Morgunblaðið - 13.11.2001, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 13.11.2001, Blaðsíða 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 45 þar sem þeir voru Franch og Ottó bræður hans ásamt Huldu systur þeirra, öll við nám. Meðan á dvöl hans þar stóð æfði hann og keppti í grísk/rómverskri glímu og boxi. Bjó Georg alla tíð að þessu, var mjög hraustur og varla nokkurn tíma mis- dægurt. Eftir að Georg kom frá Dan- mörku árið 1945 með Jytte, förunaut sinn til framtíðar, settust þau að í Hveragerði þar sem hann með mikl- um myndarskap bakaði og seldi sína framleiðslu í bakaríinu sem hann stofnsetti og rak þar til þau fluttu til Reykjavíkur. Landsfræg voru hin gómsætu og hollu „hverabrauð“ sem Georg bakaði í hver á baklóð bak- arísins. Georg gat aldrei iðjulaus verið. Hann starfaði að sveitarmál- um, var einn af stofnendum sjálfs- stæðisfélagsins Ingólfs, starfaði fyr- ir Félag íslenskra bakarameistara og þegar til Reykjavíkur kom fór hann til vinnu í Myllunni þar sem hann starfaði til 78 ára aldurs. Georg var mikið fyrir útiveru, stundaði göngur og Sundlaugarnar í Laugar- dal af miklu kappi svo lengi sem hann gat. Hann rétti öllum þeim hjálparhönd sem þess þörfnuðust og mörgum dögum eyddu þeir saman við ýmis störf á Klapparstígnum hann og Ottó bróðir hans. Ég kynntist Georg betur á seinni árum er hann fluttist í bæinn. Hann kom oft við í verslun okkar feðganna og þá gjarnan með Ottó. Var ævin- lega glens og gaman í heimsóknum þessum, oft lengi setið, spjallað og gjarnan rifjuð upp gömul prakkara- strik frá því að þeir bræðurnir, „Mikkastrákarnir“, voru að alast upp á Sauðárkróki. Georg var mjög úrræðagóður sem kom honum vel alla tíð og ekki síst þegar hann sem strákpjakkur gerði eitthvert prakk- arastrikið, eins og frægt var þegar þolinmæði forfallakennarans brast og hann dró Georg út á hárinu. Það gerðist ekki aftur, Georg kom snoð- klipptur í skólann næsta dag. Georg hafði afskaplega létta lund, var ætíð kátur og glaður, stutt í húm- orinn og alltaf til í græskulaust gam- an. Hann mátti ekkert aumt sjá, í hans sterka líkama sló réttlátt og gott hjarta. Fjölskylda Georgs er mjög sam- hent og var honum ákaflega annt um hana. Er þeirra eftirsjá og söknuður mikill nú þegar þau sjá á eftir góðum fjölskylduföður. Vil ég og fjölskylda mín votta þeim okkar innilegustu samúð. Ég kveð frænda minn Georg með söknuði og virðingu. Frank Ú. Michelsen. Ég sé hann fyrir mér í fjarlægð koma gangandi inn tröðina til mín. Teinréttan og virðulegan í fasi og í senn léttan á fæti og unglegan. Þeg- ar nær dregur koma sterkir andlits- drættir hans í ljós. Svipfagurt andlit, greindarlegt enni og glettnisleg augu skynugs manns. Hann bauð sannarlega af sér góðan þokka, var aufúsugestur og heimsóknir hans til- hlökkunarefni allra. Jafnt börn sem fullorðnir hændust að honum. Sam- vera með Georg varð veisla þar sem hann var hrókur alls fagnaðar. Af mikilli frásagnarlist sagði hann okk- ur brandara, sögur af samferðafólki, uppvexti á Sauðárkróki, bakaranámi á Bræðraborgarstígnum, stríðsárun- um í Kaupmannahöfn, kynnum af Jytte og ástríku hjónabandi, lífinu í Hveragerði, dætrunum þremur, pólitískum samherjum sem and- stæðingum og ýmsum kynlegum kvistum og skjólstæðingum og svo má lengi telja. Skemmtisögurnar voru margar og sumar sagðar oft- sinnis en vöktu ætíð sama fögnuðinn. Gerorg var fyrst og síðast fé- lagsvera. Ég sagði drengjunum mín- um að hann væri Sókrates holdi klæddur. Honum var ekkert óvið- komandi, en hann var ekki afskipta- samur heldur bar hann fyrst og fremst umhyggju fyrir samferða- mönnum sínum, ekki síst fjölskyldu sinni. Í Álftarhólslaut í Grímsnesi, þar sem hann hann átti sér athvarf í sumarbústað fjöldskyldunnar frá því um 1970, blandaði hann geði við alla og fylgdist af uppörvandi áhuga með fólki og framkvæmdum. Hann rækt- aði vini sína og var trygglyndur. Mannlegt samneyti var hans lífs- elexír og við vinir hans sem aðrir nutum góðs af. Í Hveragerði bjó Georg á fjórða áratug og þar var sama upp á tening- unum. Sjálfstæðisflokkurinn og ekki síst bæjarfélagið og kirkjan nutu krafta hans og félagshyggju um ára- bil. Persónutöfrar hans og skaphöfn löðuðu að honum fólk og flokknum atkvæði. Þar atti hann kappi við menn, sem voru honum hugstæðir, svo sem Gunnar Benediktsson prest. Flokkurinn hans náði meirihluta í bæjarfélaginu og ég hygg að þar hafi Georg átt drjúgan hlut að máli. Eitt sinn þegar mikið reið á tók hann bar- áttusætið og hlaut kosningu með ¾ hlutum úr atkvæði. Þær sögur gengu að síðustu viku fyrir kosningar hefðu bæjarbúar fengið ókeypis kringlur hjá bakaranum Georg, svonefndar X-D kringlur, þannig mótaðar. Spurður um tiltækið sagði hann kímileitur að bæjarbúum hefði líkað bakkelsið sitt. Hverarúgbrauðið vakti ekki síður lukku og er það enn bakað að hætti Georgs. Síðustu rúm tuttugu ár ævi sinnar bjó Georg í Reykjavík og var samur við sig. Minnisstæð er umhyggja hans fyrir gömlum einstæðingum sem hann hafði kynnst á lífsleiðinni sem margir hverjir bjuggu flestum gleymdir á elliheimilum. Hann leit reglulega til með þeim og létti þeim ævikvöldið. Af sama vinarþeli og ást sinnti hann systkinum sínum. Og ekki sat hann auðum höndum. Hon- um var iðjusemi í blóð borin. Vanur að vakna snemma til starfa, þekkti ekki annað og Myllan-Brauð, hf., varð starfsvettvangur hans til 78 ára aldurs og þar var hann metinn að verðleikum sem fyrr á lífsleiðinni. Georg Michelsen er kvaddur með djúpum söknuði og virðingu af mér og fjölskyldu minni. Andlátsfregnin var sár en fyrir mér lifir hann áfram í tærri og fölskvalausri minningu. Í börnum Georgs og barnabörnum býr okkur til huggunar ríkuleg arf- leifð hans. Jytte, sem mest hefur misst, og fjölskyldu votta ég einlæga samúð. Atli Gíslason. Látinn er mikill heiðursmaður, Georg Michelsen. Ætli það hafi ekki verið árið 1983 eða 1984 sem ég kynntist Georg Michelsen. Var ég þá, 12–13 ára guttinn, að stíga mín fyrstu skref í vinnu. Georg hafði þá unnið nokkur ár hjá fyrirtæki fjölskyldu minnar, Brauði hf. Hafði afi minn, Kristinn, ráðið hann þangað.Georg var alla tíð hvers manns hugljúfi og tók vel á móti nýjum samstarfsmönnum. Um það geta allir þeir vitnað sem honum kynntust. Ef honum fannst einhver á vinnustaðnum hljóta óréttláta með- ferð tók hann viðkomandi aðila undir sinn verndarvæng, stóð með honum og tók hans málstað. Þannig maður var Georg. Georg var alltaf tilbúinn að kenna, hjálpa og gefa ráð. Kom sér oft vel hans áralanga reynsla í bakstursfaginu. Manna best þekkti hann leyndardóma hunangskökunn- ar. Þar sannarlega hafði hann yfir- burði. Uppskriftir þurfti hann lítt að brúka við hunangskökugerðina. Kunni hana utanbókar og hafði næma tilfinningu fyrir viðfangsefn- inu. Enda brást það ekki að þegar hann kom nálægt því að baka eitt- hvað þá var það vandað. Líklega eru fáir á Íslandi sem eiga sér yfir 60 ára samfelldan feril í bakstri. Það er erf- itt að ímynda sér að slíkt verði end- urtekið. Bakstur var eitthvað sem honum líkaði og átti greinilega vel við hann. Það er fátítt í dag. Aldrei minnist ég þess að hafa séð Georg í vondu skapi eða óhressan á nokkurn hátt. Þá sjaldan að hann skipti skapi hefur það líklega verið í varnarskyni fyrir einhvern nýliðann. Einnig hafði Georg gaman að því að segja sögur og fara með ljóð. Ljóðin að vísu ekki alltaf úr ljóðabókum, meira svona gamanvísur sem snúið var uppá hina og þessa samstarfs- menn. Aðallega græskulaust grín og eitthvað sem allir höfðu gaman af. Stundum sagði hann okkur sögur frá fyrri tíð. Sögur frá Kaupmannahafn- arárunum. Georg hætti ekki vinnu fyrr en kominn var vel á áttræðisaldur. Maður skynjaði þegar hann kom að heimsækja okkur í bakaríið, eftir að hann hætti störfum, að hann saknaði bakstursins. Talaði oft um að koma aftur. Það er mér sannur heiður að hafa fengið að kynnast Georg Michelsen og hafa fengið að njóta félagsskapar hans. Ég kveð Georg með söknuð í hjarta en ég veit að sé bakarí á himn- um, þá er hann þar. Eiginkonu hans, dætrum og afkomendum votta ég mína dýpstu samúð. Minning um góðan mann mun ætíð lifa með mér. Steinþór Jónsson. Látinn er einn okkar merkasti bakarameistari til margra ára, Georg Michelsen. Heyrði ég fyrst talað um hann er ég var ungur drengur í bakaranámi hjá föður mín- um. Var ávallt talað um hann sem mikinn fagmann og sérfræðing í dönskum vínarbrauðum. Svo bar hann líka danskt nafn. Síðan var það árið 1979 að fyrirtæki fjölskyldu minnar varð fyrir því láni að fá Georg til starfa. Þá kynntist ég Georg og komst að því að hann var ekki einungis frábær fagmaður held- ur líka mikill mannvinur. Var hann óþreytandi við að veita ungum bak- arnemum tilsögn. Hann sagði okkur frá því við hvernig aðstæður bakarar unnu, þegar hann hóf bakstursnám á Sauðárkróki fyrir stríð. Einnig var fróðlegt að heyra um þær aðstæður er bakarar þurftu að vinna við í Kaupmannahöfn á stríðsárunum. Svo fengu ófáar sögur að fljóta með af skemmtilegum mönnum sem hann hafði kynnst á lífsleiðinni. Georg var bakari fram í fingur- góma og gott var að hafa hann sér við hlið ef upp komu vandamál í framleiðslunni. Þá setti hann sig strax inn í hlutina og kom gjarnan með lausnir. Ef vandamálið var snú- ið þá las hann sér til í fjölmörgum fagbókum er hann hafði safnað að sér í gegnum tíðina. Mætti svo oftar en ekki daginn eftir með lausn á vandamálinu. Georg hafði þann ein- staka eiginleika að vera ungur alla sína ævi. Var alltaf fullur áhuga á öllu því er hann tók sér fyrir hendur. Oft sagði hann við mig að við værum heppnir að fá að starfa í þessu skemmtilega fagi. Við hjá Myllunni eigum eftir að sakna hans. Um leið og við vottum Jytte og allri fjölskyldunni okkar innilegustu samúð, viljum við þakka fyrir að hafa fengið að kynnast Georg Michelsen. Að hafa slíkan mann í starfi voru forréttindi og mik- il ánægja. Jón Albert Kristinsson.                A / / =     $ ?    "    ,    9   %& %B %  ,,- * +               9 2 = (    16 $3 5               2          &  %& & -9    +&$ %&  5", 9   %& 5",5" 9    *.  %& = *9    . ,  %& ,- 3   %     %    '   #      "    "      /@(/  - 2     ) 6   $= B1  - 4    %   +      #)(      #       ( %  $-(* %&  % %&  %   $ %6  - %  & # C %&      ,,- 5   9 9   56 $ ;  "#$      /    "  -      )     0       6    ..     %9      9 -   $   5+A -. : .22 : * 8  "#$     "         #   )( #(  0   "    ,    0$  #" + )     ) %&- 7     %      '      #'#   (         ( "         $  ?@  =? //@ / .22/  %3D  "#$ - 4    %   +        "                *(* %& 6   E  6    $ ) %&-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.