Morgunblaðið - 13.11.2001, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 13.11.2001, Blaðsíða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. MÉR er það óskiljanlegt hvernig er komið fyrir réttarkerfi Íslendinga. En þar sem ég ein og sér get litlu breytt í þeim efnum, vil ég af veikum mætti þó tjá mig um það sem mér helst mislíkar. Mér virðist sem efnahagsbrot séu þau verstu afbrot sem framin eru hér á landi, og er ég á engan hátt að sýta það að þeir sem fremja þau svari fyrir misgjörðirnar. En ef þau eru borin saman við kynferðisglæpi, þá má segja að þau síðarnefndu séu að mati réttarkefisins hálfgerð prakkarastrik, sem sett eru undir sama hatt og þeir sem keyri á of miklum hraða, oft á tíðum eru brota- menn búnir að leggja líf fórnar- lambsins algerlega í rúst og þeirra nánustu einnig. Ég er svo heppin að börnin mín þrjú hafa ekki orðið fyrir þeim ófögnuði að verða fórnarlömb kyn- ferðisafbrota manna. En mér er spurn, hvernig stendur á því að fólk sem fremur efnahags- brot, fíkniefnabrot eða morð fá birt- ar myndir af sér í blöðunum, en ein- ungis einn brotamaður (mér vitanlega) sem hefur framið fjölda kynferðisafbrota gagnvart börnum hefur fengið birta mynd af sér í fjöl- miðlum og var það vel, og ég fagnaði því á sínum tíma að loks gætu for- eldrar og börn þessa lands verið bet- ur á varðbergi gagnvart slíkum mönnum. Eftir að myndin birtist af Stein- grími Njálssyni á sínum tíma kom það í veg fyrir að hann kæmi áætlun sinni í verk með blaðburðardreng, því árvökul nágrannakona hafði séð mynd af kauða og gat gert lögregl- unni aðvart áður en stórslys hlaust af. Og fyrir vikið er líka sem Stein- grímur Njálsson sé eini kynferðisaf- brotamaður Íslands, allir þekkja hann. En eins og við vitum er það víðs fjarri, því miður, þeir eru svo miklu fleiri. Oft á tíðum sleppa þessir menn sem dæmdir eru fyrir kynferðisaf- brot gagnvart börnum eftir nokk- urra mánaða afplánun og geta haldið áfram iðju sinni óáreittir. Foreldrar brýna fyrir börnum sín- um að forðast ókunnuga en oft er það ekki nóg. Og oftast koma þessir menn vel fyrir og eru einstaklega lagnir við börn. Því vil ég, kæru fjölmiðlar, beina því til ykkar að birta myndir af þess- um mönnum, með því getum við best hegnt þessum mannleysum sem barnaníðingar eru. ÞÓRDÍS ÓLADÓTTIR, Keilufelli 25, Reykjavík. Birtum myndir af kynferðis- glæpamönnum Frá Þórdísi Óladóttur: ÓGNARÁSTAND hefur nú skapast vegna hefndarárásanna á Bandarík- in 11. september sl. Nauðsynlegt er því að draga fram feril þess hættu- lega ástands sem nú er upp komið og orsök þess. Bandaríkin hafa getað og fengið að leika lausum hala með öll sín voða- og hryðjuverk óáreitt. Má þar nefna og minna lítillega á stríð eins og t.d. í Víetnam, þar sem þeir vörpuðu eiturefnum yfir skóga og sprengjum yfir byggðir. Þar deyddu þeir fólk svo milljónum skipti. Auk þessa hafa þeir verið með loftárásir á Írak árum saman og eru búnir að valda miklum hörmungum þar. Auk alls þessa hafa þeir haldið uppi við- skiptabanni á fjölda landa og valdið þar miklum hörmungum sem bitnað hafa á börnum og þeim sem minna máttu sín. Yfir öllu þessu er þagað þunnu hljóði og látið sem ekkert sé. Allir vita nú hvernig ástandið er og hefur verið í Ísrael og Palestínu og rétt áður en þetta gerðist í Banda- ríkjunum höfðu Ísraelsmenn farið með stórvirkar vélar og skriðdreka og rutt burtu híbýlum Palsetínu- manna og rekið fólk út í auðnina. Eftir þetta blasti við að eitthvað mik- ið myndi gerast. Þótt miklar erjur hafi verið búnar að vera svo árum skiptir, þá var þetta kornið sem fyllti mælinn og kallaði fram mikinn hefndarhug. Ekki kemur þetta mál- inu við sem gerðist í Bandaríkjunum, hugsar fólk. Jú, því vitað er að Bandaríkin hafa verið aðalbakhjarl Ísraelsmanna og þeir hafa stutt þá leynt og ljóst. Þaðan hafa þeir fengið fjármagn og vopn. Þegar árásin varð í Bandaríkjun- um 11. september ruku menn upp í ofsareiði. Þar á meðal ráðamenn og æðstu prestar hér á landi. Þeir glöddust svo yfir þeim voðaverkum sem þeir létu bitna í reiði á saklausu fólki í Afganistan. Það er fólk sem mátti síst við því. Bandaríkjamenn ætluðu að koma upp eldflaugavarn- arkerfi auk sinna herstöðva vítt og breitt og auka þar með á veldi sitt. Að gera trúna á þá öllu æðri. Nú hafa þeir haldið uppi sprengjukasti á Afg- anistan með einhverri fullkomnustu tækni á því sviði með aukinni eyði- leggingu og hörmungum meðal fólks. Allt þetta er gert í þágu frið- arins að sögn þeirra og lætur fólk sér það vel líka og ekki síst þeir sem telja sig kristna. Fólk er nú óttasleg- ið vegna þess ástands sem ríkir. HILMAR SIGURÐSSON, Boðaslóð 21, Vestmannaeyjum. Aðeins um ástand heimsmála Frá Hilmari Sigurðssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.