Morgunblaðið - 03.07.2001, Page 42

Morgunblaðið - 03.07.2001, Page 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ                               !"   #  BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞAÐ hlýjar okkur hér fyrir vestan um hjartarætur að sjá hvað Morg- unblaðið fjallar mikið um Jón Sig- urðsson forseta á síðum sínum þessa dagana. Er það í fullu sam- ræmi við stefnu blaðsins svo lengi sem elstu menn muna, að halda til haga sem flestu um þennan ein- staka Vestfirðing, sem varð oft að sætta sig við þá reynslu brautryðj- andans að falla en halda þó velli. Er raunar óvíst að nokkur annar íslenskur maður hafi verið nefndur oftar til sögu á síðum blaðsins í gegnum tíðina. Hitt er svo ekki óeðlilegt að stundum fljóti með missagnir nokkrar í erli dagsins. Í ágætri frá- sögn Úlfars Ágústssonar frá Ísa- firði í Morgunblaðinu 19. júní, um þjóðhátíðina hér á Hrafnseyri 17. júní, en þá hélt Davíð Oddsson for- sætisráðherra hátíðarræðu í Bæl- isbrekku, þar sem Jón Sigurðsson lék sér ungur sveinn, er nefnt, að aldrei hafi verið annað eins fjöl- menni á þjóðhátíð á Hrafnseyri og nú. Þennan dag munu hafa verið hátt í 300 manns hér á staðnum í frábæru veðri og var seinni hluti dagskrárinnar fluttur úr húsi undir bert loft. Á þjóðhátíð í fyrra var þetta öfugt. Þá flúðu menn með dagskrána vegna grenjandi rign- ingar í risastórt tjald, sem reist hafði verið í öryggisskyni, og tók það rúmlega 1.100 manns og var troðfullt. Og á fimmtíu ára afmæli lýðveldisins 1994 voru hér um 1.200-1.400 manns, svo annað dæmi sé nefnt. Mesti mannfjöldi, sem komið hefur saman á Hrafnseyri, var aft- ur á móti 3. ágúst 1980, þegar minnst var hundruðustu ártíðar Jóns Sigurðssonar. Þá voru hér saman komin hátt í 3.000 manns og varð mörgum eftirminnileg stund að taka á móti nýkjörnum forseta lýðveldisins, Vigdísi Finnbogadótt- ur, fyrstu konunni í veröldinni sem kjörin var forseti lands síns. Það var mikið þrekvirki hjá Jóni Sigurðssyni að gefa út málgagn sitt, Ný félagsrit, sem reyndar eru nefnd Íslensk félagsrit í Morgun- blaðinu 19. júní, í þrjátíu ár. En út- gáfan var hrakfallasaga sem lesa má um í bók Lúðvíks Kristjáns- sonar, Á slóðum Jóns Sigurðssonar (Skuggsjá 1961). Í viðtali við Guðjón Friðriksson sagnfræðing í blaðinu 17. júní, en hann er nú sestur við ritun „raun- sannrar“ persónusögu forsetans, sem er mikið fagnaðarefni, segir m.a. svo: „Jón hafi nánast verið dýrkaður á Íslandi eftir að útgáfa Nýrra félagsrita hófst. Þau hafi verið les- in upp til agna í sveitum og orðið til að vekja fjölda fólks til umhugs- unar, auk þess sem þau lögðu grunninn að hinu mikla persónu- fylgi Jóns.“ Þótt útgáfa Nýrra félagsrita hafi markað þáttaskil í sjálfstæðisbar- áttunni er af og frá að þau hafi lagt grunninn að hinu mikla persónu- fylgi Jóns Sigurðssonar. Þar kom annað til. Lúðvík fjallar ítarlega um þetta atriði í áður greindu riti sínu. Þar segir hann meðal annars: - - - „Sá skilningur er ríkjandi, að forusta Jóns Sigurðssonar í sjálfstæðisbaráttunni hafi verið undirrót að lýðhylli hans, meðan hann var og hét. Víst var Jón dáður og virtur af löndum sínum þegar í lifanda lífi meira en títt er. En það er hæpið mat að telja vinsældir hans fyrst og fremst sprottnar af stjórnmálaaðgerðum hans. Sögu- túlkun, sem hverfist um þann skilning, er meira í ætt við ósk- hyggju en raunveru. Til þess að kynnast því, hvernig á því stóð, að Jón varð goð í augum landa sinna, verður að grafast fyrir samskipti þeirra við hann. Sögu- sagnir, hvorki gamlar eða nýjar, stoða lítt, aðeins bókstafurinn úr samtíð Jóns getur orðið hér við- miðunarmerki, og þó að sjálfsögðu engan veginn algilt. - - - Þær þúsundir bréfa, sem varðveittar eru frá Íslendingum til Jóns, eru tvímælalaust veigamestu gögnin um viðskipti þeirra við hann. (Meira en 6.000 slík bréf eru varðveitt á söfnum landsins frá um 870 bréfriturum. H. S.) Mikið fjöl- menni kemur þar við sögu, menn úr öllum stéttum og úr hverri ein- ustu sýslu á landinu. Þar eru í einni fylking: sýslumenn og dómarar, prestar, stórbændur og kotungar, vermenn, vinnukonur og maddöm- ur, vinnumenn og námsfólk, lands- hornalýður og dæmdir menn. - - - Langsamlega fæstir leita á vit Jóns til þess að ræða við hann um stjórnmál, tjá honum hug sinn í því efni, veita honum bendingar um baráttuaðferðir eða upplýsa hann um, hvernig horfi hér eða þar um bænaskrár eða undirskriftir. Þeir eru mörgum sinnum fleiri, sem koma til hans með kvabb í ýmiss konar myndum. - - Þótt þessi þjónusta kosti Jón tíma og fé ber lítið á, að hann amist við henni og aldrei spyr hann til beinna launa fyrir hana. Honum dylst ekki pólitískt gildi þessara vinnubragða. Þau treysta hann í foringjasessi, auka áhuga þjóðar- innar á orðum hans í ræðu og riti og stuðla þannig í leiðinni að því að vekja hana til sjálfsvitundar. Hefði Jón aldrei sinnt neinu snatti eða kvabbi landa sinna hefði mörg bók- in eða handritið verið föst í hendi, sem annars lágu laus fyrir, félagar Bókmenntafélagsins hefðu þá orðið snöggtum færri, aldur Félagsrit- anna skemmri, og loks hefði að- dáun þjóðarinnar á Jóni, meðan hann stóð í striti sínu og stríði, ef til vill orðið eilítið minni. - - - Jón Sigurðsson vissi því vel, hverju gegndi að snúast vel við bænum landa sinna, stórum sem smáum, fáfengilegum sem mikil- vægum.“ Var einhver að tala um Albert Guðmundsson? HALLGRÍMUR SVEINSSON, Hrafnseyri. Morgunblaðið og Jón Sigurðsson Frá Hallgrími Sveinssyni:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.