Morgunblaðið - 13.11.2001, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 41
GÆSLUMENN
gjafakvótans voru ekki
lengi upp á dekk eftir að
ég upplýsti að gróði
þeirra vegna skatta-
lækkana ríkisstjórnar-
innar gæti verið á bilinu
18–26 milljarðar króna.
Þeir hafa ekki góðan
málstað að verja, enda
voru rökin haldlaus gegn
þeim upplýsingum sem
ég setti fram.
Máttlaus mótmæli
Forsendurnar sem
18–26 milljarða skatta-
lækkun byggist á eru
fengnar frá Þjóðshags-
stofnun og embætti Ríkisskattstjóra.
Þjóðhagsstofnun metur að hreinn
söluhagnaður, ef allar aflaheimildir
yrðu nú seldar á markaðsverði, væri
á bilinu 165–215 milljarðar króna.
Framkvæmdastjóri LÍU mótmælti
því ekki í kattarþvotti sínum þegar
hann var að verja gjafakvótaeigend-
ur, enda er útreikningurinn byggður
á traustum forsendum opinberra
stofnana. Gæslumaður kvótaeigenda
mótmælti heldur ekki þeirri stað-
reynd að lækkun skatta vegna kvóta
í eigu hlutafélaga, samkvæmt tillög-
um ríkisstjórnarinnar sem nú liggja
fyrir Alþingi, væri 11%. Sú stað-
reynd kemur fram í umsögn Ríkis-
skattstjóra til efnahags- og við-
skiptanefndar, svo og að lækkun
skatta í eigu sameignarfélags verði
um 12% og í eigu einstaklinga sem
breyta rekstrarformi sínu yfir í ein-
staklingsrekstur um 12–19%.
Allt að 26 milljarðar
til kvótaeigenda
Þá lítur dæmið þannig út að
skattatapið sé að lágmarki 11–12%
eða jafnvel meira. Það færir kvóta-
eigendum 18–26 milljarða skatta-
lækkun. Í raun snýst málið eingöngu
um hvenær kvótaeigendur leysa til
sín þessa skattalækkunargjöf frá
ríkisstjórninni, sem miðað við mark-
aðsvirði aflaheimilda í dag er allt að
26 milljarðar króna. Allt söluverð
aflaheimilda, keyptra sem úthlut-
aðra, að frádregnu bókfærðu verði
keyptra aflaheimilda myndar skatt-
skyldan söluhagnað sem rekstrar-
tekjur.
Um leið og Alþingi samþykkir
þessa skattalækkun hefur kvóta-
eigendum verið færð á silfurfati
skattalækkun upp á tugi milljarða,
hvort sem þeir svo kjósa að eiga
kvótann lengur eða skemur eða leysa
strax til sín þessa skattalækkun með
því að selja kvótann. Í þessu sam-
bandi er athyglisvert að benda á ný-
legt viðtal við forsvarsmann atvinnu-
lífsins sem sagði ólíklegt að skattar á
fyrirtæki yrðu nokkurn tíma lægri
og því væri ráðlegt fyrir eigendur
fyrirtækja að selja úr þeim eignir
sem afskrifaðar hefðu verið og fela
því í sér óskattlagðan hagnað frá
fyrri árum. Sama á við um kvótann.
Vel má því vera að kvótaeigendur
nýti þá hagstæðu stöðu sem skapast
með skattalækkuninni og innleysi
fyrr en seinna til sín gróðann af þess-
ari rausnarlegu gjöf sem ríkisstjórn-
in er að færa þeim.
Verðgildið eykst
Söluhagnaði af kvóta er eingöngu
hægt að fresta með kaupum á öðrum
kvóta og kemur hann
því ekki til skattlagn-
ingar fyrr en viðkom-
andi einstaklingur eða
lögaðili hættir rekstri.
Söluhagnaður og
skattgreiðslur af hon-
um dreifist því oft á
lengri tíma. Hins veg-
ar má gera ráð fyrir
að söluhagnaðurinn
komi að einhverju
leyti fram við sölu
hlutabréfa í sjávarút-
vegsfyrirtækjum.
Framkvæmdastjóri
LÍU neitaði því held-
ur ekki að verðgildi
kvótans hækkaði við
þessa skattalækkun, en sagði að
verðmæti fyrirtækja og kvóta hækk-
aði ekki samsvarandi lækkun
skattprósentunnar. Því er heldur
ekki hægt að mótmæla að þar sem
skattkvöðin, sem á kvótanum hvílir,
lækkar mun það leiða til þess að verð
á kvóta og hlutabréfum í fyrirtækj-
um, sem eiga kvóta, hækkar. Þar
með hækkar söluhagnaður þeirra
sem eiga kvóta eða hlutabréf í kvóta-
fyrirtækjum.
Launaþrælar og burgeisar
Eina rétta ályktunin sem fram-
kvæmdastjóri LÍÚ dró af þeim upp-
lýsingum sem ég setti fram um áhrif-
in af skattlagningu ríkisstjórn-
arinnar var að ég vildi sjá meira af
skattalækkun ríkisstjórnarinnar
renna til að lækka almenna tekju-
skattinn á einstaklinga. Honum þarf
varla að verða bumbult af því, vegna
þess að samkvæmt skýrslu OECD
frá 1999 eru tekjuskattar á fyrirtæki
hér á landi þeir lægstu innan OECD-
ríkja, en tekjuskattar á einstaklinga
með því hæsta sem þekkjast.
Sífellt stærri hluti heildarskatt-
heimtu hefur verið fluttur yfir á
tekjuskatt einstaklinga og hann er
orðinn langtum stærri hluti af þjóð-
arframleiðslu en hann var fyrir
nokkrum árum. Vegna meiri skatt-
heimtu af einstaklingum eru skatt-
leysismörkin lægri og meðalskatt-
hlutföllin hærri en áður. Innan
tekjuskattskerfisins hefur skatt-
byrði launatekna og lífeyris verið
þyngd en skattur á tekjur og hagnað
fjármagnseigenda og fyrirtækja hef-
ur verið lækkaður verulega.
Fyrirliggjandi skattalækkunartil-
lögur ríkisstjórnarinnar eru endan-
leg staðfesting á þessari þróun. Ís-
land verður líklega eina landið í
heiminum sem beinlínis rekur þá
skattastefnu að launaþrælar borgi
hærri skatta en burgeisar.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Kvóti
Málið snýst eingöngu
um það, segir Jóhanna
Sigurðardóttir, hvenær
kvótaeigendur leysa til
sín 18–26 milljarða
skattalækkunargjöf frá
ríkisstjórninni.
Höfundur er alþingismaður.
Gæslumenn
gjafakvótans
AÐ undanförnu hef-
ur Ögmundur Jónas-
son ritað tvær greinar
í Morgunblaðið, þar
sem hann fjallar um
stöðu miðaldra og
eldra fólks á vinnu-
markaði og kallar eft-
ir að Samtök atvinnu-
lífsins skýri sjónarmið
sín í þeim efnum. Ög-
mundur vísar í um-
sögn SA um þingsá-
lyktunartillögu hans
um lagasetningu sem
ætlað yrði að sporna
við uppsögnum eða
mismunun í starfi
vegna aldurs. Hann
kýs hins vegar að heimfæra um-
mæli umsagnar SA um áhrif laga-
setningar á fyrirtæki yfir á mið-
aldra og eldra fólk á
vinnumarkaði.
Ekki sé mismunað eftir aldri
SA geta svo sannarlega tekið
undir mikilvægi þess að fólki sé
ekki mismunað á vinnumarkaði
eftir aldri eða af öðrum ómálefna-
legum ástæðum. Fólk á ekki að
þurfa að gjalda aldurs síns á
vinnumarkaði né annars staðar.
SA er ekki kunnugt um slíka mis-
munun á vinnumarkaði, en þörf er
á aukinni umræðu um stöðu þess-
ara hópa. SA eru fyrir sitt leyti
tilbúin til að stuðla að slíkri um-
ræðu í samvinnu við BSRB og
aðra er áhuga hafa á
þessu mikilvæga máli.
Má vel hugsa sér ráð-
stefnu m.a. með að-
komu ráðningarskrif-
stofa, en þær kunna
að hafa mikil áhrif á
það hvaða umsækj-
endum er haldið að
fyrirtækjum. Það
kann að eiga sér eðli-
legar skýringar í sum-
um tilvikum að fyrir-
tæki sækist eftir
yngra starfsfólki, en í
öðrum tilvikum ættu
reynsla og stöðugleiki
í starfsmannahaldi að
hafa vinninginn.
Bætt starfsmenntun er mikil-
væg í þessum efnum. Fyrirtæki
leggja í vaxandi mæli áherslu á
hana og dæmi eru um að fyrirtæki
hafi sett á fót eigin skóla til að
sinna starfsmenntun síns starfs-
fólks. Þá má nefna að á síðasta ári
var m.a. samið um framlög til
starfsmenntamála í kjarasamning-
um SA við verkafólk og verslunar-
fólk. Þær aðgerðir miða jafnframt
að því að styrkja stöðu starfsfólks-
ins á síbreytilegum vinnumarkaði,
ekki síst þeirra sem eldri eru.
Þeim gefast þannig í auknum mæli
möguleikar á að fylgja þeirri
framþróun sem á sér stað og nýta
jafnframt reynslu sína og þekk-
ingu. Hæfni og þekking er besta
tryggingin á vinnumarkaði.
Lagasetning óheppileg
SA geta hins vegar ekki fallist á
ágæti lagasetningar í þessu sam-
bandi. Eins og fram kemur í um-
ræddri umsögn myndi slík laga-
setning skapa fleiri vandamál en
henni er ætlað að leysa. Hún væri
eingöngu til þess fallin að skerða
snerpu og viðbragðsflýti fyrir-
tækja og draga þannig úr sam-
keppnishæfni þeirra og þá um leið
atvinnumöguleikum starfsfólks
þeirra. Í grein sinni kýs Ögmund-
ur að færa þessi orð í þann búning
að SA hafi viðhaft þau um mið-
aldra og eldra fólk á vinnumark-
aði, en það er misskilningur. Þessi
orð voru viðhöfð um fyrirtækin og
rekstur þeirra, en íþyngjandi laga-
setning er ekki til þess fallin að
auka á snerpu þeirra og viðbragðs-
flýti í samkeppni á markaði.
Staða miðaldra og eldra
fólks á vinnumarkaði
Ari
Edwald
Vinnumarkaður
Þörf er á aukinni
umræðu, segir Ari
Edwald, um stöðu
miðaldra og eldra fólks
á vinnumarkaði.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins.
Á SAMA tíma og
sjálfstæðismenn í borg-
arstjórn Reykjavíkur
hafa hamast á Lín-
u.Neti fyrir að leggja
ljósleiðarakerfi á höf-
uðborgarsvæðinu eru
þeir sjálfir þátttakend-
ur í sams konar verk-
efni á vegum dótturfyr-
irtækis
Landsvirkjunar, sem
lagt hefur ljósleiðara
yfir hálendið til Akur-
eyrar. Dótturfyrirtæki
Landsvirkjunar heitir
Fjarski. Forstjóri
Landsvirkjunar heitir
Friðrik Sophusson og meðal stjórn-
armanna Landsvirkjunar er Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálms-
son borgarfulltrúi og
bera þessir valinkunnu
sjálfstæðismenn að
sjálfsögðu fulla ábyrgð
á hinu nýja ljósleiðara-
kerfi, sem þjóna mun
Akureyringum og fleiri
Norðlendingum.
Hinum megin á ljós-
leiðaranum er svo
Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóri sjálfstæðis-
manna á Akureyri, og
orkufyrirtækið Norð-
urorka, sem mun taka
þátt í verkefninu.
Þessi nýi ljósleiðari
kostar einhver hundruð milljóna
króna og tel ég þeim peningum vel
varið, því að það er landsbyggðinni
lífsnauðsyn að vera í góðu gagna-
flutningssambandi við höfuðborgar-
svæðið.
Ég óska þeim sjálfstæðismönnum,
sem staðið hafa að þessu merka
framfaraspori, til hamingju með
verkið og hvet þá eindregið til að
halda áfram á sömu braut, þrátt fyr-
ir úrtöluraddir afturhaldsafla, sem
óttast framfarir og samkeppni.
Ljósleiðari
sjálfstæðis-
manna
Ljósleiðari
Það er landsbyggðinni
lífsnauðsyn, segir
Alfreð Þorsteinsson, að
vera í góðu gagnaflutn-
ingssambandi við
höfuðborgarsvæðið.
Höfundur er borgarfulltrúi og
stjórnarformaður Orkuveitunnar og
Línu.Nets.
Alfreð
Þorsteinsson
stretch-
gallabuxur
Kringlunni, sími 588 1680
v/Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
3 skálmalengdir
M O N S O O N
M A K E U P
litir sem lífga
Toppárangur
með
þakrennukerfi
þakrennukerfi
Fagm
enns
ka
í
fyrir
rúmi
BLIKKÁS EHF.
SKEMMUVEGUR 36
200 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111
Söluaðilar um land allt