Morgunblaðið - 14.08.2001, Page 6

Morgunblaðið - 14.08.2001, Page 6
GESTIR á árlegri Hólahátíð höfðu á orði að nú í fyrsta sinn væri ekki sól og blíðviðri á hátíðinni en létt úðarigning var og hlýtt þegar fjöl- margir gestir sóttu heim til Hóla til þess að taka þátt í hátíðinni og vera viðstaddir þegar Davíð Oddsson forsætisráðherra legði hornstein- inn að Auðunarstofu hinni nýju. Hátíðin hófst með guðsþjónustu í Hóladómkirkju þar sem Karl Sigurbjörnsson prédikaði. Að lokinni guðsþjónustunni var gengið til hinnar nýju Auðunar- stofu, sem risið hefur í slakka milli biskupssetursins og gamla skóla- hússins og er hið glæsilegasta hús. Eins og segir í prentaðri kynn- ingu er um að ræða tilgátuhús sem byggt er eftir skriflegum heim- ildum og rannsóknum varðandi hina fornu Auðunarstofu, er reist var árið 1315 af Auðuni rauða Þor- bergssyni, sem samkvæmt heim- ildum var einn merkasti biskup af erlendum uppruna sem sat Hóla- stól. Húsið er eins og forveri þess, að helmingi stokkahús en stafhús er framhlutinn og stendur bygg- ingin öll á steinhlöðnum kjallara, en grjót í hann var sótt í Goðdala- fjall. Norskir skógarbændur gáfu alla viði í húsið. Athöfnin við Auðunarstofu hófst með því að sr. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur gerði grein fyrir aðdraganda þess að ráðist var í gerð hússins en lýsti einnig hinni gömlu stofu og á hvern hátt reynt hefði verið að fylgja í þessu húsi þeim upplýsingum sem fyrir lágu um gerð upprunalega hússins. Þá tók til máls Ole Lerum og mælti á íslensku, er hann sagði frá þeirri undirbúningsvinnu sem sr. Bolli Gústavsson vígslubiskup lagði fram, en hiklaust má segja að hann sé frumkvöðull að því að ráðist var í framkvæmdina, og samskiptum við þá norsku aðila sem lagt hafa fram allt efni og undirbúnings- vinnu við gerð stofunnar. Þor- steinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, las þá hluta af trúarljóðinu Lilju eftir munkinn Eystein Ás- grímsson en því næst lagði for- sætisráðherra, Davíð Oddsson, hornsteininn að byggingunni. Verkefnisstjórn við húsbygg- inguna önnuðust Guðmundur Guð- mundsson og Atle Ove Mart- inussen, arkitekt var Þorsteinn Gunnarsson, yfirsmiður stokkhúss var Hans Marumsrud og yfirsmið- ur stafhúss Gunnar Bjarnason en steinhleðslu annaðist Helgi Sig- urðsson. Að athöfn lokinni var boðið í kaffisamsæti í Hólaskóla en síðan hófst hin eiginlega Hólahátíð með samkomu í dómkirkjunni þar sem Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, flutti aðal- ræðuna og lagði út af aldamótaljóði Hannesar Hafstein. Benti hún á að flestar af þeim hugsýnum sem birt- ast í kvæði Hannesar Hafstein væru nú orðnar að veruleika og saknaði hún þess að hafa ekki um þessi aldamót heyrt viðlíka her- hvöt, frá skáldi eða listamanni, eins og þau ljóð sem kveðin voru á tím- um Hannesar. Að lokinni ræðu dómsmálaráð- herra flutti Einar Már Guðmunds- son rithöfundur nokkur frumort ljóð og las úr tveimur skáldsögum sínum. Gerður Bolladóttir söng nokkur lög við undirleik Rögnvalds Val- bergssonar organista en kynningu og lokaorð átti séra Bolli Gústavs- son vígslubiskup. Gengið til kirkju. Morgunblaðið/Björn Björnsson Bolli Gústavsson vígslubiskup og Davíð Oddsson forsætisráð- herra með hornsteininn að Auð- unarstofu. Forsætisráðherra lagði hornstein að Auðunarstofu FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ - ver i fyrir ig! trúalýðræðis annars vegar og milli- liðalauss lýðræðis hins vegar. Sagði hún að þess væru dæmi að beint lýð- ræði virkaði sem hemill á augljósar framfarir. Svisslendingar hefðu til dæmis gengið hvað lengst í almenn- um atkvæðagreiðslum um viðfangs- efni héraða og alríkisstjórnar og nið- urstaðan virtist vera mjög íhaldssamt stjórnarfar þar sem til- lögur um breytta skipan væru oftar felldar en samþykktar. „Þannig tók það ótrúlega langan tíma að fá samþykktan almennan at- kvæðisrétt kvenna í Sviss og ég hygg að fulltrúalýðræðið hefði leitt til ann- arrar og skjótari niðurstöðu. Slíkt kerfi virðist einmitt oft næmara á strauma samtímans en hið beina lýð- ræði og umræður löggjafarsamkomu leiða oft betur í ljós kosti og galla til- lagna en að minnsta kosti skoðana- kannanir gera í dag,“ sagði Sólveig og nefndi í framhaldi af því að stjórn- málaflokkar hefðu gegnt lykilhlut- verki í íslensku lýðræði á 20. öld. „Innan þeirra fer ávallt fram frjó umræða sem á endanum leiðir til stefnumörkunar í einstökum mála- flokkum. Þá fullyrðingu sem heyrst hefur um að stjórnmálaflokkarnir eigi í vaxandi mæli erfitt með að ná hjartslætti tímans og að skapandi umræða sé óðum að flytjast á annan völl tel ég vera í besta falli ýkjur ein- ar. Auðvitað er skapandi umræða í þjóðfélaginu öllu, en stjórnmála- flokkar grípa oftast kjarna hennar og síðan kristallast hann út í tillögu- gerð og stefnumótun,“ sagði hún. Þá vék hún máli sínu að tækni- framförum samtímans og sagði að á „æviskeiði okkar sem nú lifum er hin svokallaða sjálfvirknibylting að taka við af iðnbyltingunni, sem einkennt hefur þróun samfélaga síðustu 250 árin eða svo“ og nefndi hversu vel Ís- lendingar væru búnir undir þessar breytingar. Ungt fólk hefði verið fljótt að tileinka sér hina nýju tölvu- og fjarskiptatækni og margs konar framtak í hugbúnaðarsmíði væri þegar farið að skila sér í auknum gjaldeyristekjum þjóðarbúsins. SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála- ráðherra vék að því í ræðu sinni á Hólahátíð að oft væri rætt um að efla þyrfti löggæslu enda lægi frum- skylda ríkisvaldsins í að leitast sífellt við að efla öryggi borgaranna. „Menn hlaupa hins vegar stundum á sig í umræðum um þörf á aukinni löggæslu. Auðvitað er ekki hægt að uppræta öll vandamál sem spretta upp í mannlegu samfélagi með beit- ingu lögregluvalds. Það er ef til vill reynt í alræðisríkjum, ekki í réttar- ríki,“ sagði Sólveig. Þá nefndi hún þá umræðu sem komið hefði fram að undanförnu um að sú ákveðna stefna sem stjórnvöld hefðu tekið gegn fíkniefnum hefði mistekist og að rétt væri að milda áherslurnar og jafnvel leyfa ákveðin efni. „Mín skoðun er að okkur beri aldrei að sætta okkur við að neysla fíkniefna sé þáttur í lífi og tilveru ís- lenskra ungmenna,“ sagði hún og sagðist vera þeirrar skoðunar að nú- verandi stefna skilaði árangri. „Væri staðan betri ef við hefðum ekki lagt það sem við gerðum á undanförnum árum í löggæslu, meðferð og for- varnir? Ég leyfi mér að fullyrða að fíkniefnaneysla væri miklu alvar- legra samfélagsmein en nú er ef þannig hefði verið haldið á málum.“ Sólveig nefndi einnig að sér þætti það eiga að vera forgangsmál hjá stjórnvöldum að ráðast í skattalækk- anir því að í nálægum ríkjum, til dæmis á Írlandi, sæist hversu farsæl sú aðgerð gæti reynst. „Með verulegum skattalækkunum fyrir fyrirtæki styrkjum við ekki að- eins stoðir íslensks atvinnulífs held- ur getum við með því móti gert land- ið eftirsóknarvert fyrir erlend fyrirtæki og fjármagn,“ sagði Sól- veig. Hún sagðist einnig telja að vinna ætti að því að létta skattbyrðar einstaklinga og þar ætti hún jafnt við hið almenna skatthlutfall af tekjum og eignarskatta. Þá vísaði Sólveig í umræðu þá sem verið hefur um þróun lýðræðis hér á landi. Nefndi hún þær deilur sem lengi hefðu verið uppi um ágæti full- Neysla fíkniefna verði aldrei þátt- ur í lífi ungmenna Sólveig Pétursdóttir á Hólahátíð Í PREDIKUN sinni í guðþjónustu í Hóladómkirkju lagði Karl Sigur- björnsson, biskup Íslands, út af guð- spjalli dagsins, úr Lúkasarguðspjalli, um rangláta ráðsmanninn. Sagði hann að sér fyndist sagan óþolandi, það er að segja að Jesús skuli láta húsbóndann hrósa óheiðarlegum manni fyrir kænsku hans. „Slíkum mönnum er ekki hrósað. Þeir eru fordæmdir, já þjóðin öll fyll- ist heilagri reiði og vandlætingu þeg- ar fréttir berast af óheiðarleika í op- inberu lífi, svindli og svikum. Við hrósum ekki slíku, við dæmum. En dæmisagan minnir okkur á, að Jesús hneykslast ekki á fólki, og býsnast ekki yfir syndinni. Hann tekur mann- fólkið eins og það er. Og hann harmar syndina, en smjattar ekki á henni. Sá sem hneykslast á öðrum ofmetur gjarna sjálfan sig,“ sagði Karl. Karl vék einnig að nýafstöðnum útihátíðum. „Hvað segja fréttirnar? Hvernig er umgengni okkar um verðmæti, eigur, líf og síðast en ekki síst mannhelgi? Hvaða sögu segja nýafstaðnar útihátíðar um það, með tilheyrandi sukki, neyslu, nauðgun- um og ofbeldi? Skipulagðar hátíðar sem veltu milljónatugum, þar sem okkar gjörvilegu börn og ungmenni eru ginnt út í aðstæður og umhverfi þar sem þau eru berskjalda og of- urseld hömluleysi og auðveld bráð manna sem einskis svífast. Myndirn- ar af ruslinu og sóðaskapnum sem við blasti að hátíð lokinni segja sína sögu um meðferð verðmæta. En svo er hitt sem aldrei sést. Vita megum við að mörg börnin bíða þessa aldrei bætur. Þetta þarf ekki að vera svona, og á ekki að vera svona. Börnin okkar eiga betra skilið. Hvenær rís almenn- ingsálitið gegn þessu? Við foreldrar verðum að taka höndum saman. Við höfum séð að það ber árangur.“ Karl vék einnig máli sínu að klámi, sem yrði sífellt meira áberandi í sam- félaginu. „Markaðurinn fyrir barna- klám og annan öfuguggahátt þrífst hér eins og nýlegar fréttir herma. Það er fyrirlitlegt og óverjandi með öllu. Við skulum ekki láta það líðast! Sagt er: Blessaður góði, slappaðu af. Þetta er bara nútíminn, markaður- inn, við Íslendingar erum bara svona, víkingar og villimenn inn við beinið. Jú, þetta er syndin, ruglið, firringin, hið illa og ljóta. Og gegn því ber okk- ur að hamla,“ sagði hann. Maðurinn að leika Guð Karl nefndi einnig þær fregnir sem berast af sigrum læknavísinda og líftækni. Þar væru fögur fyrirheit gefin og manninum í hendur falin mikil verðmæti til ávöxtunar lífinu til heilla, en hins vegar væri skelfilegt þegar maðurinn færi að leika Guð. „Váboðarnir eru margvíslegir. Það er svo margt sem bendir til þess að siðferðisþroski mannsins sé langt að baki þekkingunni. Fréttir af áform- um um einræktun manna vekja óhug, og áleitnar spurningar um hvað það muni hafa í för með sér fyrir mennsk- una og mannhelgina. Tæknin að ráðskast með stofnfrumur og erfða- efni mannsins felur í sér valmögu- leika og freistingar sem mannkyn hefur aldrei fyrr staðið frammi fyrir. Hvað mun ráða för? Ljóst er að þessi nýja þekking og tækni mun verða al- varlegur prófsteinn á mannskilning okkar og sannfæringu um tilgang lífsins og gildi einstaklingsins. Þessi þekking vekur vonir um að hægt verði að sigrast á sjúkdómum og efla lífsgæði fólks. En hvaða fólks? Unnt er að stjórna heilsu og skapa einstak- linga með æskileg einkenni og hæfi- leika. Hvað mun stjórna ákvörðunum þeirra sem ráða fjármagninu? Og hverjir verða látnir sitja eftir? Hvað með þá fátæku, hvað með hið veika og máttvana?“ sagði Karl. Biskup sagði að kristin kirkja það erindi eitt við hverja samtíð og hverja öld „að boða þá fyrirgefningu, sýknu, endurlausn, náð og veginn rétta í birtu þess og leiða okkur, breyskar, syndugar manneskjur fram fyrir það orð og að þeirri laug og því borði þar sem fyrirgefning syndanna veitist.“ Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands á Hólahátíð Erindi kristinnar kirkju að boða fyrirgefningu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.