Morgunblaðið - 29.09.2001, Side 28

Morgunblaðið - 29.09.2001, Side 28
LISTIR 28 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ LEIKSKÁLDAFÉLAG Íslands sendi á dögunum frá sér ályktun þar sem lýst er furðu og vandlætingu á því að nú sé hvergi hægt að leita eftir styrkjum til handritsgerðar, þróun- ar eða framleiðslu á leiknu íslensku sjónvarpsefni. Er þess jafnframt krafist að úr verði bætt nú þegar. Einnig er harmað að Menningar- sjóður útvarpsstöðva hafi verið lagð- ur niður án þess að nokkur sjóður tæki við hlutverki hans hvað varðar styrki til skrifta á leiknu sjónvarps- efni. Morgunblaðið leitaði álits Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra á þessari yfirlýsingu og kvaðst hann furða sig á þessari afstöðu leik- skáldafélagsins. „Rithöfundar geta sótt í starfslaunasjóði til skrifa á verkum fyrir sjónvarp ekki síður en aðra miðla. Það er ekkert sem kemur í veg fyrir það og að mínu áliti eru nægir opinberir sjóðir sem höfundar geta sótt í. Það var fullkominn ein- hugur um að leggja niður Menning- arsjóð útvarpsstöðva og auðvitað er ekkert því til fyrirstöðu að þeir pen- ingar sem runnu frá útvarpsstöðv- unum í þann sjóð geti nýst til fram- leiðslu á nýju íslensku efni,“ sagði Björn Bjarnason. „Nægir sjóðir fyrir rithöfunda“ SIGURBJÖRN Jónsson opnar sýn- ingu á málverkum sínum í Hafn- arborg í dag kl. 15. „Sigurbjörn Jónsson komst snemma að því að áhugaverðustu spurningarnar sem við stöndum frammi fyrir eru þær sem ekki er auðvelt að svara,“ segir Per Traas- dahl í sýningarskrá. „Hann sér stærstu möguleikana í flóknustu ógöngum málverksins: rými og ljósi. Rými er ekki til – málverkið er flatur ferhyrningur. Ljós er ekki til – málverkið þarfnast lýsingar til að sjást. Það er samt þessi óhöndl- anleiki sem gerir málverkið svo vel til þess fallið að eiga við hina óhugsanlegu og að því er virðist, ómögulegu hluta lífsins. Í nýlegum verkum Sigurbjörns, hvort sem áhrifin koma frá djasstónlist, ská- höllu morgunljósi á fjallshlíð, götu- mynd frá Miðausturlöndum, þá er innihald málverkanna alltaf sjálfur kjarni málverksins.“ Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11–17 og stendur til 15. október. Sigurbjörn Jónsson á vinnustofu sinni. Innihaldið alltaf sjálfur kjarninn TÓNLEIKAR Bjarna Thors Kristinssonar bassasöngvara og austurríska píanóleikarans Franz Cardas í Salnum í fyrrakvöld voru tónleikar sem eiga eftir að verða rifjaðir upp oft og mörgum sinnum um ókomna tíð þegar horft verður um öxl til merkisviðburða íslenskr- ar tónlistarsögu. Tónleikarnir voru lifandi sýnishorn af því besta sem íslenskir tónlistarmenn hafa fram að færa. Umbúnaður tónleikanna, val og uppsetning efnisskrár, hnit- miðaðar og skemmtilegar kynning- ar lesnar af Ólafi Kjartani Sigurð- arsyni, – allt var þetta dæmi um fagmennsku af bestu gerð, fag- mennsku sem miklu fleiri tónlist- armenn mættu tileinka sér. Fyrst og fremst var það þó afburða góður söngur Bjarna og snilldarleikur Franz Cardas sem gerðu þessa tónleika að stund sem ekki á eftir að gleymast. Efnisskrá tónleikanna var sett upp þannig að gefin voru sýnishorn af þeim ólíku karakterum sem bassasöngvarar fást við. Kóngur, kjáni, illmenni, prestur, gjálífis- maður, heimspekingur; – þessar persónur og fleiri breytti Bjarni sér í á sviðinu og með þessum hætti tókst honum líka snilldarlega að draga fram þau ólíku blæbrigði sem röddin býr yfir. Þessi úthugs- aða uppstilling verkefna var óneit- anlega skemmtileg tilbreyting frá þeim allt of venjulegu og litlausu hversdagsprógrömmum íslenskra söngvara þar sem byrjað er á nokkrum íslenskum lögum áður en farið er yfir í nokkra ljóðasöngva og svo nokkrar aríur í tónleikalok og eitt til tvö söngleikja- eða óper- ettulög tekin sem aukalög. Hve oft hefur maður ekki séð þetta í íslenskum söngprógrömmum. Það er löngu kominn tími til að söngvarar hugsi samsetningu verkefna sem mikil- vægan þátt í því að halda tónleika. Ljóðatónleikar lúta öðrum lögmálum, þar sem efni þeirra er oft- ar bundið við lengri verk og ljóðaflokka. Hvað um það, pró- gramm Bjarna Thors var smart og fag- mannlegt. Um söng Bjarna er kannski ekki svo margt að segja. Hann var einfaldlega stórkostleg- ur. Dramatískur Hinrik konungur úr Lohengrin eftir Wagner var ábúðarmikill og Bjarni lagði við- eigandi þunga og dökkan lit í rödd- ina. Filipus, kóngur í ástarsorg úr Don Carlo eftir Verdi, var sunginn með viðkvæmni og ljóðrænni hlýju, og Andrés sprellikóngur úr La Périchole eftir Offenbach var gam- ansamur og fjörugur, og þar sýndi Bjarni Thor að hann er kómíker fram í fingurgóma. Tónleikar Bjarna Thors voru sem sýnisbók á fallegri rödd hans. Hann hefur mikið raddsvið; mikla dýpt, sem er ekki gróf eins og hjá mörgum bössum, heldur mjúk og þokkafull, og svo hefur hann líka mikla hæð, og þar er tónninn þétt- ur og skínandi. Hann sýndi líka að hann er fær í allan sjó í bassabók- menntunum, og honum lætur jafn vel að túlka alvörugefnar og við- kvæmar persónur og þær kátu og lífsglöðu. Hann er hins vegar svo skemmtilegur leikari að trúlega er hann eftirsóttur sem basso buffo, – gamanbassi, en þau hlutverk eru mörg og skemmtileg í óperubók- menntunum. Bjarni þræddi sig í gegnum öll helstu ólíkindatól og virðingarmenn óperunnar og helst að maður kviði því að þessum glimrandi söng linnti. Serenaða Mefistófelesar, úr Fást eftir Goun- od, var sérstaklega glæsileg, og þróttmikil rödd Bjarna fyllti Sal- inn, sem segja má að hafi varla rúmað þessa miklu rödd. Það hefði verið gaman að heyra líka Dansinn um gullkálf- inn; Le veau d’or, annan söng kölska úr sömu óperu; – Bjarni hefði farið létt með að trompa búlgarska bassann og „eiganda“ hlutverksins, Nikola- íj Ghiaurov. Kostu- legu karakterarnir eftir hlé voru hver öðrum glæsilegri í flutningi Bjarna. Aríu Don Basilios úr Rak- aranum í Sevilla bar þar hátt, og fór Bjarni létt með rossinískar renni- brautir og flúr. Amerísku lögin úr Porgy og Bess og Showboat voru sérdeilis fallega sungin, og þar kom ekki síst í ljós hver eðalpían- isti Franz Carda er. Þar „swing- aði“ hver nóta undurljúft. Söngur Doolittles úr My Fair Lady, With a little Bit of Luck, var skemmtileg- ur, þar sem Ólafur Kjartan og pí- anóleikarinn tóku undir í viðlaginu. Síðasta lag efnisskrárinnar var lag skemmtikraftsins; – My Way eftir Francois og Revaux. Bjarni söng þetta í byrjun sotto voce, með veik- um og þýðum rómi, en jók á dramatíkina með framvindu lags- ins. Þetta var glæsilega gert. Þrjú aukalög fylgdu eftir mikið og inni- legt uppklapp þar sem tónleika- gestir risu úr sætum: Ich bin ein Baß, Bjórkjallarinn og loks un- aðssmellurinn It’s a Wonderful World, sem smaug inn að hjarta í yndislegum flutningi Bjarna. Sem sagt; – glæsilegir tónleikar, í fagmannlegri umgjörð þar sem gamansemi og sprell var smekk- lega borið fram með tónlistinni. Það var tímabært að við fengjum að heyra aftur í Bjarna Thor Krist- inssyni, því hann hefur verið að gera það gott erlendis, þar sem hann er orðinn mjög eftirsóttur söngvari; – og undrar engan sem í honum heyrði í fyrrakvöld. Ósk- andi væri að tónleikarnir yrðu end- urteknir svo fleiri fengju tækifæri til að heyra þessa dýrindis rödd. Bassi af bestu gerð TÓNLIST S a l u r i n n í K ó p a v o g i Bjarni Thor Kristinsson bassi og Franz Carda píanóleikari fluttu óperuaríur og söngleikjalög eftir Wagner, Verdi, Gounod, Mozart, Offenbach, Gershwin, Kern og fleiri. Kynnir á tónleikunum var Ólafur Kjartan Sigurðarson. EINSÖNGSTÓNLEIKAR Bergþóra Jónsdótt ir Bjarni Thor Kristinsson OFT ER HAFT Á ORÐI að Hall- dór Laxness beri höfuð og herðar yf- ir aðra íslenska rithöfunda á tuttug- ustu öld – og skyldi það síst undra. Á sviði skáldsagnagerðar var hann óumdeilanlega meistarinn sem aðrir höfundar voru vegnir og metnir út frá. En það er ekki þar með sagt að hann hafi verið óumdeildur rithöf- undur, þvert á móti voru skoðanir um verk hans ætíð mjög skiptar og hart var deilt um hverja nýja skáld- sögu sem hann sendi frá sér. Póli- tískir andstæðingar Laxness sökuðu hann ekki síst um ágengan boðskap, sem þeim var ekki að skapi, og voru bæði einstakar persónur í sögunum svo og sögumaðurinn sjálfur sakaður um að halda á lofti varasöm- um „kenningum“. Svo kom að Halldóri leiddist þófið og á sjöunda áratugnum sneri hann sér að leikritun, ekki síst í þeim tilgangi að losna við þá „boðflennu með aungu nafni og óglöggu vegabréfi sem ævinlega er viðstödd líkt og gluggagægir hvar sem gripið er ofaní skáld- sögu“. Þessa boðflennu kall- aði hann „Plús Ex“ – og átti að sjálfsögðu við sögumann- inn umdeilda. Í leikritum hverfur þessi boðflenna og því ekki eins hægt um vik að saka höfund um að „predika móral yfir almenníngi“, eins og Halldór komst að orði. Eða hvað? Halldór vissi mætavel að málið er ekki svona einfalt og þegar hann sneri sér aftur að skáldsagnagerð og skrifaði Kristnihald undir Jökli (1968) sýndi hann fram á að þótt gerð væri tilraun til þess að útrýma herra Plús Ex (eins og hann gerir í þessari skáld- sögu) væri ekki þar með sagt að les- andinn sæti uppi með hlutlægar staðreyndir sögunnar að lestrinum loknum. Í sýningunni sem LR frumsýndi í gærkvöldi er stuðst við leikgerðina sem Sveinn Einarsson samdi upp úr skáldsögunni og sviðsetti í Iðnó 1970. Sagan liggur nálægt drama- tísku formi enda skrifuð á þeim for- sendum að persónur tali þar milli- liðalaust og Plús Ex fá eins lítið rými í verkinu og mögulegt er. Leikgerð Sveins er verkinu trú og vel heppnuð í alla grein, enda lifir uppfærsla hans enn í minni áhorfenda. Bókmenntaverk eiga líf sitt undir því að hver ný kynslóð tileinki sér þau og túlki upp á nýtt. Það hlýtur því að teljast spennandi að sjá hvern- ig hinn ungi leikstjóri, Bergur Þór Ingólfsson (sem er fæddur tveimur árum eftir að verkið kom fyrst út og er því jafngamall leikgerðinni), tekst á við þetta verk sem lifir góðu lífi í þjóðarsál eldri kynslóða. Og sýn Bergs Þórs á verkið er vissulega ný- stárleg og ekki víst að allir sætti sig við þær áherslur sem hann leggur sýningunni til grundvallar. Hann kýs að magna upp þá skoplegu þætti sem verkið vissulega býr yfir og útkoman verður oft á tíðum hin besta skemmt- un en á hinn bóginn geldur hin hæg- láta, heimspekilega mystík, sem margir telja aðal verksins, fyrir skopið sem þegar verst læt- ur er ýkt úr hófi fram. Þetta kemur einna gleggst fram í persónu Hnallþóru (Margrét Helga Jóhanns- dóttir) sem í verkinu er fulltrúi hinnar stoltu ís- lensku bóndakonu sem býð- ur tignum gestum aldrei minna en sautján tegundir af bakkelsi og höfundur lýsir sem „virðulegri“. Í túlkun Bergs Þórs og Margrétar hefur hún misst allan virðu- leika og er nánast orðin að kjána. Skopfærslan gengur betur upp í persónum á borð við frú Fínu Jónsen, Jódínus Álfberg og Helga á Torfhvalastöðum. Edda Heiðrún fór á kostum í hlutverki Fínu og fataðist hvergi flugið (jafn- vel þótt hún flygi óvart fram af svið- inu þegar mest gekk á). (Úr)súlu- dans hennar í kringum kústskaftið var óborganlegur og ýkt persónu- sköpunin var hárnákvæm og fór hvergi yfir strikið. Eggert Þorleifs- son (Jódínus) og Ellert A. Ingimund- arson (Helgi) áttu einnig góða spretti í sínum hlutverkum. Ólafur Darri Ólafsson, Theodór Júlíusson og Hanna María Karls- dóttir mynduðu skemmtilegt tríó í hlutverkum beitarhúsarmanna og boðskapur þeirra og Dr. Godman Sýngmann (Pétur Einarsson) átti sér óvænta og sterka skírskotun til nýliðinna hryðuverka og þess stríðs- áróðurs sem nú dynur á heims- byggðinni. Theodór Júlíusson var skemmtilegur í hlutverki Tuma Jón- sens safnaðarformanns og vel til fundið að láta „rödd höfundar“ hljóma óvænt í samtali þeirra Umba. Séra Jón Prímus og Úa eru vafa- laust þær persónur sem erfiðast er að túlka svo að öllum líki enda frá hendi höfundar síst „jarðneskar“ í því fjölskrúðuga persónugalleríi sem verkið býr yfir. Árni Tryggvason lék af hófstillingu en tókst engu að síður að miðla bæði yfirvegun og við- kvæmni í persónu Jóns Prímusar og Sigrún Edda túlkaði vel það ein- kennilega sambland af holdlegri og himneskri veru sem Úa er frá hendi höfundar. Ef til vill var hún þó full groddaleg í byrjun. En það er á Gísla Erni Garðars- syni, í hlutverki Umba, sem mest mæðir sýninguna út í gegn. Hann fór hægt og hófstillt af stað en tókst á aðdáunarverðan hátt að miðla því hvernig persónan skilur sífellt minna og minna í því sem fyrir augu ber. Sú áhersla sem lögð er á ferð Umba sem hans mannsdómsvígslu er vel útfærð og Gísli Örn sýndi svo ekki verður um villst að góð frammistaða hans í Nemendaleikhúsinu í fyrra var eng- in tilviljun. Þorsteinn Gunnarsson, sem lék Umba 1970, var frábær í upphafsatriðinu í hlutverki biskups- ins sem sendir Umba út af örkinni. Sú umgjörð sem sýningunni er bú- in af þeim Árna Páli Jóhannssyni, Elínu Eddu Árnadóttur, Sigríði Rósu Bjarnadóttur, Lárusi Björns- syni, Ólafi Thoroddsen og Quarashi er einfaldlega frábær. Sviðsmynd, búningar, leikgervi, lýsing, hljóð og tónlist sköpuðu verkinu þá ljóðrænu og mystík sem vildi stundum fara forgörðum í leikstílnum. Sýn nýrrar kynslóðarLEIKLISTL e i k f é l a g R e y k j a v í k u r Höfundur: Halldór Laxness. Leik- gerð: Sveinn Einarsson. Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson. Leikarar: Árni Tryggvason, Edda Heiðrún Backman, Eggert Þorleifsson, Ell- ert Ingimundarson, Gísli Örn Garð- arsson, Hanna María Karlsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Pét- ur Einarsson, Ólafur Darri Ólafs- son, Sigrún Edda Björnsdóttir, Theodór Júlíusson og Þorsteinn Gunnarsson. Leikmynd: Árni Páll Jóhannsson. Búningar: Elín Edda Árnadóttir. Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir. Lýsing: Lárus Björnsson. Hljóð: Ólafur Thorodd- sen. Tónlist: Quarashi. Föstudagur 28. september. KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI Pétur Einarsson og Gísli Örn Garðarsson. Soff ía Auður Birgisdótt ir Morgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.