Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isGóð byrjun Margrétar með Charge / B1 Landsliðið tilbúið í slaginn á Möltu /B1 12 SÍÐUR48 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM RÍKISSÁTTASEMJARI hefur boð- að sjómenn og útvegsmenn til fund- ar í Karphúsinu í dag og er það fyrsti fundur síðan slitnaði upp úr viðræð- um þessara aðila sl. fimmtudag. Samkvæmt upplýsingum frá emb- ætti sáttasemjara í gær hefur bjart- sýni þar um lausn deilunnar ekki aukist en ástæða þótti til að kalla menn saman þar sem nokkrir dagar voru liðnir frá síðasta fundi. Grétar Mar Jónsson, formaður Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, sagði við Morgunblaðið í gær að deilan yrði ekki leyst öðruvísi en með fundum. Eitthvað yrði að reyna. Hann vonaðist til þess að út- vegsmenn hefðu eitthvað nýtt fram að færa á fundinum í dag. Þegar hann var spurður um hvort sjó- mannasamtökin myndu gefa eitt- hvað eftir af sínum kröfum sagði Grétar Mar lítið vera til að slaka á. Tók hann því næst til við líkingamál úr heimi knattspyrnunnar. „Við erum í vörn og höfum verið það í fimmtán ár og aldrei komist fram fyrir miðju. Við höfum fengið á okkur fullt af mörkum og mér sýnist að staðan sé þannig að við eigum von á einu burstinu enn,“ sagði Grétar Mar. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, LÍÚ, sagði ekkert annað að gera en að halda áfram þar sem frá var horfið „þegar menn móðguðust“. Aðspurður sagði hann útvegsmenn ekki vera með nýtt útspil í viðræðunum eða tilboð. Sáttasemjari hefði greinilega ákveð- ið þennan fund. „Það verður bara að koma í ljós hvað gerist. Ég hef ekki heyrt í við- semjanda okkar og engir óformlegir fundir verið haldnir um helgina. Þegar fundi var slitið síðasta fimmtudag mátum við stöðuna þann- ig að ekkert væri í spilunum þannig að spurningin er hvort eitthvað hef- ur gerst síðan,“ sagði Friðrik. Útvegsmenn í Eyjum hafna viðræðum um sérsamning Sjómenn í Vestmannaeyjum gerðu útvegsmönnum tilboð um helgina um sérsamning en í gær hafnaði Útvegsbændafélag Vest- mannaeyja skriflegri beiðni Sjó- mannafélagsins Jötuns um að félögin tækju upp viðræður sín á milli. Í svari útvegsbænda til Jötuns kemur fram að eftir fund stjórnar félagsins með LÍÚ og Samtökum atvinnulífs- ins er ekki grundvöllur til samninga- viðræðna í Eyjum þar sem samn- ingsumboðið er hjá heildarsam- tökunum. Elías Björnsson, formaður Jötuns, sagðist í samtali við Morgunblaðið líta svo á að enn væri vilji meðal út- vegsmanna í Eyjum til sérsamnings þrátt fyrir formlegt svar Útvegs- bændafélagsins í gær. „Við erum með ýmis spjót úti. Verkfallið kemur hart niður á mönnum hér í Eyjum. Smærri bátar eru margir og lítið af frystitogurum. Landvinnslan liggur niðri og ástandið er skelfilegt hjá fólkinu,“ sagði Elías. Magnús Kristinsson, formaður Útvegsbændafélags Vestmanna- eyja, sagði stöðuna þannig í dag að ekki væri grundvöllur fyrir sérstak- ar viðræður við sjómenn í Eyjum, hvað sem síðar gerðist og hvernig sem mál þróuðust hjá heildarsam- tökunum. Ekki væri hægt að útiloka viðræður við sjómenn á seinni stig- um. Sjómenn og útvegsmenn boðaðir til fundar í Karphúsinu í dag Bjartsýni ríkis- sáttasemjara hefur ekki aukist VEGNA mistaka við umönnun hunds í einangrunarstöð gæludýra í Hrísey komst drep í bæði eyru hans þannig að talsverður hluti eyrnanna féll af. Hundurinn, sem er kjölturakki af svonefndri „toy- poodle“-gerð, var fluttur til lands- ins frá Finnlandi og hefur verið í einangrunarstöðinni í fjórar vikur. Stefán Björnsson, sem rekur ein- angrunarstöðina, segir að í hári hundsins hafi verið teygjur til að halda því frá augum og andliti. Þegar hundurinn var þrifinn á mið- vikudaginn í síðustu viku voru nýj- ar teygjur settar í hár hans. Stefán segir að svo virðist sem þær hafi verið settar í með röngum hætti og líklega hertar um of. Við þetta hlaut hundurinn sár á eyrum og þegar mistökin komu í ljós á föstu- dag var komið drep í eyrun. Hann missti eyrað við kjúkuna öðrum megin og hitt skarst illa. Stefán harmar óhappið mjög og segir þetta fyrsta slysið af þessu tagi á þeim sjö árum sem hann hefur rek- ið stöðina. Indíana Jafetsdóttir er eigandi hundsins sem hún segir hafa þjáðst talsvert. Tjónið sé tilfinnanlegt enda útséð með að hægt sé að sýna hann fyrir dómi á hundasýningum. Að hennar sögn er hundurinn finnskur og norskur meistari en hér átti að nota hann til undaneldis. „Það hefur verið mjög erfitt að fá keypta hunda til landsins vegna þess hve einangrunin er löng. Ég veit ekki hvaða áhrif þetta mun hafa á möguleika á því að kaupa hunda erlendis frá,“ segir Indíana. Hundurinn á nú eftir að vera fjórar vikur í einangrunarstöðinni. Indíana segist hafa sóst eftir því að hundurinn verði þess í stað í heima- einangrun enda nauðsynlegt að hann njóti umönnunar allan sólar- hringinn og slíkt sé ekki hægt í ein- angrunarstöðinni í Hrísey. Þetta hafi reynt mikið andlega á hundinn. „Hann getur orðið taugaveiklaður og óvíst hvort hann treystir fólki framar,“ segir Indíana. Mistök við umönnun í einangrunarstöðinni í Hrísey Hundurinn missti af báðum eyrum en talsvert þurfti að sauma í hægra eyrað. Hundur missti af eyrunum FJÓRTÁN mánaða gömul telpa, Ágústa Pálína Guðjónsdóttir, var hætt komin á páskadag þegar hún féll ofan í heitan pott á heimili sínu í Hafnarfirði. Katrín Færseth, móðir telpunnar, sagði að þegar hún og Guðjón Ólafsson, faðir barnsins, komu að henni í pottinum hefði hún verið nær dauða en lífi og hætt að anda. Faðirinn hefði síðan veitt henni fyrstu hjálp, sem hefði án efa bjargað lífi hennar. „Þetta er engu líkt, mér datt strax það versta í hug og ég hljóp bara öskrandi um gólfin en hafði þó rænu á að ná í símann og hringja í 112,“ sagði Katrín. „Það var bara eins og hún væri sofandi, með lokuð augun og búin að láta frá sér saur, en pabbi hennar stumraði yfir henni og kom í hana lífi. Ég var búin að vera með átta ára gömlum syni mínum í pottinum í góðan klukkutíma þegar ég tók Pál- ínu í pottinn en hún hafði verið sof- andi í barnavagni sem var rétt hjá. Ég kældi pottinn reyndar niður fyrst og hann var alls ekki heitur þegar hún var í honum. Hún var síð- an með okkur í pottinum í svona hálftíma áður en við fórum upp úr. Guðjón fór með stelpuna inn og þurrkaði henni og hún var síðan bara að sprikla ber á gólfinu hjá okkur. Potturinn er úti í sólskála og þeg- ar ég kom inn lokaði ég svaladyr- unum og fór að klæða mig og finna til föt á hana. Ég kom síðan aftur inn í stofu og þá var hún bara þar að vappa í kringum okkur. Ég fór síð- an inn í svefnherbergi að ganga frá sundfötunum og þá missti ég sjónar á henni í eina til tvær mínútur og þegar ég kem aftur inn í stofu sé ég hana hvergi en svaladyrnar eru opnar, ég hreinlega veit ekki hvort ég opnaði þær aftur eða hvað – ég bara man það ekki, en potturinn var enn fullur af vatni. Við kveiktum strax á perunni, rukum út og sáum hana liggja í pottinum með bakið upp. Manni datt náttúrlega bara það svakaleg- asta í hug og þegar við tókun hana upp var hún bara eins og slytti, eins og hún væri bara líflaus en þó ekki blá eða neitt svoleiðis. Við fórum með hana inn og Guðjón hnoðaði hana á gólfinu og blés í hana nokkr- um sinnum þangað til upp úr henni hrökk mikið vatn og æla. Ég hafði þá hringt í neyðarlínuna og innan skamms kom sjúkrabíll en þegar hann var kominn virtist hún vera farin að ná andanum. Síðan var far- ið með hana á barnaspítala Hrings- ins þar sem hún var í sólarhring. Það virðist sem henni hafi ekki orðið meint af þessu og hún er alveg eðlileg. Hún var náttúrlega rosa- lega slöpp eftir þetta og svaf í eina 12 til 14 tíma en var síðan orðin al- veg eldhress eftir sólarhring.“ Aldrei of varlega farið Herdís Storgaard, framkvæmda- stjóri Árvekni verkefnastjórnunar slysavarna barna og unglinga, sagð- ist hafa rætt við Katrínu eftir slysið og að sem betur fer hefði barninu ekki orðið meint af þessu þótt mun- að hefði mjóu. Hún sagðist strax hafa heyrt á fólkinu að það væri mjög varkárt en að umrætt slys sýndi að aldrei væri farið of varlega. Herdís sagði að í kjölfar þessa slyss vildi hún brýna fyrir fólki að fara varlega í umgengni sinni við heita potta. Fjórtán mánaða gömul telpa var nærri drukknuð er hún féll ofan í heitan pott Blés lífi í dóttur sína
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.