Morgunblaðið - 27.02.2001, Page 64

Morgunblaðið - 27.02.2001, Page 64
FÓLK Í FRÉTTUM 64 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ afgreiðslunni hjá Universal. Þar vann hann sig markvisst upp næstu árin og fékk tækifæri til að leikstýra við sjón- varpsdeildina við upphaf áttunda ára- tugarins. Gat sér gott orð með tím- anum sem sjón- varpsleikstjóri við þáttaraðir einsog The Streets Of San Francisco, Kung Fu, Night Gallery og The Senator, sem færði honum Emmy-tilnefningu. Hlaut aðra fyrir The Law með Judd Hirsch. Traust og fagmannleg meðferð hans á efni og leikurum í sjónvarps- myndinni The Gun (’74), færði Bad- ham hans fyrsta verkefni fyrir hvíta tjaldið. Universal bauð honum að leikstýra hafnaboltamyndinni The Bingo Long Travelling All Stars and Motor Kings, 1975. Myndin var dágóð skemmtun, prýdd m.a. gæða- leikurunum Billy Dee Williams, James Earl Jones og Richard Pry- or. Badham var fenginn til verksins þegar annar, efnilegur ungur kvik- myndagerðarmaður, sem hafði fet- að sig upp metorðastigann hjá Uni- versal, valdi að leikstýra Jaws. Þarf ÞEIM fer fækkandi sem muna blómatíma Johns Badham. Hann var, líkt og hjá mörgum öðrum, stuttur, en skilaði af sér eft- irminnilegum verkum. Þau voru vissulega börn síns tíma en settu ótrúlega mikið mark á umhverfið. Badham er maður sem á ekki að gleymast, hann á sinn stall í sög- unni. Sýndi sig að því að vera fjöl- hæfur listamaður sem var óhrædd- ur við að taka sér fyrir hendur hin ólíklegustu verkefni og skila þeim með árangri sem gladdi gagnrýn- endur og áhorfendur þyrptust á um allan heim. Einhver gæti álitið að Badham væri látinn, því fer fjarri, hann er rétt liðlega sextugur, en þetta fortíðarfjas stafar af því að það hefur ekki margt merkilegt frá honum komið í heilan áratug. Hann á því enn möguleika á að rétta aftur úr kútnum. Bréfberi í Hollywood John Badham er fæddur 1939 á Bretlandi; móðirin ensk leikkona, fósturfaðir hans háttsettur Banda- ríkjamaður, hershöfðingi í land- hernum sem þjónaði í Evrópu á stríðsárunum seinni. Flutti með þeim vestur um haf þegar fóstri hans var færður til Alabama í stríðslok og Badham fékk banda- rískan ríkisborgarrétt. Leiklistin var í blóðinu, Mary systir hans varð fyrst systkinanna til að geta sér nafn í kvikmynda- heiminum, er hún var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna fyrir leik í To Kill a Mockingbird (’62). John nam heimspeki við Yale en flutti sig um deild og settist í dramatískt nám, þaðan sem hann útskrifaðist sem leikstjóri. Elti systur sína til Hol- lywood og fékk vinnu á póst- nokkuð að nafngreina hann? Diskó og Drakúla Badham sló í gegn með næstu mynd, sem er sögu- fræg og stórmerkileg og ein besta föngun á tíð- aranda sem gerð hefur verið. Þetta er vitaskuld tímamótamyndin Sat- urday Night Fever (’77). Hún var um nokkurt skeið mest sótta mynd kvik- myndasögunnar. Næsta mynd sýndi vel þá breidd í verkefnavali sem lengi var aðalsmerki Badhams. Það var kvikmyndagerð vinsællar leik- húsuppfærslu á Dracula (’79), með Frank Langella og Sir Laurence Olivier. Einna minnisstæðust fyrir það rómantíska ljós sem varpað var á frægustu blóðsugu allra tíma. Nú er komið að árinu 1981, og Badham orðinn einn af virtustu og eftirsóttustu leikstjórum tímabils- ins. Bætti enn við hróður sinn þetta ár með glæsilegri kvikmyndagerð Whose Life Is It Anyway?, annars magnaðs leikhúsverks. 1983 var jafnvel enn betra, þá voru sýndar tvær Badham myndir; WarGames og Blue Thunder. Báðar frábærar spennumyndir sem sópuðu að sér áhorfendum og Óskarsverðlauna- tilnefningum. Þá kom American Flyers (’85), dálítið sérstök mynd með Kevin Costner í hlutverki ann- ars tveggja bræðra sem bítast um sigur í hjólreiðakeppni. Talsvert fjarri þyrluhasarnum mikla í Blue Thunder. Þá var komið að Short Circuit (’86), gamanmynd sem fékk góða dóma og aðsókn. Með þeim vafasömu leikurum, Steve Gutten- berg og Ally Sheedy, sem reyndar voru feykivinsæl á þessum árum – sem er rannsóknarefni, út af fyrir sig. Badham bætti um betur, í kjöl- farið fylgdi Stakeout (’87), hans langbesta gamanmynd sem olli nokkrum tímamótum. Þunnur þrettándi Áfram hélt leikstjórinn að fást við gamanmálin og nú varð fyrir valinu Bird on a Wire (’89), ein vinsælasta mynd hans frá upphafi, með Mel Gibson og Goldie Hawn í aðalhlut- verkum. Hún þótti þunnur þrett- ándi á þessum bæ og það eina minnisstæða er lagið góða eftir Leonard Cohen og tónlistin hans Hans Zimmer. Enn var Badham í góðum málum og í hópi eftirsóttustu leikstjóra. Það breyttist ekki með Point of No Return (’92), bandarískri end- urgerð Besson-tryllisins góða, La Femme Nikita. Bridget Fonda komst á stjörnuhimininn í titilhlut- verki eldhressrar myndar sem er nokkuð eftirminnileg, ekki síst fyrir magnaðan leikhópinn (Anne Ban- croft, Harvey Keitel, Gabriel Byrne, Miguel Ferrer). Framhaldsmyndin Another Stakeout (’93), markar greinilegt upphaf á hnignun glæsi- legs og litríks ferils. Ekki tók betra við; Drop Zone (’94), íburðarmikil spennudella með flottum atriðum í háloftunum og enn sá Zimmer um tónlistina. En með slökum sögu- þræði, Wesley Snipes og Yancy nokkurri Butler, íðilfagurri undir- málsmannesku á leiklistarsviðinu. Svo virtist sem Badham væri heillum horfinn. Nick of Time (’95), státaði af Johnny Depp, flottri kvik- myndagerð en andlausri leikstjórn, sem reyndar stafaði að talsverðu leyti af ládauðu handriti og enn ein- um flónslegum ofleik Christophers Walken í fólshlutverkinu. Incognito (’97), var jafnvel verri, með Jason Patrick í aðalhlutverkinu – leikara sem er í svipuðum gæðaflokki og fröken Yancy, sem áður hefur verið getið. Hinsvegar sáu menn greini- leg batamerki hjá Badham í sjón- varpsmyndinni frá HBO, The Jack Bull (’99), með gæðaleikurunum John Cusack, John Goodman og gamla, góða L.Q. Jones. Við skulum vona að þessi skínandi fagmaður sé að rétta úr kútnum. Spennumyndin Nick of Time með Johnny Depp olli vonbrigðum. Laugardagsfárið er langþekktasta og -vinsælasta mynd Badhams. JOHN BADHAM John Badham WHOSE LIFE IS IT ANYWAY? (1981) Ungur maður (Richard Dreyfuss) lamast í bílslysi. Þegar honum verður ljóst að hann á aldrei eftir að ná sér vill hann fá að deyja en verður að kljást við þá grundvallarspurningu hvort hann ráði yfir eigin lífi eða ekki, fyrir dómstólum. Velheppnuð bíóút- gáfa á vinsælu leikriti sem var m.a. sýnt hér í Iðnó og óvenjulegt bragð af hasarleikstjóranum Badham. Drey- fuss er stórkostlegur og aukaleikar- arnir John Cassavetes, Christine Lahti, jafnvel sá annars oftast illþol- andi Bob Balaban, hver öðrum betri. Hugvitsamlega gerð mynd í alla staði, tilfinningaþrungin og nær að snerta mann ólíkt svo mörgum mynd- um sem fást við vandmeðfarið efni. SATURDAY NIGHT FEVER (1977) Myndin sem gerði John Travolta að heimsfrægri stjörnu (í fyrsta sinn). Ber aldurinn einkar persónulega, með áttunda áratugar tísku og Bee Gees á fóninum. Það er frumkraftur í henni og dansatriðin góð, þrátt fyrir stælingu og skrumskælingu í gegn- um árin. Travolta er þekkilegur Brook- lynstrákur sem lifir fyrir dansinn og sannar sig á dansgólfinu. Þessi alt- aristafla diskósafnaðarins vakti geysihrifningu hvar sem var og olli dansæði. Í dag er hún sannkallaður minnisvarði um undarlega tíma sem hún átti þátt í að skapa og varðinn er afar vel gerður á sinn hátt og myndin nánast klassík. STAKEOUT (1987) Lögreglumaður (Richard Dreyf- uss) verður ástfanginn af konunni sem hann njósnar um (Madeleine Stowe), í von um að grípa kærasta hennar (Aidan Quinn), sem er morð- ingi. Sérstaklega góð afþreying, fynd- in og spennandi og ein besta mynd Badhams. Stórskemmtilegur rómans á milli Dreyfuss og hinnar undur- fögru og fínlegu Stowe, en Dreyfuss stelur senunni. Vissulega önnur tíma- mótamynd frá Badham. Myndin þyk- ir sjálfsagt ekkert sérlega merkileg í dag. En ástæðan er einfaldlega sú að það er búið að margeftirapa þessa spennandi og fyndnu mynd. Sígild myndbönd Sæbjörn Valdimarsson Veröld ný og vond (New World Disorder) S p e n n u m y n d Leikstjóri: Richard Spence. Hand- rit: Jeffrey Smith, Ehren Kruger. Aðalhlutverk: Rutger Hauer, Tara Fitzgerald, Andrew McCarthy. (90 mín.) Bandaríkin, 1999. Háskólabíó. Bönnuð innan 16 ára. RUTGER Hauer er unnendum góðra spennumynda vel kunnur. Hann lék í nokkrum lykilmyndum á níunda áratugnum, þ. á m. Blade Run- ner og puttaferða- langinn óhugnan- lega í The Hitcher. Minna hefur þó farið fyrir leikar- anum á liðnum ár- um og eftir því sem kvikmyndahlut- verkunum hefur fækkað hefur umgjörð leikarans sjálfs stækkað og er hann farinn að minna á Marlon Brando að því leyti. Sú staðreynd að Hauer er orðinn mikill að vöxtum og hreyfir sig ekki ýkja hratt kemur reyndar ekki að sök í Veröld ný og vond. Þar gefur Hauer rannsóknarmanninum lífs- reynda David Marx alvöruþrungið yfirbragð í anda gamaldags lög- reglugilda, og gerir það einkar vel. Marx er á slóð hugbúnaðarþjófa en það háir honum þó við rannsókn málsins að hann er tölvuhræddur með afbrigðum. Brösulegt samstarf hans og ungrar alríkiskonu sem er sérfræðingur í tölvuglæpum er á köflum skondið og verður til þess að lyfta myndinni upp úr hasarkenndri meðalmennskunni. Heiða Jóhannsdótt ir Harðsvíraðir hugbúnaðar- þjófar Með lausa skrúfu (Screwloose) G a m a n m y n d ½ Leikstjórn Ezio Greggio. Handrit Rudy De Luca og Steve Haberman. Aðalhlutverk Mel Brooks, Ezio Greggio. (90 mín.) Ítalía 1999. Skífan. Öllum leyfð. MEL BROOKS er einn af merk- ustu gamanmyndahöfundum liðinn- ar aldar og myndir sem hann hefur gert á borð við The Producer, Blazing Saddle, Young Frankenstein og Screwballs eiga eft- ir að lifa þennan hálfáttræða ærsla- belg og gott lengur. Sérstaklega með þessi fyrri afrek í huga á ég seint eftir að skilja hvers vegna hann lét plata sig út í að leika í þessari ítölsku dellu. Karlinn leikur snarklikkaðan hælis- mat sem er rænt og fluttur til Ítalíu. Ræninginn er ítalskur matvælajöf- ur, lítið gáfaðri, sem var þar að upp- fylla hinstu ósk föður síns um að finna gamlan stríðsfélaga og hugsa um hann í ellinni. Oft getur della orð- ið svo mikil della að maður getur ekki annað en hlegið eins og bjálfi að öllu saman. En ekki þessi della. Hún er bara della og ekkert annað og það hlýtur bara að vera eitthvað meira að en nokkrar lausar skrúfur hjá Brooks fyrst hann lét til leiðast. Skarphéðinn Guðmundsson MYNDBÖND Meira en laus skrúfa ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.