Morgunblaðið - 29.09.2001, Side 1
222. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 29. SEPTEMBER 2001
ÞÚSUNDIR Palestínumanna efndu
til mótmæla í gær í tilefni þess að ár
var liðið frá því að uppreisnin gegn
Ísrael hófst. Þrír Palestínumenn,
þeirra á meðal 10 ára drengur, biðu
bana í átökum við ísraelska her-
menn á Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu. 45 Palestínumenn særðust
í átökunum, þar af tveir lífs-
hættulega, og sex Ísraelar.
Þá lét Palestínumaður lífið í
Hebron þegar sprengja sem hann
var að setja saman sprakk í höndum
hans. Að minnsta kosti þrír Palest-
ínumenn biðu bana seint í gærkvöldi
í sprengingu sem varð nálægt
mosku á suðurhluta Gaza-svæðisins
en ekki var vitað hvað olli henni.
Ungir Palestínumenn kasta hér
bensínsprengjum á ísraelska her-
menn í Hebron.
Reuters
Blóði út-
hellt á
uppreisnar-
afmælinu
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ í
Washington sagðist í gærkvöldi hafa
„miklar áhyggjur“ af öryggi banda-
rískra ríkisborgara og eigum þeirra
erlendis en sams konar yfirlýsing
var gefin út 12. september, daginn
eftir árásirnar á New York og Wash-
ington. Sjö írakskir ríkisborgarar
voru í gær handteknir í Ekvador í
tengslum við lögregluaðgerðir í kjöl-
far árásanna. Var fólkið með fölsuð
skilríki.
Sagt er að litlir hópar sérsveitar-
manna frá Bandaríkjunum og Bret-
landi hafi verið sendir til suðurhluta
Afganistans nokkrum dögum eftir
hryðjuverkin í New York og Wash-
ington og sé þeim ætlað að taka
Osama bin Laden til fanga eða jafn-
vel bana honum. Sé m.a. leitað að
honum í hellum og neðanjarðar-
byrgjum. Bin Laden er grunaður um
að hafa staðið á bak við árásirnar.
Ónafngreindur embættismaður í
Washington staðfesti í samtali við
AP-fréttastofuna að sérsveitarmenn
væru í Afganistan. Sagði hann mark-
miðið að afla upplýsinga og undirbúa
hernað ef til hans kæmi en neitaði að
þeir ættu að handsama bin Laden.
George Bush Bandaríkjaforseti
sagði í gær að erfitt væri að heyja
„skæruliðastríð“ með hefðbundnu
herliði; ef til vill yrði því beitt og ef til
vill ekki. En enginn ætti að vera í
vafa um að verið væri að þrengja
mjög hringinn um bin Laden. Op-
inber sendinefnd frá Pakistan reyndi
í gær að fá talibanastjórnina í Kabúl
til að framselja bin Laden en hafði
ekki erindi sem erfiði.
Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
sagði í gær að hryðjuverkamenn sem
notuðu „íslömsk slagorð“ ættu ekk-
ert sameiginlegt með trúuðum mús-
límum. Milljónir múslíma búa í land-
inu. Rússland og Mið-Asíulöndin
Úzbekistan, Túrkmenistan og Tadj-
íkistan eru öll í svonefndu Sambandi
sjálfstæðra ríkja ásamt flestum fyrr-
verandi sovétlýðveldum. Pútín lagði
í gær áherslu á að sambandið myndi
taka þátt í samstarfinu með Banda-
ríkjamönnum gegn hryðjuverkum
en bækistöðvar í Mið-Asíulöndunum
þrem eru taldar geta ráðið miklu um
niðurstöðuna.
Ónafngreindur stjórnarerindreki í
ríki við Persaflóa sagði í gær að sádi-
arabísk stjórnvöld hefðu ákveðið að
leyfa Bandaríkjamönnum að nota
herflugvöll í landinu í aðgerðunum
gegn bin Laden og talibönum. Þykir
þetta merki um að stjórnvöld óttist
nú minna en áður andstöðu
strangtrúaðra múslíma sem margir
eru mjög á móti bandarískum hern-
aðarumsvifum í grennd við helga
staði íslams, Mekku og Medinu, í
Sádi-Arabíu.
Dagblaðið Al-Sharq al-Awsat, sem
gefið er út í London, sagði í gær að
sjónarvottar hefðu séð er hópur ísl-
amskra bókstafstrúarmanna var
rekinn upp í flugvél í Kartúm, höf-
uðborg Súdans, en ríkið er, eins og
Íran og Sýrland, á lista Bandaríkja-
stjórnar yfir þau ríki sem veitt hafi
hermdarverkamönnum skjól. Tals-
maður utanríkisráðuneytisins í
Washington hrósaði í gær Súdönum
fyrir að hafa handtekið menn sem
grunaðir eru um hermdarverk og
einnig fyrir að hafa veitt upplýsingar
um öfgahópa.
Bandaríkjamenn óttast
frekari hermdarverk
Bush segir erfitt að beita hefð-
bundnu herliði í „skæruliðastríði“
Moskvu, Washington, Kabúl, London. AP, AFP.
Reuters
Afgönsk börn lesa í Kóraninum í flóttamannabúðum skammt frá Karachi í
Pakistan. Milljónir afganskra flóttamanna eru þegar í Pakistan og Íran.
Árásin/24
MENNIRNIR, sem stóðu að
hryðjuverkunum í Bandaríkj-
unum 11. september, skildu eft-
ir sig skjöl á
arabísku þar
sem þeim var
kennt hvernig
þeir skyldu
búa sig and-
lega undir
ódæðið og eig-
in dauða. Meg-
ininntakið var,
að morðin
væru fyrir Al-
lah og fyrir þau yrði þeim um-
bunað á himni.
Afrit af skjalinu fannst í far-
angri Mohameds Atta, sem er
grunaður um að hafa skipulagt
hryðjuverkin, og annað fannst í
flaki United Airlines-þotunnar,
sem hrapaði til jarðar í Penn-
sylvaníu. Það þriðja fannst svo í
bíl, sem einn flugræningjanna
hafði notað.
Skjölin eru annars vegar gát-
listi þar sem minnt er á, að hug-
að sé vel að undirbúningi
fjöldamorðanna, og hins vegar
leiðbeiningar um það hvernig
eigi að búa sig undir þau and-
lega. Eru hryðjuverkamenn-
irnir hvattir til að „þrá dauð-
ann“ og „vera vongóðir“.
Umbunað á himni
„Allir óttast dauðann,“ segir í
skjalinu, sem The Washington
Post hefur komist yfir, „en að-
eins hinir trúuðu, sem vita, að
þeim verður umbunað á himni,
taka dauðanum fagnandi.“
The Dallas Morning News
segir, að í skjalinu, sem fannst í
Pennsylvaníu, séu leiðbeining-
ar um það hvað hryðjuverka-
mennirnir skuli gera og hugsa
síðustu stundirnar. „Hugið að
vopnunum,“ segir þar, og „ef
þið takið leigubíl út á flugvöll,
skuluð þið brosa og minnast
þess, að Allah er með ykkur og
allir englarnir.“
Hryðjuverkamönnunum er
sagt að fara með bæn strax og
komið er inn í flugvélina og aft-
ur þegar þeir setjast með það í
huga, að „árásin er fyrir Allah“.
Í skjölunum eru þessi „hugg-
unarríku“ orð: „Þegar sann-
leikurinn opinberast ykkur og
stundin nálgast, skuluð þið
bjóða dauðann velkominn í
nafni Allah. Ykkar síðustu orð
skulu vera þessi: Það er enginn
guð nema Allah. Múhameð er
spámaður hans.“
Fyrstu fjórar síður skjalanna
eru handskrifaðar og er þar
stiklað á sögu íslams. Þar segir
til dæmis frá því er spámaður-
inn barðist með 100 mönnum
gegn 1.000 villutrúarmönnum.
„Árásin
er fyrir
Allah“
Washington. AP.
Mohamed
Atta
SILVIO Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, sagði í gær að ummæli
sín um yfirburði vestrænnar menn-
ingar hefðu verið misskilin. Hann
sagði í sjónvarpsviðtali á miðvikudag
að vestræn menning virti mannrétt-
indi sem ekki væri reyndin í ríkjum
íslams. Vestrænir leiðtogar gagn-
rýndu margir ummælin sem þóttu
óheppileg í ljósi þess að Vesturveldin
reyna nú að fylkja liði með hófsöm-
um múslímum gegn hryðjuverkum.
Berlusconi sagði í þingræðu að orð
sín hefðu verið mistúlkuð. „Mér þyk-
ir leitt að orð sem voru misskilin
skyldu særa arabíska og íslamska
vini mína.“ Hann sagðist gera sér vel
grein fyrir mikilvægu framlagi músl-
ímaríkja. „Við ættum að vera hreyk-
in af gildunum sem við trúum á: um-
burðarlyndi, fjölhyggju, pólitískum
og efnahagslegum réttindum, trú-
frelsi og almennum kosningarétti,“
bætti hann við.
Berlusconi segir ummæli um
vestræna yfirburði misskilin
Róm. AP.