Morgunblaðið - 03.07.2001, Side 18

Morgunblaðið - 03.07.2001, Side 18
36 AUSTFIRSKAR konur, búsettar í Reykjavík, tóku sig til og héldu til Fáskrúðsfjarðar á dögunum en flest- allar kvennanna eru þaðan. Þar var þeim boðið í kaffi- samsæti sem haldið var af kvenfélaginu Keðjunni og Slysavarnafélaginu Hafdísi. Konurnar komu við á dval- arheimilinu Uppsölum þar sem heilsað var upp á vist- menn og voru þar fagnaðarfundir. Konurnar afhentu kapellu dvalarheimilisins forláta kertastjaka að gjöf. Morgunblaðið/Albert Kemp Fáskrúðsfjörður sóttur heim Fáskrúðsfjörður LANDIÐ 18 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sveitafélög, verktakar og einstaklingar sláttutraktorinn slær í gegn ⓦ Blaðbera vantar í norðurbæ Sandgerðis. Upplýsingar veitir umboðs-maður á staðn-um, Jóhanna Konráðsdóttir í síma 423 7708. VIÐSKIPTI FÆREYSKIR dagar voru í Ólafsvík um helgina og lögðu margir leið sína þangað eins og búist var við, enda veðrið eins og best verður á kosið, sólskin og hiti. Talið er að tæplega 7.000 manns hafi verið í bænum á laugardeginum þegar flest var. Tjaldað var í Ólafsvík á nánast hverj- um grasfleti sem fannst og voru m.a. myndarlegar tjaldbúðir umhverfis kirkjuna. Þetta er í fjórða sinn sem Fær- eyskir dagar eru haldnir í bænum og hefur fjöldi gesta farið ört vaxandi ár frá ári. Í fyrra er talið að um 3500 gestir hafi komið á hátíðina. Það eru Færeyingar, búsettir í Ólafsvík, sem standa fyrir hátíðinni ásamt heima- mönnum. Hátíðarhöldin hófust formlega á föstudagsmorgninum með því að ís- lenskir og færeyskir fánar voru dregnir að húni víðs vegar um bæinn. Upp úr hádeginu var svo opnaður úti- markaður, þar sem gestum gafst m.a. tækifæri til að beragða á færeyskum frikadellum, knöttum, rastkjöti og skerpikjöti. Leiktæki fyrir börnin voru opin alla helgina. Bryggjuball var haldið á föstudagskvöldinu þar sem færeyska bandið Hans Jakob og vinfolk spiluðu fyrir dansi. Á laugardeginum voru svo Fær- eyskir dagar formlega settir kl. 14, þar voru flutt ávörp, sungið og boðið upp á margs konar skemmtiatriði. Um kvöldið var haldinn risadansleik- ur í félagsheimilinu þar sem hljóm- sveitin Twilight hélt uppi fjörinu. Á sunnudeginum var útimessa kl. 13, svokölluð Götumessa, þar sem sókn- arprestarnir í Ólafsvík og Vestmanna þjónuðu fyrir altari og kirkjukórar beggja staðanna leiddu sönginn. Á meðfylgjandi mynd má glögg- lega sjá þá góðu stemmningu sem lék um hátíðargesti á Færeyskum dög- um í Ólafsvík um helgina. Morgunblaðið/Elín Una Geysigóð stemmning ríkti á Færeyskum dögum Ólafsvík ÍSLENSK erfðagreining og Roche Diagnostics, dótturfyrirtæki Hoff- man-La Roche lyfjafyrirtækisins, hafa undirritað samstarfssamning að verðmæti 30 milljarðar króna. Greint var frá undirskrift viljayfir- lýsingar um samstarfið í mars síðast- liðnum. Um er að ræða fimm ára sam- starf við þróun og markaðssetningu nýrra DNA-greiningarprófa sem beinast að algengum sjúkdómum. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskr- ar erfðagreiningar, segir í samtali við Morgunblaðið að samningurinn sé stærri en nokkurn dreymdi um. Til samanburðar má geta þess að upp- haflegi samstarfs- og þróunarsamn- ingur Íslenskrar erfðagreiningar við Hoffman-La Roche lyfjafyrirtækið var metinn á um 200 milljónir Banda- ríkjadala og hlutafjárútboð deCODE á síðasta ári var einnig að upphæð um 200 milljónir Bandaríkjadala. Samn- ingurinn við dótturfyrirtæki Hoff- man-La Roche, Roche Diagnostics, er því sá stærsti sem Íslensk erfðagrein- ing er aðili að. „Samningurinn er afar mikilvægur fyrir okkur,“ segir Kári. „Í fyrsta lagi tvöfaldast hjá okkur það fé sem fer í rannsóknir og það eykur mjög mikið tekjur okkar. Þetta er líka samningur sem miðast við að búa til vörur sem tekur mun skemmri tíma að koma á markað en lyf. Að meðaltali tekur tíu til fimmtán ár að fullþróa og mark- aðssetja lyf eftir að búið er að gera grundvallaruppgötvun. En það á ekki að taka nema kannski fimmtung þess tíma eða jafnvel skemur að þróa greiningartæki á grundvelli uppgötv- unar af sömu gerð.“ deCODE í Russel-vísitöluna Lokagengi hlutabréfa deCODE Genetics, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, á föstudag var 42% hærra en lokagengi fimmtudagsins. Hlutabréfin voru tekin inn í Russel 2000 vísitöluna síðari hluta dags á föstudaginn. Margir fjárfestingar- sjóðir, þ.á m. lífeyrissjóðir, nota þessa vísitölu sem viðmið og þurfa þ.a.l. að kaupa hlutabréf í deCODE til að geta fylgt þeim sem best eftir, að því er fram kemur í Morgunkorni Íslands- banka í gær. Það sem einnig getur skýrt hluta af þessari hækkun, að mati Íslandsbanka, er að önnur líf- tæknifyrirtæki hafa hækkað nokkuð að undanförnu og þar hafa bréf de- CODE setið eftir. Arnbjörn Ingi- mundarson hjá greiningardeild Ís- landsbanka, segir í samtali við Morgunblaðið að 42% hækkun á hlutabréfum deCODE á föstudag sé óvenjumikil í ljósi þess sem virtist búa að baki, þ.e. að bréf félagsins voru tekin inn í Russell-vísitöluna á föstu- dag. Hlutabréf deCODE lækkuðu í gær og var lokagengi félagsins í gær 9,9 dollarar sem er 19,58% lækkun frá því á föstudag, sem var stór viðskipta- dagur. Mestu viðskiptin og mesta hækkunin varð á síðustu klukkustund viðskipta á föstudaginn, sem reyndar voru framlengd um eina klukkustund vegna bilunar í tölvukerfi Nasdaq- hlutabréfamarkaðarins, en þar eru bréf deCODE skráð. „Þegar ljóst var að hlutabréf deCODE yrðu tekin inn í Russell-vísitöluna hafa hlutabréfa- sjóðir sem líkja eftir vísitölunni keypt bréf félagsins og því myndaðist tals- verður kaupþrýstingur. Þetta er tæknilegt atriði og er í raun óeðlilegt að það eitt og sér leiði til svo mikillar hækkunar, enda hafa bréf félagsins lækkað í dag.“ Már Mixa hjá SPH Viðskiptastofu sagði í samtali við fréttavef Morgun- blaðsins í gær: „Gengið fór upp um 40% á föstudaginn án nokkurra frétta í viðskiptum sem eru jafn mikil og öll viðskipti með bréf deCODE fyrstu þrjár vikur mánaðarins. Það vekur upp spurningar um hvort einhver hafi vitað af samningnum áður. Auðvitað er slæmt til þess að hugsa að einhver hafi gert það,“ segir Már. „Fólk þarf að hafa í huga að í Bandaríkjunum gilda afar ströng lög hvað varðar innherjaviðskipti. Lögin eru strangari en á flestum öðrum stöðum í heiminum. Það er viðbúið að SEC-eftirlitsnefndin athugi málið. Fólk var að kaupa bréfin á alveg ótrú- lega háu verð á föstudaginn,“ segir hann og bendir á að á föstudaginn hafi átt sér stað viðskipti á genginu rúm- lega 30 dalir á hlut. „Það er afar líklegt að þessi við- skipti verði rannsökuð. Það er, hverjir hafi átt viðskiptin og á hvaða grund- velli þau hafi átt sér stað,“ segir Már Mixa. Upplýsingaleki ólíklegur Kári Stefánsson bendir á að Nasd- aq-markaðnum var haldið opnum klukkustund lengur á föstudaginn vegna tölvubilunar og það hafi brenglað lokaniðurstöðuna. Hann leggur áherslu á að mjög ólíklegt sé að um upplýsingaleka varðandi samn- inginn við Roche hafi verið að ræða. Hann segir að hættulegt sé að nota markaðinn einan sem mælikvarða á starf fyrirtækja. „Ég held að við verð- um að horfa til lengri tíma og það sem skiptir mestu máli er hvernig mat markaðarins á innviðum fyrirtækis okkar og viðskiptamöguleikum helst til lengri tíma. Að mínu mati er afar vafasamt að horfa á skammtíma- sveiflur, þær skilja ekki eftir nema mismunandi gott eða vont bragð til skamms tíma og segja afskaplega lítið um hvert fyrirtækið er að fara. Það er ævintýralega erfitt að skilja nákvæm- lega hvernig stendur á því hvers vegna markaðurinn bregst við á einn eða annan hátt.“ Hlutabréf líftæknifyrirtækja hafa hækkað nokkuð upp á síðkastið og að- spurður segir Kári að uppstokkun á líftæknimarkaði hafi haft þar eitthvað að segja. Að hans mati er ýmislegt sem bendir til þess að töluvert ris verði á líftæknimarkaðnum næsta ár- ið. Þróunin virðist vera sú að stóru lyfjafyrirtækin snúa sér meira að því að fela líftækniiðnaðinum almennt að sjá um rannsóknir og jafnvel þróun fyrir sig. Íslensk erfðagreining og Hoffman-La Roche undirrita samstarfssamning 30 milljarða samningur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.