Morgunblaðið - 29.09.2001, Page 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 45
Til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn Skagamenn
f
í
t
o
n
/
s
í
a
F
I
0
0
3
3
7
8
ÍMARK, félag íslensks markaðs-
fólks, stendur fyrir markaðsviku
dagana 2.-5. október n.k. sem teng-
ist alþjóðlegri markaðsviku sem
haldin er í fyrsta sinn á vegum að-
ildarlanda World Marketing Ass-
ociation (WMA).
ÍMARK stendur fyrir ýmsum
viðburðum í markaðsvikunni, sem
er annars vegar röð viðburða og
hins vegar eins konar „vitundar-
vakning“ um markaðsmál, en sam-
kvæmt því sem fram kemur í frétta-
tilkynningu er tilgangur markaðs-
vikunnar að vekja athygli á faglegu
markaðsstarfi og mikilvægi þess í
nútíma viðskiptaumhverfi.
Hápunktur markaðsvikunnar er
ráðstefna sem ÍMARK, Útflutn-
ingsráð og Iðntæknistofnun standa
fyrir með yfirskriftinni „Vefurinn
sem viðskiptamiðill – hvað hefur
áunnist, hvað hefur brugðist?“.
Ráðstefnan verður haldin miðviku-
daginn 3. október kl. 8:30 til 14:40 á
Hótel Loftleiðum. Á ráðstefnunni
verður fjallað um það hvernig til
hefur tekist hjá íslenskum fyrir-
tækjum að nýta sér Netið sem við-
skiptamiðil, en í stað þess að fjalla
um endalausa möguleika Netsins
verður leitast við að fara ofan í
saumana á því hvað hafi raunveru-
lega borið árangur og hvað hafi
brugðist. Jafnframt verður farið yf-
ir þróunina almennt í vefviðskiptum
á undanförnum árum.
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni
verður Skotinn Jim Hamill, en hann
er forstjóri alþjóðlegu ráðgjafastof-
unnar Catalyse International og
lektor í alþjóðlegri markaðssetn-
ingu við Strathclyde-háskólann í
Glasgow.
Alþjóðleg markaðs-
vika á vegum Ímarks
ÁRSÞING SAMFOK verður haldið
þriðjudaginn 2. október kl. 18:00–
22:00 í Borgaskóla í Grafarvogi.
Nafnið SAMFOK stendur fyrir
Samband foreldrafélaga og foreldra-
ráða í skólum Reykjavíkur á grunn-
skólastigi.
Stjórn SAMFOK heldur fund á
tveggja vikna fresti þar sem t.d. mál-
efni sem tengjast foreldrum, nem-
endum, kennurum og Fræðslumið-
stöð Reykjavíkur eru rædd.
Jafnframt er þar unnið mikið starf
til að styðja við bakið á foreldra-
félögum og -ráðum skóla, segir í
fréttatilkynningu.
Ársþing
SAMFOK
KVENNAKÓRINN Vox Feminae,
undir stjórn Margrétar Pálmadótt-
ur, heldur söngskemmtun til
styrktar Gömlu-Borg í Grímsnesi í
dag, laugardag, kl. 21.
Sungið til styrkt-
ar Gömlu-Borg
FERÐAFÉLAG Íslands efnt til
gönguferðar sunnudaginn 30. sept-
ember á Esju, Skálafellsöxl og
Skálafell, og haldið niður Kjósar-
skarð. Fararstjóri verður Eiríkur
Þormóðsson.
Reiknað er með 5–7 klst göngu,
leiðin er áætluð 10–14 km. Þátttöku-
gjald er 1500 kr. fyrir félagsmenn en
1800 kr. fyrir aðra.
Brottför er frá BSÍ kl. 10:30 á
sunnudaginn og komið við í Mörk-
inni 6.
Gengið á Esju,
Skálafellsöxl
og Skálafell
NÚ um helgina verður haldið
upp á tíu ára afmæli Gróður-
vara, sem er móðurfyrirtæki
Garðheima í Mjódd.
Haldið verður upp afmælið
með ýmsu móti, t.d. fá krakkar
gjafir frá Garðheimum kl. 15,
16, og 17 laugardag og sunnu-
dag, happdrættisvinningar
verða dregnir út á klukku-
stundar fresti frá kl. 14–17
laugardag og sunnudag, afmæl-
istilboð verða og þar að auki er
gefinn 10% aukaafsláttur föstu-
dag, laugardag og sunnudag,
segir í fréttatilkynningu.
Afmæli í
Garðheimum
AGLOW – kristileg samtök kvenna
halda fund í færeyska sjómannaheim-
ilinu, Brautarholti 29, Reykjavík,
mánudagskvöldið 1. október kl. 20.
Gestir þessa fundar verða Björg
Davíðsdóttir, Edda Swan, Sólveig
Traustadóttir og Þóranna Sigur-
bergsdóttir, en þær eru allar í lands-
stjórn Aglow á Íslandi og eru ný-
komnar heim frá Houston í Texas þar
sem þær sóttu alheimsmót Aglow.
Einnig er á dagskrá söngur, lof-
gjörð og fyrirbænaþjónusta. Fundur-
inn byrjar með kaffi og meðlæti. Þátt-
tökugjald er kr. 600. Allar konur
velkomnar, segir í fréttatilkynningu.
Kristileg
kvennasamtök
með opinn fund
NÝ útvarpsstöð, Útvarp Boðun FM
105,5 sem leggur áherslu á boðun
Biblíunnar svo og líf og heilsu og
gildi fjölskyldunnar, byrjaði til-
raunaútsendingar 1. september s.l.
Hins vegar hefst útsending á fastri
dagskrá mánudaginn 1. október kl.
8:00. Útsendingar verða allan sólar-
hringinn.
Á meðal dagskráratriða verða
hugvekjur, spjallþættir um reynslu
og lífshlaup einstaklinga, erindi og
námskeið um biblíuleg efni, lestur úr
merkum bókum, ljóð dagsins,
fræðsla um líf og hollustu, sögustund
barnanna og unglingaþáttur, auk
góðrar tónlistar, segir í fréttatil-
kynningu.
Útvarpsstjóri er dr. Steinþór
Þórðarson. Það er Boðunarkirkjan
sem á og rekur þessa útvarpsstöð, en
hún er til húsa að Hlíðasmára 9,
Kópavogi. Opið hús verður að Hlíða-
smára 9 sunnudaginn 30. september
kl. 14-17.
Ný útvarpsstöð
Á VEGUM Landverndar hefur síð-
ustu daga staðið yfir skráningar- og
kynningarvika vistverndar í verki,
en visthópar haustsins eru að kom-
ast af stað.
Frá síðastliðnu hausti hefur
Landvernd, í samvinnu við nokkur
sveitarfélög, boðið fólki að taka þátt
í svokölluðum visthópum. Sigurborg
Kr. Hannesdóttir hjá Landvernd
segir að þátttaka í visthópi sé gagn-
leg leið til að skoða heimilishaldið út
frá umhverfisþáttum og í framhaldi
af því að breyta einhverju af venjum
sínum, eftir áhuga og aðstæðum, til
umhverfisvænni vegar.
Leiðbeinendanámskeið á vegum
Landverndar verður haldið um
næstu helgi, 29. til 30. september.
Í vikunni voru haldnir kynning-
arfundir visthópa á nokkrum stöð-
um á landinu, m.a. í Reykjavík, Ak-
ureyri og Hafnarfirði, og í byrjun
október fara af stað visthópar á
Stúdentagörðum, í samstarfi Stúd-
entaráðs, Reykjavíkurborgar og
Landverndar.
Hingað til hafa samtals um 130
fjölskyldur á Íslandi tekið þátt í vist-
hópi. Samkvæmt upplýsingum frá
Landvernd minnkaði sorp að með-
altali um eitt kg á hvern heim-
ilismann á viku eða um 200 kg á ári
hjá fjögurra manna fjölskyldu. Mið-
að við meðalmagn sorps á mann á
höfuðborgarsvæðinu, er þetta um
15% minnkun. Rafmagn minnkaði
um að meðaltali 21 kwst. á viku, en
sú minnkun lækkar rafmagnsreikn-
inginn á meðalheimili um 6.500
krónur á ári. Þátttakendum í vist-
hópunum tókst að minnka bensín-
eyðsluna um 6%, sem þýðir um 5.000
til 10.000 kr. sparnað á ári.
Kynningarvika
vistverndar í
verki
Á SUNNUDAGINN, hinn 30. sept-
ember, munu Ungir vinstri grænir
halda aðalfund á Hótel Lind, Rauð-
arárstíg, klukkan þrjú.
Auk þess að kjósa í nýja stjórn
ásamt öðrum aðalfundarstörfum
verður utanríkisstefna Íslands til
umræðu og Stefán Pálsson sagn-
fræðingur flytur erindi um stöðu
landsins í nýrri heimsmynd.
Formaður Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs, Steingrímur J.
Sigfússon, flytur ávarp.
Aðalfundur
Ungra vinstri
grænna
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦