Morgunblaðið - 13.11.2001, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 13.11.2001, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 59 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake SPORÐDREKI Afmælisbarn dagsins: Þú ert vel að þér um margt og kannt að nýta það til hins ýtrasta. Þolinmæði er ekki þín sterka hlið. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Gættu þess að ganga ekki til samninga við aðra en þá sem þú treystir og að texti sam- komulagsins sé réttur og tæmandi. Málið er að hafa sitt á hreinu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Vertu ekki of bráður á þér. Þú munt uppskera laun þíns erfiðis en allt hefur sinn tíma. Vertu rólegur og skemmdu ekkert með ótímabærum til- tækjum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú þarft að skipuleggja vinnutíma þinn miklu betur því annars áttu á hættu að svo margt fari úrskeiðis að það setji blett á orðspor þitt. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú verður umfram allt að vera raunsær, því þú hefur enga stjórn á málunum, ef þú ert ekki með báða fætur á jörðinni. Sjáðu broslegu hlið- arnar. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Örlæti þitt er af hinu góða, en þú þarft að hafa stjórn á því sem öðru. Brýnasta verkefni þitt nú er að finna þér öfluga vernd gegn ágangi annarra. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú ættir að fara þér hægar í að dæma fólk. Gefðu því tíma til þess að sýna sinn rétta mann, því oft kemur þá annað í ljós, en þú helst í fyrstu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú ættir að hugsa þig tvisvar um, ef ekki þrisvar, áður en þú ferð út í einhverja fjárfest- ingu. Stundum er best að halda að sér höndum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er ekki nóg að hafa uppi fögur fyrirheit, ef ekkert verður úr efndunum. Vendu þig á að segja færra og gera meira. Þá verður tekið mark á þér. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Gættu þess að láta ekki tala þig til hluta, sem þú innst inni vilt ekki, og munt bara iðrast, ef af verður. Vertu vandur að virðingu þinni. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Gefðu þér góðan tíma til að velta hlutunum fyrir þér, því þú græðir ekkert á því að hespa þá af. Vönduð vinnu- brögð krefjast mikils sjálfs- aga. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Til þín verður leitað með erf- itt erindi, en þér er óhætt að fara eftir eigin sannfæringu um það, hvort þú verður við þessari bón eða ekki. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Sýndu víðsýni þegar þú ræðir hjartans mál fólks. Þú mynd- ir ekki sjálfur vilja láta af- greiða sannfæringu þína sem dellu eða ódýrt mál. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT ÆSKUÁST Hví leitar það hljómdjúpi hörpunnar frá, sem helzt skyldi í þögninni grafið? Ég kalla þó aldrei þá sól úr sjá, sem sefur á bak við hafið. – – – Ég er eins og kirkja á öræfa tind, svo auð sem við hinzta dauða, þó brosir hin heilaga Maríumynd, þín minning, frá vegginum auða. Sakleysið hreint eins og helgilín var hjúpur fegurðar þinnar, sem reykelsisilmur var ástin þín á altari sálar minnar. Þú hvarfst mér, og burt ég í fjarska fór, en fann þig þó, hvert sem ég sneri, sem titrandi óm í auðum kór og angan úr tómu keri. Jónas Guðlaugsson. STÓRFENGLEGUR enda- sprettur tryggði Erlendi Jónssyni og Hermanni Lár- ussyni Íslandsmeistaratitil- inn í tvímenningi, en 40 pör háðu úrslitarimmuna í stífri törn um helgina og lögðu að baki 117 spil. Þegar þremur umferðum af 39 var ólokið voru Hermann og Erlendur í sjöunda sæti. Efstir voru Reykjavíkurmeistararnir Jón Hjaltason og Hermann Friðriksson, sem höfðu leitt mótið samfleytt frá 23. um- ferð. Þriðja sætið varð hlut- skipti þeirra Jóns og Her- manns að lokum, en silfurverðlaunin komu í hlut Steinars Jónssonar og Stef- áns Jóhannssonar. Í löngu móti verða til margar skrýtnar sögur. Að- alsteinn Jörgensen og Sverrir Ármannsson sögðu umsjónarmanni sögu af eft- irfarandi spili yfir súpuskál á milli umferða á sunnudeg- inum: Norður ♠ 92 ♥ K73 ♦ ÁKG6543 ♣5 Vestur Austur ♠ 3 ♠ G75 ♥ 1082 ♥ 9654 ♦ D108 ♦ 92 ♣KG9764 ♣ÁD83 Suður ♠ ÁKD10864 ♥ ÁDG ♦ 7 ♣102 Aðalsteinn og Sverrir voru í AV og Aðalsteinn þurfti að spila út gegn sjö gröndum (!) eftir þessar sagnir: Vestur Norður Austur Suður Aðalsteinn Sverrir Pass 1 tígull Pass 1 spaði 2 lauf 2 tíglar 3 lauf 4 grönd Pass 5 hjörtu Pass 7 grönd Pass Pass Dobl Allir pass Það var mikil framför í kerfisvísindum þegar gamla Blackwood ásaspurningin breyttist í „Roman Key Card Blackwood“ þar sem tromphjónin eru tekin inn í svörin. En tæknin hefur sínar skuggahliðar, ekki síst þegar hún er á gelgju- skeiði. Þekkt vandamál við Roman lykilspilaspurn- inguna er hinn meinti tromplitur. Ef ekki er um beina litarsamþykkt að ræða líta sumir svo á að spurningin eigi aðeins við um ásana fjóra. Aðrir telja að síðast meldaði litur sé sjálfkrafa meðhöndlaður sem tromp. NS höfðu hvor sína skoðun á þessu máli. Norður taldi að tígull væri valinn tromplitur og svaraði því tveimur „ásum“, en suð- ur leit svo á að enginn litur væri samþykktur og því væri hann aðeins að spyrja um hina eðalbornu ása. Þegar sjö grönd komu til Sverris Ármannssonar í austur þóttist hann vita að ekki væri innstæða fyrir sögninni og doblaði í von um farsælt útspil. Eftir að hafa þaulspurt mótherjana þóttist Aðalsteinn vita að makker ætti ás og útilokaði strax spaða og tígul. En hjartaásinn gat makker vel átt og þar eð dobl á slemmu biður venjulega um „óeðli- legt“ útspil ákvað Aðal- steinn loks að spila út hjarta! „En sagan endaði vel, þrátt fyrir allt,“ sagði Að- alsteinn. „Í lokastöðunni ákvað sagnhafi að toppa tíg- ulinn og ég fékk síðasta slaginn á tíguldrottningu.“ Aðalsteinn og Sverrir fengu 36 stig af 38 mögu- legum fyrir að taka sjö grönd einn niður, en spilið tók sinn toll af taugakerfi beggja og næsta seta var ekki eins góð! BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Mynd, Hafnarfirði BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 29. september sl. í Fríkirkjunni í Hafnarfirði af sr. Einari Eyjólfssyni María Leifsdóttir og Sigurður Ingi Guðmarsson. Heimili þeirra er í Smyrilshólum 6, Reykjavík. Árnað heilla 50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 13. nóv- ember, er fimmtugur Þor- gils Baldursson, lyfsali, Hafnarbraut 29, Höfn í Hornafirði. Hann og eigin- kona hans, Inga Jónsdóttir, hafa af þessu tilefni opið hús í Pakkhúsinu á Höfn laug- ardaginn 17. nóvember kl. 17–20. 50 ÁRA afmæli. Í dag, þriðjudaginn 13. nóvember, erfimmtugur Jónas Vigfússon, Litla-Dal. Eiginkona hans, Kristín Thorberg, er 53 ára sama dag. Í tilefni af 103 ára afmæli sínu bjóða þau hjónin vinum og vandamönnum að samfagna með þeim á veitingastaðnum Álafossföt bezt í Mosfellsbæ nk. laugardag 17. nóvember frá kl. 20–23. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. f3 e6 7. Be3 Be7 8. Dd2 Rc6 9. O- O-O O-O 10. g4 Rxd4 11. Bxd4 b5 12. Kb1 e5 13. Be3 Be6 14. g5 Rd7 15. h4 He8 16. Bh3 Bf8 17. h5 Rb6 18. Bxb6 Dxb6 19. g6 Db7 20. Dg2 a5 21. Bxe6 Hxe6 22. gxf7+ Dxf7 23. Rd5 b4 24. Hdf1 a4 25. f4 a3 26. b3 exf4 27. Hxf4 Da7 28. Dd2 g6 29. hxg6 Dg7 Staðan kom upp í minningar- móti Jóhanns Þóris Jónssonar sem lauk fyrir skömmu. Stefán Kristjánsson (2374) hafði hvítt gegn Guðmundi Gíslasyni (2305). 30. Rf6+! Hxf6 31. Dd5+ Kh8 32. Hxf6 og svartur gafst upp enda fátt til varnar. Evrópu- mót landsliða stendur yfir í Leon á Spáni. Hægt er að fylgjast með gangi mála á heimasíðu mótsins sem er á slóðinni http://www.euro- leon2001.com/. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. HERRASLOPPAR OG HERRANÁTTFÖT Jólasendingin er komin - st. 48-60 Sendum í póstkröfuNóatúni 17, sími 562 4217Gullbrá, HEILSUSKÓRNIR OG FLUGSOKKARNIR Í FERÐALAGIÐ 20%afsláttur15% aflsáttur Sjúkravörur ehf.-Verslunin Remedia í bláu húsi v/Fákafen, s. 553 6511 Kynning á Care-designe bómullarbrjósta- höldurum milli kl. 13.00 og 18.00 af flugsokkunum og handunnu heilsuskónum, m.a. tvær gerðir í K-breidd Útsölumarkaður á Langholtsvegi 130 Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12.00-18.00 Jólamyndatökur Hverfisgötu 50, sími 552 2690
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.