Morgunblaðið - 13.11.2001, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.11.2001, Blaðsíða 29
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 29 Þakdúkar og vatnsvarnarlög Þakdúkar og vatnsvarnarlög á:  þök  þaksvalir  steyptar  rennur  ný og gömul hús Góð þjónusta og fagleg ábyrgð undanfarin 20 ár - unnið við öll veðurskilyrði - sjá heimasíðu www.fagtun.is FAGTÚN Brautarholti 8 • sími 562 1370 BANDARÍKJASTJÓRN kveðst efast um að Osama bin Laden ráði yfir kjarnavopnum en segir að hann sé enn að reyna að komast yfir slík gereyðingarvopn og myndi ekki hika við að beita þeim. Bin Laden sagði í viðtali við pak- istanskan ritstjóra á miðvikudag að samtök hans, al-Qaeda, ættu efna- og kjarnavopn og myndu nota þau ef Bandaríkjamenn beittu slíkum vopn- um í Afganistan. Hann kvaðst hins vegar ekki vera viðriðinn miltis- brandsárásirnar í Bandaríkjunum. „Bandaríkjamenn ná mér ekki lif- andi,“ sagði bin Laden í viðtalinu sem var birt á sunnudag. „Hægt er að tortíma mér en ekki köllun minni.“ Bin Laden sagði liðsmenn al- Qaeda vera tilbúna að „berjast til síðasta blóðdropa“ með talibönum og leiðtoga þeirra, múllanum Mohamm- ed Omar. „Ég veit ekkert um miltisbrand,“ sagði bin Laden og hló þegar hann var spurður hvort hann hefði staðið fyrir sýklaárásunum í Bandaríkjun- um. Bandarískir embættismenn sögðu á sunnudag að líklegt væri að bin Laden réði yfir efna- og sýklavopn- um. „Ég tel ólíklegt að hann eigi kjarnavopn,“ sagði Donald Rums- feld, varnarmálaráðherra Banda- ríkjanna. Condoleezza Rice, þjóðaröryggis- ráðgjafi Bandaríkjaforseta, sagði þó að bandaríska stjórnin tæki fullyrð- ingu bin Ladens alvarlega. „Við höf- um engar trúverðugar vísbendingar núna um að hann ráði yfir kjarna- vopnum en við tökum enga áhættu,“ sagði hún. Pervez Musharraf, forseti Pakistans, kvaðst einnig telja að bin Laden hefði ekki komist yfir kjarna- vopn. Hafði samband við kjarnorku- vísindamenn í Pakistan The New York Times hafði eftir bandarískum embættismönnum á sunnudag að al-Qaeda kynni að hafa framleitt blásýru á rannsóknarstofu í Derunta, nálægt afgönsku borginni Jalalabad. Al-Qaeda hefur einnig notað áburðarverksmiðju í borginni Mazar-e-Sharif til að þróa efna- og sýklavopn, að sögn heimildarmanna blaðsins. Dagblaðið USA Today sagði í gær að al-Qaeda hefði haft samband við að minnsta kosti tíu pakistanska kjarnorkuvísindamenn á síðustu tveimur árum og óskað eftir aðstoð þeirra við að framleiða kjarnavopn í Afganistan. Nokkrir vísindamann- anna féllust á að aðstoða al-Qaeda ef stjórnvöld í Pakistan samþykktu samstarfið. Aðeins einn vísindamannanna fór til Afganistans, að sögn heimildar- manna USA Today í leyniþjónustu Pakistans. Tveir fyrrverandi vísindamenn kjarnorkustofnunar Pakistans eru sagðir hafa viðurkennt að hafa hitt Osama bin Laden að minnsta kosti tvisvar í Afganistan eftir að þeir komu á fót hjálparstofnun í landinu fyrir tveimur árum. Þeir hafa báðir verið handteknir og yfirheyrðir um starfsemi stofnunarinnar og tengsl þeirra við talibana. Hvorugur þeirra hefur verið ákærður og pakistanskir embættismenn segja að ekkert hafi komið fram sem bendi til þess að mennirnir hafi látið al-Qaeda í té efni í kjarnavopn eða upplýsingar um framleiðslu þeirra. Játaði að hafa staðið fyrir hryðjuverkunum The Sunday Telegraph skýrði frá því um helgina að bin Laden hefði viðurkennt í fyrsta sinn að al-Qaeda hefði staðið fyrir hryðjuverkunum í Bandaríkjunum 11. september. Blaðið segir bin Laden hafa játað þetta í myndbandsupptöku, sem dreift hefur verið meðal stuðnings- manna hans síðasta hálfa mánuðinn. „Jú, við drápum saklausa borgara þeirra,“ sagði bin Laden. Hann bætti við að turnar World Trade Center í New York hefðu verið „lögmæt skot- mörk“ og flugræningjarnir nítján, sem gerðu árásirnar, hefðu notið „blessunar Allah“. Bin Laden sagði að drápið á fólk- inu í World Trade Center væri rétt- lætanlegt vegna þess að það hefði starfað fyrir „bandaríska kerfið“ og gæti því ekki talist „óbreyttir borg- arar“. Bin Laden hafði einnig í hótunum við Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og hótaði hryðjuverkum í löndum eins og Ástralíu, Þýskalandi og Japan ef þau tækju þátt í árásum á Afganistan. Talið ólíklegt að bin Laden eigi kjarnavopn Reuters Sádi-arabíski hryðjuverkaforinginn Osama bin Laden ásamt pakistanska ritstjóranum Hamid Mir. Kveðst ekki tengjast sýkla- árásunum í Bandaríkjunum Íslamabad. AP, AFP, The Washington Post. GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti sagði í ræðu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York á laugardagskvöld að allar þjóðir heims væru hugsanlegt skotmark hryðjuverkamanna og ættu því að taka þátt í baráttu Bandaríkja- manna gegn hryðjuverkum. Í fyrsta ávarpi sínu á allsherj- arþinginu sagði Bush að ekkert ríki gæti verið hlutlaust á tímum sem þessum, þegar talið væri að hryðju- verkamenn reyndu að komast yfir gereyðingarvopn. Forsetinn lagði áherslu á að þeir sem skytu skjóls- húsi yfir hryðjuverkamenn væru samsekir og að þeim yrði refsað. Bush sagði að uppræta þyrfti fjármögnunarnet hryðjuverka- manna, neita þeim um hæli, loka þjálfunarbúðum þeirra og hafa hendur í hári leiðtoga hryðjuverka- samtaka. „Þetta er afar brýnt og öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna ber skylda til að leggja okkur lið.“ Bush og Musharraf ræðast við Á laugardag átti Bush einnig fund í New York með Pervez Mus- harraf, forseta Pakistans, sem er einn mikilvægasti bandamaður Bandaríkjanna í hernaðinum gegn Afganistan. Á fréttamannafundi eftir viðræð- ur þeirra lauk Bush lofsorði á Mus- harraf og tilkynnti að Bandaríkja- menn hygðust veita Pakistönum einn milljarð dollara í efnhagsað- stoð. Musharraf sagði að þeir Bush hefðu á fundi sínum rætt þá erf- iðleika sem steðja að pakistönskum stjórnvöldum vegna hernaðarað- gerðanna, og vísaði til þess að talib- anastjórnin í Afganistan á marga stuðningsmenn meðal Pakistana. George W. Bush flytur fyrsta ávarp sitt á Allsherjarþingi SÞ Hvatti til samstöðu gegn hryðjuverkum New York, SÞ. AP. MORTÉL Eins og notað er í sjónvarpsþættinum kokkur án klæða Verð frá kr. 4.500 Klapparstíg 44 sími: 562 3614
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.