Morgunblaðið - 29.09.2001, Page 54
FÓLK Í FRÉTTUM
54 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
! "#
segir Björn Hlynur og Hlín Björns-
dóttir, sjö mánaða, hjalar í barna-
vagninum eins og til þess að sam-
sinna föður sínum. Leikararnir ungu
koma þó víðar við því þau eru fé-
lagar í Vesturportinu, sem er lítið
leikhús á Vesturgötu í Reykjavík,
þar sem þetta viðtal er tekið.
Góðir vinir
Þrátt fyrir sakleysislegan titil er
leikrit Hávars lýsing á aðstæðum og
hugarheimi einnar fjölskyldu sem er
læst inni í heimi kynferðislegs of-
beldis og kúgunar, sem leiðir til vit-
firringar og morða.
„Fyrir utan að vera bekkjarsystk-
ini erum við góðir vinir. Ég held að
það sé ekki verra að takast á við
svona sýningu með einhverjum sem
maður þekkir. Það þarf að leyfa sér
að ganga nokkuð langt gagnvart
mótleikaranum og leyfa honum
sömuleiðis að ganga langt gagnvart
sér, bæði líkamlega og andlega,“
segir Björn Hlynur.
Hann segir að leikritið fjalli að
stórum hluta um það hvernig að-
stæður sem þessar verða til. „Það
virðist eiga sér stað keðjuverkun í
fjölskyldulífi þeirra sem eiga við
vanda af þessu tagi að stríða og
vandinn virðist eitra út frá sér til
lífstíðar. Persónurnar í Englabörn-
um eru veruleikafirrtar af uppeldinu
og gera ekki greinarmun á því hvað
er gott og hvað er illt.“
Gaman í vinnunni
Nína Dögg segist vera afar þakk-
lát fyrir að mótleikarinn í Engla-
börnum skuli vera Björn Hlynur.
Hún segir að vissulega sé Englabörn
krefjandi verkefni. „En það er svo
gott fólk þarna í Hafnarfirði. And-
manna sem örugglega eiga eftir að
setja mark sitt á leikhúslífið í land-
inu.
Nína Dögg og Björn Hlynur sátu
saman á skólabekk í Listaháskóla
Íslands og útskrifuðust saman frá
leiklistardeildinni. Úskriftarverk-
efnið var Platonov, sem var sam-
starfsverkefni Listaháskólans og
Hafnarfjarðarleikhússins. Það var
sett upp í Hafnarfjarðarleikhúsinu
síðastliðinn vetur og leikstýrt af
Hilmari Jónssyni, sem einnig leik-
stýrir Englabörnum.
„Við urðum eftir í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu og erum þarna enn þá,“
TVEIR ungir leikarar, Nína Dögg
Filippusdóttir og Björn Hlynur Har-
aldsson, þreyttu frumraun sína í at-
vinnuleikhúsi fyrr í mánuðinum, í
Englabörnum, leikriti Hávars Sigur-
jónssonar, sem nú er sýnt í Hafn-
arfjarðarleikhúsinu. Vart er hægt að
ímynda sér erfiðara viðfangsefni
fyrir nýútskrifaða leikara en aðal-
hlutverkin í þessari magnþrungnu
sýningu. Þau standast prófraunina
með sóma og leikhúsáhugamenn
hafa orðið vitni að fæðingu lista-
rúmsloftið og umhverfið er svo gott
og þarna ríkir mikill kærleikur,“
segir Nína Dögg um samstarfs-
mennina í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
„Það er alltaf gaman að koma í vinn-
una og stutt í gleðina, sem er alveg
nauðsynlegt því það er ekki auðvelt
að fara inn í senurnar.“
Hún segir að áður en æfingar hóf-
ust hafi allir sem koma að sýning-
unni mikið rætt saman um þennan
heim sem lýst er í leikritinu. „Við
reyndum að kynna okkur efnið vel,
lásum skýrslur og öfluðum annarra
upplýsinga. Þegar við byrjuðum svo
að vinna að sjálfri sýningunni hófst
ferli og sýningin þróaðist hægt og
rólega í framvindunni.“
Skjól stofnanaleikhúsa
Þau eru bjartsýn hvað varðar
framtíðina og atvinnumöguleikana.
Nína Dögg segir að í Vesturportinu
hafi þau húsnæði og aðstöðu til að
gera það sem hugurinn býður. Út-
gangspunkturinn sé ekki endilega
tilraunastarfsemi heldur miklu
fremur að gera það sem gaman er.
„Eins og Nína segir, að ef við ætl-
um að gera það sem okkur langar til,
þá verður það á endanum tilrauna-
starfsemi. Við fáum þarna tækifæri
til þess að gera það sem við fáum
ekki annars staðar,“ segir Björn
Hlynur.
En sækja nýútskrifaðir leikarar í
skjólið hjá stóru stofnanaleikhúsun-
um? Nína Dögg segir þetta erfiða
spurningu og segir að hver geymi
sína áfangastaði í sjálfs síns brjósti.
„Ég er opin fyrir öllu og vil vera í
skapandi og gefandi starfi.“
Um framtíðaráformin er það að
segja að Nína Dögg er hefja leik í
kvikmyndinni Hafinu og af þessu til-
efni segir Björn Hlynur að kvik-
myndaleikur höfði að sjálfsögðu til
ungra leikara; þeir séu allir af bíó-
kynslóðinni.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Björn Hlynur og Nína Björk í krefjandi hlutverkum sínum í Englabörnum sem sýnt er í
Hafnarfjarðarleikhúsinu við góðan orðstír.
Morgunblaðið/Þorkell
Nína Dögg Filippusdóttir, Björn Hlynur Haraldsson og dóttir hans, sjö mánaða, Hlín.
Erum af bíókynslóðinni
Þeir sem leggja leið sína í Hafnarfjarðarleikhúsið á sýninguna Englabörn verða vitni að mögnuðum leik tveggja nýút-
skrifaðra leikara. Þeir heita Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Hlynur Haraldsson. Guðjón Guðmundsson ræddi við þau.
gugu@mbl.is
NÝJASTA kvikmynd leikarans Bens
Stillers, Zoolander, hefur verið bönnuð í
Malasíu þar sem kvikmyndin segir frá
ráðabruggi um að ráða forsætisráherra
landsins af dögum. Kvikmyndaeftirlit
Malasíu úrskurðaði myndina „ein-
staklega óviðeigandi“.
Stiller fer með hlutverk Dereks Zool-
anders, treggáfaðrar fyrirsætu sem er
plötuð er til hins vafasama verknaðar.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem
kvikmyndaeftirlit Malasíu bannar kvik-
myndir og annað efni frá hinum vest-
ræna heimi. Árið 1994 var kvikmynd
Stevens Spielbergs, Shindler’s List, bönnuð þar í landi sem og teiknimynd
hans, The Prince of Egypt, en líkur þóttu á að hún miðsbyði múslimum í
Malasíu.
Seinni kvikmyndin um njósnarann kynþokkafulla Austin Powers var
einnig bönnuð með öllu þar sem titill myndarinnar, The Spy Who Shagged
Me, þótti of kynferðislegur.
Ráðabrugg um að ráða forsætisráðherrann af dögum
Ben Stiller
á bannlista í
Malasíu
Ben Stiller