Morgunblaðið - 14.08.2001, Síða 22
ÍTALSKUR bílstjóri og 22
pólskir ferðamenn slösuðust í
rútuslysi í jarðgöngum í Aust-
urríki í gær, þar af fjórir alvar-
lega. Slysið varð með þeim
hætti að rútan rakst á vegg við
gangamunna nálægt borginni
Klagenfurt í Kärnten-héraði.
Þetta er þriðja alvarlega um-
ferðarslysið í jarðgöngum í
Austurríki á nokkrum dögum,
en samtals átta manns fórust í
tveimur gangaslysum fyrr í
þessum mánuði.
Í Venesúela
á afmælis-
daginn
FIDEL Castro, leiðtogi Kúbu,
hélt upp á 75 ára afmæli sitt í
Venesúela í gær. Varði hann
deginum til fundahalda með
Hugo Chavez, forseta Vene-
súela, og Fernando Henrique
Cardoso, brasílískum starfs-
bróður þeirra.
Fundur leiðtoganna fór fram í
afskekktum landamærabæ,
Santa Elena de Uairen. Ræddu
þeir meðal annars um leiðir til
að draga úr fátækt í löndum
Suður-Ameríku og nýja orku-
áætlun í Brasilíu, þar sem ríkt
hefur mikill orkuskortur.
„Þetta er ánægjulegasti [af-
mælisdagur] sem ég hef átt,“
hafði AP-fréttastofan eftir
Castro, sem hafði um helgina
skoðað markverða staði í Vene-
súela í fylgd með Chavez.
Castro hefur verið við völd á
Kúbu í rúma fjóra áratugi.
Boeing sem-
ur við Rússa
RÚSSNESKA flugfélagið
Aeroflot hefur gert samning
um að kaupa að minnsta kosti
30 þotur, sem rússneskar flug-
vélaverksmiðjur munu smíða í
samstarfi við bandarísku flug-
vélaverksmiðjuna Boeing.
Rússnesku Sukhoi- og Ilyus-
hin-verksmiðjurnar, í samstarfi
við Boeing, vonast til að mark-
aðssetja þoturnar víða um
heim, en þær eru ætlaðar til
flugs á styttri flugleiðum.
Frumgerð af vélinni á að vera
tilbúin eigi síðar en 2005, en
þoturnar munu taka 95 far-
þega. Samstarfið mun gera Bo-
eing kleift að komast inn á
markaðinn fyrir smærri þotur.
Fyrirtækið opnaði rannsókna-
miðstöð í Moskvu árið 1993 og
hefur yfir 500 vísindamenn og
verkfræðinga í vinnu í sjö rúss-
neskum borgum.
IRA hætti við
FORYSTUMENN Írska lýð-
veldishersins (IRA) íhuga að
falla frá tillögu sinni um afvopn-
un vegna stöðunnar sem upp er
komin í friðarferlinu á Norður-
Írlandi, að því er AFP-frétta-
stofan hefur eftir háttsettum
manni úr röðum lýðveldissinna.
STUTT
Gangaslys
í Austur-
ríki
Vinirnir Castro og Chavez.
Reuters
ERLENT
22 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
borginni í gær, en þeir eru allir í
Jafnaðarmannaflokknum. Liðs-
menn samtaka fólks, sem a-þýzka
kommúnistastjórnin lék illa, létu
að sér kveða meðal annars með
því að fjarlægja og eyðileggja
krans sem lagður hafði verið í
nafni PDS ásamt öðrum krönsum
að minnismerki um múrinn.
Það var að morgni 13. ágúst
1961, sem Berlínarbúar vöknuðu
upp við að verið var að færa
skiptingu borgarinnar í hernáms-
ÞESS var minnzt með ýmsu móti í
Þýzkalandi í gær að þá voru rétt
40 ár liðin frá því austur-þýzk
stjórnvöld létu hefja byggingu
Berlínarmúrsins. Hér lesa vegfar-
endur í Berlín borða sem strengd-
ur hefur verið utan á varðhýsið
„Checkpoint Charlie“, sem í þau
28 ár sem múrinn stóð var á
mörkum bandaríska hernáms-
svæðisins í Vestur-Berlín og þess
sovézka í Austur-Berlín. Á borð-
anum stendur: „Heiðrið fórn-
arlömb kommúnismans.“
Mótmæli andstæðinga þess að
jafnaðarmenn taki upp stjórn-
arsamstarf við arftakaflokk aust-
ur-þýzka kommúnistaflokksins,
PDS, eins og líklegt þykir að ger-
ist eftir borgarstjórnarkosningar
í Berlín nú í haust, settu mark sitt
á opinberar minningarathafnir
gærdagsins.
Blístur og hróp mættu Gerhard
Schröder, kanzlara Þýzkalands,
Klaus Wowereit, borgarstjóra
Berlínar, og Wolfgang Thierse,
forseta þýzka þingsins, er þeir
mættu til minningarathafnar í
svæði Sovétríkjanna og Vest-
urveldanna í steinsteypu og
gaddavír, að skipun stjórnvalda í
Austur-Berlín. Frá því Berl-
ínarmúrinn féll hinn 9. nóvember
1989 hefur þeirra sem dóu við
flóttatilraunir yfir múrinn eða
aðra hluta landamæranna milli
Austur- og Vestur-Þýzkalands –
samtals á að gizka 960 manns –
verið minnzt hinn 13. ágúst ár
hvert. Þúsundum austur-þýzkra
borgara var varpað í fangelsi eða
þeir dæmdir í þrælkunarvist fyrir
að sýna vilja til að flytja vestur
yfir múrinn.
Schröder kanzlari hvatti til
þess að minningunni um fórn-
arlömb múrsins verði haldið lif-
andi. Thierse, sem sjálfur er Aust-
ur-Þjóðverji, hvatti til þess að
austur-þýzkum borgurum og þeim
vandamálum sem þeir ættu við að
stríða væri sýndur skilningur.
„Því við vorum jú lokuð inni ára-
tugum saman,“ sagði hann.
AP
Mótmæli
á 40 ára
afmæli
Berlínar-
múrsins
urt skeið. Austurlandahúsið var álit-
ið tákn fyrir sjálfstætt palestínskt
ríki og er því mikilvægt í hugum Pal-
estínumanna. Palestínumenn hafa
mótmælt við húsið daglega frá því á
föstudag og eru átök milli mótmæl-
enda og hermanna daglegt brauð.
Ísraelsk stjórnvöld lýstu því yfir að
ekki kæmi til greina að skila húsinu
og að allri stjórnmálastarfsemi Pal-
estínumanna í Jerúsalem væri lokið.
Ríkisstjórn Jórdaníu átti fundi
með ráðamönnum annarra araba-
ríkja í gær vegna yfirtöku Ísraels-
manna á Austurlandahúsinu, en
Samtök arabaríkja munu hittast á
fimmtudag til að ræða ástandið í
SAMKVÆMT skoðanakönnun, sem
dagblaðið Yediot Aharonot birti í
gær, eru 54% Ísraelsmanna andvíg
viðræðum við Palestínumenn til að
koma á vopnahléi, en 44% eru fylgj-
andi slíkum viðræðum. Afstaða al-
mennra borgara í Ísrael hefur farið
harðnandi undanfarnar vikur og
hafa endurteknar sjálfsmorðsárásir
palestínskra hryðjuverkamanna átt
stóran þátt í því. Engin slík skoð-
anakönnun hefur verið gerð meðal
Palestínumanna.
Palestínumenn á Vesturbakkan-
um og Gaza-svæðinu efndu til alls-
herjarverkfalls í gær til að mótmæla
yfirtöku Ísraelshers á hinu svokall-
aða Austurlandahúsi í austurhluta
Jerúsalemborgar, en húsið hafði
gegnt hlutverki höfuðstöðva palest-
ínsku heimastjórnarinnar um nokk-
Ísrael. Hétu talsmenn Palestínu-
manna því í gær að uppreisninni
(Intifada) yrði haldið áfram og að
harðari átök væru framundan.
Tuttugu sárir eftir
sprengjutilræði
Tuttugu manns særðust í sjálfs-
morðsárás á sunnudag þegar maður
sprengdi sjálfan sig upp fyrir framan
kaffihús í bænum Kiryan Motzkin
nærri hafnarborginni Haifa. Sam-
tökin Heilagt stríð (Jihad) hafa lýst
ábyrgð vegna árásarinnar á hendur
sér. Maðurinn, sem hét Muhammad
Nassar, gekk inn í kaffihúsið eftir að
hafa ekið í leigubíl frá Haifa. Eigandi
hússins sá þegar Nassar bar eld að
kveikiþræðinum og henti í hann stól
og kastaði sér á bak við vegg. „Vegg-
urinn bjargaði lífi mínu,“ sagði eig-
andinn. Enginn slasaðist alvarlega í
árásinni sem gerð var þremur dög-
um eftir að 15 fórust í sjálfsmorðs-
árás í Jerúsalem. Sprengjan var
kraftminni en sú á fimmtudaginn því
hún var sprengd utan dyra. Stólar og
borð ultu um koll og blóð dreifðist
um verönd staðarins. Meiðsli fólks
voru öll minniháttar.
Þá féll sjö ára gömul palestínsk
stúlka þegar til skotbardaga kom
milli palestínskra byssumanna og
ísraelskra hermanna í Hebron í
fyrrinótt. Vopnahlé, sem að nafninu
til tók gildi hinn 13. júní, hefur ekki
verið virt og hafa yfir 100 manns fall-
ið frá þeim degi.
Meirihluti Ísraela á móti
vopnahlésviðræðum
Palestínumenn efna til allsherjar-
verkfalls á herteknu svæðunum
Jerúsalem, Gaza. AP, AFP.
MARIA Sung, nálastungulæknir frá
Suður-Kóreu, kemur hér bleik-
ramma mynd af sér brosandi með
eiginmanninum, kaþólska erkibisk-
upnum Emmanuel Milingo frá
Zambíu, fyrir meðal trúarlegra
gagna, messuklæða og biblíu erki-
biskupsins á hótelherbergi í Róma-
borg í gær.
Sung hefur hótað að fara í hung-
urverkfall fyrir framan Páfagarð
ef henni verður ekki heimilað að
hitta eiginmanninn sem að sögn
talsmanna kirkjunnar hefur dregið
sig í hlé um skeið til að stunda íhug-
un og bænir í því skyni að ná sátt-
um við yfirboðara sína og hina heil-
ögu kaþólsku kirkju. Milingo olli
hneyksli með því að ganga að eiga
Sung í Moonista-fjöldabrúðkaupi í
New York hinn 27. maí sl.
Hótar
hungur-
verkfalli
AP
Berlingske í
kröggum
STJÓRN danska dagblaðsins Berl-
ingske Tidende kynnti í gær um-
fangsmikla áætlun um sparnað í
rekstri fyrirtækisins. Stöður 118 af
samtals 725 fastráðinna starfsmanna
verða lagðar niður, sem þýðir að um
6. hver starfsmaður missir vinnuna.
Í fréttatilkynningu segir, að blaðið
hafi alllengi þurft að búa við minnk-
andi auglýsingatekjur; í ár megi bú-
ast við því að þær verði um einum
milljarði ísl. kr. minni en árið áður.
„Þetta er mjög róttæk sparnaðar-
áætlun, en þróunin á auglýsinga-
markaðnum er líka þannig, og það er
ekki aðeins Berlingske sem á í
kröggum af þessum völdum. Ég tel
að á næstunni munum við sjá sparn-
aðarráðstafanir hjá mörgum öðrum
dagblöðum,“ hefur Ritzau eftir
Søren Jakobsen, framkvæmdastjóra
útgáfufélags Berlingske Tidende.
Var starfsfólkið upplýst um
ástandið á fundi síðdegis í gær.