Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 63
MAGNAÐ
BÍÓ
Frá handritshöfundi og leikstjóra Jerry Maguire
UPPLIFÐU ÞAÐ. NJÓTTU ÞESS.
EN EKKI FALLA FYRIR ÞVÍ
1/2
Hausverk.is
Hugleikur.
Golden Globe verðlaun: Besta
myndin í gamamyndaflokki
og Kate Hudson fyrir besta auka-
hlutverk kvenna.
Óskarsverðlaun fyrir
besta frumsamda han-
drit.
Sýnd. 5.30, 8 og 10.10.Sýnd. 5.45, 8 og 10.10.
Sjáðu allt um stórmyndirnar á www.skífan.is
Ó.T.H. Rás2.
ÓJ Bylgjan
Frábær rómantísk gamanmynd
með hinni ómótstæðilegu Jennifer Lopez
MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
ANTHONY HOPKINS JULIANNE MOORE
Kvikmyndir.is
H.K. DV
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. Sýnd kl. 10.15. B. i. 16
Frábær rómantísk gamanmynd
með hinni ómótstæðilegu
Jennifer Lopez
Sumir menn
fæðast hetjur
Stórmyndin Enemy At The Gates, frá leikstjóra The Name Of The Rose
JUDE LAW JOSEPH FIENNES
RACKEL WEISZ BOB HOSKINS OG ED HARRIS
SÝND Í FRÁBÆRUM HLJÓMGÆÐUM
FRÁ HJÓMSÝN, ÁRMÚLA 38
Frábær grínmynd um
bankarán, svalar píur
og aðra skemmtilega
hluti
Sýnd kl. 8. B. i. 16.
Sýnd kl. 6
Frábær spennumynd
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Hugleikur
betra en nýtt
Nýr og glæsilegur salur
Frábær rómantísk gamanmynd með
hinni ómótstæðilegu Jennifer Lopez
2 fyrir 1
Sýnd kl. 5.40 og 10.30.Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8.
Forrester fundinn
Allir hafa hæfileika,
þú verður bara að upp-
götva þá.
Kvikmyndir.com
Frá leikstjóra Good Will Hunting
Keflavík - sími 421 1170 - samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 10.15. Vit nr. 216.
Sýnd kl. 8. Vit nr. 173.
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Sími 461 4666 samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Vinsælasta Stúlkan
Brjáluð
gamanmynd
Sýnd kl. 6. Vit nr. 207.
Sýnd kl. 6.
Ísl tal. Vit nr. 213.
Sýnd kl. 10. Vit nr.173
Sýnd kl. 8 og 10.30. Vit nr. 224 Sýnd kl. 8.Vit nr. 216.
1/2
Kvikmyndir.com
ÞETTA voru fyrstu tónleikar
Quarashi í langan, langan tíma. Heilt
ár satt best að segja. Afsökunin
þeirra var algeng og einföld; þeir
voru í stúdíói að brasa plötu. Plata
þessi mun víst heita Jinx og er vænt-
anleg með vorinu.
Nú þegar þeir loksins láta sjá sig
ætla þeir ekki að stoppa lengi við,
heldur voru þetta svona halló og bless
tónleikar áður en þeir halda til Am-
eríku í tónleikareisu. Sá orðrómur
hefur heyrst að þeir ætli að hita upp
fyrir Offspring þarna úti og þó deila
megi um gæði þeirrar sveitar myndi
það vafalaust hjálpa tónlistarferlinum
þeirra reynist rétt vera. Sérstaklega
ef hent er inn í myndina þeirri stað-
reynd að DJ Muggs úr hinni lang-
samlega frábæru hljómsveit Cypress
Hill er nýbúinn að taka upp lagið
„Baseline“ með þeim.
Þessir tónleikar voru sem sagt
„teaser“, eins og það útleggst á bíó-
máli, áður en þeir fara út í heim og
verða frægir.
Eina upphitunarhljómsveit kvölds-
ins hét því andstyggilega langa nafni
Zuckakis Mondeyano Project, held
ég. Þeir voru þarna meira upp á grín-
ið sýndist mér, voru í asnalegum föt-
um og gerðu grín að R&B og rapp-
tónlist. Greinilega eitthvað félaga-
grín, hent saman á síðustu stundu.
Mamma mín kenndi mér alltaf að
mæla þarft eða þegja, þess vegna hef
ég ekkert meira um þessa upphitun
að segja.
Nýju lögin Quarashi komu manni
skemmtilega á óvart. Sveitin hefur
blessunarlega ekki fært sig eins langt
í Limp Bizkit áttina og maður óttað-
ist. Það má segja að það sem þeir eru
að gera sé í nágrenni við þær breyt-
ingar sem Cypress Hill hefur undir-
gengist undanfarið enda eru báðar
sveitirnar að koma úr sömu átt að
rapp/rokk bræðingnum. Quarashi er
þó ekki næstum því eins rokkuð.
Rappið og takturinn er ennþá í aðal-
hlutverki og einn rafmagnsgítar
breytir því ekki.
Skífuknapi þeirra þetta kvöldið, DJ
Galdur, sýndi frábæra takta og verð-
ur að segjast að Quarashi hafa alltaf
verið mjög heppnir að því leyti. Þeir
hafa skipt nokkrum sinnum um plötu-
snúða og þeir fara hreinlega batnandi
með hverri plötunni (að Richard
ólöstuðum). Harðrokkarinn og snjó-
maðurinn Smári hefur líka gengið til
liðs við sveitina og tekið upp gítarleik.
Hann var ekki eins utanveltu og oft
vill verða þegar rappsveitir bæta við
sig „alvöru hljóðfæraleikara“ heldur
náði hann virkilega að bæta einhverju
við lögin.
Það sem kom mest á óvart var að
hinn dagfarsprúði Ómar, eða Gaddafi
eins og hann kýs að kalla sig, er næst-
um því búinn að taka yfir hljómsveit-
ina. Á Xeneizes var hann í algjöru
aukahlutverki á nokkrum lögum en af
tónleikunum að dæma gæti maður
haldið að hann væri einráður leiðtogi
Quarashi og hafi alltaf verið það. Það
bar allavega mikið á honum bæði í
lögunum og á sviðinu, en kannski er
það bara út af því að hann er höfðinu
hærri en þeir hinir. Við skulum vona
að það þýði ekki að Bandaríkjamenn
muni hefja sprengjuárásir á tónleika-
ferðina þeirra.
Quarashi stóð sig frábærlega þetta
kvöld. Það eru fáar hljómsveitir á Ís-
landi sem búa yfir eins mikilli orku
eða hafa eins gaman af því sem þær
eru að gera, og það skilar sér vel út í
salinn. En þetta vita náttúrulega allir
sem sáu Popp í Reykjavík. Dagskráin
hjá þeim var mjög þétt og hlaupið var
í gegnum lögin án þessara hvimleiðu
tafa sem maður þarf oft aðþola á milli
laga.
Vonandi að þeir standi sig eins vel
úti í Ameríku því þá ættu þeir ekki að
lenda í neinum vandræðum með að
sjarma Kanann.
TÓNLIST
I ð n ó
Tónleikar Quarashi og the Zuckak-
is Mondeyano Project í tónleikasal
Iðnó föstudaginn 20.apríl.
TÓNLEIKAR
Quarashi
á leiðinni
að sigra
heiminn?
„Quarashi stóð sig frábærlega þetta kvöld. Það eru fáar hljómsveitir
á Íslandi sem búa yfir eins mikilli orku eða hafa eins gaman af því sem
þær eru að gera ...“ segir Ragnar.
Ragnar Egilsson
Ljósmynd/Björg Einarsdóttir
ÞEIR HILMAR Steinn
Grétarsson, Þorkell Snæ-
björnsson og Oddur
Magnús Sigurðsson eru
nemendur við Mennta-
skólann að Laugarvatni.
Það væri ekki í frásögur
færandi ef ekki væri fyrir
þær sakir að þeir tóku sig
nýverið til og gáfu út, í
samvinnu við aðra nem-
endur skólans, kynning-
arbækling um ML og
sendu til allra 10. bekk-
inga landsins.
„Aðsókn að skólanum hefur
minnkað undanfarin ár og við sáum
að það þurfti að grípa til aðgerða til
að fá fleira fólk í skólann, en það
veltur ekki hvað síst á okkur nem-
endum að sjá til þess að eitthvað sé
gert,“ segir Þorkell. „Við sendum
bæklinginn til allra 10. bekkinga á
landinu, um 4000 manns, og náms-
vísi með, stutt bréf og umsókn um
skólavist. Við kynnum skólann vel,
hengjum upp veggspjöld í skólum og
ætlum okkur að ná góðum hópi um-
sækjenda næsta haust.“
Ritið er að öllu leyti unnið af nú-
verandi og fyrrverandi nemendum
Menntaskólans að Laugarvatni og
hefur, að sögn Hilmars og Þorkels,
þegar vakið góð viðbrögð og hafa
margir hringt með fyrirspurnir.
Aukið frelsi og aukin ábyrgð
Þeir félagar eru sjálfir ákaflega
ánægðir með að hafa valið Laug-
arvatn. „Það eru tvímælalaust for-
réttindi að vera á heimavist,“ segir
Hilmar. „Maður lærir að vera sjálf-
stæður og það eru ekki of margir
nemendur við skólann svo hver og
einn fær að njóta sín í félagslífinu.“
Foreldrar þurfa hins vegar ekki að
óttast að börnin þeirra sleppi alveg
fram af sér beislinu ef þau fara í
skólann, því haft er eftirlit með nem-
endum. „Það er passað upp á að við
höldum herbergjum okkar hreinum
og að hlutirnir fari ekki úr bönd-
unum þó að fólk öðlist aukið frelsi.“
Þorkell bætir við að aðstaðan á
Laugarvatni sé til fyrirmyndar.
Íþrottaskor KHÍ er á staðnum og
nemendur ML fá að njóta góðs af
því: „Með nýju aðalnámskránni varð
til íþróttabraut, sem hefur lítið verið
kynnt. Við ætlum okkur að kynna
hana vel með þessum bæklingi. Hún
er þriggja ára braut, en ef maður
vill klára stúdentspróf verður mað-
ur að bæta við sig fjórða árinu á
náttúrufræðibraut.“
Undanfarið hafa verið um 120
nemendur við skólann, en þegar
best lét voru við skólann milli 180 og
220 manns. „Það er synd að þessi
skóli skuli ekki vera betur setinn
þegar hann býður upp á svo mikið,“
segir Hilmar að lokum.
Nýtt rit um Menntaskólann á Laugarvatni
Forréttindi að
vera á heimavist
Aðstandendur ritsins: Oddur Magnús Sig-
urðsson, Hilmar Steinn Grétarsson og Þor-
kell Snæbjörnsson.