Morgunblaðið - 29.09.2001, Qupperneq 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 23
20%
AFGREIÐSLUTÍMI: Mán-föstud.10-18. -
Laugardag. 29.sept.11-18 - Sunnudag 30.sept. 13-18.
Dux verslunin á Íslandi var opnuð 1981 fyrir
20 árum síðan og Dux verksmiðjurnar í Svíþjóð
eiga 75 ára afmæli á þessu ári.
Af þessu tilefni býður DUXIANA á Íslandi
20% afslátt af DUX-dýnum,yfirdýnum og
margskonar fylgihlutum.
Notaðu þetta einstaka tækifæri og pantaðu
þér draumarúmið frá Dux.
Á r m ú l a 1 0 1 0 8 R e y k j a v í k S í m i 5 6 8 9 9 5 0
H Á Þ R Ó A Ð U R S V E F N B Ú N A Ð U R
NUNNA horfir út um gluggann og
Jóhannes Páll II. páfi, til vinstri,
býr sig undir að ganga frá borði
eftir að flugvél hans var lent á
Ciampino-flugvelli við Róm á
fimmtudagskvöldið. Þá kom páfi
heim úr fjögurra daga för um Kas-
akstan og Armeníu. Á síðasta degi
heimsóknarinnar hvatti páfi kaþ-
ólska íbúa Armeníu, sem eru um
fimm af hundraði þeirra 3,6 millj-
óna sem búa í landinu, til að leggja
sitt af mörkum við að byggja upp
efnahagskerfi landsins.
Reuters
Páfi kominn
heim
HERT var á öryggisráðstöfunum við
þinghús og aðrar opinberar bygging-
ar í Sviss í gær, í kjölfar harmleiks-
ins í kantónuþinginu í Zug í fyrra-
dag, þar sem óður maður myrti 14
þingmenn og skaut síðan sjálfan sig.
Frá og með næsta mánudegi munu
t.d. allir gestir í húsi þjóðþingsins í
Bern þurfa að ganga í gegn um
málmleitartæki.
Mörgum stjórnmálamönnum mis-
líkar þó slíkar ráðstafanir, þar sem
þeir óttast að þær geti ógnað hinum
rótgrónu hefðum opinnar stjórn-
sýslu sem Svisslendingar eru al-
mennt stoltir af.
Ódæðismaðurinn, hinn 57 ára
gamli Friedrich Leibacher, var ein-
fari sem komst á sakaskrá fyrir of-
beldisglæp fyrir aldarfjórðungi, en
komst ekki í kast við lögin alla tíð
síðan þar til hann gekk berserks-
gang í þinghúsinu í Zug með áður-
greindum afleiðingum. Upptökin að
hatri Leibachers á ráðamönnum í
Zug eru rakin til þess er strætis-
vagnabílstjóri í Zug sakaði hann um
að hafa verið drukkinn undir stýri.
Upp úr því hófust málaferli sem end-
uðu í síðustu viku með því að málinu
var endanlega vísað frá dómi. Ná-
grönnum hans í Alpabænum Seelis-
berg virtist hann dagfarsprúður,
greindur maður sem þeir hefðu aldr-
ei trúað að væri fær um að fremja
annan eins verknað.
Hert á öryggis-
gæslu í Sviss
Zug, Seelisberg. AP, AFP.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fresta því
að lyfta rússneska kafbátnum Kúrsk
af hafsbotni til þriðjudags eða mið-
vikudags vegna storms í Barentshafi.
Fyrirtækið sem annast björgun
kafbátsins sagði í gær að ef veður
leyfði yrði byrjað á mánudag að festa
stálstrengi sem nota á til að lyfta kaf-
bátnum upp. Upphaflega var ráðgert
að kafbátnum yrði lyft upp 15. sept-
ember en því hefur tvívegis verið
frestað vegna veðurs.
Kúrsk lyft upp
í næstu viku
Múrmansk. AFP.
ULSTER Defense Association
(UDA), ólögleg samtök róttækra
sambandssinna á Norður-Írlandi,
hafa heitið því að hætta árásum á
kaþólska borgara og lögregluna og
virða á ný áður yfirlýst vopnahlé.
John Reid, ráðherra Norður-Ír-
landsmála í brezku ríkisstjórninni,
sagðist hafa verið að því kominn að
lýsa því yfir að vopnahlé UDA frá
1994 væri fallið úr gildi, en slíkur úr-
skurður af hálfu ráðherrans hefði
sjálfkrafa þýtt að þekktir meðlimir
samtakanna væru fangelsaðir á ný.
Þess í stað féllzt ráðherrann á að
taka mark á loforðum sem talsmenn
öfgahópsins gáfu frá sér á síðustu
stundu í því skyni að stöðva þá hrinu
óeirða og átaka sem dunið hefur yfir
Norður-Írland á undanförnum vik-
um.
Lögreglan hefur haldið því fram
að meðlimir UDA eigi mikinn þátt í
að espa til óeirða í norðurhluta Bel-
fast undanfarið, þar sem herskáir
mótmælendur hafa efnt til mótmæla
fyrir utan kaþólskan stúlknaskóla á
hverjum degi síðustu vikur.
Í götuátökum síðustu nætur urðu
tugir lögreglumanna fyrir misalvar-
legum meiðslum.
Norður-Írland
UDA lofar
bót og betrun
Hillsborough. AP.
♦ ♦ ♦