Morgunblaðið - 29.09.2001, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 51
DAGBÓK
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Nk.mánudag 1. október
verður áttræð Sigríður
Helgadóttir, Kjarrvegi 15,
Reykjavík. Henni þætti
vænt um að sjá sem flesta
ættingja og vini á morgun,
30. september frá kl. 16 á
heimili sonar og tengdadótt-
ur, Súlunesi 17, Garðabæ.
70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 29.
september, er sjötugur
Hannes Bjarni Kolbeins,
ökukennari og bifreiða-
stjóri, Hamrabergi 36,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Guðrún Benediktsdóttir
Kolbeins.
80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 29.
september, er áttræður Ing-
var Þórðarson, bóndi í
Reykjahlíð á Skeiðum. Eig-
inkona hans er Sveinfríður
H. Sveinsdóttir frá Mæli-
fellsá í Skagafirði. Þau eru
að heiman á afmælisdaginn.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
VESTUR er gjafari og opn-
ar á þremur hjörtum:
Norður
♠ G9
♥ 754
♦ ÁK76
♣ 8532
Vestur Austur
♠ 854 ♠ 32
♥ KDG10932 ♥ Á6
♦ -- ♦ DG1092
♣ G104 ♣ KD96
Suður
♠ ÁKD1076
♥ 8
♦ 8543
♣ Á7
Sú sögn gengur til suðurs,
sem segir fjóra spaða.
Útspilið er hjartagosi.
Austur tekur fyrsta slaginn á
hjartaás og túlkar útspilið
rétt þegar hann sendir tígul
um hæl í öðrum slag. Vestur
trompar og spilar hjarta-
kóng. Töluvert hefur dregið
til tíðinda í fyrstu slögunum
og nú er rétti tíminn til að
meta stöðuna. Hvernig
myndi lesandinn spila?
Vörnin hefur fengið tvo
slagi, og tveir aðrir sýnast
líklegir – einn á lauf og annar
á tígul. Nema hægt sé að
þvinga austur einhvern veg-
inn í láglitunum. Nú lokar
sagnhafi augunum og sér
fyrir sér þessa endastöðu:
Norður
♠ --
♥ --
♦ ÁK7
♣ 85
Vestur Austur
♠ -- ♠ --
♥ D1093 ♥ --
♦ -- ♦ DG10
♣G ♣ KD
Suður
♠ 107
♥ --
♦ 854
♣ --
Næst síðasta trompinu er
spilað og tígli hent úr borði.
Austur er nú þvingaður: ef
hann hendir tígli, fríast áttan
heima, og ef hann fækkar við
sig laufum, fer sagnhafi inn á
tígul til að trompa laufið frítt.
Til að ná upp þessari end-
astöðu virðist þurfa að gefa
slag á lauf, en austur má þá
ekki nota tækifærið til að
spila tígli og taka aðra inn-
komuna af blindum. En það
er ástæðulaust að gefa austri
slíkt tækifæri – sama árangri
má ná með því að henda laufi
í hjartakónginn. Síðan er
önnur innkoma blinds á
tromp notuð til að stinga eitt
lauf og þá er leiðin greið að
stöðunni að ofan.
90 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 29.
september, verður níræður
Björn Kjartansson, Klepps-
vegi 62, Reykjavík. Hann
tekur á móti ættingjum og
vinum í sal á Kleppsvegi 62
(gengið inn að ofanverðu)
frá kl. 15–18 á afmælisdag-
inn.
GULLBRÚÐKAUP. 22. september sl. áttu 50 ára hjúskap-
arafmæli hjónin Valdís Þorsteinsdóttir og Alfreð Konráðs-
son, Brekkugötu 1, Hrísey. Þau voru að heiman.
STAÐAN kom upp á at-
skákmóti sem lauk fyrir
skömmu á Krít. Dimitry
Svetushkin (2461) hafði
hvítt gegn Yedael Stepak
(2265). 27. Rc7+! Dxc7 27...
Ka7 28. Rxe6 hefði einnig
leitt til mikilla erfiðleika fyr-
ir svartan. 28. Df3+ e4 29.
Dxe4+ Ka7 30. c6+ og hvít-
ur vann örugglega nokkrum
leikjum síðar. Skákin tefld-
ist í heild sinni: 1. e4 c5 2.
Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6
5. Bd3 Db6 6. Rb3 Dc7 7.
O-O Rf6 8. f4 d6 9. c4 Rbd7
10. Be3 b6 11. Rc3 Rc5 12.
Rxc5 bxc5 13. Df3s Bb7 14.
Hae1 h5 15. h3 h4 16. a3 Be7
17. b4 Rd7 18. De2 Bf6 19. e5
dxe5 20. f5 O-O-O 21. fxe6
fxe6 22. Be4 Hhf8 23. Bxb7+
Dxb7 24. bxc5 Dc6 25. Rb5
Kb8 26. Hb1 Ka8 o.s.frv.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik
LJÓÐABROT
SON GUÐS
Son guðs ertu með sanni,
sonur guðs, Jesú minn;
son guðs, syndugum manni
sonararf skenktir þinn,
son guðs, einn, eingetinn.
Syni guðs syngi glaður
sérhver lifandi maður
heiður í hvert eitt sinn.
Hallgrímur Pétursson
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VOG
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert mikill fjölskyldumað-
ur og gerir allt til þess að
skapa þér og þínum öryggi í
tilverunni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Sýndu samstarfsmönnum
þínum þolinmæði og taktu
létt á yfirsjónum þeirra. Þú
kannt síðar að standa í þeirra
sporum og þurfa skilnings
við.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vertu óhræddur við að segja
vinum og vandamönnum
hvern hug þú berð til þeirra.
Og láttu svo hlýtt faðmlag
leggja frekari áherslu á orð
þín.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú getur náttúrlega ekki lagt
heimilið undir þig og vini
þína, nema bera það undir
fjölskylduna. Sýndu þolin-
mæði, ef illa stendur á hjá
einhverjum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Taktu það ekki nærri þér,
þótt þér takist ekki að gera
svo öllum líki. Það er hreint
út sagt ómögulegt svo þú
skalt bara gera þitt besta.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Veltu vandlega fyrir þér öll-
um fjárútlátum í dag. Snýst
málið um hlut sem þig van-
hagar um eða er löngunin í
hann ekki bundin neinu nota-
gildi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Láttu ekki hugfallast þótt
samskipti þín og vinnufélaga
þinna gangi ekki snurðulaust
með öllu. Aðalatriðið er að þú
sinnir þínu verki.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Íhugaðu vandlega allar
beiðnir sem þú færð um að-
stoð. Vandaðu valið því eng-
inn segir að þú eigir að hlaupa
upp til handa og fóta út af
öllu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Taktu það ekki of mikið inn á
þig, þótt einhver vinur þinn
hlaupi út undan sér. Enginn
er fullkominn og þú þarft líka
á skilningi að halda.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Gættu þín á ómaklegum kröf-
um annarra. Það er alls ekki
þitt mál að uppfylla allra ósk-
ir og þú verður að slá skjald-
borg um sjálfan þig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Finnir þú litla þörf hjá þér til
að eiga orðastað við aðra í dag
skaltu draga þig í hlé. Gerðu
öðrum ljóst að þögn þín sé
ekki sama og samþykki.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þér hættir til þess að gera of
mikið úr hlutunum. Farðu
hægar í sakirnar og veltu
hlutunum vandlega fyrir þér
áður en þú segir af eða á.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú mátt ekki láta mótbárur
annarra draga úr þér kjark-
inn, heldur hvetja þig til frek-
ari átaka. Sýndu skoðunum
samstarfsmannanna skilning.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Ljósakrónur Borðstofuborð
Íkonar Bókahillur
www.simnet.is/antikmunir
Nýkomnar
vörur
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
Fágun
fagmennska
Gullsmiðir
Samskipti – sjálfefli
10 vikna námskeið í samskiptum og sjálfefli.
Upplýsingar og innritun í símum
551 9943 og 896 3943.
Jórunn Sörensen, kennari.
Bjarni Jónsson, listmálari,
sýnir nú í annað sinn á árinu
í Eden, Hveragerði,
vegna forfalla. Sýningin stendur
frá 27. sept. til 14. okt.
FRÉTTIR
SAMFYLKINGIN í Hafnarfirði hef-
ur kosið kjörnefnd til þess að sjá um
skoðanakönnun um niðurröðun á
framboðslista Samfylkingarinnar við
bæjarstjórnarkosningarnar vorið
2002.
Nefndin mun í framhaldi af skoð-
anakönnuninni gera tillögu til fé-
lagsfundar Samfylkingarinnar, sem
haldinn verður miðvikudaginn 31.
október næstkomandi, um framboðs-
lista Samfylkingarinnar og hafa þar
til hliðsjónar niðurstöður úr fyrr-
nefndri könnun.
Allir þeir sem eru félagar í Sam-
fylkingunni föstudaginn 12. október
2001 og eiga lögheimili í Hafnarfirði
hafa rétt til þátttöku í skoðanakönn-
uninni.
Skoðanakönnunin fer fram í Al-
þýðuhúsinu í Hafnarfirði dagana 12.–
14. október. Þátttakendur eiga að
krossa við nöfn þeirra sex frambjóð-
enda, sem þeir vilja hafa efsta á fram-
boðslista Samfylkingarinnar – sex
nöfn – hvorki fleiri né færri.
Þeir Samfylkingarfélagar, sem
ekki verða heima dagana 12.–14. októ-
ber, geta tekið þátt í skoðanakönn-
uninni hjá kjörnefnd 7. til 11. október.
Þeir sem enn hafa ekki skráð sig
sem félaga í Samfylkingunni í Hafn-
arfirði, en hafa áhuga á að taka þátt í
skoðanakönnuninni, geta skráð sig
sem félaga fyrir klukkan 19:00
fimmtudaginn 11. október næstkom-
andi. Skrifstofa Samfylkingarinnar í
Hafnarfirði er opin frá klukkan 13–16
mánudaga, miðvikudaga og fimmtu-
daga en kl. 9–12 þriðjudaga og föstu-
daga.
Tuttugu manns hafa tilkynnt fram-
boð í skoðanakönnuninni, en þeir eru:
Andri Ólafsson nemandi, Ásgeir
Guðnason vélfræðingur, Árni Guð-
mundsson æskulýðsfulltrúi, Ellý Er-
lingsdóttir grunnskólakennari, Eyj-
ólfur Sæmundsson efnaverkfræð-
ingur, Eyrún Ósk Jónsdóttir
nemandi, Geir Þórólfsson vélaverk-
fræðingur, Gísli Ósvaldur Valdimars-
son byggingaverkfræðingur, Guð-
finna Guðmundsdóttir matreiðslu-
maður, Guðmundur Rúnar Árnason
stjórnmálafræðingur, Gunnar Svav-
arsson verkfræðingur, Hafrún Dóra
Júlíusdóttir skrifstofumaður, Hjörtur
Howser tónlistarmaður, Hörður Þor-
steinsson framkvæmdastjóri, Ingi-
mar Ingimarsson nemandi, Jóna
Dóra Karlsdóttir bæjarfulltrúi, Lúð-
vík Geirsson bæjarfulltrúi, Ómar
Smári Ármannsson aðst.yfirlögreglu-
þjónn, Sigríður Bjarnadóttir baðvörð-
ur og Valgerður Halldórsdóttir bæj-
arfulltrúi samkvæmt því sem fram
kemur í fréttatilkynningu.
Samfylkingin í Hafnarfirði
20 frambjóðendur
í skoðanakönnun