Vísir - 31.03.1980, Blaðsíða 5
HUGSAÐU
UMHARIÐ
Djúpnæringakúrareru nauðsynlegirtyrir
hárið, sérstaklegaþaðsemsett hetur verið
permanent í.
Bjóðum einnig tískuklippingar, litanir,
permanent, Henna litanirog úrval at
hársnvrtivörum.
HARSKERINN
Skúlagötu 54, simi 28141
HÁRSNYRTISTOFAN
PAPILLAsL“r r
RAKARASTOFAN "
VÍSIR
Mánudagur 31. mars 1980
Texti: Guö-
mundur
Pétursson
íranir taka
orðsendingu
Höggvlð
skarö í
„Rauðu
her-
deildina”
ttölsku hryöjuverkasamtökin
„Rauöa herdeildin” höföu uppi
ægilegar hótanir i gærkvöldi um
hefndir vegna fjögurra félaga
þeirra, sem lögreglan felldi i
Genúa á föstudagskvöld.
Telur lögreglan sig hafa máö
alveg út Genúa-deild samtak-
anna, og viöbrögö Rauöu her-
deildarinnar benda til þess, aö
samtökin telji sig hafa oröið fyrir
miklu áfalli. — Heita þau þvi aö
myröa tiu lögreglumenn fyrir
hvern hinna föllnu félaga sinna.
Lögreglan haföi fundiö felustaö
hryöjuverkamannanna fjögurra,
2 herbergja ibúö i Genúa, og réö-
ist inn til húsleitar, en fjórmenn-
ingarnir snerust til varnar og
féllu i kúlnahriöinni. Tveir þeirra
eru taldir vera háttsettir félagar
og skipuleggjendur Rauöu her-
deildarinnar.
von á eldgosi í
Bandarlklunum
Eldfjalliö St. Helena i Oregon
(um 80 km frá Portland) tók aö
spúa reyk og ösku fyrir helgi, og
þótti ekki annaö verjandi en flytja
næstu Ibúa á brott þaöan, en
byggö er fremur strjál i nágrcnni
viö eldfjalliö.
AHa siöustu viku gekk á rneö
snörpum jaröskjálftakippum,
sem mæidust 3 til 4.5 stig á
Richterkvaröa.
Pjalliö gaus sföast áriö 1857, en
taliöer, aöþaö gjósi meö hundraö
ára millibili.
Uðsn THÓS
Liöan Tltós Júgóslaviuforseta
hefur veriö viö það sama siöustu
vikurnar. Hann er enn I gjörgæslu
þungt haldinn og batavonir
ætlaöar engar.
Liöan Titós hefur veriö viö þaö
sama siöustu vikurnar.
Tlmahröngln vann
með Hiibner
Sjöunda einvigisskák þeirra
Hubners og Adorjans varö jafn-
tefli, og hefur Hubner þá 4 vinn-
inga en Adorjan 3. — Adorjan
náði að saxa á tveggja vinninga
forskot Hubners meö sigri I bið-
skák, sem þeir frcstuöu.
I sjöundu skákinni haföi
Adorjan svart, en hrifsaöi i byrj-
uninni til sin frumkvæöiö og sýnd-
ist sérfræöingum hann vera á leiö
meö aö jafna stööuna I einviginu.
Sem oft fyrr lenti Adorjan þó i
timahraki, og náöi Hubner aö
rétta stööuna fyrir timamörkin
meö biskup á móti hrók og var
samið jafntefli i 41. leik.
Jesse Owens
ð spitaia
Olympiuhlaupagarpurinn fyrr-
verandi, Jesse Owens (66 ára),
var sagður viö tvisýna heilsu á
Arizonaháskólaspitlanum i Rucs-
on i gær. Hann er sagöur vera
meö lungnakrabba, og liöan hans
þykir hafa fariö hrakandi siöan
hann var lagöur inn 21. mars.
Blökkumaðurinn Jesse Owens
brá fæti fyrir kynþáttafordóma
Hitlers ú Ólympiuleikunum i
Berlin 1936 með þvi aö vinna fjög- |
ur gull fyrír USA.
______________________________s
Carter hefur ekki veriö í miklu dálæti haföur I Iran siöustu mánuöina,
og i skrílslátum á götum Teheran er það næstum fastur liöur, aö ein-
hver trúðurinn bregöi sér i gervi Jimmys, en hinir fá þá útrás haturs
sins meö þvi aö hrakyröa þann grímuklædda.
Stjórnarhermenn leita aö grunsamlegum vinstrimönnum I San
Salvador.
bringu, en siöan fylgdi á eftir
skothriöin, sem tvfstraöi likfylgd-
inni, en ætlaö er, aö um 300 þús-
und manns hafi fylgt hinum ást-
sæla erkibiskup til grafar. — Sér-
hver fátækur eöa bágstaddur i E1
Salvador taldi sig eiga I Romero
biskupi visan verndara.
Stjórnvöld sökuöu vinstriöflin
(CRM) um aö hafa staöiö aö
• helgispjöllunum, og töldu þau, aö
vinstrimenn heföu ætlaö aö ræna
liki biskups. — Samtök herskárra
vinstrimanna (CRM) hafa boriö
þessar sakir af sér.
Vinstrimenn höföu skipulagt
sorgargöngu meöal félaga sinna,
og þaö var strax eftir aö hún kom
til dómkirkjunnar, sem skothriö-
in hófst.
Af fréttum aö dæma virðist
engan hinna erlendu kirkjuhöfö-
ingja, sem viöstaddir voru jarö-
arförina, hafa sakaö i skothrið-
inni.
Carters vei
Leiötogar Irönsku stjórnar-
innar hafu brugðist llklega við
inntaki orösendingar, sem þeir
segja, að Carter Bandarikjafor-
seti hafi gert Khomeini æðsta-
presti.
Bani-Sadr íransforseti sagði
blaðamönnum i gærkvöldi, að
orðsendingin væri skref I þá átt að
leysa deiluna milli USA og írans
og Qotbzadeh, utanrikisráöherra,
sagöi hana uppbyggjandi og til
þess fallna aö auka skilning milli
aöilanna.
íransstjórn birti I gær þaö, sem
hún kallaði upprunalegan
franskan texta orösendingar-
innar, sem svissneski sendiráös-
ritarinnar I Teheran afhenti
iranska utanrikisráöuneytinu
fyrir fimm dögum, en henni var
komiö áleiðis til Khomeini.
Blaðafulltrúi forsetans neitaöi
þvi, aö skrifleg orösending heföi
verið send, en viöurkenndi aö
náðst heföi samband fyrir milli-
göngu svissneska utanrikisráöu-
neytisins.
I tilkynningu irönsku stjórnar-
innar segir, að Carter segist i orö-
sendingunni reiöubúin til þess að
samþykkja skipun nefndar til
þess aö fjalla um spurningar
beggja aöila.eftir aö gislarnir i
bandariska sendiráöinu i Teheran
hafi veriö faldir Iransstjórn I
hendur.
Hieypiu
jarðarför
arki-
biskupsins
upp
Um þrjátiu létu lifiö og á annað
hundrað særðust — sumir lifs-
hlttulega — þegar jarðarför hins
myrta erkibiskups, Oscar Arnulfo
Romero, var hleypt upp með
byssuskothriö i San Salvador I
gær.
Fyrst kvaö viö sprenging, sem
skaut syrgjendunum skelk I
BurðarstoDin ðr
íbúðarpallinum dregin
í land til athugunar
Loftfyllt stál-buröarstoö úr
Alexander Kielland, ibúöarpall-
inum, verður dregin til hafnar I
Stavange- I dag, einskonar
minnisvaröi um mannskæöasta
slys heims viö oliuvinnslu úti á
sjó.
En buröarstoöin veröur ekki
til sýnis almenningi, heldur til
rannsóknar fyrir fjögurra
manna nefnd, sem sett hefur
veriö á laggirnar til þess aö
komast aö raun, hvi buröarstoö-
in bretnaöi undan 10 þúsund
smáíesta pallinum á föstudag-
inn. — Veöur var að visu hvasst,
níu vindstig, en Alexander Kiel-
land og aörir pallar af sömu
gerö hafa staðið af sér verri
veður.
1
i
g^veour. í rortuga
Leit hefur veriö hætt, og þeir,
sem saknað er, hafa veriö taldir
af. Alls munu 123 hafa farist
meö Alexander Kielland, og
hafa aöeins 42 lik fundist. —
Odvar Nordli, forsætisráöherra,
hefur lýst yfir þjóðarsorg.
Norska lögreglan hefur nú
látiö frá sér fara lista yfir þá,
sem taldir eru af, en af þeim 42
likum sem hafa fundist, hefur
ekki tekist að bera kennsl á
nema tiu. Alls voru þetta 94
Norömenn, 24 Bretar, 2 Finnar,
1 V-Þjóöverji, 1 Svii og 1 tslend-
ingur.
Meöal þeirra 89, sem kom
ust lífs af, voru 74 Norömenn, 11
Bretar, 2 Spánverjar, 1 Finni og
1 Portúgali.
A blaöamannafundi i gær fór
Nordli þakkaroröum um björg-
unaraðstoð Norömanna, Breta,
Dana, Vestur-Þjóöverja og Hol-
lendinga viö leitina, og sagöi, aö
allt, sem i mannlegu valdi væri,
hefði veriö reynt til þess aö
bjarga mannslifum.
Eitt af verkalýðsfélögum
Noregs, sem telur innan sinna
vébanda verkamenn i oliu-
vinnslu, hefur óskaö eftir fundi
viö oliuyfirvöld Noregs siöar i
dag til þess aö ræöa kröfur um
strangari öryggisreglur á oliu-
pöllunum. Eins- meiri kröfur
um aukna þjálfun starfsmanna,
björgunaræfingar og betri út-
búnað björgunartækja.