Vísir - 14.03.1980, Blaðsíða 6
6
VtSIR
Föstudagur 14. mars 1980
Sunfltímarnír voru
martrðö tyrir nann
vegna vatnshræðslu
- en nú er hann einn besti
sundmaður landsins
„Ég var svo vatnshræddur, þegar ég var yngri,
að ég righélt mér i bakkann i hvert sinn sem ég
varð að fara ofan i laugina i sundtimum i skólan-
um. Það var hrein martröð fyrir mig að þurfa að
fara i sund þvi að ég þorði einfaldlega ekki að
sleppa takinu á bakkanum og þannig gekk það i
nær fjögur ár”.
Það var ekkert undarlegt þótt
viö störðum framan i brosandi
piltinn, sem sagði þessar
setningar við okkur á dögunum.
Við vorum nefnilega að tala við
einn besta sundmann, sem
tsland hefur eignast, Inga Þór
Jónsson frá Akranesi, og úr
þeirri átt áttum við ekki von á
að heyra talað um vatns-
hræðslu.
,,Ég var orðinn 10 ára gamall,
þegar ég loks þorði að sleppa
bakkanum — þá fengum við
nýjan sundkennara — Helga
Hannesson, og hann taldi mér
trú um, aðég gæti komist yfir að
hinum bakkanum án þess að
drukkna. Hann varð að visu að
vera yfir mér þessa fyrstu ferð
yfir laugina á Akranesi, en
þarna tókst mér loks að brjóta
isinn”.
Þessi fyrstu sundtök án kúts
og korks tók Ingi Þór á fimmtu-
degi. — A laugardeginum á eftir
var hann kominn á fyrstu sund-
æfinguna hjá sundfélaginu á
Akranesi, og siöar á árinu varö
hann unglingameistari f sundi.
Segja má, að siöan hafi hann
verið I vatninu, en nú er hann 17
ára gantall.
Spútnikarnir af Skipa-
skaga
Ingi Þór hefur ásamt félaga
slnum, Ingólfi Gissurarsyni frá
Akranesi, vakiö á sér mikla
athygli á sundmótum undan-
farna mánuði. Ingólfur er okkar
besti bringusundsmaður, og
hann tók miklum framförum I
fyrra. Hann hefur haft frekar
hægt um sig I ár, en sund-
spekúlantar eins og Gúömundur
Harðarson og fleiri telja, að
hann geti „sprungiö út” þá og
þegar enda æfir hann sig mjög
vel.
..Spútnikarnir af Skipa-
skaga” hafa þeir félagar verið
kallaðir. Ingi Þór hefur verið
öllu meira I sviðsljósinu undan-
farnar vikur, þvl að segja má,
að þá hafi hann loks „sprungiö
út”. Hann keppir i öllum grein-
um nema bringusundi — lætur
vin sinn Ingólf um það — en I
vatn fer Ingi Þór varla oröiö
þessa dagana án þess að bæta á-
rangur sinn eða setja nýtt met.
Hann á þegar oröiö tslands-
metin i 100 metra baksundi, 100
metra flugsundi og 100 metra
skriðsundi auk þess sem hann á
enn eitt tslandsmet f flokki 12
ára og yngri.
Æfum meir en annað
iþróttafólk
„Ég setti aldrei nein met að
ráði þegar ég var yngri,” sagði
hann. „Þetta fór ekki að koma
almennilega hjá mér fyrr en ég
flutti suöur til Reykjavikur I
haust og byrjaöi aö æfa undir
handleiðslu Guðmundar
Haröarsonar hjá Ægi.
Við fórum báðir suöur, ég og
Ingólfur, og hjá Guðmundi og
félögunum i Ægi höfum við
fengiðþaðsem við þurftum með
í sundinu. Guðmundur hefur til
dæmis tekiö mig og snarsnúið
öllum minum stíl. Gnda hefur á-
rangurinn ekki látið á sér
standa. Bn mig óraði samt
aldrei fyrir þvi að framfarirnar
yrðu svona örar hjá mér.
Þetta kemur auövitaö ekki
nema með þrotlausum æfing-
um, en stundum finnst mér
þetta þó vera of mikiö hjá mér
og öðrum I sundinu. Ég mæti til
dæmis tvisvar I viku í Sundhöll-
ina klukkan 6 á morgnana og
æfi þá f einn og hálfan tfma.
Slöan tek ég kvöldæfingar
mánudag, þriðjudag, miðviku-
dag, fimmtudag og föstudag. A
laugardögum æfi ég I hádeginu
og aftur um kvöldið uppi á
Akranesi, en þar er ég um helg-
ar, og á sunnudögum tek ég
einnig eina æfingu þar.
Ég tek mér tuttugu daga fri á
ári frá æfingum og keppni og f
hverri viku syndi ég 40 til 50
kflómetra. Þar fyrir utan æfi ég
leikfimi, lyftingar og annað sem
meö þarf. Ég hef engan saman-
burð en ég held nú samt að ég og
við yfirleitt i sundinu æfum
miklu meir en annaö fþróttafólk
hér á islandi. Samt drögumst
við aftur úr á alþjóðamæli-
kvarða”.
Sér sjálfur um elda-
mennskuna
Ingi Þór þarf að leggja ýmis-
legt á sig til að geta æft fþrótt
sfna svo vel megi vera I höfuð-
borginni. Hann stundar nám f
Ármúlaskólanum, býr einn I
herbergi úíTI bæ og eldar ofan I
sig sjálfur.
„Nei, það er ekkert prins póló
og kók á matseðlinum hjá mér”,
segir hann, þegar viö spyrjum.
„Ég æfi það mikiö að ég verð að
borða hollan og góðan mat, og
þaö geri ég. Hann fæ ég heima á
Akranesi um helgar, og sfðan
senda mamma og pabbi mig
með mat i bæinn og hann mat-
reiði ég sjálfur f miðri viku”.
— Veröur þú aldrei þreyttur
eða leiður á þessu? spyrjum við
hann.
„Jú, jú, það kemur fyrir —
sérstaklega f skammdeginu. Þá
er mér alltaf kalt og með kvef af
þvi að vera að sulla svona mikið
ivatninu. En það eru svo marg-
ar skemmtilegar hliöar á sund-
inu og öliu þvf, sem er i kringum
þaö, að slik þreytu og leiðinda-
köst gleymast eins og skot. Ég
vona bara að mér auðnist að fá
að vera með I öllu þar sem
lengst, þvf að ég á enn svo
margt ólært og ógert I lauginni
áður en ég hengi keppnisskýl-
una mfna upp fyrir fullt og
allt”.... —klp—
Nýjasta stjarnan okkar f sundinu, Ingi Þór Jónsson frá Akranesi æf-
ir alla daga vikunnar og flesta dagana lætur hann sig hafa það að
mæta tvivegis á æfingar. Og árangurinn hefur ekki látiö á sér
standa. Vfsismynd BG.
Tómas
sigraði
Stelán
aftur
Tómas Guðjónsson úr KR varö
sigurvegari i punktamótinu i
borðtennis, sem haldið var hjá
Vikingi í gærkvöldi, en i þvl tóku
þátt meistaraflokksmenn i karla-
flokki.
Þeir Tómas og Stefán Konráös-
son Ur Vikingi, sem léku til Urslita
i Butterflymótinu um siöustu
helgi, léku þrjá leiki i gærkvöldi,
en fyrirkomulagið i mótinu var
þannig, að menn voru úr leik eftir
að hafa tapað tvivegis.
Fyrsti leikur þeirra fór á þann
veg, að Stefán sigraði 21:19, og
14:21 og 23:21 og svo mættust
þeir aftur í undanUrslitunum. Þá
sneri Tómas blaðinu við og
sigraöi 21:19 og 21:9 og stóðu þeir
tveir þvi einir eftir með eitt tap,
aðrir voru úr leik.
I Urslitunum var hart barist, en
svo fór að Tómas tryggöi sér
sigurinn með 21:16 og 21:17
sigrum.
1 stigakeppni Borðtennissam-
bandsins hefur Tómas nú örugga
forustu, er með 96 punkta, Hjálm-
týr Hafsteinsson er með 57,
Stefán Konráðsson 33.
-gk-
Herrera
tekur við
Barcelona
Hinn frægi Helenio Herrera,
sem undanfarin ár hefur verið
starfandi og búsettur á Italiu, tók
I vikunni viö störfum sem aðal-
þjálfari og framkvæmdarstjóri
knattspyrnuliðs Barcelona.
Joaquim Rife, sem hefur verið
aðalþjálfari liðsins undanfarin
ár, og var meðal annars með það,
þegar Barcelona lék við Akranes
hér á Laugardalsvellinum i
haust, sagði starfi sinu lausu um
helgina, en eftir þvi hafa margir
beðið.
Barcelona hefur vegnað mjög
illa undir hans stjórn á þessu
keppnistimabili. Leikmenn hafa
látið f ljós óánægju með störf Rife
i vetur, og upp Ur sauö f sam-
skiptum hans við Austurrikis-
manninn Hans Krankl, sem
kostaöi það. aö Krankl fór heim
aftur. Jdp-.
\
Bómullar
æfinga-
gallar
Blússan með rennilás og hettu
Litir: dökkblátt og grátt
Póstsendum
Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar
kKlopporstíg 44 ‘ Sími 1-17-83
Varö helmsmeistarl á
síðasta mótinu sínul
Austur-Þjóöver jinn Jan
Hoffmann endaöi keppnisferil
sinn i gær sem heimsmeistari i
listhlaupi á skautum á heims-
meistaramótinu, sem nú er haldið
i Dortmund i Vestur-Þýskalandi.
Hann hafði fyrir keppnina til-
kynnt, að þetta yröi siöasta stór
mótið, sen> hann tæki þátt i, og
hann myndi leggja allt i sölurnar
til að sigra þar. Hann náði góðri
forustu strax i tveim fyrstu
æfingunum, og i gærkvöldi rak
hann endahnútinn á allt með stór-
glæsilegri sýningu á „frjálsum
æfingum”.
Ólympiumeistarinn frá Lake
Placid, Robin Cousins, Bretlandi
sýndi einnig i gærkvöldi sinar
bestu hliðar, en náði samt ekki að
koma nálægt Hoffmann að
stigum. Hlaut hann silfurverð-
launin, en Charles Tickner frá
Bandarikjunum bronsið.
Keppnin i listhlaupi kvenna
hófst i gærkvöldi og tók Anett
Pöts frá Austur-Þýskalandi þar
strax gott íorskot. Dagmar Lutz
frá Vestur-Þýskalandi er i 2.
sætinu og öllum á óvart hafnaði
Claudia Kristoficsbinder frá
Austurriki i 3. sæti — er þar
aðeins nokkrum stigum á undan
heimsmeistaranum frá i fyrra,
Lindu Fratianne frá Bandarikj-
unum. -klp-.