Morgunblaðið - 03.07.2001, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 03.07.2001, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 27 nglumýr- ng undir nnig beint aut í stað að draga ssum fjöl- öfuðborg- gatnamót g Miklu- forgangs- amgöngu- eru mjög Að sögn eiki á að ann segir jármagna tímasetja é að hefj- æstu veg- a eftir því forgangs- sé almenn na frekar kil slaufu- ar viljað yrði eitt- ki gleyma mannvirki ð einhver afi hefur gja þegar ma svona ór. jarðgöng li Hring- að skapa ur í mið- ga úr um- þar með etur sam- fyrir veg- fnvel sér- na. erði þann fyrirvara á Holtsgöngum að þau séu hugmynd, sem sé ekki mikið unnin og ekki hafi verið gerðar miklar rannsóknir á því hvernig sé best að láta þau liggja og hvar sé best að hafa munnana. „Þó má segja að Hringbrautarmegin sé hugsunin sú að Holtsgöngin myndu stinga sér niður einhvers staðar milli Umferðarmiðstöðvar og Tanngarðs og fari kannski undir Barónsstíginn, ekki langt frá gamla Kennaraskólanum,“ segir hann, en nefnir tvo möguleika varðandi hinn endann, annars vegar á Sæbraut- inni í námunda við Klapparstíg og hins vegar nær Seðlabankanum og Arnarhóli. Stefán bendir á að verið sé að skoða þann möguleika að hafa göngin með takmarkaðari hæð, þannig að stórir bílar komist ekki inn í þau. Á þann hátt verði þau ódýrari. Hann segir að þungir bílar í Reykjavík séu aldrei nema 10% af umferðinni og sumstaðar ekki nema 2%. „Þetta er orðin tíska að leysa umferðarhnútana í borgum með því að skella litlu bílunum í göng. Til dæmis er verið að leggja tíu kílómetra löng göng núna í Par- ís, sem eru eingöngu fyrir lága bíla,“ segir hann. Engar kostnaðar- tölur hafa verið nefndar í tengslum við Holtsgöng, en Stefán fullyrðir að þessi göng verði ódýrari en hin sem á skipulaginu séu. Hlíðarfótur Hlíðarfótur er vegur frá Hring- braut um jarðgöng undir Öskjuhlíð að Kringlumýrarbraut sem héldi áfram í göngum undir Kópavogs- háls og tengdist Reykjanesbraut. Að sögn Árna Þórs var Hlíðar- fótur inni í skipulagi fyrir nokkuð mörgum árum og þá var hann hugsaður sem braut sem færi milli Fossvogs og kirkjugarðsins, eftir Fossvoginum. Hann segir að við gerð svæðisskipulags höfuðborgar- svæðisins nú hafi aftur komið upp röksemdir um að fá þarna ein- hverja tengingu. Sú hugmynd hafi kviknað að fara með veginn í göng undir Öskjuhlíð og komast þannig undan þessum umhverfisáhrifum, sem braut í gegnum Fossvoginn óneitanlega hefði. „Við höfum sagt að til þess að Hlíðarfóturinn eigi að verða að veruleika verði hann að vera í göngum,“ segir Árni Þór. Að sögn Stefáns er óskað eftir að Hlíðarfótur verði unninn á fyrri hluta tímabilsins, en það sé ekki formlegt, því verið sé að vinna að málinu og leita eftir stuðningi við tillöguna í heild með kynningu fyrir almenningi. Sundabraut Sundabraut er hugsuð í áföngum og er fyrsti áfangi hennar um Kleppsvík tenging Sæbrautar og Hallsvegar, annaðhvort með jarð- göngum eða brú. Árni Þór segir að mati á um- hverfisáhrifum sé ekki lokið. Það hafi verið samkomulag milli borg- arinnar og samgönguráðuneytisins að láta fara fram umhverfismat á tveimur leiðum yfir Kleppsvíkina og síðan tveimur útfærslum af hvorri leið. Árni telur að það geti munað 15-20% á kostnaði á leiðun- um og segir að verið sé að tala um kannski 10-12 milljarða. Hann telur að það sé mjög mikilvægt að vand- að sé til svona mannvirkis og að það fari vel í umhverfi sínu, þar sem það muni koma til með að standa lengi. „Göng hafa kannski minnst áhrif í umhverfi sínu, að minnsta kosti ekki sjónræn áhrif og þú ert ekki að raska neinu þannig, nema þar sem eru munnar og gatnamót og við teljum að það sé æskilegast. En við getum líka alveg séð fyrir okkur brú þarna,“ segir hann, en nefnir jafnframt að þá yrði að leggja mikið í hönnun hennar. Annar áfangi Sundabrautar nær frá Hallsvegi norður í Geldinganes, þriðji áfanginn er úr Geldinganesi yfir í Gunnunes á Álfsnesi og loks er lokaáfanginn brú yfir Kollafjörð, úr Álfsnesi yfir á Kjalarnes. ráðgerð í næstu aðalskipulagsdrögum armannvirki a 60 milljarða aðalskipulagi Reykjavíkur, á frá árinu 2001 til ársins ynnt í liðinni viku. Í þeim ugmyndir um ýmis nýstár- mgöngumannvirki. sem hann fer í gegnum Fossvogsdal að Kringlumýrarbraut og yfir í Kópavog. ÞEIM fjölgar stöðugt semsækjast eftir meðferð áHeilsustofnuninni íHveragerði og standa nú fyrir dyrum ýmsar endurbætur á húsnæði stofnunarinnar til að mæta vaxandi eftirspurn. Árni Gunnars- son, framkvæmdastjóri Heilsustofn- unarinnar, segir að nýtt baðhús og ný herbergjaálma sé meðal þess sem sé í bígerð, enda sé nauðsynlegt að auka við húsa- og tækjakost Heilsustofnunarinnar til að koma til móts við þá þörf sem sé til staðar fyrir starfsemi af þessu tagi. „Upphaflega var stofnunin fyrst og fremst hvíldar- og hressingar- stofnun, en hún hefur verið að breyt- ast stöðugt í þá átt að verða öflugri endurhæfingarstofnun,“ segir Árni. „Við tökum við fólki sem hefur verið í margskonar aðgerðum, svo sem liðaðgerðum og krabbameinsað- gerðum og höfum einnig tekið hjartasjúklinga í framhaldsendur- hæfingu. Fólk sem er með slæma gigtkvilla kemur til okkar og við er- um með sérstaka hópmeðferð fyrir fólk sem er með króníska verki, einnig hópa fyrir offitusjúklinga, reykingahópa, streituhópa,“ segir Árni. „Svo höfum við verið með sér- staka meðferð fyrir konur sem feng- ið hafa brjóstakrabbamein. Við höf- um reyndar verið í viðræðum við Krabbameinsfélagið um aukið sam- starf milli félagsins og okkar, en nú er verulegur skortur á eftirmeðferð fyrir krabbameinssjúklinga,“ segir Árni. Í Heilsustofnuninni eru rúm fyrir tæplega 160 manns og er ásókn mik- il, segir Árni. Yfirleitt séu biðlistar og nú bíði fleiri en oftast áður. Um 2.300 sjúklingar koma á stofnunina á hverju ári og flestir dvelja í fjórar vikur í senn. „Við stöndum frammi fyrir því að þurfa að bæta aðstöðuna hjá okkur. Álagið veldur því að við þurfum stærra húsnæði og fleiri tól og tæki til að geta komið betur til móts við kröfur nútímans. Ætlunin er að láta reisa nýja herbergjaálmu og einnig er verið að undirbúa smíði um 1.000 fermetra baðhúss, þar sem verða innisundlaug og nuddpottar, ásamt svokölluðum strekklaugum sem sjúkraþjálfarar nota til að teygja á hrygg- og hálsliðum. Slíkar laugar hafa ekki verið notaðar hér áður, en eru algengar í Þýskalandi og Ung- verjalandi. Þá verður sérstök vað- laug til að örva blóðrás í fótum og er einnig gert ráð fyrir útilaug og úti- pottum.“ Árni segir að vandinn sé hins veg- ar sá, að þeir fjármunir sem Heilsu- hælið fái frá ríkinu séu eyrnamerkt- ir rekstrinum og því þurfi að sækja um sérstakt fé til uppbyggingar. Auk þess þurfi að endurskoða þjón- ustusamning stofnunarinnar við heilbrigðisráðuneytið. Dvalargjöld hvetjandi fyrir sjúklinga og starfsfólk „Við erum í viðræðum við heil- brigðisráðuneytið um endurnýjun samningsins, en við teljum að grunnupphæðin í honum sé of lág. Einnig þarf að endurskoða lyfja- kostnað. Ráðuneytið kaupir nú 120 rúm, 30 fyrir þunga endurhæfingu og 90 fyrir léttari endurhæfingu. Reynslan er hins vegar sú, að við fáum stöðugt fleiri „þunga“ sjúk- linga. Þessi þróun kallar á meira starfslið; fleiri lækna, hjúkrunar- fræðinga, sjúkraþjálfara og annað fagfólk.“ Árni bendir á að Heilsuhælið hafi ákveðna sérstöðu innan heilbrigðis- kerfisins að því leyti að þar eru inn- heimt dvalargjöld af sjúklingum, sem greiða um fjórðung af dvalar- gjaldi sínu. „Það væri að mörgu leyti æskilegt að þurfa ekki að taka gjald af sjúk- lingunum, en þó hefur gjaldtakan ákveðna kosti. Hún gerir það að verkum að sjúklingarnir geta gert kröfur um að þjónustan sé góð og það er mikil hvatning til starfsfólks, að það veiti sem besta þjónustu. Þannig er þetta hvetjandi fyrir sjúk- lingana til að fara fram á þá þjón- ustu sem þeir eiga tilkall til og hvetj- andi fyrir starfsfólkið til að veita þá þjónustu. Það er líka gert. Við höf- um átt því láni að fagna að hafa af- burðagott starfsfólk í öllum deildum. Og með því stendur og fellur rekstur þessarar stofnunar,“ segir Árni. Hann segist telja að æskilegt væri að þurfa ekki að standa í innheimtu dvalargjalda, en að gjaldtakan sé leifar frá fyrri tíð, þegar dvalargest- ir greiddu daggjöld, sem fóru til framkvæmda. „Ríkisendurskoðun gerði athuga- semd við þessa notkun fjárins og kvað peningana eiga að fara í rekst- ur. Ríkið ætti að sjá um fram- kvæmdafé. Það hefur hins vegar verið mjög af skornum skammti á liðnum árum.“ Fyrirtæki greiða fyrir starfs- fólk vegna streitu og reykinga Árni segir að aðsókn að námskeið- um fyrir þá sem vilja hætta að reykja, fólk sem glímir við offitu og fólk sem þjáist af streitu fari vax- andi. Einnig verður það sífellt al- gengara hér á landi að fyrirtæki greiði námskeið vegna streitu, offitu eða reykinga, fyrir starfsfólk sitt, en slíkt hafi tíðkast víða erlendis um nokkurt skeið. Nýlega sat Árni ráð- stefnu hjá samtökum heilsustofnana í Evrópu, ESPA, þar sem fjárstuðn- ingur fyrirtækja við heilsurækt starfsfólks var meðal umræðuefna. „Fyrirtæki eru að átta sig á því að með síaukinni fjárfestingu í mann- auði verða þau að tryggja að starfs- menn séu við góða heilsu. Í flóknu tæknisamfélagi nútímans getur tek- ið langan tíma að þjálfa starfsmann og gera hann að góðum starfskrafti. Það er því dýrt að missa slíkan starfsmann í langvarandi veikindi, sem unnt hefði verið að koma í veg fyrir. Fyrirtæki hér heima sjá þetta æ betur og eru mörg að byrja að hjálpa sínu fólki að ná betri tökum á lífi sínu og heilsu,“ segir Árni. Þörf fyrir námskeið gegn streitu fer vaxandi Á námskeiðum þar sem unnið er gegn streitu fá þátttakendur bæði meðferð og fræðslu. ,,Þeim er kennt hvernig á að hvíla sig og hvernig á að draga úr og hafa stjórn á áhyggjum. Fólk fer í slökun, nudd og gönguferðir. Því er kennt að sofa, en þetta er gjarnan fólk sem sefur mjög illa. Næringarfræði er einnig mikilvægur þáttur í kennsl- unni. Einnig er boðið upp á aðstoð annarra sérfræðinga,“ segir Árni. Hann segist sannfærður um að þörf fyrir slík streitunámskeið fari vax- andi, samfara síaukinni streitu fólks. „Þetta samfélag okkar er orðið svo teygt og togað og streitan orðin áberandi alls staðar. Krafan um ým- is lífsins gæði er orðin svo aðgangs- hörð að fólk vinnur allt of langan og þreytandi vinnudag, leggur alltof mikið á sig og gleymir að hvíla sig. Við fáum til okkar fólk á besta aldri sem er í stjórnunarstöðum og góð- um efnum, en gleymir að hvíla sig, gleymir að hlusta á líkamann og við- varanir hans. Þegar það kemur til okkar er það orðið illa veikt og lík- aminn farinn að gefa sig. Fólk gleymir því gjarnan að það á bara einn líkama og eitt líf,“ segir Árni. Að fara með bílinn í skoðun en ekki líkamann Hann segir það ávallt hafa verið skoðun þeirra sem að Heilsustofn- uninni standa, að skynsamlegast sé að reyna að koma í veg fyrir sjúk- dóma. „Þegar líkaminn fer að láta vita að eitthvað sé í ólagi, þá eiga menn að grípa til ráða. Fólk fer með bíl í smurningu reglulega, í skoðun árlega og ef það skröltir eitthvað í honum er farið á verkstæði. En þó fólk sé orðið þreytt og slitið og heyri líkamann kveina allan daginn þá gerir það ekkert, en heldur áfram að þræla sér út,“ segir Árni. Hann segir mikinn áhuga á því í Heilsustofnuninni að efla alhliða for- varnarstarf og að hugmyndin sé að taka inn hópa fólks sem vill og þarf að fá úttekt á eigin heilsu, bæði lík- amlegri og andlegri. Stækkun og endurbætur framundan hjá Heilsu- stofnuninni í Hveragerði vegna aukinnar aðsóknar Fólk gleymir að hlusta á líkamann Árlega dvelja um 2.300 manns á Heilsustofnun- inni í Hveragerði um lengri eða skemmri tíma til að fá bót meina sinna. Birna Anna Björnsdóttir ræddi við Árna Gunnarsson, framkvæmdastjóra Heilsustofnunarinnar, sem segir aðsókn að stofnuninni fara sívax- andi og þá einkum vegna kvilla sem orsak- ist af streitu og því að fólk gleymi að hvíla sig. Morgunblaðið/Árni Sæberg Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Heilsustofnunar í Hveragerði. bab@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.