Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 18
AKUREYRI
18 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Allar frekari upplýsingar eru veittar á
Fasteignasölunni BYGGÐ,
Strandgötu 29, Akureyri.
Opið virka daga frá kl. 9-12 og 13-17.
Sími 462 1744 og 462 1820
Til sölu
í miðbæ Akureyrar
tvær nýstandsettar þriggja herbergja íbúðir á frábærum
stað í listagilinu á Akureyri. Íbúðirnar eru kjörnar
sem orlofsíbúðir.
KONRÁÐ Alfreðsson, for-
maður Sjómannafélags
Eyjafjarðar, segir að stað-
an í kjaradeilu sjómanna
og útvegsmanna valdi
áhyggjum nú þegar verk-
fall hefur staðið í þrjár
vikur og fátt bendi til að
vilji sé meðal útvegs-
manna til að leysa deiluna.
Samninganefnd Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar
kom saman til fundar á
Akureyri í gær þar sem
farið var yfir stöðuna og
segir Konráð að baklandið
sé sterkt og mikill vilji til
þess meðal sjómanna að
deilan leysist. „Við verðum
hins vegar að leysa þetta
mál sjálfir og það verður
bara að taka þann tíma í
að leysa það sem þarf. Það
er mjög mikilvægt,“ sagði
Konráð.
Vilja knýja fram samn-
inga um stöðnun í
kjaramálum
Á fundinum var fullri
ábyrgð lýst á hendur út-
gerðarmönnum vegna
verkfallsins á fiskiskipa-
flotanum. „Viljaleysi til að
leysa deiluna með kjara-
samningi hefur einkennt
framkomu útgerðarmanna
við samningaborðið und-
anfarnar vikur og náði há-
marki með svokölluðu til-
boði þeirra um verð-
myndunarmál síðastliðinn
fimmtudag. Þar kom ber-
legar í ljós en áður að
markmið útgerðarmanna
við samningaborðið er að
knýja sjómenn til að skrifa
undir samning um stöðnun
í kjaramálum og í sumum
tilfellum hreina launa-
lækkun,“ segir í ályktun
fundarins og einnig að
undir slíkt muni sjómenn
aldrei skrifa. Lýsti samn-
inganefnd Sjómannafélags
Eyjafjarðar yfir fullum
stuðningi við samninga-
nefnd Sjómannafélags Ís-
lands sem taldi að með til-
boðinu hefðu útgerðar-
menn slitið viðræðunum.
„Þetta var fáheyrt tilboð
sem okkur var gert þarna
og við getum ekki dregið
af því aðrar ályktanir en
að útgerðarmenn séu að
bíða eftir einhverju öðru,“
sagði Konráð.
Í ályktuninni er það orð-
að svo að staðan í kjara-
deilunni sé grafalvarleg og
„tímabært að öllu daðri út-
gerðarmanna við lagasetn-
ingu til lausnar deilunni
verði hætt“.
Konráð segist trúa því
að kjarasamningar náist,
en taka verði tíma í að fara
yfir málin og þann tíma
verði menn að gefa sér.
Samninganefnd Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar
lítur svo á að útgerðar-
menn hafi það í hendi sér
hvernig viðræðum verði
komið af stað á nýjan leik,
en til þess þurfi skýrari
samningsvilja en síðasta
tilboð sýndi.
Ávísun á launalækkun
Benti fundurinn á að
aðrir launþegar hafi samið
um slysatryggingar, sér-
eignasparnað í lífeyrissjóð,
starfsaldurstengt orlof,
uppsagnarfrest, hækkun
kaupliða og kauptrygging-
ar og um þessi atriði þurfi
sjómenn einnig að semja.
Sérmál sjómanna sem lýt-
ur að verðmyndun sjávar-
afla þurfi einnig að vera til
umræðu en þar sé lág-
markskrafa sjómanna sú
að ná aftur þeirri stöðu
sem var 1996. Frá þeim
tíma hafi bilið aukist um
25% milli verðs á fiski í
beinni sölu og á markaði
og eina lausnin sé sú að
verðmyndun á fiski taki í
öllum tilfellum mið af
markaðsverði.
Þá segir Konráð að út-
gerðarmenn verði að
draga til baka hugmyndir
um fækkun í áhöfnum
skipanna. Næði krafa
þeirra um færri menn í
áhöfn fram að ganga væri
það ávísun á launalækkun
sjómanna og eins væri
slíkt ávísun á það að brjóta
vökulög. Ljóst væri að
slíkt hefði í för með sér að
sjómenn yrðu að vinna
meira en lög leyfa.
Samninganefnd Sjómannafélags Eyjafjarðar fór yfir stöðu mála í kjaradeilu við útvegsmenn
Öllu daðri við laga-
setningu verði hætt
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Samninganefnd Sjómannafélags Eyjafjarðar fundar.
Konráð Alfreðsson formaður er við borðsendann.
TRILLUSJÓMENN hafa verið að
róa út frá Sandgerðisbót á Akur-
eyri síðustu daga þó svo að yfir
standi sjómannaverkfall. Þeir hafa
verið að fá svolítið af þorski og ýsu
og var hann Björn Gunnarsson,
fyrrverandi starfsmaður í Krossa-
nesi, að viðra sig á bryggjunni í gær
og fylgjast með aflabrögðunum
þegar bátarnir komu að. Hann var
svo stálheppinn að ná í spriklandi
væna ýsu sem væntanlega hefur
lent ofan í potti þegar leið að kvöldi.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Spriklandi
ýsa í soðið
í Sand-
gerðisbót
BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur
samþykkt byggingaleyfis- og þjón-
ustugjöld fyrir jafnt íbúðarhúsnæði,
atvinnu- og þjónustuhús og stofnan-
ir. Gjald fyrir byggingaleyfi er ný-
mæli og er 60.000 krónur fyrir ein-
býlishús, 50.000 krónur fyrir íbúð í
parhúsi, tvíbýlishúsi og raðhúsi á
einni hæð og frá 30.000–42.000 krón-
ur fyrir íbúð í raðhúsum á fleiri en
einni hæð og fjölbýlishúsum.
Byggingaleyfisgjöld fyrir atvinnu-
og þjónustuhúsnæði og stofnanir eru
frá 60.000–80.000 krónum, eftir
stærð. Gatnagerðargjöld eru óbreytt
en slíkt gjald fyrir einbýlishús er
rúmlega 1,3 milljónir króna. Hins
vegar hefur staðfestingargjald
vegna lóðaúthlutunar verið lækkað
úr 30.000 krónum niður í 10.000
krónur. Þá þarf samkvæmt þessum
nýju gjöldum að greiða 10.000 krón-
ur í framkvæmdaleyfi, 6.000 krónur
fyrir hverja endurskoðun aðalupp-
drátta, 10.000 krónur fyrir aukavott-
orð um byggingarstig og stöðuúttekt
og þá kostar endurnýjun leyfis án
breytinga 4.000 krónur.
Dan Brynjarsson, fjármálastjóri
Akureyrarbæjar, sagði að bygginga-
leyfis- og þjónustugjöldin ættu að
endurspegla tilfallandi kostnað bæj-
arins.
Hann nefndi sem dæmi að fara
þurfti 11 sinnum yfir teikningu af
fjölbýlishúsi, þar sem gerðar voru
athugasemdir sem voru aðeins að
hluta lagfærðar í hvert skipti. „Það
gengur ekki að byggingadeild bæj-
arsins standi í hönnunarvinnu án
þess að það kosti neitt. Þannig að ef
teikning er ekki fullnægjandi í upp-
hafi þarf að greiða sérstaklega fyrir
nýja yfirferð aðaluppdrátta. Flestir
hönnuðir skila reyndar vönduðum
uppdráttum þannig að ekki reynir á
það að fara þurfi margoft yfir upp-
drætti.
Innifalið í byggingaleyfisgjaldinu
er, eins og fram kemur í gjaldskrá,
gjald vegna útmælingar og hæðar-
setningar, byggingareftirlits, lög-
bundinna úttekta, fokheldisvottorðs
og vottorðs vegna lokaúttektar.
Akureyrarbær auglýsti á dögun-
um lausar til umsóknar 19 einbýlis-
húsalóðir og tvo raðhúsareiti við
Klettaborg. Umsækjendum um ein-
býlishúsalóðirnar er gert skylt að
leggja fram greiðslumat frá viður-
kenndri fjármálastofnun á greiðslu-
getu sinni fyrir húsnæði að verðmæti
allt upp í 15 milljónir króna og er það
nýmæli að leggja skuli fram slík
gögn. Þá þurfa umsækjendur um
raðhúsareitina að leggja fram stað-
festingu viðskiptabanka á greiðslu-
getu sinni.
Dan sagði að með því að óska eftir
greiðslumati væri m.a. verið að fá
fólk til þess að sýna fram á að það
geti ráðist í byggingaframkvæmdir
og að alvara sé á bak við umsókn-
irnar en ekki séu fengnir vinir og
kunningjar til að sækja um eftirsótt-
ar lóðir til þess að auka líkurnar á að
hreppa lóð þegar dregið er úr um-
sóknum.
Húsbyggjendur greiði
byggingaleyfisgjald
KENNSLA um búddíska hug-
leiðingu verður á Akureyri
fimmtudaginn 26.apríl en hún
ber yfirskriftina
„Eight Steps to happiness“.
Kennari er búddamunkurinn
Venerable Kelsang Drubchen
sem er kennari hjá Karuna í
Reykjavík, samfélagi Mahay-
ana-búddista á Íslandi.
Kennslan fer fram á ensku og
verður haldin að Glerárgötu 32
(gengið inn að austanverðu) og
hefst
kl. 20.30. Aðgangseyrir er kr.
1000
en kr. 500 fyrir námsmenn og
öryrkja. Allir eru velkomnir.
Kennsla um
búddisma