Vísir - 14.03.1980, Síða 2
' Föstudagur 14. mars 1980
Telur þú að vændi fyrir-
finnist á tslandi?
Guðjón Einarsson, blaóaljós-
myndari: Já, tvimælalaust, alveg
frá þvi á striösárunum, eöa frá
þvi ég fór fyrst aö vita af mér. Ég
er nokkuö kominn til ára minna
og hef séö ýmislegt úr bæjarlíf-
inu, þóég hafi ekki tekiö þátt i þvi
sjálfur.
Stefán Sverrisson, simvirki: Þaö
held ég ekki. Ég hef náttúrulega
enga sönnun fyrir þessu, en ég
trúi bara ekki á, aö þaö eigi sér
staö hérna.
Jóhann Runólfsson, leigubif-
reiöastjóri: Ég hef ekki rekiö mig
á þaö i minu starfi.
Magniís Oddsson, vélstjóri: Ég
heldekki.Égerallavega allsekki
trúaöur á þaö.
Kristin Arnadóttir, húsmóöir:
Nei, ég býst ekki viö þvi, ef
marka má þaö sem ég hef séö um
mina daga hér á landi.
Hitinn sem slökkviiiösmenn eiga oft i höggi viö, getur náö 1000-1200 gr. C. Þá er lika eins gott aö vera vel búinn, I „múnderingu” eins og
sést á meöfylgjandi mynd. Visismyndir: JA
VELSKOLANEMAR A
SLOKKVIUDSÆFINGU
,,Viö höfum veriö meö nám-
skeiö í brunavörnum fyrir Stýri-
mannaskólann og Vélskólann i
nokkur ár. Þessi árlegi atburöur
hjá skólunum, stendur yfir I
viku, en þetta eru samtals 27
kennslustundir, fjörutiu-
minútur hver” sagöi Gunnar
Sigurösson varaslökkviöliös-
stjóri Slökkvistöövarinnar i
Reykjavik, en hún nærtil svæöis
ins innan Kópavogs, Seitjarnar-
nestMosfellssveitarog Reykja-
vikur, sem eru sveitarfélögin er
eiga aöild i henni. Slökkvistöö-
inni er gert skylt af Brunamála-
stofnunni aö fólk innan þeirra
umráöasvæöis fái undirstööu-
þekkingu viö meöferö elds.
Teknir eru núna 20 nemendur
úr Vélskólanum, i tveimur hóp-
um og er annar hópurinn á eld-
varnaræfingum á Reykjavikur-
flugvelli, á meöan hinn er uppi á
stöö i bóklegu námskeiöi og
reykköfunaræfingum. Þar setja
þeir á sig grimur, hetta sett
fyrir gleriö á henni svo þeir sjái
ekkert og eiga þeir i þessari
„munderingu” aö finna ein-
hvern ákveöinn mann, aö sögn
Gunnars.
Námskeiöiö byrjar á bóklegri
kennslu, sem eru 20 timar af
heildarkennslunni. 1 henni læra
nemendurnir ýmislegt um
slökkviliö og starfsemi þess,
eitranir, sprengingar, eöli elds-
ins, slökkvitækni, reykköfun,
meöferö handslökkvitækja,
fyrirbyggjandi starf, eld-
varnareftirlit, reyklosun og
meöferö froöu.
Verklegu æfingarnar ganga út
á þaö, aö kynna mönnum hvaö
það sé aö berjast víö eldinn og
hitann sem frá honum stafar, en
hitinn sem slökkviliösmenn eiga
oft i höggi viö nær stundum
1000-1200 g C.
öll handtök veröa aö iærast rétt, þó ekki sé veriö nema aö fsra
tunnuskratta frá einum staö til annars, og einn slökkviiiösmanna
hefur nánar gætur á aö allt fari nú rétt fram.
•vts
:
Þannig förum viö aö þvi, aö halda utan um slönguna strákar. En Vélskólanemum þykir sýnilega lftiö
koma til þessarar máttleysislegu bunu og glotta út Iannaö.
Búinn er til mikill eldur á
æfingasvæöi slökkviliösins á
Reykjavikurflugvelli og til að
ná upp þessum mikla hita er
kveikt i oliu.
„Þetta eru eihu skólarnir sem
viö gerum svona mikiö fyrir
vegna þess aö þeir hafa ekki að-
stööu til aö kalla slökkviliö sér
til hjálpar, ef þaö kviknar I skipi
út á sjó, þannig aö þéir veröa al-
gjörlega aö bjarga sér sjálfir”,
sagði Gunnar.
„Við erum ekki meö jafn itar-
legar æfingar fyrir aðra skóla.
Þeir hafa fengið 20 tima
kennslu, þá er verklega náminu
sleppt, eins og t.d. Kennaraskól-
inn, til þess aö tilvonandi kenn-
araefni, geti kennt nemendum
sinum meginatriöin i vörnum
gegn eldsvoöa. Svo höfum við
veriö meö 6 tima kennslu fyrir
verkstjóra á vinnustööum og
hafnarverkamenn auk annarra
hópa” sagöi Gunnar aö lokum.
H.S.