Morgunblaðið - 13.11.2001, Side 8

Morgunblaðið - 13.11.2001, Side 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Jóladúkar - Jólagardinur Ráðstefna Miðstöðvar heilsuverndar barna Foreldrar oft leitandi eftir ráðgjöf FÖSTUDAGINN 16.nóvember næst-komandi heldur Miðstöð heilsuverndar barna haustráðstefnu mið- stöðva heilsuverndar barna á Grand hóteli í Reykjavík. Stendur ráð- stefnan frá klukkan níu til fjögur. Yfirskrift ráðstefn- unnar er „Uppeldi – Agi – Frávik“ og verða haldin nokkur mikilvæg erindi. Katrín Davíðsdóttir barnalæknir er forsvars- maður ráðstefnunnar og ræddi Morgunblaðið við hana á dögunum. Hvað er Miðstöð heilsu- verndar barna? „Miðstöð heilsuverndar barna er á Heilsuverndar- stöð Reykjavíkur, en þar hefur verið starfrækt ung- og smábarnavernd frá 1953. Miðstöð Heilsuverndar barna er ætlað að vera bakhjarl heilsugæslunnar á Íslandi varðandi ung- og smá- barnavernd, m.a. með því að taka þátt í stefnumótun, fylgjast með framþróun og nýjungum, stunda rannsóknir og samræma ung- og smábarnavernd á landinu. Auk hefðbundinnar ungbarnaverndar hefur verið starfandi á miðstöð- inni greiningarteymi frá 1998. Í greiningarteyminu starfa barna- læknar, sálfræðingar, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari og félagsráðgjafi. Greiningarteymið sér um frum- greiningu á þroskavanda barna 0–6 ára, tekur við tilvísunum frá heilsugæslunni á höfuðborgar- svæðinu en er einnig til stuðnings og ráðgjafar heilsugæslunni á landsvísu.“ Hvert er tilefni og efni ráð- stefnunnar? „Foreldrar leita í auknum mæli til heilsugæslunnar vegna erfiðrar hegðunar barna. Heilsugæslan hefur mikinn áhuga á þessu mál- efni, en hefur hingað til ekki verið sérlega vel í stakk búin til að sinna því. Það þarf fleira fagfólk með þekkingu og reynslu á þessu sviði, svo sem sálfræðinga, barnalækna og félagsráðgjafa til að greina vandann, gefa ráð og meðhöndla. Þá er samvinna heilsugæslu við aðra aðila sem vinna með börnum mikilvæg. Leikskóli og heilsu- gæsla þurfa að kynnast betur og vinna meira saman enda er meiri- hluti barna í leikskóla frá þriggja ára aldri fram að grunnskóla- göngu.“ Hvernig standa heilsuverndar- mál barna á Íslandi í dag? „Heilsuverndarmál barna á Ís- landi eru í nokkuð góðum farvegi hjá ung- og smábarnavernd innan heilsugæslunnar. Hins vegar má alltaf gera betur og meðal þess sem mætti sinna betur er fræðsla og ráðgjöf varðandi uppeldi, aga og hegðun og sömuleiðis slysa- varnir barna. Foreldrar eru oft mjög leitandi eftir ráð- gjöf og móttækilegir og það má vafalaust fyrir- byggja margan vand- ann með því að grípa snemma inn í óæski- lega þróun. Það má ekki gleyma því að erfið hegðun er ekki alltaf slæmu uppeldi að kenna því á bak við mörg hegð- unarvandamál liggja þroskatengd vandamál. Því skiptir miklu máli að greina vandann nákvæmlega því meðferðin er mismunandi eftir eðli málsins.“ Það er sumsé mikilvægt að taka snemma á svona vandamálum? „Íslendingar eru frekar óagaðir og þarf ekki annað en að líta á um- ferðarmenningu okkar til að sjá það. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Ef við sjálf erum ekki góð fyrirmynd þá er ekki von á því að börnin okkar hagi sér vel. Því er mikilvægt að styðja vel við bakið á foreldrum og styrkja þau í foreldrahlutverkinu. Það er í lagi að segja nei og meina nei. Og það er of seint að byrja á því þegar barnið er komið á unglingsárin. Foreldrar ungra barna eru yfir- höfuð opnir og móttækilegir fyrir fræðslu. Eftir því sem börnin verða stærri minnkar áhuginn eða tíminn til að sinna þeim. Áherslur breytast. Börn fá ekki að vera börn nema í stuttan tíma, þeim er hent út í heim fullorðinna allt of fljótt. Betra er að byrgja brunn- inn áður en barnið er dottið ofaní.“ Hvernig ætlið þið að vinna úr niðurstöðum ráðstefnunnar? „Á ráðstefnunni verður rætt um hvernig koma megi á meiri og betri samvinnu heilsugæslu og leikskóla og vonumst við til að eft- ir ráðstefnuna gangi það eftir. Greiningarteymi Miðstöðvar heilsuverndar barna er með ákveðna samvinnu við leik- skólana, m.a. í gegnum leikskóla- skrifstofur/skólaskrifstofur og gæti það ferli hugsanlega verið fyrirmynd annarra, en á ráðstefnunni verður komið inn á hvernig þessari samvinnu er háttað.“ Eru að koma ein- hverjar nýjar stefnur eða straumar í þessum málum? „Heilsugæslan í Reykjavík og nágrenni hefur sl. ár unnið að stefnumótun fyrir heilsugæsluna- .Þar kemur fram ósk um að auka forvarnir, ráðgjöf og fræðslu á sviði aga og uppeldis og að efla heilsugæsluna til að geta tekist betur á við hegðunarvandamál barna.“ Katrín Davíðsdóttir  Katrín Davíðsdóttir fæddist í Miðdal í Kjós 8. febrúar 1953. Hún varð stúdent frá MH 1972. Hún lauk læknanámi frá Háskóla Íslands 1979 og sérfræðinámi í barnalækningum í Svíþjóð 1987. Hún hefur starfað sem sérfræð- ingur í barnalækningum við ung- og smábarnavernd hér á landi frá árinu 1991 og frá 1998 í greiningarteymi á Miðstöð heilsuverndar barna á Heilsu- verndarstöðinni í Reykjavík. Katrín er gift Sigurði Inga Geirs- syni byggingarverkfræðingi og eiga þau synina Sigurþór Inga og Davíð Þór. Þarf fleira fagfólk með þekkingu og reynslu Súludansinn á undir högg að sækja hjá borginni þrátt fyrir listrænan stimpil frá hinu háa alþingi. SAMKEPPNISSTOFNUN hefur sent forráðamönnum Apóteksins bréf þar sem óskað er eftir því að fyrirtækið hætti birtingu á auglýs- ingu sem birtist í Morgunblaðinu á fimmtudag um lyfjaverð. Sam- keppnisstofnun telur auglýsinguna brjóta í bága við samkeppnislög, hún sé villandi og ósanngjörn gagn- vart keppinautum á markaðnum og neytendum og skírskotað sé til óviðkomandi mála. Í auglýsingu Apóteksins segir efst með stóru letri: „Apótekið með yfirburðastöðu í lágu lyfjaverði*“ og stjörnumerkingin vísar til smærra læturs undir í verðkönnun Neytendasamtakanna á Akureyri 31. október sl. Er vitnað til þess í auglýsingunni hve oft Apótekið var með lægsta verð í samanburði við Lyf & heilsu. Eftir að hafa skoðað verðkönn- unina fær Samkeppnisstofnun ekki séð að hægt sé að fullyrða að Apó- tekið hafi yfirburðastöðu í lágu lyfjaverði út frá könnun sem ein- göngu nær til fjögurra apóteka á Akureyri. Þá skrifi undir auglýs- inguna þrjú apótek á höfuðborgar- svæðinu og könnunin tók ekki til. „Svo ekki þurfi að koma til frek- ari aðgerða samkeppnisyfirvalda í máli þessu beinir Samkeppnisstofn- un þeim tilmælum til Apóteksins að hætta nú þegar birtingu auglýsing- arinnar,“ segir m.a. í bréfi Önnu Birnu Halldórsdóttur, forstöðu- manns markaðsmálasviðs Sam- keppnisstofnunar, til Apóteksins. Bréfið var dagsett á fimmtudag og hefur Apótekið vikufrest til að koma að athugasemdum eða skýr- ingum. Apótekið áminnt vegna lyfja- auglýsingar ÖKUMAÐUR bifreiðar fipaðist og ók á ljósastaur þegar snjóbolta var hent í bíl hans þegar hann ók um Engihjalla í Kópavogi í gær. Öku- maður slapp ómeiddur en bíllinn og staurinn skemmdust nokkuð. Að sögn lögreglunnar í Kópa- vogi hafði sex ára telpa hent bolt- anum í bíllinn. Haft var tal af telp- unni og forráðamönnum hennar. Lögreglan segir það hættulegan leik að henda snjóboltum í bíla á ferð enda bregði ökumönnum jafn- an mikið þegar boltarnir lenda á bílunum. Eins og dæmin sanna geti þeir hæglega fipast við akst- urinn. Í gærmorgun féll maður í hálku fyrir utan vélaverkstæði við Dal- veg í Kópavogi. Talið var að mað- urinn hefði fótbrotnað og var hon- um ekið á slysadeild. Fipaðist þegar snjó- bolta var hent í bílinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.