Morgunblaðið - 29.09.2001, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 29.09.2001, Qupperneq 34
UMRÆÐAN 34 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ L íkamsrækt er eitt af haustverkunum. Á milli þess sem unnið er, borðað, leikið, spjallað, keyrt og hvílt er púlað í fjölþjálfa, stigvél, bekkpressu, róðrarvél og fleiri álíka tækjum í einhverri líkams- ræktarstöðinni. Mataræðið verður auðvitað að taka í gegn. Bara nammidagur á laugardögum, en svo er bara kjúklingabringur, skyr, vatn og grænmeti þess á milli. Einnig verður að athuga að prins póló er ekki lengur kex og rjómaís getur ekki talist helsti kalkgjafinn eins og í sumar. Ég fór til einkaþjálfara í gær. Hélt að ég yrði gjör- samlega tek- in í gegn og hent í hundr- að armbeygjað á staðnum. Svo fór ekki. Vaxtarræktartröllið sem ég hélt ég myndi mæta var bara ósköp ljúfur piltur án valds- mannstilburða. Sýndi mér tækin og kenndi mér á hlaupabretti sem ég viðurkenndi að hafa aldrei prófað frekar en axlaflug og fóta- pressu. Ég bjóst við að verða spurð í þaula hvaða markmið ég hefði sett mér um kílóamissi eða vöðvasöfn- un. Hvað ég vildi nú fá út úr lík- amsræktinni og að ég yrði nú að mæta helst fimm sinnum í viku. Öðru nær. Einkapilturinn var hinn passívasti og sagði að fyrsta skrefið væri að byrja að mæta og eftir einn til tvo mánuði yrði raun- hæft að setja sér einhver mark- mið. Hann talaði auk þess ekkert um prins póló eða rjómaís, hvað þá kjúklingabringur eða skyr og ég þurfti að pína hann til að fitu- mæla mig! Er það af sem áður var að al- menningur var fitumældur við fyrsta skref inn í líkamsrækt- arstöð? Ég, sem var búin að búa mig undir yfirheyrslu og predik- anir, fékk bara leiðbeiningar og ljúfmennsku frá manninum sem ekki var tröll. Og þetta var miklu meira hvetjandi en hamagang- urinn sem ég hafði búist við. Annars fær almenningur ansi misvísandi leiðbeiningar um lík- amsrækt og mataræði frá hinum og þessum ráðgjöfum og þjálf- urum. En það er aldrei nógu fast hamrað á því að fjölbreytt mat- aræði ásamt einhverri hreyfingu er best fyrir alla, nema þeir séu sjúklingar. Almenningi er boðið upp á töfralausnir; stæltan líkama og missi tuga kílóa eftir tólf vikna þjálfunarprógramm og mikla pró- teinneyslu. Allt er svo stór- fenglegt og auðvelt þegar búið er að setja sér markmið og svara spurningum vaxtarræktartrölls- ins Bills Phillips í bókinni Líkami fyrir lífið. Þar eru einnig fyrir-og- eftir-myndir eins og við þekkjum öll. Fýldur fitupoki breytist í hlæj- andi vöðvatröll á tólf vikum. Þetta er þekkt auglýsingabragð sem enginn ætti að láta glepjast af. Bill er bandarískur líkams- ræktarfrömuður sem skoraði á fólk að byrja að æfa og hét sport- bíl í verðlaun þeim sem næði best- um árangri. Verðlaunin voru það sem hvatti flesta til að byrja og margir náðu árangri, eins og fram kemur í bókinni. Það þarf hins vegar töluvert átak til að breyta lífsmynstrinu á þann róttæka hátt sem Bill leggur til. Einn tveir og þrír á fólk að byrja að borða sex næringarríkar máltíðir á dag og æfa sex sinnum í viku fyrir allar aldir, stundum á fastandi maga og stundum má ekki borða í klukku- stund á eftir, nema hvort tveggja sé, ég náði því bara ekki alveg. Eflaust hafa margir náð ár- angri með því að fylgja áætlun bókarinnar og ýmislegt gott um hana að segja en margt ber hins vegar merki meintra kraftaverka- lausna sem henta engum. Þyngd- artap upp á hátt í þrjú kíló á viku hefur t.d. löngum verið talið óheilsusamlegt. Þeir eru líka margir sem gefast upp þegar þeir ná ekki sama glæsilega árangri og fólk vitnar um í bókinni hans Bills. Ég er byrjuð í fjögurra manna líkamsræktarklúbbi sem er um leið stuðningshópur meðlimanna sem allir eru miklir sælkerar. Þeir finna hjá sér mismikla hvöt til að lyfta lóðum, hoppa á pöllum, hætta að drekka kók og skilgreina kex upp á nýtt. Meðlimir klúbbs- ins eiga að hvetja hver annan til hreyfingar og veita stuðning þeg- ar nammilöngunin sækir að utan laugardaganna. Á næsta fundi klúbbsins verður ákveðið umbun- arkerfi en hugmyndir að verð- launum hafa verið: súkkulaði- stykki, málsverður á veitingahúsi, bíóferð þar sem má borða popp, nammi og gos, og fleira tengt mat. Líkamsræktarklúbburinn hef- ur haldið nokkra fundi. Á fyrsta fundi var á dagskrá skoðun stundataflna líkamsræktarstöðv- anna. Þá voru einnig síðustu for- vöð að borða súkkulaði á fimmtu- dagskvöldi. Á næsta fundi var ákveðið að fara í prufutíma í vik- unni. Á þriðja fundi var tímasetn- ing prufutímans ákveðin. Á fjórða fundi var ákveðið að fara í aðra líkamsræktarstöð og tímasetning m.a.s. ákveðin. Á fimmta fundi var ákveðið að kaupa kort í þeirri stöð og síðan þá hef ég komið fimm sinnum í stöðina. Þetta var á mánudaginn. Reyndar var ég einu sinni bara að skrifa undir samning og í annað skipti að læra á tæki án þess að taka á. Í þriðja skiptið fór ég í jóga og frelsaðist. Allir vinnu- staðir ættu að bjóða upp á jóga fyrir starfsfólkið. Það á eftir að halda sérstakan fund um nafn á líkamsrækt- arklúbbinn minn. Ég er að upp- götva að klúbburinn ætlar að beita sömu aðferð og Bill Phillips, þ.e. að umbuna fyrir góðan árang- ur. En það sem ég hræðist helst er að við, meðlimir líkamsrækt- arklúbbsins, verðum fjórir Bill Phillips sem teljum hver öðrum trú um að auðvelt sé að búa sér til eggjahvítuköku í morgunmat, klukkutíma eftir tuttugu mínútna loftháðu þjálfunina á fastandi maga. Axlaflug og jóga Einn tveir og þrír á fólk að byrja að borða sex næringarríkar máltíðir á dag og æfa sex sinnum í viku fyrir allar aldir, stundum á fastandi maga og stundum má ekki borða í klukkustund á eftir, nema hvort tveggja sé, ég náði því bara ekki alveg. VIÐHORF Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur- @mbl.is UNDANFARNA daga hefur mikið verið rætt um niðurstöður nefndar sem sjávarút- vegsráðherra skipaði fyrir tæpum tveimur árum. Eins og kunnugt er átti nefndin að gera tillögur um breytingar á fiskveiðistjórnunar- kerfinu. Nefndin komst ekki að sameig- inlegri niðurstöðu. Þess vegna voru sjáv- arútvegsráðherra kynntar niðurstöður hennar sem meiri- hlutaálit og þrjú minni- hlutaálit. Í áliti því sem undirritaður skilaði er tillaga um hæga og varfærnislega breytingu, sem tekur mið af hug- myndum um fyrningu aflahlutdeilda á löngum tíma. Lögð var fram tillaga um línulega fyrningu um 5% á ári í tuttugu ár. Tillögur um fyrningu Enda þótt minnihluti nefndar- manna í endurskoðunarnefndinni hafi verið sammála um að fara hina svokölluðu fyrningarleið greindi fulltrúa minnihlutans á um fram- kvæmd hennar. Undirritaður gat ekki samþykkt fyrningarleið sem leiddi til þess að veiðiheimildir gengju kaupum og sölum eftir lög- málum markaðarins enda væri þá líka ómögulegt að stjórna þróun fiskveiðanna að öðru leyti. Þess vegna eru settar fram skýrar tillög- ur um hvernig fyrningunni verði ráðstafað. Fyrstu sex ár tímabilsins fyrnast 5% á ári en útgerðinni gefst kostur á að endurleigja 3 af þeim aft- ur með afnotasamningi til sex ára í senn. Á fyrstu sex árunum losna þannig tólf prósent veiðiheimild- anna. Það sem mikilvægast er í þessum tillögum er hvernig hinum fyrndu veiðiréttindum er ráðstafað. Einn þriðja hluta veiðiheimildanna á að bjóða upp á landsmarkaði, þar sem útgerðunum er gefinn kostur á leigu til sex ára í senn. Annar þriðjungur þeirra veiðiheimilda sem fyrnast á hverju ári á að vera til byggða- tengdrar ráðstöfunar fyrir sjávar- byggðir landsins. Síð- asti þriðjungurinn verður á ári hverju boðinn þeim handhöf- um veiðiréttarins sem fyrnt er frá til endur- leigu gegn hóflegu kostnaðargjaldi á grundvelli sérstaks af- notasamnings til sex ára í senn. Við skiptingu þess þriðjungs veiðiheim- ilda sem sveitarfélögin ráða verði byggt á vægi sjávarútvegs, veiða og/ eða vinnslu í atvinnulífi viðkomandi sjávar- byggða og hlutfallslegu umfangi innan greinarinnar að með- altali síðastliðin tuttugu ár. Um þessa skiptingu er ætlunin að settar verði nánari reglur að viðhöfðu víð- tæku samráði þeirra sem hagsmuna eiga að gæta. Hlutaðeigandi sveit- arfélög ráðstafa þessum þriðjungi veiðiheimildanna fyrir hönd sjávar- byggðanna sem þeim tilheyra. Sveit- arfélögin geta leigt út veiðiheimildir eða ráðstafað með öðrum almennum hætti á grundvelli jafnræðis, en þeim er einnig heimilt að verja hluta veiðiheimildanna tímabundið til að styrkja hráefnisöflun og efla fisk- vinnslu heimafyrir. Þannig öðlast þau tækifæri til að efla vistvænar veiðar, styrkja staðbundna báta- og dagróðraútgerð, gæta hagsmuna sjávarjarða og auðvelda nýliðun og kynslóðaskipti í sjávarútvegi. Óheimilt verður að framleigja byggðatengd veiðiréttindi varanlega frá sveitarfélögunum. Kjósi sveitar- félögin að innheimta leigugjald fyrir aflaheimildirnar renna tekjurnar til viðkomandi sveitarfélags. Mikilvægt er að benda á að einnig kemur fram tillaga um nýtingar- stuðla, til þess nálgast markmið um sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar, betri umgengni og vistvænni útgerð- arhætti. Nýtingarstuðlarnir byggj- ast á því að afli tekinn á handfæri vegur 0,8, afli á línu 0,85, afli í önnur kyrrstæð veiðarfæri 0,95 og afli í dregin veiðarfæri 1,0. Brottkast Brottkast afla er eitt af stóru vandamálunum í íslenskum sjávar- útvegi. Í tillögunum er gert ráð fyrir að landa megi undirmálsfiski utan kvóta, þó þannig að andvirðið að frá- dregnum kostnaði renni í ríkissjóð. Einnig er gerð tillaga um tilraunir um löndun tiltekins meðafla þar sem aðstæður mæla með slíku. Tryggt verður að vera að löndun meðaflans fylgi ekki efnahagslegur ávinningur eða hvati. Lokun veiðisvæða vegna smáfisks tryggi jafnframt að ekki verði gert út á smáfisk. Sóknartakmarkanir verði notaðar sem fyrst með stjórn á veiðum smá- báta og strandveiðiflotans til að tryggja skjótan árangur aðgerða gegn brottkasti fisks. Sé fiski eftir sem áður hent þrátt fyrir rýmkaða möguleika til að færa allan afla að landi gildi um það mjög hörð við- urlög. Hafrannsóknir Í tillögunum er bent á að brýnt er að hafrannsóknir verði efldar með sérstakri áherslu á að fylgjast með samspili tegundanna og viðgangi staðbundinna stofna. Efla þarf möguleika rannsóknarstofnana á að skoða áhrif mismunandi veiðarfæra og bera saman árangur fiskvernd- araðgerða, rannsaka áhrif ólíkra veiðarfæra á hafsbotninn og sinna fleiri slíkum rannsóknarverkefnum sem ekki hefur verið möguleiki á að sinna vegna fjárskorts. Fjallað verður um fleiri atriði í til- lögum að breyttri fiskveiðistjórnun í annarri grein á næstunni. Þróun í átt til sjálfbærra veiða Árni Steinar Jóhannsson Fiskveiðistjórnun Þriðjungi veiðiheimild- anna ráðstafa sveit- arfélög, segir Árni Steinar Jóhannsson, fyrir hönd sjávarbyggð- anna sem þeim tilheyra. Höfundur er þingmaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs og var fulltrúi í nefnd um endur- skoðun á lögum um stjórn fiskveiða. Í Morgunblaðinu 29. ágúst sl. var birt grein eftir Ágúst H. Bjarna- son, grasafræðing þar sem hann fór fram á að Skipulagsstofnun svar- aði nokkrum spurning- um um gróður og mat á umhverfisáhrifum. Í tölvupósti til Skipu- lagsstofnunar 6. sept- ember sl. áréttaði Ágúst spurningarnar og 7. september var Ágústi svarað og hann beðinn um að senda stofnuninni erindi og afrit af greininni þar sem Skipulagsstofnun telur fjölmiðla ekki rétta vettvanginn fyrir bréfa- skrif af þessu tagi og fengi hann þá svar fljótlega í framhaldi af því. Það kaus hann að gera ekki en áréttaði spurningarnar í grein í Morgun- blaðinu þriðjudaginn 18. september sl. Spurningarnar voru: 1. Eru gerðar ákveðnar kröfur til þeirra sem dæma gildi flóru og gróð- urs? 2. Hver ræður því hvort lág- plöntur, mosar og fléttur séu teknar með í mati á umhverfisáhrifum og hvað er lagt þar til grundvallar? 3. Er hægt að sækja um það fyr- irfram að sleppa mosum og fléttum? 4. Hvernig er hægt að dæma gildi gróðurfélaga út frá aðeins tveimur til fjórum tegundum há- plantna í hverju gróð- urfélagi? Svar við spurningu 1. Í lögum eða reglugerð um mat á umhverfis- áhrifum er ekki að finna ákvæði um það hverjir megi taka að sér að meta umhverfis- áhrif fyrir framkvæmdaraðila en það er hann sem ber ábyrgð á mati á um- hverfisáhrifum. Svar við spurningu 2. Það sem ræður því hvaða þættir er skoðað- ir hverju sinni við mat á umhverfis- áhrifum eru tegund framkvæmdar, staðsetning hennar, eðli fram- kvæmdasvæðis og líklegt umfang áhrifa. Í tillögu að matsáætlun legg- ur framkvæmdaraðili fram áætlun um hvaða þætti fyrirhugað er að skoða í matsvinnunni. Tillagan er borin undir almenning og umsagn- araðila sem eru m.a. sérfræðistofn- anir og að lokum afgreiðir Skipulags- stofnun matsáætlunina og byggir þá ákvörðun sína m.a. á umsögnum frá sérfræðistofnunum. Framkvæmdar- aðili vinnur síðan að mati á umhverf- isáhrifum og gerð matsskýrslu á grundvelli matsáætlunar. Svar við spurningu 3. Ekki er hægt að sækja um að sleppa tiltekn- um þáttum í mati á umhverfisáhrif- um. Endanleg ákvörðun um mats- áætlun og þar með hvaða þætti beri að skoða ræðst alfarið af tegund framkvæmdar, staðsetningu hennar, eðli framkvæmdasvæðis og líklegu umfangi og varanleika áhrifa. Svar við spurningu 4. Skipulags- stofnun leitar eins og áður er getið umsagna sérfræðistofnana, t.d. Náttúruverndar ríkisins og Náttúru- fræðistofnunar Íslands og eftir at- vikum álits annarra sérfræðinga í einstökum málum við umfjöllun um matsáætlanir og matsskýrslur, m.a. með tilliti til þess hvaða upplýsingar þurfi að leggja fram um flóru og gróður. Skipulagsstofnun byggir niðurstöðu sína á áliti þeirra sér- fræðinga sem leitað var til, umsögn- um og athugasemdum sem koma fram við athugun stofnunarinnar auk gagna sem framkvæmdaraðili leggur fram í matsskýrslu. Mat á umhverfisáhrifum Stefán Thors Höfundur er skipulagsstjóri ríkisins. Gróður Skipulagsstofnun telur fjölmiðla ekki rétta vettvanginn, segir Stefán Thors, fyrir bréfaskrif af þessu tagi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.