Morgunblaðið - 29.09.2001, Side 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 27
KARLAKÓR Akureyrar –
Geysir heldur tónleika í Graf-
arvogskirkju í dag kl. 16.30. Á
efnisskrá eru fjölmörg íslensk
og erlend verk sem jafnt geta
flokkast undir hefðbundna
karlakóratónlist, óperutónlist,
barber-sjop-tónlist og negra-
sálma. Einsöng með kórnum
syngja kórfélagarnir Björn
Jósef Arnviðarson og Guð-
mundur Stefánsson. Stjórnandi
kórsins er Erla Þórólfsdóttir en
undirleikari verður Richard
Simm.
Karlakór í
Grafarvogs-
kirkju
HÁLF blaðsíða úr 300 síðna bók
nefnist vettvangsverk Ingarafns
sem afhjúpað verður við Keramóa í
Elliðaárdal (Breiðholtsmegin), í
dag kl. 15. Verkið er það fjórða í
seríunni Listamaðurinn á horninu,
sem styrkt er af Menningarborg-
arsjóði.
„Ég kem fyrir hlut í náttúrunni,
sem er samt inn í borg. Á slíkum
stöðum eru oft hlutir sem hafa ekki
augljósan tilgang, eru leifar eftir
einhverjar framkvæmdir.
Þetta verk er tilraun til að líkja
eftir þessum hlutum, eða til að
verða einn slíkur,“ segir Ingirafn.
Ingirafn hefur gert sér mat úr
ýmsum fyrirbærum svo sem; út-
varpi, gróðri, steinsteypu, loftteg-
undum, tölvum og minni.
Vettvangsverk
afhjúpað í Elliðaárdal
GUÐMUNDUR Bjartmarsson
opnar ljósmyndasýninguna
Heimþrá í Næsta galleríi, Ing-
ólfsstræti 1a, í dag kl. 17.
Sýningin stendur til 27. októ-
ber.
Ljósmyndir
í Næsta
galleríi
NÚ stendur yfir sýning á
skólaverkum þrettán lista-
manna í Galleríi Nema hvað.
Þeir eru Anna Líndal, Birgir
Andrésson, Birgir Snæbjörn
Birgisson, Einar Garibaldi Ei-
ríksson, Halldór Ásgeirsson,
Hekla Dögg Jónsdóttir, Helgi
Skúta Helgason, Ingólfur Arn-
arsson, Jón Óskar Hafsteins-
son, Magnús Sigurðsson, Mar-
grét Blöndal, Ólöf Nordal og
Tumi Magnússon. Sýningin er
opin frá kl. 14–18. Til 4. októ-
ber.
Skólaverk í
Nema hvað
MARISA Navarro Arason ljós-
myndari opnar ljósmyndasýningu í
Listamiðstöðinni Straumi í dag kl.
16.
Sýningin ber heitið Árstíðir sem
helgast af þeim tíma árs sem mynd-
irnar eru teknar og hamur náttúr-
unnar birtist og breytist þrálátlega
árstíðabundið. Ljósmyndirnar eru
teknar í umhverfi Straums og unn-
ar í tölvu. Marisa er fædd í Barce-
lona á Spáni 1954 og stundaði
ljósmyndanám í heimaborg sinni á
árunum 1981–1985. Hún hefur
starfað hér á landi frá 1987 sem
ljósmyndari.
Sýningin stendur til 14. október
og er opin frá kl. 14–18 laugardaga
og sunnudaga.
Umhverfi
Straums á
ljósmyndum
Verk eftir Marisu Navarro Arason.
HANDKLÆÐA
OFNAR
FJÖLBREYTT ÚRVAL
MARGAR STÆRÐIR
NOTALEG LAUSN
Á BAÐHERBERGIÐ
Ofnasmiðjan
Flatahrauni 13
220 Hafnarfirði
Leitið tilboða
hjá okkur.
Sími 555-6100 Fax 555-6110
Ungbarnafatnaður
Komdu í bæinn og skoðaðu úrvalið og
verðið. Allt fyrir mömmu.
Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136.
textil.is
Í LISTASETRINU Kirkju-
hvoli, Akranesi verður opnuð
sýning á litlum olíumyndum og
glerverkum Vignis Jóhanns-
sonar í dag.
Verkin fjalla um náttúru-
meðvitundina í okkur; „vatnið,
rýmið og maðurinn“.
Vignir er fæddur og uppalinn
á Akranesi. Hann hefur haldið
fjölda einkasýninga innan lands
og utan auk samsýninga, ný-
lega var hann fenginn til að
taka þátt í fyrstu sýningu nú-
tímaglerlistasafns í Danmörku.
Sýningunni lýkur 14. októ-
ber. Hún er opin alla daga
nema mánudaga frá kl. 15-18.
Smáverk
eftir Vigni
Jóhannsson
á Akranesi