Morgunblaðið - 29.09.2001, Side 8

Morgunblaðið - 29.09.2001, Side 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Alþjóðahjartadagurinn á morgun Heilbrigt hjarta ævilangt ALÞJÓÐLEGURhjartadagur er ámorgun, 30. sept- ember. Að honum standa hér á Íslandi Landssamtök hjartasjúklinga (LHS), SÍBS, Hjartavernd, HL- stöðin í Reykjavík, Rauði kross Íslands og Félag hjartasjúklinga á Reykja- víkursvæðinu. Ásgeir Þór Árnason hjá Landssamtök- um hjartasjúklinga hefur komið að undirbúningi hins alþjóðlega hjartadags hér, hann var spurður um markmið þessara aðgerða. „Það er Alþjóðahjarta- sambandið eða World Heart Federation, með stuðningi alþjóðaheilbrigð- isstofnunarinnar WHO og UNESCO sem hvetur að- ildarfélög sín um allan heim til að halda upp á hjartadaginn. Dagur- inn verður haldinn hátíðlegur í yfir hundrað löndum. Þema dagsins er: Heilbrigt hjarta ævilangt.“ – Hvað er ráðlagt til þess að stuðla að þessu markmiði? „Alþjóðahjartasambandið hefur gefið út „topp 10“ listann yfir atriði sem eiga að stuðla að heilbrigðu hjarta. Það sem fólk getur gert í þessu augnamiði er að reykja ekki, hreyfa sig daglega, borða sem holl- ast fæði, halda sig við kjörþyngd, forðast streitu, láta mæla blóð- þrýsting, útloka sykursýki, vera meðvitað um fitumagn í blóðinu, fara í almenna læknisskoðun og hugsa vel um hjartað og hvetja þá sem standa manni næst til að gera það líka.“ – Hvað á að gera hér á landi í til- efni hins alþjóðlega hjartadags á morgun? „Í tilefni dagsins verður boðið upp á mælingu á blóðfitu og blóð- þrýstingsmælingu, mælingu á lík- amsþyngdarstuðli (BMI), sem gef- ur til kynna ástand með tilliti til ofþyngdar, veitt verður ráðgjöf fyrir þá sem óska eftir að hætta að reykja og svo verður kynning á endurlífgun. Þetta fer fram í Mjóddinni og hefst klukkan 10 sunnudaginn 30. september, þ.e. á morgun. Verða mælingarnar fram- kvæmdar í göngugötunni í Mjódd frá klukkan 10 til klukkan 16. Svona mælingar fara fram á fleiri stöðum á landinu, svo sem Vest- mannaeyjum og á Akureyri. Fólk fær niðurstöðublað með skráðum gildum sem það getur sýnt lækn- inum sínum. Átak þetta er fram- hald af því að Landssamtökin stóðu fyrir mælingum á blóðþrýst- ingi og blóðfitu í Stykkishólmi í samvinnu við Félag hjartasjúkl- inga á Vesturlandi og fyrir stuttu á Austurlandi í samstarfi við SÍBS. Í þessar mælingar hefur almenning- ur mætt án þess að panta tíma og án endurgjalds. Hér er um stórt framtíðarverkefni að ræða sem Landssamtök hjartasjúklinga munu standa fyrir á sem flestum stöðum á landinu á komandi árum. Þetta er í fyrsta skipti sem allir þessir aðilar sameinast um svona stórt átak.“ – Verður fleira gert í tilefni af alþjóðlega hjartadeginum? „Fólk getur haft samband við lækni sem verður í göngugötunni í Mjódd á þeim tíma sem mælingarnar fara fram. Síðast en ekki síst verður farið í hjarta- göngu um Elliðaárdalinn og hefst hún klukkan 14 á morgun. Boðið er upp á tónlistarflutning fyrir göng- una og hefst sá flutningur klukkan 13 við biðskýlið í Mjódd, þetta er þó háð verðurskilyrðum.“ – Verður hjartaganga víðar á landinu? „Já, hjartaganga verður farin frá Glerártorgi á Akureyri klukk- an 13 á morgun. Þar verður sem fyrr sagði boðið upp á mælingar á blóðfitu og blóðþrýstingi og í Vest- mannaeyjum verður hjartaganga farin frá Akogeshúsinu klukkan 13 og þar verður einnig boðið upp um- ræddar mælingar. Á þessum stöð- um verða læknar til viðtals.“ – Tekur þetta ekki allt langan tíma? „Jú, það má búast við því og er fólk beðið að hafa biðlund meðan mælingarnar fara fram, reynt verður að mæla alla þá sem það vilja innan þess tíma sem áður var tiltekinn. Allar upplýsingar sem al- þjóðahjartadeginum eru tengdar eru í blaðinu sem Landssamtök hjartasjúkinga gaf út undir nafn- inu Velferð og dreift var með Morgunblaðinu í gær.“ – Skila allar þessar aðgerðir sér vel sem forvarnir? „Já, þær mælingar sem við höf- um gert og fengið niðurstöður úr hafa undantekningarlaust hjálpað því fólki sem fékk hágildi og hefur það farið í framhaldsmeðferð hjá heimilislæknum eða öðrum í kjöl- farið. Þetta fólk gengur með áhættueinkenni sem eru eins og tifandi tímasprengja. Með mæling- unum má finna þessa einstaklinga og grípa til aðgerða þannig að sprengjan springur ekki, heldur koma lyf og önnur með- ferð í veg fyrir alvarleg- an sjúkdóm. Það fólk sem mælingarnar sýndu að var í hættu er mjög ánægt með að henni var með þessum hætti af- stýrt, það hafði ekki hugmynd um að það væri í hættu statt. Oft er um að ræða tággrannt fólk sem vel er á sig komið en með hátt kólester- ólgildi sem hægt er að lækka með breyttu matarræði og/eða lyfjum. Með þessu verkefni finnst fólk sem er í hættu statt gagnvart hjarta- sjúkdómum – að því beinist átak- ið.“ Ásgeir Þór Árnason  Ásgeir Þór Árnason fæddist 14. maí 1956 á Seltjarnarnesi. Hann lauk almennu námi og landsprófi og prófi í húsasmíði frá Iðnskól- anum í Reykjavík 1976. Hann starfaði sem húsasmiður um ára- bil, þar til hann fór í bygginga- vörudeild SÍS árið 1989, eftir að það var selt fór hann til starfa hjá Húsasmiðjunni og var þar til árs- ins 1993 en þá hóf hann störf hjá Landssíma Íslands sem umsjón- armaður. Nú er hann starfsmaður Landssamtaka hjartasjúklinga. Ásgeir er kvæntur Karlottu Jónu Finnsdóttur, skrifstofumanni hjá HEGAS, þau eiga tvær dætur en auk þess á Ásgeir þrjú börn. Áhættuein- kenni eins og tímasprengja Hraði landbúnaðarráðherra í grænmetismálinu gefur ekki miklar vonir um að ódýr paprika verði á jólaborðinu í ár. HÆSTIRÉTTUR hefur ómerkt dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir karl- manni sem dæmdur var í 5 mánaða fangelsi, þar af fjóra skilorðsbundið, fyrir kynferðisbrot gegn 10 ára gam- alli dóttur sambýliskonu sinnar. Var málinu vísað aftur heim í hérað. Féllst Hæstiréttur þannig á kröfur mannsins og segir í dómi að skort hafi á að héraðsdómur hafi fjallað nægi- lega um dómskýrslur málsins, auk þess sem niðurstaða hans um sönn- unargildi munnlegs framburðar sé ekki nægilega skýr og ótvíræð. Hæstiréttur telur þó að vörn málsins hefði ekki þurft að vera áfátt af þess- um sökum. Ríkissaksóknari hafði skotið mál- inu til Hæstaréttar í apríl sl. Krafðist ákæruvaldið þess að refsing manns- ins yrði þyngd og hann dæmdur til greiðslu skaðabóta. Hæstaréttardómarar voru þau Garðar Gíslason, Guðrún Erlends- dóttir, Haraldur Henrysson, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Hafstein og í niðurstöðu þeirra segir meðal annars: „Ómerkingarkrafa ákærða er reist á því að héraðsdómi sé verulega áfátt að því er varðar lýsingu málsatvika og einnig sé hann óskýr um þau atriði sem dómarar leggi til grundvallar sakfellingu. Á það verður ekki fallist að lýsing málavaxta í héraðsdómi sé ekki nægileg, svo langt sem hún nær, en hitt er rétt að með öllu skortir lýs- ingu á því hvers vegna aðalmeðferð var frestað 18. desember 2000 og á þeirri gagnaöflun sem fram fór í framhaldi af því. Jafnframt er rök- semdafærslu héraðsdóms áfátt þar sem ekkert er fjallað um mótmæli ákærða gegn sakarefnum þeim sem á hann eru borin og því engin afstaða tekin til framburðar hans. Sama gild- ir um síðasta framburð brotaþola. Á skortir jafnframt að afstaða sé tekin til trúverðugleika framburðar al- mennt. Þá brestur á um rökstuðning fyrir sýknu ákærða af síðari verkn- aðinum sem á hann er borinn.“ Sigríður Jósefsdóttir saksóknari sótti málið fyrir hönd ákæruvaldsins en lögmaður ákærða var Páll Arnór Pálsson hrl. Hæstiréttur vísar kynferð- isbrotamáli heim í hérað HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi á fimmtudag par á þrítugs- aldri í fangelsi fyrir ýmis þjófnaðar- brot. Karlmaðurinn var dæmdur í 8 mánaða fangelsi, þar af sex skilorðs- bundna og konan í 4 mánaða skilorðs- bundið fangelsi. Er skilorð beggja háð því að þau neyti ekki áfengis eða deyfilyfja á skilorðstímanum, sem er þrjú ár, en fram kom að bæði hefðu þau leitað sér hjálpar vegna fíkniefnaneyslu sinnar. Fangelsi fyrir þjófnað ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.