Vísir - 28.09.1979, Qupperneq 3
VÍSIR
Föstudagur 28. september 1979
Jónas Árnason, alþingismaöur, stjórnar fjöldasöng eftir aö herstöövaandstœöingar voru komnir I gegnum vallargiröinguna.
Vlsismynd: Heiöar Baldursson
Slgmar I Slgtúni:
„Notum iðg-
lega vín-
mæla hér”
Vísi hefur borist yfirlýsing frá
Sigmari i Sigtúni vegna frétta
blaösins um upptöku lögreglu á
ólöglegum sjússamælum i veit-
ingahúsum. Þaö skal tekið fram
aö lögreglan hefur ekki viljaö
nafngreina þau fjögur hús sem
mælarnir fundust i. Yfirlýsing
Sigmars er svohljóöandi:
„Vegna frétta i dagblaöinu VIsi
um ólöglega vinmæla i veitinga-
húsum skal þaö tekiö fram, aö viö
erum aUtaf meö löglega og lög-
gilta vinmæla.
Fyrir hönd veitingahússins
Sigtúns,
Sigmar Pétursson”.
Mótmælln fóru frlðsamlega fram á Keflavfkurflugvellí:
ALÞINGISMAÐUR RIIDDI BRflUT
GEGNUM GIRDINGUNA
„Fundurinn var tviskiptur,
annars vegar á þeirri ættjörö sem
óumdeiianlega telstokkar ættjörö
og hins vegar á þeim parti, sem
lögreglustjóri og varnarmála-
deild utanrikisráöuneytis telj?
ekki vera”, sagöi Jónas Árnason
alþingismaöur i samtali viö Visi
um fund Hernámsandstæöinga i
gærkvöldi.
„Ég sá aö giröingin lá niöri
þarna rétt hjá sjálfu hliöinu og
gekk þar inn og hvatti fólk til aö
koma á eftir, enda var þaö greini-
lega óhætt”, sagöi Jónas.
Engin átök uröu milli lög-
reglunnar og fundarmanna, en
lögreglan haföi mikinn viöbúnaö.
Taliö er aö um 50 manna lög-
regluliö hafi veriö á staönum auk
slökkviliösmanna af Keflavikur-
flugvelli.
„Þaö má segja um lögregluna,
aö hUn hafi afsannaö grunsemdir
sumra aö islenskir lögregluþjón-
ar séu yfirleitt ribbaldar”, sagöi
Jónas.
Um tvö hundruö manns fylgdu
Jónasi inn fyrir giröingu, þar
settist fólkiö niöur og söng ætt-
jaröarsöngva.
„Ég vil meina aö þaö sé aö
þakka stillingu lögreglumanna aö
enginn hafi skaddast á þessum
fundi”, sagöi Þorgeir Þorsteins-
son lögreglustjóri á Keflavikur-
flugvelli, I samtali viö Visi.
Þorgeir sagöi, aö aöeins tveir
menn heföu veriö teknir innan
giröingar, en þeim var sleppt
strax aftur.
—KP
Sjómenn fá 9%
Nýtt fiskverö frá l.október var
samþykkt samhljóöa I yfimefnd
veröiagsráös sjavarútvegsins i
gær. Skiptaverö til sjómanna
hækkar samkvæmt þvi um 9,2%.
Hráefniskostnaöur fiskvinnsl-
unnar hækkar þó aöeins um 7%,
þar sem gert er ráö fyrir aö oliu-
gjald til fiskiskipa veröi 9% frá 1.
október I staö 15% og jafnframt
veröur 3% oliugjald sem komiö
hefur til skipta, fellt inn I fisk-
veröiö.
Veröuppbót á ufsa og karfa er
óbreytt.
Veröið gildir til ársloka
-SJ
Barnaskölinn í Grlndavík:
YFIRKENNARINN
SEGIR AF SÉR
Yfirkennarinn viö Barnaskól-
ann i Grindavik, Halldór Ingva-
son, sagöi af sér I gær til aö mót-
mæla þvi aö gengiö var fram hjá
Boga Hallgrimssyni viö ráöningu
nýs skólastjóra viö skólann.
Skólanefnd og fræöslustjóri
komu saman I gær og var sam-
þykkt aö mæla með öörum kenn-
ara Gunnlaugi Dan Ólafssyni, i
stööu yfirkennara.
Stjórn sambands grunnskóla-
kennarahefur mótmælt harölega
þeirri ákvöröun menntamálaráö-
herra aö setja réttindalausan
mann í skólastjórastöðu I Grinda-
vik enda þótt um stööuna hafi
einnig sótt maður meö full
kennsluréttindi.
Telur stjórn Sambandsins aö
Bogi Hallgrimsson hafi átt
óskoraöan rétt samkvæmt lögum
til starfsins.
I ályktun stjórnar sambandsins
segir aö viö þessa ráöningu hafi
„... réttindi og lög veriö látin
vikja”.
-KS
TRÚI EKKI ÖÐRU EN
VOPNIN VERÐI SLÍÐRUÐ
- segir Hjálmar Árnason,nýsettur skólastjórl
I Grlndavlk
f 9
„Þaö er heldur hvimleitt aö
koma inn Inýtt starf viö svona aö-
stæöur. En ég trúi ekki ööru en aö
vopnin veröi slföruö og menn snúi
bökum saman til þess aö deilurn-
ar bitni ekki á skólastarfinu”,
sagöi Hjálmar Árnason. nýsettur
skólastjóri i Grindavik.
Hjálmar var lögregluþjónn I
Keflavik og var hann annar af
stjórnendum þáttarins „A tiunda
timanum” i litvarpinu, en áöur
haföi hann fengist viö kennslu I
nokkur ár.
Ráöning hans hefur valdiö
miklum deilum vegna þess aö
gengiö var framhjá heimamanni
meö full réttindi, Boga Hall-
grimssyni,sem gegnt haföi stöðu
skólastjóra s.l. 3 ár, eins og Visir
hefur skýrt frá.
„Ég heyrði stööuna auglýsta i
útvarpinu og ég haföi mikinn
áhuga á starfinu og sótti um. Er
ég var ráöinn.fékk ég þá skýringu
frá menntamálaráöuneytinu að
þar sem i uppsiglingu væru mála-
ferli vegna uppsagnar skólastjór-
ans, sem Bogi leysti af.væri best
að ráöa utanaökomandi mann
meöan þaö mál væri i gangi.
Ég held aö þaö hafi ekki skipt
máli hvar I flokki ég stóð.
Timinn er naumur og allur
undirbúningur undir skólastarfiö
skammt á veg kominn.en mér list
vel á starfsliö skólans.
Þaö hefur veriö mér mikill
styrkur að ég hef fengiö hvatn-
ingu frá f jöldamörgum Grindvik-
ingum, sem m.a. tóku þátt 1 undir-
skriftinni til stuönings Boga.
Þeir hafa sag t méraö þeir hafi
skrifað undir til aö mótmæla þvi
aö staöan hafi veriö auglýst rétt
áöur en skólinn átti aö hefjast.en
mótmælin hafi ekki beinst gegn
mér persónulega. -KS
Caplaio W.E. Johna
V#
TÍGRISKLÓIN JVC> ^
Nýjustu hraðfréttir
lyyjustu nraöjrettir
^ Benna-bækurnar
Bráðskemmtilegar. Ramm-spennandi
Fyrsta Benna-bókin — Tígrisklóin — er komin i bókabúðir
allt kringum land. Benni flugmaður er drengur góður
og bregst aldrei.
A næstunni er enn stærri tiðinda að vænta. Fjölvi gefur út
fyrstu teiknisöguna, sem er prentuð i fullum litum á íslandi. —
Brautryðjandaverk i prentsögunni. Styður islenskan iðnað og
atvinnu. Bókin er algert leyndarmál í bili, — hún á sko að koma
á óvart. Biðið róleg í svo sem hálfan mánuð. Ekkert liggur nú á.