Morgunblaðið - 14.08.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu Honda S2000, f. skrd.
16.03. 2000 ekinn, 5 þ. km,
gyltur, 2 dyra, 241 hö. Einn
með öllu. Verð 4.190.00 kr.
SUMARBÚSTAÐUR brann til
kaldra kola í landi Stóra-Dals undir
Eyjafjöllum á laugardagskvöld. Þrjár
konur, ein þeirra komin sjö mánuði á
leið, voru inni í húsinu þegar eldurinn
kom upp og komust þær allar út
ómeiddar.
Talið er að kviknað hafi í út frá gas-
eldavél sem var í gangi, en konurnar
þrjár voru að matreiða þegar eldur-
inn kviknaði. Að sögn lögreglunnar á
Hvolsvelli kom eldurinn mjög skyndi-
lega upp og skíðlogaði á eldavélinni.
Konurnar tóku til fótanna og fóru út á
pallinn, ein þeirra berfætt, en bústað-
urinn var þá orðinn alelda og varð
ekki neitt við ráðið.
Fólk í næsta bústað hafði samband
við neyðarlínuna og var slökkviliðið á
Hvolsvelli um 15 mínútur á staðinn,
en bústaðurinn var í um 25 kílómetra
fjarlægð frá Hvolsvelli. Fimm
slökkvibílar frá Hellu og Hvolsvelli
fóru í útkallið og tók tæpa tvo tíma að
slökkva eldinn. Bústaðurinn, sem var
um 60 fermetrar að flatarmáli, er
gjörónýtur. Hann var kominn nokkuð
til ára sinna, að sögn lögreglu, en var
þó nýuppgerður. Rafmagn var lagt í
bústaðinn fyrr í sumar og sagði ein
kvennanna lögreglu að þetta hefði lík-
lega verið í síðasta sinn sem til stóð að
nota gaseldavélina því hún hafði ætl-
að sér að fjárfesta í rafmagnseldavél
eftir helgina.
„Þegar eldurinn varð laus hlupu
konurnar út. Ég kom þá að og hugs-
aði mér að nálgast slökkvitæki en
sneri frá þar sem þetta var vatns-
slökkvitæki og gaseldur laus. Ég ætl-
aði þá að nálgast kútinn en það var
vonlaust vegna þess að slangan frá
honum sveiflaðist til með eins til
tveggja metra eldspýju,“ segir Elliði
Vignisson, sem átti sumarbústaðinn
ásamt fjölskyldu sinni. „Okkur vannst
ekki tími til að bjarga neinu. Ég var
svo heppinn að vera fyrir utan þegar
þetta gerðist og var því á útiskóm en
aðrir stóðu úti á sokkunum.“
Hann segir að gaskúturinn virðist
ekki hafa sprungið heldur spúð út af
sér gasinu og kveikt þannig í bústaðn-
um. „Það gerir tjónið hvað sárast að
við höfum verið í 20 ár að gera upp
þetta hús og vorum rafmagnslaus
fyrstu 19 og hálfa árið. Það er engin
spýta þarna inni sem við höfum ekki
neglt sjálf upp,“ segir Elliði. Hann
segir þó að allir hafi verið himinlifandi
að sleppa frá þessu heilir. Kona hans
er ófrísk og að auki eiga þau tvö börn
sem voru úti fyrir þegar eldurinn varð
laus.
Sumarbústaður undir Eyjafjöllum brann til kaldra kola á skömmum tíma
Þrjár konur
komust út
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Bústaðurinn, sem var nýuppgerður, fuðraði upp á skömmum tíma.
UNGUR maður lét
lífið þegar fólksbif-
reið hans lenti framan
á rútu á Suðurlands-
vegi rétt fyrir neðan
Lögbergsbrekku
laust fyrir klukkan
sex á sunnudags-
kvöld. Maðurinn var
einn í bílnum og talið
að hann hafi látist
samstundis. Þrír far-
þegar rútunnar voru
fluttir á slysadeild en
meiðsl þeirra reynd-
ust óveruleg og
sluppu aðrir ómeidd-
ir. Rútan var búin ör-
yggisbeltum og er tal-
ið að allir farþegar hennar hafi notað
þau. Fólksbifreiðin er gjörónýt eftir
áreksturinn og rútan mikið skemmd.
Annar fólksbíll á austurleið, sem kom
aðvífandi, varð fyrir lítilsháttar
skemmdum þegar ekki tókst að víkja
honum að fullu frá árekstrinum.
Að sögn lögreglunnar í Kópavogi
virðast tildrög slyssins hafa verið að
fólksbifreiðin, sem ekið var austur
Suðurlandsveg, fór yfir á öfugan veg-
arhelming og í veg fyrir
rútuna sem ekið var vest-
ur í átt til Reykjavíkur. Í
rútunni voru 22 farþegar
auk bílstjóra og að sögn
lögreglu voru þetta starfs-
menn fyrirtækis í Reykja-
vík og fólk úr fjölskyldum
þeirra á heimleið eftir
skemmtiferð. Öllum far-
þegum rútunnar var veitt
áfallahjálp á Landspítal-
anum í Fossvogi en þeir
voru fluttir þangað í fjölda
sjúkrabifreiða sem kallað-
ar voru á slysstað.
Lögregla og slökkvilið
hafði mikinn viðbúnað
vegna slyssins og var lok-
að fyrir umferð í austurátt við Rauða-
vatn skömmu fyrir klukkan hálfsjö en
umferð til Reykjavíkur var hleypt
framhjá slysstaðnum um malarveg.
Opnað var fyrir umferð um Suður-
landsveg að nýju fljótlega upp úr
klukkan átta um kvöldið.
Maðurinn sem lést í slysinu hét
Birkir Þór Ásgeirsson. Hann var 23
ára, ókvæntur og barnlaus, til heim-
ilis að Fjallalind 151 í Kópavogi.
Morgunblaðið/Júlíus
Lögregla og slökkvilið höfðu mikinn viðbúnað á slysstað og voru far-
þegar rútunnar fluttir til Reykjavíkur með sjúkrabifreiðum.
Rúta og fólksbifreið rákust á
Birkir Þór
Ásgeirsson
Ungur maður
lést í slysinu
HEIMAMENN í Dalabyggð hafa
óskað eftir viðræðum við Kaupfélagið
í Borgarnesi, sem er eitt þeirra kaup-
félaga sem standa að tilboði í rekstur
sláturhúsa Goða í haust og er reiknað
með að viðræðurnar geti hafist á
næstu dögum.
Í Morgunblaðinu á sunnudag segir
Kristinn Þór Geirsson, fram-
kvæmdastjóri Goða, að hann hafi
bent þeim í Dalabyggð á að ætli þeir
sér að leigja sláturhúsið verði þeir að
koma sér inn í svona hóp líkt og kaup-
félögin séu í, þar sem þeir ætli að
semja við einn hóp eins og staðan sé.
Viðræður hefjast fljótlega
Haraldur L. Haraldsson, sveitar-
stjóri í Búðardal, sagði í samtali við
Morgunblaðið að þeir hefðu óskað
eftir viðræðum við Kaupfélagið í
Borgarnesi og hann reiknaði með að
viðræðurnar gætu hafist á næstu
dögum. „Auðvitað erum við tilbúnir
til þess að taka upp viðræður við
þessa aðila,“ sagði Haraldur enn-
fremur.
Heimamenn
í Dalabyggð
Hafa
óskað
eftir við-
ræðum
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur
komist að þeirri niðurstöðu að af-
greiðsla félagsmálaráðuneytisins á
máli manns, er sótti um stöðu leið-
beinanda við grunnskóla vorið 1999,
hafi ekki verið í samræmi við lög, en
hann hafði borið afgreiðslu yfirvalda
í sveitarfélaginu á umsókn sinni und-
ir ráðuneytið. Í skýringum ráðuneyt-
isins til umboðsmanns kom fram, að
það hefði eingöngu gefið álit um mál-
ið en ekki fellt úrskurð, er hefði rétt-
aráhrif. Taldi það sig ekki hafa verið
að meðhöndla stjórnsýsluákæru
heldur beiðni um umsögn.
Í málsgögnum kemur fram að
málshefjandi tók fram í umsókn
sinni, að hann vildi fullt starf en
hugsanlega kæmi til greina að taka
að sér 75% starf. Í niðurstöðu ráðu-
neytisins frá 17. júlí 2000 er það
gagnrýnt, að málshefjanda skyldi
ekki tilkynnt fyrr um það, að hann
fengi ekki fulla stöðu leiðbeinanda,
þar sem að 6. maí 1999 hafi legið ljóst
fyrir, að ekki stæði til, að ráða hann í
fullt starf, því þá þegar hafi verið
ráðið í allar stöður nema rúmt hálft
stöðugildi. Skólastjóri tilkynnti hon-
um hins vegar bréflega 7. maí 1999
að umsókn hans yrði ekki rædd á
næstunni en teldist samt fullgild
nema hann óskaði eftir öðru. Þegar
umsækjandinn hringdi 20. ágúst, til
að grennslast fyrir um stöðu mála,
sagði skólastjóri honum, að ráðið
hefði verið í stöðuna daginn áður, en
hann hefði ekki haft samband við
hann, því hann hefði talið, að hann
vildi ekki 50% stöðugildi.
Erindi skyldi höndlað sem kæra
Í bréfi félagsmálaráðuneytisins til
málshefjanda kemur fram, að það
telji, að með „úrskurði“ sínum hafi
afskiptum þess af málinu í raun verið
lokið og sé það alfarið í höndum kær-
anda hvort hann ákveði að fara
lengra með málið. Í bréfaskiptum
ráðuneytisins og umboðsmanns Al-
þingis kemur fram, að mistök hafi
verið af hálfu ráðuneytisins, að kalla
niðurstöðu sína úrskurð í þessu bréfi
og öðrum; um álit hafi verið að ræða,
sem engin réttaráhrif ætti að hafa.
Álit umboðsmanns snýr að því, að
erindi mannsins til ráðuneytisins
hafi verið þess eðlis, að ráðuneytinu
hefði borið að taka það til meðferðar
sem stjórnsýsluákæru eða a.m.k. að
ganga úr skugga um hvort skilja
bæri það með þeim hætti og gefa
leiðbeiningar eftir því, sem við átti.
Telur hann einnig, að ráðuneytinu
hafi ekki verið heimilt að gefa álit á
grundvelli 103. greinar sveitastjórn-
arlaga, heldur beri því skylda til að
fella úrskurð í þeim málum, sem það
tekur til meðferðar, að uppfylltum
kæruskilyrðum. Afgreiðsla ráðu-
neytisins hafi því ekki verið í sam-
ræmi við lög. Beinir umboðsmaður
þeim tilmælum til ráðuneytisins, að
það taki málið fyrir á ný, berist ósk
um það frá málshefjanda.
Afgreiðsla ráðuneytis
ekki í samræmi við lög
TVEIR ítalskir ferðamenn voru
fluttir til skoðunar á heilsu-
gæslustöðina í Borgarnesi eftir
að bifreið þeirra valt á Borgar-
fjarðarbraut við Kljáfoss síðla
dags í gær.
Bifreiðin sem valt var bíla-
leigubíll og í honum fjórir ítalsk-
ir ferðamenn. Þeir voru á norð-
urleið þegar óhappið vildi til. Að
sögn lögreglunnar í Borgarnesi
er talið að ökumaðurinn hafi
misst bílinn út á vegaröxl og
misst við það vald á honum með
þeim afleiðingum að hann fór
nokkrar veltur á veginum áður
en hann staðnæmdist.
Sjúkrabíll og læknir komu á
vettvang en ferðamennirnir
virtust hafa sloppið við alvarleg
meiðsli. Þó var ákveðið að flytja
tvo þeirra á heilsugæslustöðina í
Borgarnesi til frekari skoðunar.
Veltu bíl í
Borgarfirði