Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 17
Á AKUREYRI - Í MJÓDD - Á AKRANESI
Y
D
D
A
/
S
ÍA
SALTKJÖT
OG
BAUNIR
NETTÓ
BAUNIR Á KR.1
MIKIÐ ÚRVAL
AF
SALTKJÖTI 99,-
Kr./kg
Verð frá
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 17
Borgarnesi - Vírnet hf. var valið
fyrirtæki ársins 2000 í Borg-
arbyggð. Þetta er í fjórða sinn
sem fyrirtæki ársins er valið í
Borgarbyggð og hafa viðurkenn-
ingar af þessu tagi verið mikilvæg
hvatning fyrir þau fyrirtæki sem
hafa verið valin, auk þess að vekja
athygli á sveitarfélaginu og at-
vinnufyrirtækjum hér.
Við val á fyrirtæki ársins 2000
voru sérstaklega fjórir þættir
hafðir til hliðsjónar. Þeir voru 1)
umhverfismál, 2) aðbúnaður
starfsfólks, 3) aðgerðir sem stuðl-
uðu með beinum hætti að vexti
fyrirtækisins og fjölgun starfa 4)
nýsköpun, nýir markaðir og nýj-
ungar í framleiðslu.
Stefán Logi Haraldsson fram-
kvæmdastjóri tók á móti við-
urkenningu úr hendi Ingimundar
Grétarssonar, formanns atvinnu-
málanefndar,og þakkaði þann
heiður sem fyrirtækinu væri sýnd-
ur. Hann minntist á að eftirtekt-
arvert væri hversu vel og með
virkum hætti sveitarfélagið og at-
vinnumálanefnd fylgjast með því
hvað fyrirtækin eru að gera og
hve mikilsvert það er fyrir þá sem
standa að rekstri. Hann greindi
frá því í stuttu máli hvernig breytt
eignaraðild á Vírneti hf. hefði
skapað ný sóknarfæri. Þannig hef-
ur styrkur félagsins og tilvist þess
í Borgarnesi eflst til muna og eftir
sameiningu Vírnets í Borgarnesi
og Garðastáls í Garðabæ hefur
starfsmönnum fjölgað úr 32 í 50.
Atvinnumálanefnd veitti tveim-
ur öðrum fyrirtækjum viðurkenn-
ingar og eru þau Flutninga-
miðstöð Vesturlands sem fékk
viðurkenningu fyrir snyrtilegt um-
hverfi og markvissa gæðastjórnun
og Sparisjóður Mýrasýslu sem
fékk viðurkenningu fyrir frum-
kvæði, virkni og jákvæða aðkomu
að atvinnulífinu.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Frá vinstri: Júlíus Jónsson, rekstrarstjóri Flutningamiðstöðvar Vest-
urlands, Stefán Logi Haraldsson, framkvæmdastjóri Vírnets hf., og
Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri.
Vírnet hf. fyrirtæki
ársins 2000
Búðardal - Föstudaginn 23. febrúar
var haldið skólamót UDN (Ung-
mennasamband Dalamanna og
Norður-Breiðfirðinga) á Laugum í
Dalasýslu. Þessu móti var komið á af
skólunum á sínum tíma og er orðinn
árlegur atburður. Nú tók þátt í
mótinu Grunnskólinn Tjarnarlundi
en hann var stofnaður í haust.
Laugaskóli hefur verið aflagður og
flestir nemendur þaðan stunda nám í
Grunnskólanum í Búðardal.
Keppt var í frjálsum íþróttum. Í
mótinu tóku þátt nemendur í skól-
unum á ungmennasambandssvæð-
inu, þ.e. Grunnskólanum í Búðardal,
Grunnskólanum á Reykhólum og
Grunnskólanum Tjarnarlundi. Kepp-
endur voru á aldrinum 11–16 ára.
Keppt var í þremur aldurshópum,
11–12 ára, 13–14 ára og 15–16 ára.
Gekk keppnin vel og allir skemmtu
sér hið besta.
Laugar í Sælingsdal
Vel gekk
á skólamóti
UDN
Morgunblaðið/Guðrún Kristinsdóttir
Játvarður Jökull Atlason býr
sig undir langstökk.