Morgunblaðið - 13.11.2001, Side 14

Morgunblaðið - 13.11.2001, Side 14
FRÉTTIR 14 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIGGJA sólarhringa allsherjar- verkfall sjúkraliða hjá Sjúkraliða- félagi Íslands, sem hófst á miðnætti, aðfaranótt mánudags, nær til um 1.200 sjúkraliða sem starfa hjá rík- isstofnunum, sjálfseignarstofnunum og sveitarfélögum víða um land. Verkfallið nær þó ekki til tveggja sjúkraliða sem starfa hjá Styrktar- félagi vangefinna enda skrifuðu þeir undir skammtímasamning við for- svarsmenn félagsins fyrir helgi. Takist ekki að semja um nýjan kjarasamning við sjúkraliða á næstu tólf dögum skellur annað þriggja daga allsherjarverkfall sjúkraliða á í lok þessa mánaðar og það þriðja um miðjan desember nái deilendur ekki saman fyrir þann tíma. Verkfallið hefur áhrif víða um land en kemur þó hvað verst niður á starfsemi Land- spítala – háskólasjúkrahúss þar sem loka hefur þurft átta deildum á skurð- lækningasviði, lyflækningasviði, barnasviði, öldrunarsviði og geðsviði. Þá hafa nánast allir þeir 57 sjúkra- liðar sem starfa hjá Félagsþjónust- unni í Reykjavík lagt niður störf, að sögn Láru Björnsdóttur félagsmála- stjóra, svo annað dæmi sé tekið af áhrifum verkfallsins. Er Félagsþjón- ustan ósátt við að ekki hafi náðst sam- komulag um svokallaða öryggislista við Sjúkraliðafélag Íslands þannig að hægt sé að sinna lágmarksþjónustu. Að sögn Kristínar Á. Guðmunds- dóttur, formanns Sjúkraliðafélags Ís- lands, hefur mikill meirihluti þeirra 1.200 sjúkraliða sem verkfallið nær til, lagt niður störf en undanþágu- nefnd félagsins veitir sjúkraliðum undanþágur frá verkfallinu frá vakt til vaktar þannig að hægt sé að sinna lágmarksþjónustu á stofnununum. Auk þess er í gildi svokallaður örygg- islisti hjá Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi sem samþykktur hefur verið af stjórnendum sjúkrahússins annars vegar og forsvarsmönnum Sjúkraliðafélagisins hins vegar en vegna hans leggja ekki allir sjúkralið- ar niður störf hjá sjúkrahúsinu. Auk þess er í gildi öryggislisti hjá öldr- unarstofnuninni Garðvangi í Garði. Hjá Landspítala – háskólasjúkra- húsi starfa, að sögn Önnu Stefáns- dóttur hjúkrunarframkvæmdastjóra, samtals um 410 sjúkraliðar. Af þeim leggja um 140 til 160 sjúkraliðar nið- ur störf í verkfallinu. Að auki hafa um það bil 130 sjúkraliðar hjá Landspít- alanum – háskólasjúkrahúsi sagt upp störfum og hætt hjá sjúkrahúsinu á síðustu mánuðum vegna óánægju með launakjör og hafa þær uppsagnir eins og gefur að skilja meiri áhrif á starfsemi sjúkrahússins til lengri tíma en verkfallsaðgerðirnar. „Ein þessara deilda sem við höfum þurft að loka hefur verið lokuð frá fyrsta október sl. vegna uppsagna sjúkra- liða en það er lýtalækningadeild,“ segir Anna Stefánsdóttir í samtali við Morgunblaðið. „Auk lokunar deilda hefur starf- semi á öðrum deildum verið mun minni en ella og mætti í því sambandi nefna starfsemi á almennum skurð- deildum. Þar sinnum við bara um 17 til 20 aðgerðum á dag vegna verk- fallsins en að jafn- aði fara þar fram um sextíu aðgerðir á dag.“ Að sögn Önnu lengjast því biðlistar eftir að- gerðum hjá Land- spítalanum – há- skólasjúkrahúsi að sama skapi eftir því sem færri aðgerðir eru framkvæmdar. Ágreiningur um öryggislista Samninganefnd sjúkraliða fundaði með samninganefnd ríkisins í húsa- kynnum Ríkissáttasemjara á sunnu- dag en þeim fundi var frestað síðla sunnudags þar til í gær. Þá áttu sjúkraliðar óformlegan fund með fulltrúum nokkurra sjálfseignar- stofnana í gærmorgun en auk þess er fyrirhugaður fundur með launanefnd sveitarfélaganna í dag. Þrátt fyrir þessa fundi hafa deilendur enn ekki náð saman og kvaðst Kristín Á. Guð- mundsdóttir, formaður Sjúkraliða- félags Íslands, hvorki vera bjartsýn né svartsýn þegar Morgunblaðið hafði samband við hana seinnipartinn í gær. Kristín segir í samtali við Morg- unblaðið að viðsemjendur sjúkraliða víða um land séu samtals um áttatíu talsins, en þó hafa einstakar sjálfs- eignarstofnanir og sveitarfélög kom- ið sér saman um sameiginlegar samn- inganefndir. „Til að mynda hafa nokkrar sjálfseignarstofnanir komið sér saman um eina svokallaða samn- inganefnd sjálfseignarstofnana. Og allnokkur sveitarfélög hafa samein- ast um launanefnd sveitarfélaganna.“ Einungis hefur náðst samkomulag um svokallaða öryggislista milli Sjúkraliðafélags Íslands og Land- spítala – háskólasjúkrahúss og Garðvangs í Garði, eins og áður var vikið að, og því hafa aðrar heilbrigð- isstofnanir þurft að reiða sig á sam- þykkt undanþágulista frá vakt til vaktar á meðan á allsherjarverkfall- inu stendur. Lára Björnsdóttir. félagsmála- stjóri hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík, kveðst þó ósátt við að ekki hafi náðst samkomulag um öryggis- lista milli Fé- lagsþjónustunn- ar og Sjúkraliða- félagsins. Telur hún þvert á það sem forsvars- menn Sjúkra- liðafélagins telja að um sex ára gamlir öryggis- listar sjúkraliða séu enn í gildi. Samkvæmt þeim eigi um fimmtán sjúkra- liðar hjá dvalar- og hjúkrunar- heimilunum Droplaugarstöðum, Seljahlíð og Dal- braut, að starfa í verkfalli. „Við höf- um því skrifað þeim sjúkraliðum sem starfa hjá þessum stofnunum bréf þar sem við áréttum þá skoðun okkar að öryggislistarnir séu enn í gildi.“ Kristín Á. Guðmundsdóttir kveðst hins vegar ekki sátt við þessar bréfa- sendingar og segir að Félagsþjónust- an eigi að semja beint við Sjúkraliða- félagið en ekki einstaka félagsmenn. Reynt að sinna því nauðsynlegasta Nánast allir þeir 57 sjúkraliðar sem starfa hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík hafa, að sögn Láru, lagt niður störf í verkfallinu en það þýðir m.a. að ekki hefur verið hægt að sinna þjónustu á dvalar- og hjúkrun- arheimilum borgarinnar; Droplaug- arstöðum, Seljahlíð og Dalbraut, sem skyldi. „Verkfall sjúkraliða hjá Fé- lagsþjónunni kemur því hvað verst niður á þessum þremur stöðum,“ seg- ir Lára í samtali við Morgunblaðið. „Þessir staðir eru heimili fólksins; það er því ekki um það að ræða að loka einu eða neinu eða senda fólk heim,“ segir hún ennfremur. „Ástandið er því bagalegt. En við reynum að sinna brýnustu þörfum og koma í veg fyrir að neyðarástand skapist.“ Morgunblaðið hafði samband við Maríu Gísladóttur, forstöðumann Seljahlíðar, í gær og sagði hún eins og Lára að draga þyrfti úr þjónustu við íbúana á meðan á verkfalli sjúkralið- anna stæði. „Við reynum að sinna því nauðsynlegasta en sleppum því t.d. að baða vistmenn eins mikið,“ segir hún. Sömu sögu er að segja af Drop- laugarstöðum og Dalbraut. Morgunblaðið hafði einnig sam- band við nokkrar heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni og hafði verkfall sjúkraliða áhrif á þær flestar á einn eða annan hátt. Hjá Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri fengust þær upplýsingar að flestir sjúkraliðanna sem þar starfa eða um 80% væru ekki í Sjúkraliða- félagi Íslands heldur í Starfsmanna- félagi Akureyrarbæjar. Að sögn Þóru Ákadóttur, starfsmannastjóra FSA, eru um fimmtán sjúkraliðar hjá FSA í Sjúkraliðafélaginu en um sjö þeirra hafa lagt niður störf vegna verkfalls- ins. „Verkfallið hefur því áhrif á starf- semi sjúkrahússins; sérstaklega kemur það niður á endurhæfingu sjúklinga en einnig bitnar það á öldr- unarþjónustunni,“ segir Þóra. Hún segir þó að sjúkrahúsið hafi ekki gripið til þess ráðs að kalla til sjúkra- liða úr Starfsmannafélagi Akureyrar- bæjar til að bjarga málum á sjúkra- húsinu. Rannveig Björnsdóttir, hjúkrunar- deildarstjóri hjá Heilbrigðisstofnun Ísafjarðarbæjar, segir að sextán sjúkraliðar starfi hjá stofnuninni í rúmlega ellefu stöðugildum. „Af þeim níu sem áttu t.d. að starfa þennan fyrsta sólarhring verkfallsins hafa sex lagt niður vinnu,“ útskýrir hún. „Við þurfum því að skera niður þjón- ustu stofnunarinnar á meðan á verk- fallinu stendur.“ Sömu sögu er að segja af Heil- brigðisstofnuninni á Selfossi. Aðal- heiður Guðmundsdóttir, hjúkrunar- forstjóri sjúkrahússsviðs stofunun- arinnar, segir að vegna verkfallsins hafi t.d. þurft að draga úr þjónustu og fresta fyrirhuguðum aðgerðum. „Á langlegudeildinni Ljósheimum höf- um við t.d. ekki getað sinnt fólki sem skyldi. Það hefur t.d. ekki fengið bað- ið sitt á sama tíma og áður og fengið minni hreyfingu,“ segir hún. Allsherjarverkfall sjúkraliða hefur áhrif á heilbrigðisstofnanir víða um land Reynt að sinna brýnustu þörfum í verkfallinu Morgunblaðið/Golli Öldrunardeild á Landakoti var lokað í gær vegna verkfallsins, en þar eru 20 sjúkrarúm. Sjúklingar voru ýmist sendir heim eða færðir yfir á aðrar deildir. Náist ekki samningar stendur verkfallið fram á miðvikudagskvöld. Allsherjarverkfall sjúkraliða um land allt hófst aðfaranótt mánu- dagsins en þetta er fjórða þriggja daga verkfallið sem sjúkralið- ar efna til á þessum vetri. Í úttekt Örnu Schram kemur m.a. fram að heilbrigðis- stofnanir víða um land reyna að sinna lág- marksþjónustu þrátt fyrir verkfall með undanþágum frá vakt til vaktar. ’ Verkfallið kemurhvað verst niður á starfsemi LHS þar sem loka hefur þurft átta deildum á skurðlækningasviði, lyflækningasviði, barnasviði, öldrunarsviði og geðsviði. ‘ LÖGREGLUSTJÓRINN í Reykjavík hefur ákært tvo bræður, sautján og átján ára gamla, fyrir að stela ríflega 7.200 lítrum af bensíni. And- virði eldsneytisins er tæplega 750 þúsund krónur. Þeim er gefið að sök að hafa notað kreditkort í eigu Íslands- pósts til að taka út bensínið á þremur sjálfsafgreiðslustöðv- um Olíuverzlunar Íslands, Olís, í Reykjavík á tímabilinu frá 17. maí til 7. júní. Samtals voru út- tektirnar 137 talsins. Annar bræðranna er einnig ákærður fyrir að hafa stolið sex brúsum með rúðuvökva af bensínstöð Olíufélagsins og fyr- ir að hafa stolið geislaspilara úr bifreið. Þá er hann sakaður um að hafa ásamt tveimur öðrum pilt- um brotist inn í bifreið og stolið þaðan geisladiskum og fyrir að hafa sömu nótt brotist inn í Sel- ásskóla og leitað verðmæta án árangurs. Ákærðir fyrir að stela bensíni STUTT TVEIR menn sem sakaðir eru um stórfelldan þjófnað á tölvu- búnaði hafa játað sekt sína, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Í ákæru kemur fram að verðmæti þýfisins nam um ellefu milljónum en brotin frömdu þeir ýmist einir eða í fé- lagi við hvor annan. Mennirnir sem eru báðir rúmlega tvítugir eru ennfrem- ur ákærðir fyrir fíkniefnalaga- brot. Annar þeirra er sakaður um á annan tug afbrota en hinn fyrir hátt í tíu brot. Mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því þeir voru handteknir 19. september sl. Lögreglu tókst að ná stórum hluta þýfisins. Þriðji maðurinn er ákærður fyrir að hafa tekið við tölvubún- aði og ýmsum öðrum munum frá öðrum þeirra þrátt fyrir að honum hafi verið ljóst að um þýfi var að ræða. Játa stórfelldan þjófnað á tölvubúnaði AÐFARANÓTT sunnudags var lögreglunni í Reykjavík tilkynnt að nokkrir ungir menn hefðu brotið sér leið inn í íbúð og ráðist á húsráð- anda. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að hópur ung- menna var í anddyri hússins og höfðu þau nokkuð hátt. Maðurinn sem búsettur er í húsinu fór niður í anddyrið og bað þau um að yfirgefa húsið. Nokkrir úr hópnum brugðust ekki betur við beiðni manns- ins en svo að þeir eltu mann- inn upp í íbúð hans, brutu sér leið inn og réðust að honum. Brutust inn og réðust á húsráðanda TVEIR grímuklæddir menn réðust inn í verslun 11-11 við Kleifarsel í Breiðholti á tólfta tímanum á sunnudagskvöld. Afgreiðslustúlka sem var að ganga frá í versluninni hljóp út þegar hún varð vör við þjófana og hringdi á lögreglu. Þjófarnir voru á bak og burt þegar lög- regla kom á staðinn en talið var að þeir hefðu stolið fremur litlu magni af sígarettum. Grímuklæddir menn stálu sígarettum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.