Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 65 Kringlunni 4 - 6, sími 588 0800 EINA BÍÓIÐ MEÐ THX DIGITAL Í ÖLLUM SÖLUM FYRIR 1090 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ Sýnd kl. 3.45. Ísl. tal. Vit nr. 194 www.sambioin.is Tvíhöfði Sýnd kl. 3.50. Ísl. tal. Vit nr. 213 Trufluð tónlist - Brjálaður dans! Tónlistin úr myndinni fæst í Japis JULIA STILES • SEAN PATRICK THOMAS SAVE THE LAST DANCE Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. Vit nr. 216. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Vit nr. 207. Sýnd kl. 5.30, 8.15 og 11. Vit nr. 224.  Kvikmyndir.is Vinsælasta Stúlkan Brjáluð Gamanmynd Þið munuð aldrei trúa því hversu nálægt heimsendi við vorum i l i í l i i i Kevin Costner (Dances with Wolves) í sannsögulegri spennumynd um Kúbudeiluna 1962 og hversu nálægt glötun heimurinn komst. Kvikmyndir.com Snorrabraut 37, sími 551 1384 FYRIR 1090 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit nr. 173. Sýnd kl. 5, 8 og 10.40. B. i. 16. Vit nr. 201. www.sambioin.is Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Vit nr. 173. Sumir menn fæðast hetjur JUDE LAW JOSEPH FIENNES RACKEL WEISZ BOB HOSKINS OG ED HARRIS SÝND Í FRÁBÆRUM HLJÓMGÆÐUM FRÁ HJÓMSÝN, ÁRMÚLA 38  KVIKMYNDIR.is  HAUSVERKUR.is  KVIKMYNDIR.com I I .i .i I I . What Women Want Sýnd kl. 5.30 og 10.30. Sagan er skrifuð af þeim sem brjóta reglurnar. Sannsögulegt meistaraverk um óbilandi baráttu- vilja. Robert De Niro og Cuba Gooding Jr. hafa aldrei verið betri. 2 fyrir 1 Sýnd kl. 6. Ísl. tal. Sprenghlægileg ævintýramynd Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Íslenskur texti. ÓSKARSVERÐLAUN AFTUR Í STÓRAN SAL 4 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.  Kvikmyndir.is  Ó.F.E.Sýn. . .  Kvikmyndir.com i i Empirei Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 8 og 10.15. GUÐ ER hér, þar og alls staðar, a.m.k. ef litið er til þess hve margir hafa fundið hann í örvæntingarfullri leit sinni að sálarró. Einhvers staðar heyrði ég því fleygt að Guð fyndist alls staðar þar sem ímyndunaraflið væri. Líklegast orð að sönnu. Jú, guðleysingjar gætu notað þessa „speki“ til þess að gefa grunsemd- um sínum byr undir báða vængi um leið og strangtrúaðir brosa út í ann- að með þá „visku“ að vopni að ímyndunaraflið sé einungis eitt af mörgum sköpunarverkum hins al- máttuga. Leit prestsins Jesse Custer að Guði tók enda síðasta haust þegar margverðlaunaðri blaðaseríu um ævintýri hans, Preacher, lauk á tölublaði númer 66. Nú er komin út síðasta bókin af þeim níu sem safna saman ævintýrum hans í kiljur. Custer er trúaður maður, a.m.k. í þeim skilningi að hann er fullviss um tilvist Guðs. Það er aftur á móti ekki hægt að segja að hann sé mjög sáttur við „hina órannsakanlegu“ vinnuhætti hans. Hann leitar því að Guði í bókstaflegri merkingu til þess að geta sagt honum til syndanna en um leið í von um að fá einhverja skýringu á því hvers vegna mann- skepnan sé með vilja sköpuð, eins meingölluð og hún nú er. Nokkuð sem Custer þykir afar kvikindislegt af Guði sem veit, kann og skilur allt. Og Guð hefur ástæðu til þess að óttast Custer. Svo er nefnilega mál með vexti að í fyrsta tölublaðinu tengdist sálu hans mesta slys í sögu himnaríkis, slysabarn engils og púka er gæti vel raskað jafnvæginu í hinni eilífu bar- áttu milli himins og heljar. Þessi vera sem býr innra með honum færir honum kraft er hann kallar „orðið“ en með honum getur hann fengið hvaða vitund sem er til þess að hlýða skip- un sinni. Daginn sem hið vandræðalega af- kvæmi ástar og haturs leit dagsins ljós yfirgaf Guð hásæti sitt í himna- ríki og steig niður til jarðar. Það skýrir líklegast hvernig söguhetja okkar getur látið sér detta í hug að finna Guð holdi klæddan sprangandi um Ameríku. Það sem gerir Preacher að merki- legri blaðaseríu er hvernig höfund- urinn Garth Ennis nær að tvinna saman hina alvarlegu og ósvarandi ráðgátu um tilgang hins frjálsa vilja manna við ævintýra- og spennuheim skotbardaga, fimmaurabrandara og tilheyrandi sóðaskap. Ætli hann sé að reyna segja okkur eitthvað um mannseðlið sjálft? Hér vantar ekki ímyndunaraflið og því ættu flestir að geta sætt sig við að Guð komi einhvers staðar að verki en ég leyfi mér að efast um að þessum ritum verði nokkurntímann dreift á meðal barna í sunnudaga- skólanum. Preacher: Alamo eftir Garth Ennis. Teiknuð af Steve Dillon. Níunda og síðasta bókin í bókaröð- inni um prestinn Jesse Custer. Útgefin af Vertigo/DC Comic2001. Fæst í bókabúðum og mynda- söguverslun Nexus. MYNDASAGA VIKUNNAR Guði sé lof fyrir frjálsan vilja? Birgir Örn Steinarsson biggi@mbl.is Aðalsögupersónur Preacher, Jesse Custer, Tulip og vampíran Cassidy. ÞAÐ ER óhætt að fullyrða að það hafi farið lítið fyrir íslensku hip- hoppi og rappi á síðustu árum. Engu að síður rennur menningin vel áfram um þessar mundir í stríðum og ferskum neðanjarðarstraumum og í kvöld geta rappþyrstir svo sannarlega svalað þorsta sínum á Stefnumótakvöldi Undirtóna sem haldið er á Gauki á Stöng. „Það er fjöldi af litlum böndum í bílskúrunum,“ segir Eyjólfur Ey- vindarsson, eða Sesar A eins og hann kallar sig, einn þeirra sem koma fram á Gauknum í kvöld. „Þetta eru kannski krakkar sem eru allir undir tvítugt. Það er að ryðja sér til rúms að semja á íslensku frekar en ensku, þótt það sé hvort tveggja í gangi.“ Eyjólfur bendir á velgengni rapp- hljómsveita í Músíktilraunum í þessu sambandi síðustu árin en Tríó Óla Skans lenti í öðru sæti ’97 og svo sigruðu Rottweilerhundarnir, sem Erpur bróðir hans er meðlimur í, þremur árum síðar. Eyjólfur segist mest hafa unnið með bróður sínum í gegnum árin en að hann sé nú að vinna efni einn og óstuddur, bæði tónlist og rímur. Það hefur vakið athygli að Eyjólfur rappar á íslensku. „Ég hugsa á íslensku, tjái mig því betur og finnst það þægilegra. Ís- lenskan er mitt mál og mér finnst það þannig séð eðlilegt að rappa á henni. Það er ekkert nauðsynlegt, fer bara eftir því hvað hentar hverj- um og einum.“ Eyjólfur er að þreifa fyrir sér með plötuútgáfu en efnið sem hann ætlar að flytja í kvöld ásamt Dj Galdri er samið fyrir væntanlega frumraun hans. „Ég var að koma upp aðstöðu heima hjá mér til þess að taka upp þannig að nú hef ég í rauninni bara fyrst tækifæri til þess að koma þessu í einhvern farveg,“ segir Eyj- ólfur „Sesar A“ að lokum. Einnig koma fram í kvöld rapp- ararnir Vivid Brain (sem sigraði Rímnaflæði í ár), Bangsi og plötu- snúðarnir Dj Paranoia, Dj B-Ruff og Dj Snabel A. Húsið opnar kl. 21, það kostar 500 kr. inn og aldurs- takmarkið er 18 ár. Morgunblaðið/Árni Sæberg Eyjólfur Eyvindarsson, betur þekktur sem Sesar A. Rappið rís
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.