Morgunblaðið - 24.04.2001, Síða 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 19
Bílaland B&L
Tilboðsbílar
www.bilaland.is
bíla
land
notaðir bílar
B&L
Grjóthálsi 1
sími 5751230
Honda Civic Si
Nýskr. 7.1996, 1400cc vél,
5 dyra, 5 gíra, grænn,
ekinn 82 þ.
Hyundai Accent GSi
Nýskr. 7.1998, 1500cc vél,
3 dyra, 5 gíra, gulur,
ekinn 36 þ.
Toyota 4Runner SR5
Nýskr. 1.1987, 3000cc vél,
3 dyra, sjálfskiptur, grár,
ekinn 170 þ.
BMW 318i Touring
Nýskr. 3.1997, 1800cc vél,
5 dyra, sjálfskiptur, blár,
ekinn 56 þ.
Verð 1.470 þ.
Hyundai Sonata
Nýskr. 3.1995, 2000cc vél,
4 dyra, sjálfskiptur, hvítur,
ekinn 115 þ.
Tilboðsverð 580 þ.
Tilboðsverð 690 þ.
Tilboðsverð 150 þ.
Tilboðsverð 480 þ.
Renault Megane RN
Nýskr. 6.1998, 1400cc vél,
4 dyra, 5 gíra, v+ínrauður,
ekinn 80 þ.
Verð 830 þ.
Verð 920 þ.
Verð 650 þ.
MMC L-300 4WD
Nýskr. 2.1988, 2000cc,
5 dyra, 5 gíra, grár,
ekinn 165 þ.
Suzuki Vitara
Nýskr. 5.1993, 1600cc vél,
5 dyra, 5 gíra, blár,
ekinn 105 þ.
Tilboð 550 þ.
Verð 750 þ.
Verð 290 þ.
Tilboðsverð 170 þ.
Verð 820 þ.
Verð 270 þ.
KÓR Menntaskólans á Akureyri
heldur vortónleika sína annað
kvöld, miðvikudaginn, 25. apríl kl.
20:00 í Akureyrarkirkju. Stjórn-
andi kórsins er Guðmundur Óli
Gunnarsson. Á efnisskrá kórs MA
að þessu sinni eru aðallega íslensk
verk, bæði sönglög og þjóðlög og
mörg þeirra í nýjum og nýlegum
útsetningum.
Þetta eru síðustu tónleikar kórs-
ins áður en hann heldur í söngferð
til Edinborgar á Skotlandi, en
þangað verður haldið 27. apríl og
sungið fyrir fólk þar á bæ sem og í
Hálöndum Skotlands.
Kórfélagar eru um 40 talsins,
hálfur annar tugur drengja og
hálfur þriðji tugur stúlkna. Æf-
ingar hafa verið stífar eftir að
skólastarf hófst að loknu verkfalli.
Æft hefur verið tvisvar í viku, tvo
tíma í senn, og auk þess farið í
söngbúðir eina helgi. Þá hafa kór-
félagar staðið fyrir söfnun far-
areyris með ýmiss konar sölu auk
þess að syngja í stofnunum og
verslunum og halda söngmaraþon.
Með kórnum í för verða kór-
stjórinn Guðmundur Óli Gunnars-
son og fararstjóri og skipu-
leggjandi ferðarinnar, Jónas
Helgason kennari. Í Edinborg
taka á móti kórnum Bragi Guð-
mundsson lektor við Háskólann á
Akureyri, lengi kennari við MA,
og Ragnheiður Sigurðardóttir yf-
irbókavörður MA, en þau eru í
ársleyfi við framhaldsnám í Ed-
inborg.
Ljósmynd/Sverrir Páll Erlendsson
Kór MA á æfingu, stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Íslensk
sönglög
á vortón-
leikum
Kór Menntaskólans
á Akureyri
VEITINGAHÚSIÐ Brekka í Hrísey
hefur verið auglýst til sölu en stað-
urinn hefur verið rekinn í eynni frá
árinu 1984. Smári Thorarensen,
skipstjóri á Hríseyjarferjunni Sæv-
ari, og kona hans Steinunn Sigur-
jónsdóttir hafa rekið staðinn frá upp-
hafi en fyrstu tvö árin ásamt öðrum
hjónum.
Veitingahúsið Brekka hefur
löngum verið þekkt fyrir Galloway
nautakjötið en Smári sagði að í seinni
tíð hafi verið minna um slíkt kjöt á
borðum en það væri þó enn fáanlegt.
Hann sagði að reksturinn hafi gengið
vel í gegnum tíðina en að nú teldu
þau hjón að kominn væri tími til að
breyta til. Smári sagði að nokkuð hafi
verið um fyrirspurnir um staðinn.
„Þessi rekstur er mjög bindandi
og okkur finnst kominn tími til að
komast í gott sumarfrí. Ég finn líka
fyrir því að maður er farinn að dofna
með aldrinum en hér er hægt að gera
marga góða hluti. Það er kominn tími
á nýtt blóð og helst vildi ég sjá kraft-
mikinn heimamann taka við þessu.“
Smári sagði að hægt væri að fjölga
ferðafólki til muna í Hrísey en til
þess þyrfti að leggja í ákveðna mark-
aðsvinnu. Hann sagði að staðurinn
hafi verið rekin með föstu starfsfólki
frá júní og fram í september en yfir
vetrartímann sæju þau hjón og þá
aðallega konan um reksturinn ásamt
lausafólki. Þá er fastur opnunartími
á laugardögum en einnig er hægt að
hafa opið á öðrum tímum.
Húsnæði Brekku er um 270 fer-
metrar að stærð, sem skiptist í kjall-
ara þar sem er m.a. salur fyrir 35
manns, á miðhæð er salur fyrir 65
manns, bar, snyrtingar og eldhús og
á efstu hæð eru 3 gistiherbergi,
snyrtingar og skrifstofa.
Veitingahúsið Brekka í Hrísey til sölu
„Kominn tími á nýtt blóð“