Morgunblaðið - 29.09.2001, Side 18
AKUREYRI
18 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hús til sölu í Danmörku
Húsið er í Hanstholm og stendur á leigulóð. Húsið er 140 fm sem
skiptist í aðalinngang, þvottahús, stofu með nýju trégólfi (lituðum aski),
nýju lofti, stórt eldhús með dökkri eikarinnréttingu og nýjum raftækjum.
Baðherbergi með baðkari, sturtu og skápainnréttingu, gestasalerni, 4
svefnherbergi með skápum. Nýlegir gluggar í öllu húsinu. Garður með
hellulagðri verönd. 27 fm bílskúr.
Verð í dönskum krónum 695.000.
Útborgun dkr. 40.000.
Nánari upplýsingar veita
Sigurbjörn og Sigurlaug í síma 0045 97 960501 eftir kl. 16.00.
Strandgötu 29, Akureyri,
sími 462 1744, fax 462 7746
Einstakt tækifæri -
Veitingarekstur Sjallans ehf.
Veitingarekstur Sjallans ehf. er nú til sölu. Sjallinn er
einn þekktasti skemmti- og veitingastaður landsins.
Við sölu á rekstrinum fylgja allir lausafjármunir sem
tengjast rekstrinum. Langtímaleigusamningur er í
gildi um húsnæðið.
Allar frekari upplýsingar veita:
Björn Guðmundsson, s. 897 7832
Ottó Sverrisson, s. 864 4120
Héraðsdómur
Norðurlands eystra
Sektaður
vegna
fíkniefna-
brots
RÚMLEGA tvítugur piltur hefur í
Héraðsdómi Norðurlands eystra ver-
ið dæmdur til að greiða 85 þúsund
krónur í sekt til ríkissjóðs vegna fíkni-
efnabrots, en 18 daga fangelsi kemur í
stað sektarinnar verði hún ekki
greidd innan fjögurra vikna. Þá voru
gerð upptæk 19,38 grömm af hassi
sem maðurinn hafði í fórum sínum.
Maðurinn var ákærður fyrir fíkni-
efnabrot, en hassið fannst í bifreið
þegar lögregla stöðvaði manninn við
Þelamörk norðan Akureyrar.
Játaði maðurinn háttsemi sína fyrir
dómi. Hann hefur áður hlotið dóma
fyrir m.a. umferðarlagabrot og verið
sviptur ökurétti, fíkniefnalagabrot,
þjófnaðarbrot og líkamsárás. Með
umræddu broti sem framið var í maí
síðastliðnum rauf hann skilorð dóms
frá árinu 1998, en hann var látinn
halda sér og dæmt sérstaklega fyrir
fíkniefnabrotið.
EFTIRVÆNTING ríkti í gærmorgun á skóla-
lóðinni í Síðuskóla enda áttu nemendur og
starfsfólk skólans von á tignum gestum á þess-
um sólskinsbjarta haustdegi. Jóakim prins í
Danmörku og Alexandra prinsessa komu í
heimsókn í skólann ásamt föruneyti, en þau
hafa verið í opinberri heimsókn á Íslandi í boði
forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar.
Með í för var heitkona hans, Dorrit Moussaieff,
og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Ak-
ureyri.
Jóakim prins hafði óskað eftir því að fá að
fylgjast með dönskukennslu í Íslandsheimsókn
sinni og varð Síðuskóli fyrir valinu, en dönsku-
kennararnir þar, Kristín List Malmberg og
Hafdís Inga Haraldsdóttir, þykja hafa náð góð-
um árangri með nemendur sína á liðnum árum.
Nemendur skólans stóðu í röð og veifuðu ís-
lenskum og dönskum fánum. Yngstu börnin
biðu óþreyjufull, en kennararnir reyndu að
dreifa huga þeirra með því að syngja, m.a. um
meistara Jakob á dönsku. Nemendur í yngstu
bekkjunum áttu von á að prinsinn yrði með kór-
ónu og ekki laust að við sumir væru hálfvon-
sviknir þegar í ljós kom að svo var ekki.
Jónína Íris Ásgrímsdóttir, nemandi í 10.
bekk, bauð gestina velkomna í Síðuskóla. Að því
búnu færði hún Jóakim og Ólafi Ragnari gjafir
frá skólanum sem Ragnheiður Kristjánsdóttir
handavinnukennari hafði útbúið. Prinsinn fékk
tvo jólasveina og forsetinn þau hjónakorn Grýlu
og Leppalúða. Því næst var haldið í kennslu-
stund hjá 10. bekk þar sem einn nemandinn,
Gunnur Birna Björnsdóttir, bauð Jóakim, Alex-
öndru og fylgdarlið þeirra velkomin og lýsti yfir
ánægju með heimsókn þeirra í bekkinn.
Kennararnir, þær Kristín og Hafdís, gerðu
gestunum grein fyrir á hvern hátt dönsku-
kennsla í íslenskum grunnskólum er uppbyggð.
Fram kom að danskur gestakennari hefði um
skeið verið í Síðuskóla og væri árangur þess
góður. Einnig var þess getið að á meðal þess
sem nemendur læsu á danskri tungu væru frá-
sagnir af danska kóngafólkinu og vakti það kát-
ínu gestanna.
Ekkert svo erfitt að læra dönsku
Þær Sonja Haraldsdóttir og Hanna Rós
Jónsdóttir lásu stuttan leikþátt fyrir prinsinn
og eiginkonu hans og þá gafst nemendum færi á
að spyrja þau ýmissa spurninga. Meðal þess
sem þau fýsti að vita var hvernig venjubundinn
dagur í lífi þeirra væri, um skólagöngu og
áhugamál, áhuga þeirra á Íslandi og þá spurðu
þau einnig um son þeirra, Nicolai. Þá var Alex-
andra spurð hvort hana hefði á yngri árum
dreymt um að giftast prinsi og á hvern hátt líf
hennar hefði breyst þegar svo varð. Jóakim og
Alexandra svöruðu öllum spurningum greið-
lega, en vildu jafnframt vita hvort krökkunum
þætti erfitt að læra dönsku og hvort þau hefðu
komið til Danmerkur. Svör þeirra báru með sér
að þeim þætti ekki svo ýkja erfitt að læra
dönskuna, enda bar góð frammistaða þeirra
með sér að þau hefðu þegar náð góðum tökum á
tungumálinu.
Nicolai fékk Dimmalimm
Pétur Stefánsson þakkaði gestunum komuna
og kvað heimsókn þeirra hafa verið afar fróð-
lega og ánægjulega, en hún verður nemendum
eflaust lengi í minni. Að lokum bað hann þau
Jóakim og Alexöndru að taka við gjöf frá
bekknum til Nicolai sonar þeirra, en það var
barnabókin Dimmalimm eftir Mugg.
Forsetinn, Ólafur Ragnar Grímsson, þakkaði
nemendunum sérstaklega og lauk lofsorði á
frammistöðu þeirra, en hann sagði þau hafa
staðið sig með mikilli prýði.
Jóakim Danaprins og Alexandra heimsóttu nemendur í Síðuskóla á Akureyri
Kynntu sér dönsku-
kennslu og spjölluðu
við nemendur
Nemendur í 10. bekk Síðuskóla þökkuðu
Jóakim og Alexöndru heimsókn þeirra í
skólann með því að færa Nicolai syni
þeirra barnabókina Dimmalimm að gjöf.
Hér færir Pétur Stefánsson þeim bókina.
Kristín List Malmberg dönskukennari
sýnir Jóakim og Alexöndru námsbækur í
dönsku, en meðal þess sem námsbörn lesa
eru frásagnir af kóngafólkinu.
Morgunblaðið/Kristján
Jóakim Danaprins heilsar nemendum Síðuskóla í gær en þangað kom hann í heimsókn ásamt
Alexöndru eiginkonu sinni, Ólafi Ragnari Grímssyni forseta, heitkonu hans, Dorrit Moussaieff,
og Kristjáni Þór Júlíussyni bæjarstjóra. Ólafur Thoroddsen skólastjóri tók á móti hópnum.
AKUREYRARKIRKJA: Fjöl-
skyldumessa kl. 11 á morgun,
sunnudag, með prestum kirkjunn-
ar og Ingunni Björk Jónsdóttur,
nýráðnum djákna í Akureyrar-
sókn. Upphaf sunnudagaskólans.
Kór Akureyrarkirkju syngur. Org-
anisti: Björn Steinar Sólbergsson.
Opið hús í Safnaðarheimili eftir
messu kl. 12–14. Kynning á vetr-
arstarfinu Mömmumorgunn kl. 10–
12 á miðvikudag í Safnaðarheimili.
Bryndís Símonardóttir, fjölskyldu-
ráðgjafi, kemur og kynnir sitt
starf og svarar fyrirspurnum.
Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12
á fimmtudag. Bænaefnum má
koma til prestanna. Eftir stundina
er unnt er að kaupa léttan hádeg-
isverð í Safnaðarheimili.
GLERÁRKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónsta kl. 11 á morgun,
sunnudag. Ósk og Ásta spjalla við
börnin og kynna barnaefni vetr-
arins. Barnakór Glerárkirkju
syngur. Fermingarbörn og for-
eldrar þeirra eru hvött til að
mæta. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í kirkjunni kl. 18 á þriðju-
dag. Hádegissamvera í kirkjunni
frá kl. 12 til 13 á miðvikudag. Opið
hús fyrir mæður og börn á
fimmtudag frá 10 til 12. Spjallað
um starfið í vetur. Æfing barna-
kórsins kl. 17.30 sama dag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn
samkoma kl. 20 á sunnudagskvöld.
Ræðumaður verður Jón Viðar
Guðlaugsson. Heimilasamband kl.
15 á mánudag.
HRÍSEYJARKIRKJA:
Guðsþjónusta verður í Hríseyjar-
kirkju á sunnudaginn 30. septem-
ber kl. 14. Í athöfninni verða ferm-
ingarbörnum afhentar Biblíur að
gjöf frá söfnuðinum. Að athöfn
lokinni verður fundur í kirkjunni
með fermingarbörnum og foreldr-
um þeirra.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Athöfn
verður á morgun, sunnudag þar
sem ný forstöðuhjón verða sett inn
í embætti, þau Pétur Reynisson og
Enikö Reynisson. Pétur er Akur-
eyringur og tók virkan þátt í
KFUM á yngri árum og stundaði
nám í biblíuskóla í Noregi þar sem
hann kynntist konu sinni sem er
ungversk. Veitingar í boði eftir at-
höfnina.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag, kl. 18 og á morg-
un, sunnudag kl. 11 í Péturskirkju
við Hrafnagilsstræti 2 á Akureyri.
KFUM og K: Biblíu- og bænastund
kl. 17 á morgun, sunnudag. Fund-
ur í TTT-deild kl. 17 á mánudag.
Kirkjustarf
MEIRIHLUTI umhverfisráðs Akur-
eyrarbæjar samþykkti á fundi sínum
í vikunni að leggja til að næsti leik-
skóli verði byggður í Naustahverfi.
Fyrr í sumar hafði stjórn Fasteigna
Akureyrarbæjar hins vegar tekið
undir tillögu verkefnisliðs um að
næsti leikskóli verði byggður á horn-
inu norðan Hrafnagilsstrætis og
vestan Þórunnarstrætis.
Bókun stjórnar Fasteigna Akur-
eyrarbæjar var samþykkt í bæjar-
ráði í júlí sumar. Þá hafði skólanefnd
fyrir sitt leyti samþykkt tillögu verk-
efnisliðsins en nefndin var jafnfamt
tilbúin að ræða aðra kosti ef ekki
næðist samstaða um þá lausn. Skóla-
nefnd lagði jafnframt áherslu á að
næsta leikskólabygging yrði staðsett
þannig að hún gæti þjónað íbúðum á
Suðurbrekkunni og í Innbænum. Þá
benti skólanefnd á nauðsyn þess að
hraða ákvörðun um staðsetningu svo
hægt yrði að bjóða verkið út um ára-
mót.
Vilborg Gunnarsdóttir, formaður
umhverfisráðs, sagði að málið hefði
farið nokkra hringi í umræðunni að
undanförnu en sagðist trúa því að
mikil ánægja ríkti með þessa sam-
þykkt ráðsins um að næsti leikskóli
yrði byggður í Naustahverfi.
„Síðast þegar ég vissi var ekki
skortur á leikskólaplássi fyrir börn
tveggja ára og eldri. Þá er tillaga frá
skólanefnd til umfjöllunar í fjárhags-
áætlunargerðinni að fara að niður-
greiða meira vistun fyrir börn yngri
en tveggja ára hjá dagmæðrum og
því bráðvantar ekki að okkar mati að
byggja leikskóla á næsta ári. Okkur
fannst því tilvalið að láta hanna nýjan
leikskóla á næsta ári og hefja bygg-
ingu hans í Naustahverfi árið eftir,
eða á sama tíma og uppbygging þar
er að hefjast. En það er ekki þar með
sagt að leikskóli verði ekki byggður á
Suðurbrekkunni og hann kemur þá
bara þar á eftir,“ sagði Vilborg.
Næsti leikskóli verði
byggður í Naustahverfi
♦ ♦ ♦