Vísir - 28.09.1979, Page 23
vísm
Föstudagur 28. september 1979
MILLISVÆÐA-
MÖTIÐ í RIGA
Eins og málin standa nú, þeg-
ar þetta er ritað, virðast Tal,
Polugaevsky og Ribli liklegastir
til að komast áfram i útsláttar-
einvigin. Þess ber þó aö geta, að
Ribli á eftir sovéska
hreinsunareldinn 1 lokin, mætir
Tshekovsky, Polugaevsky og
Romanishin i 3 siðustu um-
ferðunum. Tal teflir þá við
Adorjan, Miles og Rodrigues, en
Polugaevsky mætir Mednis,
Ribli og Georghieu. Larsen sem
hefur verið meðal efstu manna
allt mótið, teflir viö Tarjan,
Adorjan og Greenfeld i 3 siðustu
umferðunum, þannig að enn
getur margt skeö. Efsta sætið
skiptir töluverðu máli, varðandi
niðurröðun I útsláttareinvigiö.
Veröi Tal I 1. sæti, kemur hann
ekki til með að tefla strax gegn
Kortsnoj, Spassky eða sigur-
vegaranum frá millisvæðamót-
inu I Brasiliu. Trúlega fýsir Tal
ekki að fá Kortsnoj strax I 1.
umferð og öruggasta leiöin til að
fyrirbyggja slikt er að hreppa 1.
sætið eins og Tal virðist á góðri
leið með að gera. Tal fór heldur
ómjúkum höndum um þá fjóra
landa sina sem þarna tefla,
vann þá alla I 4 fyrstu um-
ferðunum. Það var kaldhæðnis-
legt að I 5. umferö gerði hann
siðan jafntefli við einn stiga-
lægsta keppandann, Bouazi? frá
Túnis.
Taugaspennan hefur sett sitt
mark á mótið og endalok sumra
skákanna verið ótrúleg. Tvö
dæmi um þetta fylgja hér á eft-
ir. 1 þvi fyrra sér hvitur heldur
betur hillingar, er hann heldur
sig vera aö fórna til jafnteflis.
Hvltur: Kuzmin, Sovétrlkjunum
Svartur: Tal, Sovétrlkjunum.
Benoný vörn
1. umferö
1. d4
2. c4
3. g3
4. d5
5. cxd5
Rf6
e6
c5
exd5
d6
(Tal beitti Benoný-vörn hvað
oftast á slnum yngri árum eða
þar til Englendingurinn Pen-
rose malaði hana niður fyrir
honum á Olympíuskákmótinu I
Leipzig 1960. Hér teflir hvltur
hægfara og heldur hættulltið af-
brigði.)
6. Rc3 g6
7. Bg2 Bg7
8. £f3 0-0
9. 0-0 He8
10. h3
(Oft er biskupinn á c8 hálf-
gerður vandræöagripur I stöð-
um sem þessari. Hvltur vill þvl
ekki gefa kost á Bg4 og upp-
skiptum).
10. ... Re4!
11. Rxe4 Hxe4
12. Bg5 Dc7
13. Rd2 He8
14. Re4
H4A X 11* 1 B ^t
t t 6
t& A B
& d
t t'
1 i 11 A " 2
a # a
14. ... Hxe4!?
(Djarflega leikiö, en Tal
treystir á mátt sinn og megin.)
15. Bxe4 Bxh3
16. Bg2 Bxg2
17. Kxg2 Bxb2
18. Hbl Bg7
19. Da4 Rd7
20. Hhl
(Hvltur reynir að ná sókn eftir
h-línunni að kóngsstöðu svarts.)
20. ... a6
21. Hh4
(Ekki gekk 21. Dh4 Rf8 22. Be7
h6 23. Bf6? g5 og svartur vinn-
ur.)
21. ... b5
22. Hxb5
(Hvítur leggur allt upp úr
kóngssókninni og fórnar skipta-
mun til aö losna viö riddarann
úr vörninni.)
22. ... Rb6
23. Hxb6 Dxb6
24. Dd7 Be5
ÍL *
® i t
i* i t
ttA A
a
t
t &&
ABCDEFGHI
25. Hxh7+ Kxh7
26. Dxf7+ Bg7
27. Bf6 Da7
og hvltur gafst upp. Kuzmin átti
von á 27. ... Hg8, og hugðist þá
leika 28. Dd7 Db8 29. Dh3+ Bh6
30. Dd7+ Hg7 31. Bxg7 Bxg7 32.
Dh3+ Kg8 33. De6+, en eftir 33.
... Kf8 er engin þráskák heldur
til. Hér var á feröinni skák-
blinda af verstu gerö.
1 slöara tilvikinu eigast við
tveir kandidatar um réttinda-
sætin(Larsen og Ribli.
t #a 1 1 #
i t
4 t
t
F G
Larsen hefur hvftt og lék slðast
35. Dc8, meö hótuninni 36. Hh8+
Bxh8 37. Dxh8 mát. Þessu heföi
svartur trúlega best mætt meö
35.... Kh7 36. Bd4 Re2+ 37. Bxe2
Dxe2 38. Bxe5 Dxe5 og staöan er
tvlsýn. Ribli var þó heldur betur
heillum horfinn, lék 35. ...
Hxe3?? og gafst upp eftir 36.
Hh8+.
Jóhann örn Sigurjónsson
Eimskip með nýja áætlun
Siglingaleióin
REYKJAVÍK
ÍSAFJÖRÐUR
SIGLUFJÖRÐUR
AKUREYRI
HÚSAVÍK
BERGEN
GAUTABORG
MOSS
KRISTIANSAND
Eimskipafélagið hefur hafið
reglubundnar siglingar frá
Reykjavik til fjögurra annarra
hafna innanlands i beinum
tengslum við ferðir félagsins frá
Noregi og Sviþjóö.
Þrjú af skipum félagsins halda
uppi vikulegum ferðum milli
Reykjavikur, Isafjarðar, Akur-
eyrar.Gautaborgar og Moss I
Noregi. Hálfsmánaðarlega hafa
þau viðkomu á Siglufiröi, Húsa-
vlk, Bergen og Kristiansand.
Þaö eru Alafoss, Tungufoss og
Oðafoss sem munu sigla á þessari
áætlun. —KP.
Kaffidagur Eyfirð-
ingafélagsins
Hinn árlegi kaffidagur
Eyfirðingafélagsins verður á
sunnudaginn á Hótel Sögu, Súlna-
sal. Þangaö er öllum
Eyfiröingum 67 ára og eldri boöið
til kaffiveislu.
Eins og á fyrri kaffidögum
verður basar meö miklu úrvali
muna, en ágóðinn rennur til
menningar- og góðgeröarmálefna
I Eyjafiröi.
ðgmundur Jónas-
son fær starfann
Ogmundur Jónasson hefur nú
veriö ráðinn fréttamaður hjá
sjónvarpinu frá og með næstu
mánaðamótum að telja.
Andrés Björnsson útvarpsstjóri
sagði I morgun að hann væri nú
búinn að ganga frá ráðningu
ögmundar I starfið, en það er eins
og kunnugt er starf fréttamanns I
erlendum fréttum. Aður var
útvarpsráð búiö að mæla einróma
með ögmundi I starfiö, en hann
var einn nlu umsækjenda er sóttu
um fréttamannsstöðuna. HR.
EGG 0G BlÖ-
MI0AR HÆKKA
Nýtt smásöluverö hefur veriö
auglýst á eggjum.
Kostar hvert klló nú 1300 krónur,
en kostaöi áöur 1090 krónur.
Eggjakilóið hefur hækkað um 46
prósent á einu ári, en I september
I fyrra kostaði eggjakllóiö 890
krónur.
Þá hefur veriö staöfest nýtt
verð á biómiðum. Kostar nú 900
krónur miðinn, eti 450 krónur á
barnasýningar. Miöinn kostaði
fyrir hækkun 700 krónur, en 350 á
barnasýningar. —KP.
UMHVERFISMAL
í HASKÓLANUM
Verkfræði- og raunvlsindadeild
Háskóla íslands efnir til
umræðna og umhverfismál á
næstu vikum.
11 fyrirlesarar munu flytja jafn
mörg erindi I húsi deildarinnar,
Hjaröarhaga 6 og verða þau á
mánudögum kl. 17:15. Hiö fyrsta
verður 1. október n.k. og ræöir
Eysteinn Jónsson, fyrrv. ráð-
herra um efniö: Maður og um-
hverfi.
Aðgangur er öllum frjáls.
Ráðstefna um óháðar
lyfjaupplýsingar
Norræna lyfjanefndin (NLN)
gengst fyrir ráöstefnu dagana 4,-
5. október n.k. i Oslo, um fræöslu-
og upplýsingastarfsemi, um lyf,
óháöa lyfjaframleiðendum.
Ráðstefnuna sækja fulltrúar
flestra greina heilbrigðisstétta og
heilbrigðisyfirvalda, s.s. lyfja-
búða, lyfjaiönaðarins, lækna og
ráöuneyta.
BAKKABRÆÐRASAGA ER NUTIMA AUÍARA
Þingmaður thaldsins á Aust-
fjörðum er sem alkunna er bor-
inn Vestfiröingur og hefur feng-
ið I arf vestfirska stórmennsku
og hefur þar að auki til spari-
brúks málfar Kristrúnar i
Hamravik. Þegar rikisstjórnir
brjóta gegn sjálfstæðisvitund og
lýðræðisást þessa vestfirska
Austfjaröaþingmanns heldur
hann uppi málþófi á Aiþingi og
flytur þá iengri ræður en allir
aörir. Þetta er Sverrir Her-
mannsson. Hann talaði 1 fimm
stundir vorið ’74, en hefði vænt-
anlega talaö I tiu hefði hann
mátt vatni halda svo lengi.
Sverrir er auk þingmennsk-
unnar bæði kommissar og stór-
útgeröarmaður. Hann hafði á-
kveðið að láta smlöa nýjan tog-
ara I Stálvik og lét bankann sinn
reikna hvort sllkt fyrirtæki væri
arðvænlegt. Kom þá i Ijós aö
togara af þessu tæi er ekki unnt
aðreka nema með þrjú hundruö
milljón króna tapi á ári. Sverrir
og þeir bræöur eru svo sein-
heppnir aö skipta viö banka sem
neitar að lána I fyrirtæki sem
eru botnlaus eins og tunnan,
sem á sinum tlma var staðsett
suður I Borgarfiröi. Þeir I
Ctvegsbankanum sögðu sem
sagt nei.
Þá kom I spiliö Björgvin Guð-
mundsson formaöur útgerðar-
ráðs Reykjavikur, sem rekiö
hefur Bæjarútgerðina sem
einkafyrirtæki með rassvasa-
bókhaldi. Björgvin þessi fór i
Landsbankann og bað um lán til
þess að mega láta smiða Stál-
vlkurtogarann, sem þeir Her-
mannssynir úr Djúpi vestur
fengu engan botn I. Björgvin er
þá svo heppinn að Landsbank-
inn er svo rlkur að hann þarf
ekki aö spyrja um arösemi
þeirra fyrirtækja, sem lánað er
til. Bankastjóri Landsbankans
segir I viðtali við Mogga að
reglugerðir þær sem sá banki
fari eftir geri ekki ráö fyrir að
horft sé á gróða eða tap og þvl
láni hann i botnlaus fyrirtæki
samkvæmt iögum og reglum.
Ctvegsbændur keyptu sér for-
mann fyrir nokkrum árum. Sá
heitir Kristján Ragnarsson.
Hann hefur veriö ólatur við að
draga fram taptölur útvegs-
bænda, en sjálfur telst hann til
fræðilegra öreiga samkvæmt
kenningu Guörúnar Didó.
Kristján hefur reiknað út að
kaupi menn fiskiskip á núver-
andi lánskjörum muni þeir i lok
lánstlmans hafa safnað skuid-
um upp á 800 milljarða króna,
en það er fjórfalt hærri upphæð
en stendur útgjaldamegin á
fjárlögunum. 1 umhyggju sinni
fyrir útvegsbændum sinum hef-
ur Kristján varaö menn við að
semja um smiði á fiskiskipum
og undrar engan.
Hvernig má það þá vera að
borgarútvegsbóndinn Björgvin
Guðmundsson hafi tök á að
leggja út I þetta œvintýri? Hann
gefur I Moggaviötali þá hald-
góðu skýringu að rekstur hans
sé á miklu heilbrigðari grund-
velli en ögurvlkur, enda hafi
Bæjarútgerðin tapað 400 mill-
jónum á siðasta ári. Hinn heil-
brigði grundvöllur liggur á hin-
um breiðu bökum skattgreið-
enda I Reykjavfk, sem borga
brúsann. Björgvin skrifar bara
undir samninga.
Margir hafa skellt sér á lær
vegna sögu þessarar og á kaffi-
húsum er aftur farið að tala um
spillingu I Vilmundarstfl. En
kjarni málsins er þó sá að sagan
um Bakkabræöur er ekki lengur
þjóðsögugaman heldur nútlma
alvara. Svarthöföi.