Vísir - 28.09.1979, Page 14
VISIR Föstudagur 28. september 1979
sandkorn
18
VatniD
Ameriskur feröamaöur kom
aö Genesaretvatni og langaöi
eöliiega til aö skreppa i báts-
ferð.
,Hvað kostar aö leigja bát i
klukkutima?”
„Hundraö dollara,” var
svariö.
„Hundraö dollara?” Banda-
rikjamaöurinn var stór-
hneykslaöur og ætlaði aö
strunsa i burtu.
„Já, en herra, þetta er vatn-
iö sem Jesús gekk á”.
„Ég er ekkert hissa á þvi,
meö þetta okurverð á bátun-
um”.
Arni.
Barínn
Hóteliö i Stykkishólmi fékk
vinveitingaleyfi i sumar, eftir
haröa baráttu. Höfuöbáráttu-
maöur þeirra sem voru á móti
barnum var aö sjálfsögöu hinn
landskunni bindindisfrömuöur
Arni Helgason, simstöövar-
stjóri I Hólminum.
Þegar aö þvi kom aö opna
barinn var hóteistjórinn i
miklum vandræöum meö hvaö
ætti aö skira hann. Stjórinn
tók þá ákvöröun aö skira hann
einfaidiega eftir fyrsta gestin-
um sem birtist.
Svo var dyrunum lokiö upp
og inn stikaöi - fyrstur manna
— Arni Helgason, aö athuga
hverjir meöhólmarar hans
féllu fyrir freistingunni.
Arnabar er ágætlega sóttur.
Nauðsyn
„Af hverju ertu svona dapur
á svipinn, Nonni minn”,
spuröi Pési.
„Konan min er aö fara til
Akureyrar i þrjár vikur”.
„Nú, ekki þarftu aö vera
svona leiður yfir þvi”.
„Jú, annars fer hún ekki”.
„Franskar
M
Ein ástæöan sem gefin var
fyrir þvi aö veriö er aö flytja
inn útlendar kartöflur var sú
aö islensku kartöflurnar séu of
smáar til aö hægt sé aö búa til
úr þeim „franskar”.
Unnendur franskra
kartaflna myndu örugglega
þiggja aö fá upplýst hvaöa
staöur notar ennþá „alvöru”
kartöflur til aö búa til fransk-
ar.
Flestöll veitingahús eru meö
þetta hryllilega duft sem
búnar eru til úr óætar deig-
klessur.
—ÓT.
Pi
99
Raquel Welch er hæfl-
leikaiaus frekjudésl
- segja samslarfsmenn hennar I kvikmynd, sem verið er að taka
Hún er frek, tillitslaus,
skapvond og tekur ekkert
tillit til annarra. Þetta
segja samstarf smenn
kvikmyndastjörnunnar
Raquel Welch, en hún
leikur aðalhlutverkið í
nýrri sjónvarpskvikmynd
„The Legend of Walks
Far Woman" sem verið
er að taka í Bandaríkjun-
um.
Raquel er bókstaflega
að gera allt vitlaust í búð-
um kvikmyndafólksins í
Montana, (jar sem kvik-
myndun fer fram. Þegar
hefur kvikmyndastjarn-
an tafið kvikmyndun um
ellefu daga með hegðun
sinni og valdið því að
fjölmargir hafa hætt
starf i.
Það er ekki nóg með að
hún tefji starfið með
hegðun sinni heldur hefur
hún ráðist á leikstjórann
og gefið honum ærlegan
löðrung, þegar henni
finnst sér misboðið.
Við sögu \ myndinni
koma margir indíanar, en
Raquel leikur indíana-
stelpu í myndinni, þrátt
fyrir sín 39 ár. Sagt er að
Raquel láti skammirnar
dynja á vesalings indí-
ánunum sem fengnir
voru til að fara með hlut-
verk í myndinni og hún
kallar þá öllum hugsan-
legum ónöfnum.
Dónaskapur og Ijótt
orðbragð Raquel varð
þess valdandi að mótleik-
ari hennar Robert Foster
hætti eftir þrjá daga.En
það er ekki nóg með það,
fleiri fylgdu hans for-
dæmi t.d. hárgreiðslu-
meistari hennar, förð-
unarmeistari, þrír kvik-
myndatökumenn og
einkaritari.
„Hún er frekjudolla
sem hefur enga hæfi-
leika. Hún ætti að koma
sér f leikskóla og fara
síðan til Sviss í andlits-
lyftingu", segir samleik-
ari hennar.
Þýtt—KP Raquel Welch leikur indjánastelpu Ikvikmyndinni „The Legend of Walks FarWoman”.
* 'e'r' H7 RÖkÍTb YLGJflT Ú PPSÍgÚHGU?
Margt bendir til þess aö ný
rokkbylgja sé aö skella yfir
heimsbyggöina og diskóiö
blessaöa fari aö gefa eftir. A
undanförnum mánuöum hafa
hljómsveitir sem spila einfallt
rokk oröiö æ vinsælli sérstak-
lega i Bandarikjunum og má
þar nefna Dire Straits, Nick
Lowe, Cars, Joe Jackson og
Knack, sem þessa vikuna eru i
fyrsta sæti bandarlska vin-
sældalistans.
Þessar hljómsveitir og lista-
menn eiga þaö sameiginlegt aö
spila einfallt melódiskt rokk,
sem byggist fyrst og fremst á
einfaldri hljóöfæraskipan, bassi
trommur og gítar. Einnig er
athyglisvert aö margar af
þessum hljómsveitum eru
ódýrar, þ.e.a.s. kostnaöur viö
gerö platna þeirra er aöeins
brot af þvi sem mörg „stór”
nöfn nota. Sem dæmi má nefna,
aö plata Knack kostaöi aöeins
18.000 dollara i gerö, eöa tæpar 7
milljónir Isljcr. (sem er töluvert
minna en gerö Islenskrar plötu.)
Aftur á móti er kostnaöurinn viö
nýju plötur Eagles og
Fleetwood Mac kominn yfir
500.000 dollara á plötu, eöa um
190 milljónir, svo eitthvaö meira
en litiö hefur gengiö á viö þær
upptökur.
Hvaö um þaö, næstu mánuöir
koma til meö aö ráöa úrslitum
um þess þróun en mér segist
svo huguraögamla góöa (Bitla)
rokkiö sé komiö á skriö sem
erfitt veröur aö stoppa. hver
veit?