Morgunblaðið - 29.09.2001, Side 24
Myndirnar sem birtar voru á
fimmtudaginn. Í efstu röð eru,
frá vinstri, Satam Al Suqami,
Waleed M. Alshehri, Wail Als-
hehri, Abdulaziz Alomari og
Mohamed Atta, sem taldir eru
hafa rænt vél American Air-
lines sem flaug fyrst á World
Trade Center. Í annarri röð
eru Majed Moqed, Khalid Al-
Midhar, Nawaf Alhamzi, Salem
Alhamzi ogHani Hanjour, sem
taldir eru hafa verið í vél Am-
erican Airlines sem flaug á
Pentagon. Í þriðju röð eru
Saeed Alghamdi, Ahmed Alh-
aznawi, Ahmed Alnami og Ziad
Samir Jarrah sem taldir eru
hafa rænt vél United Airlines
sem fórst í Pennsylvaníu. Í
neðstu röðinni eru Marwan Al
Shehi, Ahmed Alghamdi, Fayez
Rashid Ahmed Hassan Al Qadi
Banihammad, Hamza Algh-
amdi og Mohald Alshehri sem
taldir eru hafa rænt vél United
Airlines sem flaug á World
Trade Center.
BANDARÍSKA alríkislögreglan,
FBI, birti á fimmtudaginn myndir
af 19 ungum, dökkhærðum mönn-
um sem grunaðir eru um að vera
þeir sem rændu flugvélunum sem
notaðar voru til hryðjuverkanna í
Bandaríkjunum 11. september sl.
FBI greindi um leið frá því í
fyrsta sinn að tengsl væru á milli
sumra hinna meintu flugræningja
og al-Qaeda, hermdarverkasam-
taka Osamas bin Ladens. Um það
bil hálfur mánuður er síðan FBI
birti nöfn þeirra sem grunaðir eru
um flugránin.
Lögreglan og bandaríska dóms-
málaráðuneytið báðu almenning
um hjálp við rannsókn málsins.
John Ashcroft, dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, bað hvern þann
sem hefði séð einhvern flugræn-
ingjanna að hafa samband við FBI.
Enn hefur ekki verið fyllilega
staðfest hverjir mennirnir 19 eru,
að því er Robert Mueller, yfirmað-
ur FBI, sagði. „Við eru tiltölulega
viss um nokkra þeirra,“ sagði
hann, en greindi ekki frá því
hverja væri um að ræða í von um
að fá fleiri vísbendingar um þá frá
almenningi.
Mueller sagði ennfremur í fyrsta
sinn að tengsl væru á milli sumra
hinna meintu ræningja og hermd-
arverkahrings bin Ladens, sem
grunaður er um að hafa staðið á
bak við hermdarverkin. Mueller
útskýrði þó ekki nánar þessi
tengsl.
Þegar myndirnar voru birtar á
fimmtudaginn hafði FBI endur-
skoðað listann yfir hina meintu
flugræningja og bætt við dulnefn-
um, upplýsingum um uppruna og
hugsanlegt aðsetur.
Mueller sagði ennfremur að svo
virtist sem sumir hinna grunuðu
væru skyldir.
Sumar myndirnar koma fólki nú-
orðið kunnuglega fyrir sjónir, og
er sennilega þekktust myndin af
Mohammed Atta, 33 ára Egypta,
sem talinn er hafa stjórnað tilræð-
unum og verið í fyrstu vélinni sem
flaug á World Trade Center.
Fjölskyldumeðlimir sumra hinna
meintu ræningja, þar á meðal faðir
Atta, segja að ekki geti verið að
ættingjar sínir hafi staðið að til-
ræðunum og kennsl hafi verið bor-
in á þá ranglega. Þá hefur sádi-
arabíska ríkisflugfélagið greint frá
því að sjö hinna grunuðu séu enn á
lífi og hafi orðið fyrir barðinu á
mönnum sem stálu persónuskil-
ríkjum þeirra.
FBI birtir myndir af
meintum flugræningjum
Washington. The Los Angeles Times.
Reuters
ÁRÁSIN Á BANDARÍKIN
24 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Kenndi
hryðju-
verkamönn-
um flug
London. AP.
ALSÍRBÚI, sem var handtekinn í
London sl. föstudag, kenndi fjórum
af flugræningjunum, sem tóku þátt
í hryðjuverkaárásum á Bandaríkin,
að fljúga. Er talið að þessar upp-
lýsingar geti haft mikil áhrif á
rannsókn málsins.
Saksóknarar greindu frá því í
gær að Lotfi Raissi, sem er 27 ára,
hefði kennt ræningjunum flug. Var
þetta upplýst þegar maðurinn kom
fyrir rétt í London. Bandaríkja-
stjórn hefur krafist þess að Raissi
verði framseldur.
Saksóknarar segja að Raissi sé
eftirlýstur í Bandaríkjunum fyrir
að hafa gefið rangar upplýsingar í
umsókn sinni um flugstjóraskír-
teini. Hann öðlaðist flugmannsrétt-
indi árið 1997 og sótti sama flug-
skóla og fjórir flugræningjanna
sem tóku þátt í árásunum 11. þessa
mánaðar.
Sækjendur segja ennfremur að
Raissi hafi aðstoðað flugræn-
ingjana. Hann hafi farið í nokkrar
ferðir til Bandaríkjanna í sumar og
ferðast með einum flugræningjanna
frá Las Vegas til Arizona 23. júní.
„Hann var aðalkennari fjögurra
af flugræningjunum,“ sagði bresk-
ur saksóknari.
Richard Egan, lögmaður Raissis,
segir skjólstæðing sinn lýsa yfir
sakleysi sínu.
Raissi var handtekinn á föstudag
í liðinni viku, ásamt þremur öðrum,
en hann bjó nærri Heathrow-flug-
velli.
MÚSLÍMI í Bangladesh sparkar í
eftirmynd George W. Bush Banda-
ríkjaforseta á mótmælafundi í
Dhaka. Dhaka Bashi, bandalag ísl-
amskra hreyfinga í borginni, stóð
í gær fyrir mótmælum gegn
Bandaríkjastjórn vegna áforma
hennar um aðgerðir gegn hermd-
arverkamönnum sem taldir eru
hafa staðið fyrir árásinni á World
Trade Center og höfuðstöðvar
varnarmálaráðuneytisins í Wash-
ington 11. september.
Reuters
Mótmæli
gegn
Banda-
ríkjastjórn
ÓVISSAN um örlög þúsunda manna
sem enn er saknað eftir hryðjuverka-
árásina í New York veldur því að að-
standendur eiga í miklum erfiðleik-
um með að fá líftryggingar greiddar,
aðgang að bankareikningum og arfi
úthlutað. Vandinn er að réttarlæknar
krefjast þess að lík sé til staðar til að
hægt sé að staðfesta andlát en aðeins
hafa fundist leifar nokkurra hundr-
aða manna af þeim nær sjö þúsund
sem óttast er að hafi farist.
Talið er fullvíst að vegna hitans í
eldsvoðanum í turnum World Trade
Center hafi lík margra fórnarlamb-
anna brunnið til ösku. Í öðrum tilvik-
um eru leifarnar svo litlar að langur
tími mun líða áður en hægt verður að
staðfesta andlát með DNA-prófunum
á líkamsleifum. Ekki þarf þó í öllum
tilvikum meira en fáein hár til að
hægt sé að bera kennsl á leifarnar.
Yfirvöld í New York ákváðu á
mánudag að reyna að koma til móts
við aðstandendur. Sagði Rudolph
Giuliani borgarstjóri að frá miðviku-
degi yrði hægt að sækja um dánar-
vottorð ef hægt væri að sanna að um-
ræddur einstaklingur hefði starfað í
World Trade Center er árásin var
gerð. Erfiðara er að finna lausn á
málum aðstandenda þeirra sem voru
fyrir tilviljun staddir í húsunum eða á
gangi í grennd við þau og enn flækist
málið þegar um erlenda gesti er að
ræða.
Fleira veldur vandkvæðum; mál
Karen Martinez er eitt af mörgum.
Eiginmaður hennar var á leið með
blómvönd í skrifstofu í nyrðri turn-
inum þegar flugvélin lenti á húsinu og
hefur hún ekki heyrt frá honum síð-
an. Hún hefur ekki getað leyst út
peninga sem hann geymdi á sérstök-
um bankareikningi til nota í neyðar-
tilfelli. „Ég vissi ekki að mitt nafn
þyrfti að vera skráð fyrir bankareikn-
ingnum. Hann sá um að borga alla
reikningana okkar,“ segir Martinez.
Lagaákvæði gegn
tryggingasvikum
Tryggingafélög í New York-ríki
munu framvegis fá að notast við
staðlaðar yfirlýsingar í stað dánar-
vottorða þegar þau greiða út bætur.
Dómstóll mun síðan fara yfir skjölin
og úrskurða hvort nægilegar sannan-
ir séu fyrir því að umræddur einstak-
lingur sé látinn. Stjórnvöld krefjast
þess yfirleitt að þrjú ár líði frá hvarfi
einstaklings áður en hægt er að fá
dánarvottorð undirritað. Samkvæmt
lögum er aðeins hægt að gera und-
antekningu ef um „augljósar og sann-
færandi sannanir“ er að ræða fyrir
því að hinn horfni hafi farist. Mark-
miðið með skilyrðunum er að koma
eftir mætti í veg fyrir tryggingasvik.
Vandinn hefur oft komið upp fyrr í
Bandaríkjunum. Flugvélar hafa
týnst yfir sjó og flakið ekki fundist
eða líkamsleifar horfið. Segja tals-
menn tryggingafélaga að meðal ann-
ars hafi verið verið bornar fram vafa-
samar kröfur um bætur af hálfu fólks
sem segist hafa átt ættingja í vél Atl-
antic Airlines sem hrapaði við strönd
Kaliforníu í fyrra. En í þetta sinn er
fjöldi hinna látnu meiri en nokkru
sinni. Lögfræðingar segja að gildandi
lög séu með þeim hætti að ekki sé
hægt að leysa vandann nema breyta
þeim.
Bætur fyrir fórnarlömbin í New York
Óvissan og
frumskógur
skrifræðisins
London, New York, Los Angeles. Los Angeles Times, AFP.
HÁTTSETTUR aðstoðarmaður
Aslans Maskhadovs, leiðtoga að-
skilnaðarhreyfingar Tsjetsjena,
sagði í gær, að hann hefði átt
viðræður við háttsettan, rúss-
neskan embættismann um leiðir
til að binda enda á ófriðinn í
Tsjetsjníu.
Akhmed Zakayev, aðstoðar-
maður Maskhadovs, kvaðst hafa
rætt við Víktor Kazantsev, sér-
stakan fulltrúa Vladímírs Pút-
íns, forseta Rússlands, í Suður-
Rússlandi. Sagði hann, að um-
ræðuefnið hefði verið ýmis
tæknileg úrlausnarefni varðandi
samninga um frið.
Kazantsev hefur staðfest, að
hann hafi rætt við fulltrúa
Maskhadovs og hann tók raunar
svo djúpt í árinni að segja, að
samningaferlið væri „næstum
hafið“.
Í ræðu, sem Pútín forseti
flutti á mánudag, gaf hann
tsjetsjneskum skæruliðum
þrigga daga frest til að leggja
niður vopn.
Viðræður í
Tsjetsjníu?
Moskvu. AFP.