Morgunblaðið - 24.04.2001, Page 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AGÚRKUR kostuðu 389 krónur
kílóið í verslunum Hagkaupa síð-
ustu vikuna í marsmánuði, en ekki
317 krónur, eins og hermt var hér í
Morgunblaðinu sl. fimmtudag, sam-
kvæmt upplýsingum frá Hagkaup-
um. Kostnaðarverð Hagkaupa á
kílóið var 190 krónur. Smásölu-
álagning Hagkaupa á agúrkur síð-
ustu vikuna í mars var því ekki
46,3% eins og stóð í súluriti um
verðmyndun á agúrkum, heldur
79,5%.
Samkvæmt því sem Finnur Árna-
son, framkvæmdastjóri Hagkaupa,
segir, var um ásláttarvillu að ræða,
sem gerði það að verkum, að fyr-
irtækið lét Morgunblaðinu ekki í té
réttar upplýsingar.
Af þeim sökum verða endurbirt
þau samanburðarsúlurit sem voru í
fimmtudagsblaðinu, þar sem bornar
voru saman þær upplýsingar sem
Hagkaup veittu Morgunblaðinu um
sundurgreindar kostnaðarupplýs-
ingar um álagningu á agúrkum við
upplýsingar sem Morgunblaðið birti
um verðmyndunina 12. apríl sl.
Meðaltalsálagning
er á bilinu 40–45%
Finnur sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að þótt þessi mistök
hafi átt sér stað, þá standi hann við
þau orð sín hér í Morgunblaðinu sl.
fimmtudag, að meðalálagning á
ávexti og grænmeti í verslunum
Hagkaupa sé á bilinu 40% til 45%
yfir árið.
Samkvæmt sundurliðun frá Hag-
kaupum var kostnaðarverð við inn-
kaup á agúrku í marsmánuði 190
krónur á kílóið. Smásöluverð var 1.
mars til 12. mars 386 krónur kílóið,
13. mars til 18. mars 289 krónur
kílóið og 19. mars til 31. mars 389
krónur kílóið.
Agúrkur kost-
uðu 389 krónur
í Hagkaupum
!
" #$
"$
%$& "$
' $&(
$) *
+$
,
&
" #$
!"#
$ %
&'#
!
(
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Hagkaupum:
Þar sem forráðamenn Hagkaupa
hafa orðið varir við, að verið er að
dreifa til fjölmiðla sölunótum frá fyr-
irtækinu, sem sýna allt að 300%
álagningu á einstaka vöruliði á ein-
staka tímum, óska Hagkaup eftir að
koma eftirfarandi upplýsingum á
framfæri um verðmyndun á græn-
meti og ávöxtum:
1. Hagkaup hefur skýrt frá að
meðalálagning á ávexti og grænmeti
á ársgrundvelli sé á bilinu 40–45%.
2. Þessi álagning er fyrir rýrnun,
sem er að meðaltali 6–9%.
3. Framangreind álagning er einn-
ig fyrir allan kostnað við rekstur
verslunar.
4. Hagkaup hefur afhent Sam-
keppnisstofnun og Morgunblaðinu
sundurliðaðar upplýsingar um
kostnaðarverð og verðmyndun á
ýmsum tegundum af grænmeti.
Hagkaup er eitt fyrirtækja á smá-
sölumarkaði sem hefur afhent slíkar
upplýsingar til fjölmiðla.
Nú ber svo við að aðilar á þessum
markaði hafa verið að dreifa upplýs-
ingum til fjölmiðla, þar á meðal ein-
stökum nótum með upplýsingum um
kostnaðarverð. Þessar upplýsingar
stangast ekki á við áður framlögð
gögn. Þessum upplýsingum er ber-
sýnilega dreift með það að markmiði,
að valda Hagkaupum tjóni. Hagkaup
leggja áherslu á, að þrátt fyrir að
dæmi séu um verulega álagningu á
einstaka vöruliði á ákveðnu tímabili,
þá stendur fullyrðing fyrirtækisins,
að meðalálagning á ávexti og græn-
meti á ársgrundvelli er á bilinu 40–
45%.
Fréttatilkynning frá Hagkaupum
Sölunótum dreift
til fjölmiðla
NEMENDUR í 10. bekk grunn-
skólans tóku í gærmorgun sam-
ræmt próf í íslensku, en 3.736
nemendur á landinu öllu voru
skráðir í prófið að þessu sinni.Alls
eru 3.879 nemendur í 10. bekk.
Nemendur fá þrjár klukkustundir
í hvert próf og á morgun munu
þeir taka próf í ensku, á miðviku-
daginn í Norðurlandamálum og
prófunum lýkur síðan á fimmtu-
daginn með prófi í stærðfræði.
Prófið er framkvæmt með nýju
sniði núna því nemendur geta val-
ið að sleppa prófum í einstökum
greinum. Sigurgrímur Skúlason,
sviðsstjóri samræmdra prófa hjá
Rannsóknarstofnun uppeldis- og
menntamála, sagði að nokkuð
mismunandi væri eftir fögum
hversu margir skráðu sig í prófin.
Flestir nemendur
eru skráðir í íslensku
Flestir væru skráðir í íslensku
eða rúmlega 96% nemenda, en
fæstir í próf í Norðurlandamálum,
þ.e. dönsku, sænsku og norsku,
eða tæplega 93% nemenda. Tæp-
lega 96% nemenda eru skráðir í
stærðfræði og ensku að þessu
sinni.
Sam-
ræmdu
prófin
eru hafin
Morgunblaðið/Ásdís
Nemendur í Tjarnarskóla þreyttu samræmt próf í íslensku í gærmorgun.
MIKLAR sveiflur eru í smásölu-
álagningu grænmetis og ávaxta hér á
landi. Samkvæmt gögnum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér var
smásöluálagning á einum tilteknum
degi í marsmánuði í einni verslun
Hagkaupa allt frá því að vera nei-
kvæð (þannig að verslunin þurfti að
gefa með vörunni) upp í það að vera
218%. Gögnin gefa til kynna að með-
altal álagningarinnar þennan dag
hafi verið nálægt því að vera 70%.
Það skal áréttað að hér er um upp-
lýsingar að ræða, sem einungis ná til
eins dags í einni verslun Hagkaupa
og í öllum tilvikum var um innflutt
grænmeti og ávexti að ræða. Upplýs-
ingarnar sem slíkar gefa því ekki til
kynna hver álagningin er á árs-
grundvelli.
Stórmarkaðirnir láta gera fyrir sig
verðkönnun með reglulegu millibili.
Ein slík var gerð 30. mars sl. Miðað
við þá verðkönnun var smásölu-
álagningin hjá ofangreindri verslun
Hagkaupa 83% á blaðlauk, 30% á
blómkál, 26% á kínakál, 30% á lauk,
67% á rauð vínber, 33% á græna
papriku, 60% á tómata og 218% á
hvítlauk svo nokkur dæmi séu tekin.
Álagningin á rauða papriku reyndist
aftur á móti vera neikvæð um 9,6%
þennan dag, því heildsöluverðið var
740 krónur fyrir kílóið, smásöluverð-
ið var 778 krónur og þá er eftir að
draga frá 14% virðisaukaskatt. Smá-
söluálagningin á gula papriku reynd-
ist aftur á móti vera 9%. Einingaverð
í grænum eplum var 94 krónur kílóið,
smásöluverð var 185 krónur fyrir
kílóið og smásöluálagningin því 72%.
Einingaverð af Jonagold-eplum var
52 krónur kílóið, smásöluverð var
147 krónur kílóið og smásöluálagn-
ingin því 151%. Rauð epli frá Banda-
ríkjunum voru hins vegar með ein-
ingaverðinu 120 krónur kílóið,
smásöluverð var 185 krónur og smá-
söluálagningin því 35%.
Smásöluálagning á appelsínur var
90%, einingaverð þeirra var 97 krón-
ur kílóið og smásöluverð 185 krónur.
Sítrónur voru með 195% smásölu-
álagningu, blá og græn vínber og
kiwi-ávöxturinn með 53% smásölu-
álagningu og smásöluálagning á
rauðlauk var 148% þennan umrædda
dag.
Morgunblaðið birti úttekt um
verðmyndun á grænmetis- og
ávaxtamarkaðnum 12. apríl sl. þar
sem fram kom að álagning stórmark-
aða væri á bilinu 60% til 80%. Sam-
kvæmt þeim gögnum sem vitnað er
til hér að ofan, var smásöluálagning í
ofangreindri verslun Hagkaupa að
meðaltali nálægt því að vera um 70%
á grænmeti og ávexti þann dag sem
gögnin ná yfir, eins og fram kemur
hér að ofan.
Meðalálagning um
70% einn tiltekinn dag
Smásöluálagning grænmetis og ávaxta í einni verslun Hagkaupa
HAGKAUP hafa látið Morgun-
blaðinu í té sölutölur yfir ávexti og
grænmeti í átta verslunum sínum
fyrstu þrjá mánuði ársins. Finnur
Árnason, framkvæmdastjóri Hag-
kaupa, segir tölurnar sanna fyrri
orð sín um að meðalálagning yfir ár-
ið á ávöxtum og grænmeti sé á bilinu
40 til 45%. Uppsöfnuð framlegð á
þessu tímabili af 234 tegundum
ávaxta og grænmetis sé 32,3% að
meðaltali sem Finnur segir að jafn-
gildi 47–48% álagningu.
„Við erum með hærri álagningu
yfir vetrartímann þó að við bjóðum
lægra verð. Við höfum minna upp úr
sölu á grænmeti og ávöxtum frá ís-
lenskum framleiðendum yfir sumar-
tímann. Ég stend enn við þau orð að
meðalálagningin á ársgrundvelli sé
40 til 45%. Á einhverjum tímapunkti
borgum við með vörunni en á öðrum
tíma er álagningin mikil á einhverri
annarri vöru,“ segir Finnur.
Tölurnar sýna að í verslunum
Hagkaupa fyrstu þrjá mánuðina
voru tæp 700 tonn af ávöxtum og
grænmeti seld fyrir um 166 milljónir
króna með virðisaukaskatti. Án
skatts nam salan 145 milljónum
króna og þar af var kostnaðarverð
98,2 milljónir, samkvæmt upplýsing-
um Hagkaupa. Framlegðin, eða það
sem Hagkaup fengu í sinn hlut, var
46,8 milljónir eða 32,3% af allri sölu
án vsk. Vegna trúnaðar við birgja
sína vildi Finnur ekki að verðmynd-
un einstakra vörutegunda yrði birt
þar sem um viðkvæmar viðskipta-
upplýsingar væri að ræða.
Tölurnar sýna ákaflega mismikla
sölu eftir einstökum tegundum
þessa þrjá mánuði, allt frá kílói af
parahnetum upp í 85 tonn af banön-
um.
Hagkaup birta tölur um sölu ávaxta og græn-
metis fyrstu þrjá mánuði ársins
Meðalálagningin
var 47–48%
SEX ára drengur hjólaði út á götu og
í veg fyrir bíl á Akureyri rétt fyrir
klukkan 18 í gær. Í fyrstu leit út fyrir
að hann hefði slasast talsvert en að
sögn lögreglunnar virðist betur hafa
farið en á horfðist.
Pilturinn, sem var hjálmlaus, mun
hafa hjólað af göngustíg og út á göt-
una Grænumýri og skollið þar á hlið
bíls. Vankaðist hann við höggið.
Drengur
fyrir bíl