Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 59
DAGBÓK
60 ÁRA afmæli. Í dagþriðjudaginn 24. apr-
íl verður sextugur Þorkell
Bjarnason, læknir, Röntgen
Domus Medica. Hann og
eiginkona hans, Ása Kristín
Oddsdóttir, taka á móti
gestum í Víkingasal Hótels
Loftleiða, kl. 17.30-19.30.
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu dósum að andvirði kr.
9.976 til styrktar Rauða kross Íslands. Þær heita Berglind
Hermannsdóttir og Steinunn Baldursdóttir.
LJÓÐABROT
SVANURINN MINN SYNGUR
Svanurinn minn syngur.
Sólu ofar hljóma
ljóðin hans og heilla
helgar englasveitir.
Blómin löngu liðin
líf sitt aftur kalla.
Fram úr freðnum gljúfrum
fossar braut sér ryðja.
- - -
Svanurinn minn syngur
sumarlangan daginn:
Svífur sælli’ en áður
sól um himinboga. –
Ein er þó, sem unni
of-heitt til að kætast;
svansins löngu leiðir
laugar hún í tárum.
Halla Eyjólfsdóttir.
MUNAWAR Ali frá Pakist-
an óskar eftir pennavinum.
Áhugamál hans eru lestur
og tónlist.
Mr. Munawar Ali,
A-17, 106 Depot Lines,
Karachi - 74400,
Pakistan.
munawar777@
hotmail.com
Andrei, 23 ára rússneskur
maður, óskar eftir íslensk-
um pennavinum. Hann
skrifar í tölvupósti. Hann
hefur áhuga á Íslandi, mál-
vísindum, tónlist, íþróttum
o.fl.
Netfang hans er:
andreyme@mtu-net.ru
Hicham, 27 ára gamall,
frá San Diego óskar eftir
pennavinum á aldrinum 21–
30 ára. Áhugamál hans eru
fótbolti, lestur og ferðalög.
Hicham Eighaity,
7302 Mesa,
College Jr.#4,
San Diego, CA. 92111,
U.S.A.
Pennavinir
STAÐAN kom upp á
heimsbikarmóti í atskák
sem lauk fyrir skömmu í
Cannes. Svart hafði Evg-
eny Bareev (2709) gegn
ungversku skákdrottning-
unni Judit Polgar (2679).
Rússinn nýtti sér til hins
ýtrasta veikbyggða kóng-
stöðu hvíts og
tryggði sér þar með
sæti í úrslitum þar
sem hann mætti
sjálfum Kasparov..
20...Rxb2! 21.Rxb5
Útilokað var fyrir
hvítan að þiggja
fórnina þar sem eft-
ir 21.Kxb2 Dc3+
eru honum allar
bjargir bannaðar.
21...Hab8! 22.Kc1
Ekki gat hvítur
þegið drottningar-
fórnina sökum 22...
Rd3+ og svartur
mátar. Í framhaldinu er
staða hvíts ekki öfundsverð:
22...De5 23.f4 Dc5 24.Df3
Rc4 25.Bxc4 Dxc4 26.Rd6
Dxa2 27.Kd1 Db1+ 28.Ke2
Dxh1 og hvítur gafst upp.
Skákin tefldist í heild sinni:
1.e4 e6 2.d4 d5 3.Rc3 Rf6
4.Bg5 dxe4 5.Rxe4 Be7
6.Bxf6 Bxf6 7.Rf3 Rd7
8.De2 O-O 9.O-O-O b6
10.h4 Bb7 11.h5 c5 12.h6 g6
13.dxc5 Bxe4 14.Dxe4 Rxc5
15.Db4 Dc7 16.Be2 b5
17.Kb1 a5 18.Dg4 Ra4
19.Rd4 Hfc8 20.Hd2 o.s.frv.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
70 ÁRA afmæli. Nk.föstudag 27. apríl
verður sjötugur Óli H. Óla-
son, sjómaður frá Grímsey.
Hann og kona hans Hall-
dóra Traustadóttir taka á
móti ættingjum og vinum
laugardaginn 28. apríl á
Hótel KEA Akureyri frá
kl.17.00
SKRÁNING Í SÍMUM
551 9160 OG 551 9170
Ofurminni-Minnistækni
Lær›u minnistækni sem hjálpar flér a› muna allt sem flig
langar til a› muna og skerpa um lei› athyglisgáfuna.
Námskei›i› ver›ur laugardaginn 28. apríl
næstkomandi frá kl. 10:00 - 16:00.
Ver› a›eins 6.500,-
Hringdu og skrá›u flig núna!
Skráningarsími:
891 8100
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
NAUT
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert réttlátur og ráðagóð-
ur og því leitar fólk gjarnan
til þín. En þú þarft að læra
að segja nei.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu græðgina ekki ná tök-
um á þér því oft leiðir hún
menn í glötun. Reyndu held-
ur að búa að þínu og þá mun
þér betur farnast.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Orkan streymir út frá þér en
þú þarft að læra að passa þig
svo aðrir tæmi ekki allar þín-
ar orkubirgðir og þú eigir
ekkert eftir fyrir sjálfan þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það getur tekið á taugarnar
að þurfa að umgangast
áhugalítið fólk en stundum
verður ekki hjá því komist og
þá reynir á þolinmæði og
þrautseigju.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það væri ekki úr vegi að slá
upp smá samkvæmi fyrir vini
og vandamenn og endur-
gjalda þeim þannig þá mörgu
greiða sem þeir hafa innt af
hendi í þína þágu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú mátt ekki láta einkamálin
ganga út yfir þá ábyrgð sem
þú berð á vinnustað þínum.
Ef nauðsyn krefur skaltu
taka þér frí til að ganga frá
málunum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú munt eiga í byrjunarörð-
ugleikum þegar þú hefst
handa við stórt verkefni sem
þér verður falið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Finndu einhverjar nýjar að-
ferðir svo þú getir skilað þeim
árangri í starfi sem af þér er
vænst. Treystu á sjálfan þig
því aðrir munu ekki leysa
þessi mál fyrir þig.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Valdabarátta og persónuleg
átök ríða húsum á vinnustað
þínum. Reyndu að leiða þetta
allt hjá þér og öllu máli skipt-
ir að þú haldir ró þinni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er svo margt sem manni
getur dottið í hug en á samt
enga möguleika í heimi raun-
veruleikans.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þótt miklu skipti að ná ár-
angri í starfi máttu ekki
gleyma starfsgleðinni. Hún
er ein af undirstöðuatriðum
þess að þér verði eitthvað úr
verki.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Einhverjar breytingar liggja
í loftinu og þótt þér lítist ekki
á allt sem þeim fylgir skaltu
vera jákvæður og leggja þig
fram um að þær gangi
þrautalaust fyrir sig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú verður að taka málin í þín-
ar hendur því annars koðna
þau bara niður og ekkert
verður úr því að þú fáir þá
umbun sem þú átt skilið ef þú
bara beitir þér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Í LOK febrúar fór fram í
Haag í Hollandi árlegt al-
þjóðlegt bridsmót kennt við
Forbo-Krommenie, sem er
styrktaraðili mótsins. Þetta
er sveitakeppni í tveimur
flokkum – annars vegar er
keppni fjölda sveita sem
hafa það markmið að kom-
ast í tíu liða úrslit, en hins
vegar er svokallað „Nations
Cup,“ þar sem fjórar þjóðir
keppa innbyrðis nokkurs
konar sýningarleiki. Gest-
gjafarnir eru auðvitað alltaf
í hópi keppenda í „Þjóðar-
leikunum“, en í þetta sinn
voru hinar þrjár þjóðirnar
Ítalir, Bandaríkjamenn og
Pólverjar. Bandaríkjamenn
unnu með góðum sigri á
Hollendingum í lokaumferð-
inni. Þar kom þetta spil upp:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ K42
♥ Á872
♦ 3
♣ DG1062
Vestur Austur
♠ G6 ♠ 10953
♥ KG5 ♥ 1094
♦ Á754 ♦ 1094
♣ 8743 ♣ 9
Suður
♠ ÁD87
♥ D63
♦ KD9
♣ ÁK5
Vestur Norður Austur Suður
Jansma Gitelman Verhees Moss
-- Pass Pass 2 grönd
Pass 3 lauf Pass 3 tíglar
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 hjörtu Pass 6 grönd
Pass Pass Pass
Slemman er bersýnilega
mjög vond í NS og á hinu
borðinu fóru Hollendingar
niður á sex laufum. En Moss
tókst að vinna sex grönd eft-
ir hagstætt útspil Jansma í
byrjun – en hann kom út
með hjarta frá KGx.
Moss átti fyrsta slaginn á
drottninguna og sá nú ellefu
slagi og tólf í hagstæðri
spaðalegu. Hann fór inn á
blindan á spaðakóng og spil-
aði tígli á kónginn. Jansma
drap strax (enda staðan
óljós) og spilaði hjartakóng.
Moss tók með ás, fór heim á
lauf og spilaði tíguldrott-
tningu. Síðan rúllaði hann
niður öllum laufunum og
þvingaði austur í lokastöð-
unni með fjórlitinn í spaða
og hæsta tígul. Neyðarlegt
spil fyrir Hollendinga og
kostaði þá 17 IMPa.
Í sigursveitinni með Git-
elman og Moss spiluðu
Weinstein og Carruthers.
Ítalir urðu í öðru sæti, Hol-
lendingar þriðju og Pólverj-
ar fjórðu. Fjöldi áhuga-
verðra spila kom upp á
mótinu, og verða sum þeirra
skoðuð hér í þættinum.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
Hlutavelta