa verður til. Prófa sem eru algjörlega ósam- ræmd og gefa nemendum enga hugmynd um hvar þeir standa í námi í samanburði við félaga sína í öðrum tónlistarskólum. Ekki mun þetta heldur hjálpa skólum að meta nemendur sem flytjast á milli skóla. Þá má ekki heldur gleyma því að sumir tónlistarskólar úti á landsbyggðinni, þar sem oft er að- eins einn kennari á hvert hljóðfæri, verða á eigin spýtur að búa til heilt millistigsprófakerfi á hvert hljóð- færi, kannski fyrir örfáa nemend- ur. Þessar breytingar á kerfi sem hefur reynst geysivel á Íslandi og annars staðar, svo sem á Bretlandi þaðan sem fyrirmynd stigspróf- anna er komin, eru undirrituðum mikið undrunar- og áhyggjuefni. Sérstaklega þar sem ekki sést við lestur nýju námskrárinnar að þar sé nokkur ný hugmyndafræði á ferð sem réttlæti slíka útþynningu prófakerfisins. Nýju áfangaprófin; grunnpróf, miðpróf og framhalds- próf, verða nánast nákvæmlega eins uppbyggð og gömlu stigspróf- in með þeirri einu breytingu að í einum lið (sem gildir einungis 10%) má velja á milli þess að leika frum- samið lag, hljómsetja laglínu, spinna laglínu út frá hljómum eða leika verk samkvæmt námskrá. Samkvæmt nýju námskránni er reyndar gert ráð fyrir að sömu prófdómarar dæmi áfangaprófin á öllu landinu. Þetta væri vissulega kostur, enda hefur kannski stund- um gætt einhvers misræmis á stigsprófum milli fámennra byggð- arlaga og stærri byggðakjarna, m.a. vegna skorts á þjálfuðum prófdómurum. Þetta hefði hins Tónlistarskólar/Aðalnámskrá fyrir tónlistarskóla var gefin út á liðnu ári. Þar koma m.a. fram ný áfangapróf. Ólafur Elíasson píanóleikari telur þau ekki vera til bóta og vill hefja stigsprófin aftur til vegs og virðingar. Hann ber prófin saman í þessari grein. Áfanga- eða stigspróf í tónlist? Nauðsynlegt er að um prófin skapist umræða, segir Ólafur. Nýlega voru nemendur í Tónlistarskóla Akureyrar að spila í fyrirtækjum.  Námi í tónlistarskólum er nú skipt í þrjá meginflokka  Var ástæða til að setja stigspróf skör lægra en áfangapróf? Ólafur Elíasson Morgunblaðið/Kristján AÐALNÁMSKRÁ tónlistar- skóla geta áhugasamir fundið á rafrænu formi á heimasíðu menntamálaráðuneytisins, nán- ar tiltekið á http://bella.mrn.- stjr.is/utgafur/namskratonlist.- pdf. Hér eru nokkur brot valin af blaðamanni Morgunblaðsins:  „Nám í tónlistarskólum skiptist í þrjá megináfanga: grunnnám, miðnám og fram- haldsnám. Til grunnnáms telst einnig fornám, þ.e. samþætt byrjendanám, sniðið að aldri og þroska ungra barna. Þessi áfangaskipting er óháð upp- byggingu almenna skólakerfis- ins. Engu að síður má finna þar nokkra samsvörun. Þannig sam- svarar grunnnám u.þ.b. neðri bekkjum grunnskóla, miðnám efri bekkjum og framhaldsnám svarar til náms á framhalds- skólastigi, þ.e. að háskólastigi.“  „Hverjum megináfanga lýkur með áfangaprófum, þ.e. grunnprófi, miðprófi og fram- haldsprófi, annars vegar í hljóð- færaleik og hins vegar í tón- fræðagreinum. Jafnframt er heimilt að skipta námsferlinu í smærri áfanga eða stig.“  „Námstími innan hvers áfanga getur verið breytilegur og ræðst hann meðal annars af aldri, þroska, ástundun og fram- förum. Miðað er við að flestir nemendur, sem hefja hljóðfæra- nám 8–9 ára, ljúki grunnnámi á þremur árum. Gera má ráð fyrir að eldri nemendur geti farið hraðar yfir. Í mið- og fram- haldsnámi eykst umfang náms- ins og sá tími, sem tekur að ljúka áföngunum, lengist að jafnaði. Lok framhaldsnáms miðast við að nemendur séu undir það búnir að takast á við tónlistarnám á háskólastigi. Tónlistarskólum er heimilt að skipta áföngunum niður í stig þannig að grunnnám nái yfir fornám og I.–III. stig, miðnám IV.–V. stig og framhaldsnám VI.– VII. stig.“  „Skólum er í sjálfsvald sett hvort nemendur þeirra taka stigspróf á milli áfangaprófa en áfangapróf skulu hins vegar koma í stað stigsprófa við lok viðkomandi áfanga, sjá nánar á bls. 45. Samsetning, fram- kvæmd og prófdæming stigs- prófa er alfarið ákvörðun og á ábyrgð þeirra skóla sem kjósa að halda þau enda er ekki fjallað um stig og stigspróf í greina- námskrám. Séu tekin stigspróf má gera ráð fyrir að nemendur í grunnnámi ljúki um það bil einu stigi á ári en þegar ofar dragi lengist námstíminn á milli stiga.“ Tónlistarskólar í aðalnámskrá

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.