Morgunblaðið - 13.11.2001, Side 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝR skóli, Lágafellsskóli í
Mosfellsbæ, var formlega
vígður á laugardag en skól-
inn var tekinn í notkun í
haust. Um 300 börn eru nú
í skólanum, þau elstu 11
ára.
Hönnuðir bygging-
arinnar eru arkitektarnir
Jón Þór Þorvaldsson og
Baldur Ó. Svavarsson hjá
teiknistofunni Úti og inni
en þeir urðu hlutskarpastir
í samkeppni sem fram fór
árið 1999 um hönnun skól-
ans. Hafist var handa við
byggingu skólans í febrúar
árið 2000 en það eru Ís-
lenskir aðalverktakar sem
eru framkvæmdaraðilar.
Var lokið við fyrsta áfanga
skólans, um 4600 fermetra
að gólffleti, í haust en
heildarstærð verður hins
vegar 7400 fermetrar.
Í haust tóku um 300 börn
til starfa í skólanum. Elstu
börnin eru 11 ára og er
gert ráð fyrir því að þau
vaxi með skólanum þannig
að árið 2006 myndi þau
fyrsta útskriftarárgang
skólans. Er áætlað að sama
ár verði um 500 nemendur
í skólanum í 1. – 10. bekk.
Í skólanum fer fram til-
raun í stjórnun með sér-
stakri undanþágu frá
grunnskólalögum. Felst til-
raunin í því að áhersla er
lögð á samstarf og eru þrír
skólastjórnendur við stjórn-
völinn.
Við vígsluna á laugardag
var tónlistarflutningur í
höndum nemenda Lága-
fellsskóla. Var húsið bless-
að og afhent skólastjórn-
endum. Þá gafst
almenningi kostur á að
skoða skólann í kjölfar
vígslunnar.
Fyrsti áfangi skólans er um 4.600 fermetrar að gólffleti en
hönnun var í höndum teiknistofunnar Úti og inni.
Morgunblaðið/Golli
Nemendur sáu um tónlistarflutning á laugardag en eftir
vígsluna gafst almenningi kostur á að skoða húsnæðið.
Lágafellsskóli vígður
Mosfellsbær
MJÖG góður vilji er fyrir
því að ljúka byggingu
stjórnunarálmu Klébergs-
skóla á Kjalarnesi fyrir
næsta haust og gera end-
urbætur á lóð skólans að
sögn formanns fræðsluráðs
Reykjavíkur en í gær
fundaði hann með hags-
munaaðilum um málið. Tíu
milljónir vantar upp á fjár-
hagsáætlun til þess að hægt
verði að ljúka því að fullu.
Í síðustu viku greindi
Morgunblaðið frá undir-
skriftasöfnun foreldra barna
í Klébergsskóla til að knýja
á um að ljúka endurbótum
og viðbyggingu við skólann
fyrir næsta haust og var
undirskriftalistinn afhentur
Sigrúnu Magnúsdóttur, for-
manni fræðsluráðs. Í gær
fundaði Sigrún með skóla-
stjóra Klébergsskóla,
fræðslustjóra, formanni
skólanefndar og yfirarkitekt
á byggingadeild borgarverk-
fræðings. „Í millitíðinni hitt-
ust skólastjórinn og arki-
tektinn og fóru yfir stöðuna
og þeir komu sér saman um
ákveðna lendingu sem geng-
ur út á að stjórnunarálma í
nýbyggingunni verði tekin í
notkun í haust. Þá losna
tvær kennslustofur í því
skólahúsnæði sem núna er í
notkun eins og gert er ráð
fyrir.“
Sigrún segir fundinn í
gærmorgun hafa farið mjög
vel fram. „Skólastjórinn
lagði sjálfur fram hvað hann
vildi sjá að yrði gert og það
var samþykkt að það yrði
reynt að vinna að því. Það
er líka óánægja með leik-
svæðið við skólann því þar
eru fá leiktæki og við töl-
uðum um að við myndum
fljótlega halda fund uppi á
Kjalarnesi. Þar myndum við
útskýra þetta og fengjum
arkitektinn til að segja hvað
þyrfti að gera í lóðinni því
það er að myndast afar
skemmtileg lóð á milli bygg-
inganna.“
Fjárhagsáætlun sam–
þykkt 6. desember
Hún segir sterkan vilja
fyrir því að fara eftir óskum
skólastjórans um að ljúka
stjórnunarálmunni og lag-
færa skólann þannig að
hann fái tvær almennar
kennslustofur í haust. Eins
yrði reynt að gera eitthvað
fyrir leiksvæðið. Hins vegar
hafi komið fram að ekki er
nægilegt fjármagn á áætlun
næsta árs til að hægt verði
að ljúka öllum þessum verk-
efnum.
„Það eru inni núna 60
milljónir fyrir næsta ár og
menn voru að segja að til
þess að geta lokið öllu þyrft-
um við helst að stækka
þennan ramma um tíu millj-
ónir. Við munum skoða það
mál. Fjárhagsáætlun er ekki
samþykkt fyrr en 6. desem-
ber en það er útilokað að
lofa neinu.“
Morgunblaðið/RAX
Formaður fræðsluráðs segir vilja fyrir því að gera end-
urbætur á lóð skólans en fá leiktæki eru þar sem stendur.
Stjórnunarálmu verði
lokið næsta haust
Vantar 10 milljónir króna
á fjárhagsáætlun
Kjalarnes
Fundað um endurbætur og viðbyggingu Klébergsskóla í gær
ÁKVEÐIÐ hefur verið að loka
eina gæsluvellinum í Garðabæ
í vetur. Að sögn félagsmála-
stjóra bæjarins verður völlur-
inn þó hafður opinn á sumrin.
Gæsluvöllurinn Fitjavellir
hefur verið starfræktur frá
árinu 1966 en þar hafa börn á
aldrinum 2 til 6 ára getað leikið
sér úti við undir umsjón gæslu-
manna. Bergljót Sigurbjörns-
dóttir, félagsmálastjóri Garða-
bæjar segir hins vegar að nú
hafi gott ástand á leikskólum
bæjarins minnkað þörfina fyr-
ir gæsluvöllinn.
„Hér komast börn svo ung
inn á leikskóla að þörfin fyrir
gæsluvöllinn hefur snarminnk-
að og aðsókn dregist verulega
saman. Þau eru teljandi á
fingrum annarrar handar
börnin sem eru þarna núna og
því er ekki grundvöllur fyrir
vetrarrekstrinum. Það hefur
hins vegar sýnt sig að það er
meiri aðsókn á sumrin.“
Hún segir að vellinum verði
lokað þann 1. desember næst-
komandi en að það starfsfólk
sem var starfandi á gæsluvell-
inum muni koma til annarra
starfa hjá bænum. „Vonandi-
kemur það síðan aftur á völlinn
til okkar í sumar um leið og
opnað verður aftur. Þetta er
frábært starfsfólk sem við vilj-
um alls ekki missa.“
Morgunblaðið/Ásdís
Félagsmálastjóri segir ekki forsendur fyrir rekstri gæslu-
vallarins á veturna en hann verði opinn í sumar.
Vetrarlokun á
gæsluvellinum
Garðabær
Viltu góða veltu?
Viltu auka veltuna? Hagræða í fyrirtækinu? Búa þig undir samdráttar-
tíma? Þéna meira með minni tilkostnaði? Eða byrja sjálfur ef þú getur
byrjað stórt?
Höfum til sölu tvö fyrirtæki í sömu starfsgrein en falla þó mjög
vel saman, með heildarveltu um 320 millj. á ári. Bæði mjög vel
þekkt fyrirtæki með mikið af þekktum umboðum, flytja sjálf inn
mest af vörunum. Eru með heildverslun og smásölu. Búið að hag-
ræða mikið hjá báðum, og bæði eru með góða framlegð og lítinn
tilkostnað sem getur minnkað enn meira við að sameinast öðru
stóru fyrirtæki. Seljast einnig sjálfstætt.
Höfum einnig mikið úrval af stórum og smáum fyrirtækjum í öllum
verðflokkum. Jólaviðskiptin framundan.
Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur á hverjum tíma.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
ATVINNA mbl.is