Morgunblaðið - 14.08.2001, Page 27
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 27
MIKILVÆGASTA fram-lag Ólympíuleikanna íeðlisfræði til betri fram-tíðar jarðarbúa er sú
vinátta sem hér myndast með ung-
mennum með sama áhugamál. Slík
vinátta stuðlar að alheimshugsun
meðal vísindamanna í framtíðinni.“
Svo mæltist Sinan Bilikmen, öðrum af
framkvæmdastjórum 32. Ólympíu-
leikanna í eðlisfræði, við setningarat-
höfnina í hátíðarsal Bel Conti-hótels-
ins í Antalya. 305 keppendur frá 65
þjóðlöndum voru mættir til leikanna
auk áheyrnarfulltrúa frá þremur
þjóðum sem sækjast eftir að keppa á
næsta ári.
Íslenska keppnisliðið var skipað 5
drengjum; Kristján Alexandersson
og Sigurður Stefánsson komu frá
Menntaskólanum á Akureyri, Bragi
Sveinsson og Martin Ingi Sigurðsson
frá Menntaskólanum í Reykjavík og
Henning Arnór Úlfarsson frá Versl-
unarskóla Íslands. Með þeim voru
Viðar Ágústsson, eðlisfræðingur og
framkvæmdastjóri Hugfangs, og
Kristján Rúnar Kristjánsson, nemi í
meistaranámi í eðlisfræði og fyrrver-
andi keppandi fyrir Íslands hönd.
Menntamálaráðuneytið greiddi far-
gjöld fyrir keppnisliðið til eðlisfræði-
leikanna en ýmis fyrirtæki og stofn-
anir greiddu þátttökugjöld og
kostnað við undirbúninginn.
Þótt tyrkneska menntamálaráðu-
neytið hafi verið hinn formlegi gest-
gjafi 32. Ólympíuleikanna í eðlisfræði
var það Middle East Technical Uni-
versity, METU, sem sá um undirbún-
inginn og aflaði fjár til að halda þessa
60 milljón króna samkomu.
Tyrkir spöruðu samt ekkert í að-
búnaði þátttakenda og hýstu farar-
stjóra og keppendur á 4 – 5 stjörnu
hótelum. Í frístundum var boðið upp á
bæjarferð inn í hina gömlu höfn Anta-
lya og einnig útsýnisferðir til að skoða
forn mannvirki Rómverja og Grikkja
sem til skiptis réðu yfir Tyrklandi.
Undir stjórn Ibrahim Günal, gam-
alreynds fararstjóra Tyrkja, sömdu
prófessorar við METU kennileg og
verkleg verkefni til að leggja fyrir
keppendur. 1. kennilega verkefnið
fjallaði um örbylgjuvaka (klystron)
eins og þann sem notaður er í ör-
bylgjuofnum. 2. verkefnið fjallaði um
tvístirni þar sem önnur stjarnan gef-
ur frá sér gas sem fellur inn að hinni
stjörnunni, nifteindastjörnu. 3. verk-
efnið fjallaði um aflþörf dælu sem
heldur kvikasilfri á hreyfingu í seg-
ulsviði. Verklega verkefnið fjallaði um
speglun ljóss og ljósbrot í vökva á
snúningi.
Keppendurnir glímdu við verkefn-
in á tveimur dögum með hvíldardegi á
milli en fyrst þurftu fararstjórarnir að
þýða verkefnin á móðurmál keppend-
anna. Umræður um verkefnin leiddu
hins vegar í ljós að verkefnið um tví-
stirnið stóðst ekki og þurfti að lag-
færa það áður en það var samþykkt.
Einnig kom í ljós að verklega verk-
efnið innihélt spurningar sem ekki
samrýmdust efnisskrá Ólympíuleik-
anna og þurfti einnig að breyta því.
Allar þessar umræður töfðu þýðing-
arvinnuna og luku sumir fararstjór-
anna henni ekki fyrr en rétt áður en
keppendur mættu að morgni til að
leysa verkefnin.
Skipuleggjendurnir þurftu að
glíma við ýmsar aðrar óvæntar upp-
ákomur og til dæmis komu keppend-
ur frá Kúbu ekki fyrr en að kvöldi
fyrri keppnisdags, tveimur dögum of
seint, og leystu verklega verkefnið
um nóttina. Ísraelar neituðu í upphafi
leikanna að keppa á laugardegi og var
samið við þá að þeir hæfu keppnina
eftir sólarlag og þeir vörðu því nótt-
inni í félagsskap Kúbananna.
Óvenjumikil öryggisgæsla var á
leikunum og höfðu fararstjórarnir á
orði að þeir væru eins og 6 stjörnu
fangar. Hótelsvæðið var afgirt og
vaktað allan sólarhringinn. Til að
komast inn á svæðið þurfti að sýna
skilríki. Í útsýnisferðum fór lögreglu-
bíll fyrir rútunum og annar rak lest-
ina, báðir með blá blikkandi ljós. Leið-
sögumennirnir útskýrðu öryggis-
ráðstafanirnar með því að verið væri
að fæla mannræningja sem þætti
slægur í að veiða Ísraela eða Banda-
ríkjamenn í opinberum erindum.
Verkefnin reyndust keppendunum
í meðallagi þung og hlutskarpastur
varð 18 ára rússneskur drengur, Dan-
iyar Nurgaliev, með 47,55 stig af 50
mögulegum. Næstur honum kom Ír-
aninn Ali Farahanchi með 46,80 stig
en þriðji varð Hvít-Rússinn Aliaks-
andr Yermalitski með 46,10 stig.
Meðaltal þessara þriggja efstu er
reiknað sem fullur árangur og verð-
launapeningum útdeilt samkvæmt
því. 22 keppendur náðu betri árangri
en 90% og fengu gullverðlaun, 39
keppendur betri en 77% og fengu silf-
urverðlaun en 49 keppendur voru
hærri en 65% og fengu bronsverð-
laun. 47 keppendur náðu betri ár-
angri en 50% og fengu sérstaka heið-
ursviðurkenningu.
Þótt Ólympíuleikarnir í eðlisfræði
séu keppni einstaklinga reikna farar-
stjórarnir til fróðleiks meðalárangur
þjóðanna og þar voru Kínverjar hlut-
skarpastir með 43,65 stig en fast á
hæla þeirra komu Rússar með 43,39
stig. Þriðju í röð þjóðanna urðu
Bandaríkjamenn með 42,83 stig en
Indverjar fjórðu með 42,73 stig. Ís-
lenska liðið fékk að meðaltali 15,03
stig og varð í 45. sæti af 65 þjóðum en
þó skákaði það liðunum frá Svíþjóð,
Noregi og Danmörku en Finnar voru
efstir Norðurlandanna með 22,97 stig.
Efsti Íslendingurinn, Henning Arnór,
fékk 17,65 stig en sá næstefsti var
Kristján með 17,45 stig.
Framtíð Ólympíuleikanna, sem
byrjuðu 1967 sem keppni fimm A-
Evrópuþjóða, virðist vel tryggð.
Keppnisþjóðirnar hafa skrifað sig fyr-
ir gestgjafahlutverkinu árlega fram
til 2017 og fjöldi þjóða fer vaxandi.
T.d. að 1998, þegar Ólympíuleikarnir í
eðlisfræði voru haldnir á Íslandi, voru
keppnisþjóðirnar 56 en útlit er fyrir
að 68 þjóðir mæti með lið á næsta ári
þegar leikarnir fara fram í Indónesíu.
Tyrkland 2001/ Ólympíuleikarnir í eðlisfræði hafa verið haldnir frá árinu 1967. Þeir hafa mikið gildi. Viðar
Ágústsson fararstjóri segir hér sögur frá leikunum í Tyrklandi en þangað fóru fimm íslenskir keppendur.
Ólympíuleikarnir
í eðlisfræði
Líklega mæta lið frá 68 löndum til Indónesíu á næstu leika.
Leikarnir efla vináttu á milli þessara einstaklinga. Íslenska liðið á 32. Ólympíuleikunum í eðlisfræði: Kristján fararstjóri,Kristján, Martin, Bragi, Henning, Sigurður og Viðar fararstjóri.
ÍSLENDINGAR hafa löngum
orðið þess heiðurs aðnjótandi að
vera minnsta þjóðin á alþjóðlegum
ráðstefnum. Þetta hefur einnig átt
við um Ólympíuleikana í eðlisfræði
en nýlega hófu Lichtensteinar þátt-
töku og skákuðu Íslendingum sem
minnstu þjóðinni. Þrátt fyrir að
landið sé lítið þurfa fararstjórarnir
að vera tilbúnir að þýða hin ensku
verkefni bæði á frönsku og þýsku og
hafa því mikla samvinnu við Sviss-
lendingana á leikunum.
„Það gekk erfiðlega að fá sam-
þykki menntamálaráðuneytisins í
Lichtenstein fyrir að hefja þátttöku
í Ólympíuleikunum í eðlisfræði.
Raunar kom samþykkið svo seint að
ég gat aðeins fylgst með seinni hluta
eðlisfræðikeppninnar á Íslandi
1998,“ segir Fritz Epple, fararstjóri
keppnisliðsins frá Lichtenstein.
„Við höfum samstarf við Svisslend-
inga um Landskeppni í eðlisfræði en
núna er ég með 3 stráka sem valdir
voru keppnislaust úr framhalds-
skólum í Lichtenstein. Þann yngsta
þeirra, 17 ára pilt, skorti aðeins 1,5
stig til að fá heiðursviðurkenningu.“
Íbúar Lichtenstein eru aðeins 30
þúsund og Fritz þekkir flesta nem-
endurna sem eru á eðlisfræðibraut í
landinu. Þarna er enginn háskóli og
útilokað fyrir Lichtenstein að bjóð-
ast innan 5 ára til að vera gestgjafar
Ólympíuleikanna í eðlisfræði eins og
reglurnar kveða á um. „Við erum að
vonast til að fjárhagsleg aðstoð okk-
ar við Ólympíuleikana 2016 í Sviss
teljist nægilegt gestgjafahlutverk
samkvæmt reglunum,“ segir Fritz.
„Annars verðum við að hætta þátt-
töku því ég læt mig ekki dreyma um
að Lichtenstein geti haldið Ólymp-
íuleikana í eðlisfræði í framtíð.“
Lichtenstein með á leikunum
SÉRHVERT keppnislið
á Ólympíuleikunum í eðl-
isfræði fær innfæddan leið-
sögumann til að aðstoða
keppendurna alla daga
leikanna. Sér til hjálpar
höfðu íslensku drengirnir
23 ára námsmey í Middle
East Technical University í
Ankara, Asiye Göksen Ux-
er, sem þar stundar nám í
bókmenntum. Það hefur stundum
valdið vandræðum á fyrri Ólymp-
íuleikum að leiðsögumaðurinn hef-
ur verið jafnaldri keppendanna og
þeir þá ekki tekið mark á þessum
umsjónarmanni. En þótt Aisye líti
ekki út fyrir að vera degi eldri en
18 ára hafði hún ákveðni og festu
til að vera sá stjórnandi sem henni
var ætlað að vera.
„Vinkona mín í háskólanum var
leiðsögumaður fyrir írska liðið á Ól-
ympíuleikunum í stærð-
fræði í fyrra og hún sagði
það hafa verið mjög
skemmtilegt. Þegar við
sáum auglýst í háskólanum
eftir leiðsögumönnum fyrir
Ólympíuleikana í eðlisfræði
sóttum við báðar um. Ég
tiltók ekkert sérstakt óska-
land en ég er mjög fegin
nú að ég fékk umsjón með
íslensku strákunum. Þeir hafa verið
prúðir og meðfærilegir í alla staði,
sjálfbjarga og áreiðanlegir.“
Asiye þáði ekki aðra umbun fyrir
átta daga vinnu sína en fæði og
húsnæði þá daga sem hún var í
Antalya en hún sér ekki eftir því.
„Ef mér dettur í hug að heimsækja
Ísland einhvern daginn á ég heim-
boð hjá fimm prýðisstrákum sem
munu sýna mér landið eins og inn-
fæddir einir geta.“
Áhugasamur leiðsögumaður
Asiye
INDÓNESAR mættu
óvenjumargir til Eðl-
isfræðileikanna í Tyrk-
landi, tveir fararstjórar
með fimm manna keppnis-
lið auk fimm áheyrnarfull-
trúa sem kynntu sér fram-
kvæmd leikanna til að
undirbúa 33. Ólympíuleik-
ana sem fram munu fara í Bandung í
Indónesíu að ári. Sjálfur forseti Ól-
ympíuleikanna í eðlisfræði, Dr Wal-
demar Gorzkowsky, hefur flust bú-
ferlum frá Póllandi til Indónesíu þar
sem hann hefur tekið að sér ráðgjafa-
og kennslustörf við ITB háskólann í
Indónesíu og mun hann að sjálfsögðu
verða einn af aðalskipuleggjendum
ólympíuleikanna þar.
„Hér með býð ég fyrir hönd
menntamálaráðuneytis Indónesíu öll-
um viðstöddum þátttakendum til 33.
Ólympíuleikanna í eðlisfræði,“ sagði
Alexander Iskandar, fram-
kvæmdastjóri undirbúningsnefnd-
arinnar, á keppnisslitahátíðinni í
Antalya. „Við munum
leggja okkur öll fram til
að ykkur líði sem best á
meðan á dvöl ykkar
stendur og keppendur
munu fá verðug og vönd-
uð verkefni til að glíma
við.“ Í fyrsta sinn í sögu
Ólympíuleikanna sýndu
hinir verðandi gestgjafar kvikmynd
til að útskýra aðbúnað og menningu
gestgjafalandsins.
33. Ólympíuleikarnir í eðlisfræði
munu standa yfir 14.-23. júlí 2002 og
verða því einum degi lengri en venja
er. Setningarhátíðin verður haldin í
forsetahöllinni í Jakarta, höfuðborg
Indónesíu, en keppnin sjálf fer fram í
Sasana Budaya Ganesha hverfi ITB
háskólans í Bandung þar sem m.a.
Vísinda- og tæknisafnið er til húsa.
Keppnisliðin munu búa í fjögurra og
fimm stjörnu hótelum í Bandung sem
er höfuðstaður Vestur-Jövu, byggður
á 700 m hárri sléttu, 180 km frá Jak-
arta.
Ólympíuleikarnir í Indónesíu
Alexander og
Triyanta.
KRISTJÁN Rúnar Kristjánsson
var annar af fararstjórum íslenska
liðsins og er þetta í annað sinn
sem hann gegnir því hlutverki.
Sjálfur var hann keppandi fyrir
Íslands hönd í Noregi 1996 en nú
er hann í meistaranámi í eðl-
isfræði við Háskóla Íslands.
„Íslensku drengirnir stóðu sig
eins vel á Ólympíuleikunum í eðl-
isfræði og ég hafði ímyndað mér
eftir þjálfunina. Það er staðreynd
að þeir, með 1–2 ára eðlisfræði-
nám að baki, eru að etja kappi við
jafnaldra sína sem lært hafa eðl-
isfræði í 3–5 ár. Íslenska skóla-
kerfið þyrfti að taka mið af þessu
og hefja fyrr kennslu í algebru í
grunnskólanum til að auðvelda
nám í eðlisfræði í lok grunnskól-
ans.“
Að mati Kristjáns skiptir þjálf-
unin, sem venjulega er 4–5 vikur,
sköpum um frammistöðu piltanna.
Þjálfunartíminn var aðeins rúmar
tvær vikur að þessu sinni vegna
verkfalls framhaldsskólakennara
og þess, hve snemma Tyrkir héldu
eðlisfræðikeppnina. „Frammistöðu
Íslendinga mætti bæta mikið með
skipulegri þjálfun en það er ljóst
að fjölmennari þjóðir munu alltaf
hafa meiri möguleika en við til að
finna afburðakeppendur. Dreng-
irnir frá Akureyri hafa báðir
möguleika á að keppa á Ólympíu-
leikunum í eðlisfræði í Indónesíu á
næsta ári. Þá munu þeir mæta til
leiks með meiri þekkingu en nú
auk keppnisreynslunnar og eiga
góða möguleika á að blanda sér í
betri helming keppendanna.“
Íslendingar
stóðu sig vel
Heimsferðir bjóða nú spennandi viku-
ferð til þessarar heillandi borgar þann 28. ágúst. Hér getur þú kynnst
fegurstu borg Evrópu, gamla bænum, Hradcany kastala, Karlsbrúnni,
Wenceslas torginu, og farið í spennandi kynnisferðir með fararstjórum
Heimsferða. Gott úrval hótela í boði.
Vikuferð til
Prag
28. ágúst
frá kr. 33.050
Verð kr. 33.050
Flugsæti með sköttum, m.v. hjón
með 2 börn.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 49.970
Flug og hótel í 6 nætur, m.v. 2 í
herbergi, á þriggja stjörnu hóteli.
Aðeins 28 sæti laus