Morgunblaðið - 13.11.2001, Blaðsíða 55
Á DÖGUNUM héldu nemar í sögu,
listum og menningu við Mennta-
skólann á Egilsstöðum menning-
arkvöld á Minjasafni Austurlands.
Þemað var Ítalía á endurreisn-
artímabilinu og var það sett fram í
formi fyrirlestra, innsetninga og
mynda. Allt efnið var unnið út frá
sagnfræðilegu sjónarmiði og að
auki buðu nemarnir gestum upp á
að smakka ítalskan mat, svo sem
pasta og brauð bakað á staðnum.
Menningarkvöldið var hluti af námi
nemenda og komu milli 40 og 50
þeirra að verkefninu á einn eða
annan hátt.
Morgunblaðið/R.Þ.
Sagnfræðin sett á svið
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 55
Fræðslufund-
ur skógrækt-
arfélaganna
SKÓGRÆKTARFÉLÖGIN á höf-
uðborgarsvæðinu halda opinn
fræðslufund í stóra sal Ferða-
félags Íslands í Mörkinni 6, í dag,
þriðjudaginn 13. nóvember kl. 20.
Fundurinn er í umsjón Skógrækt-
arfélags Kópavogs og er þriðji
fræðslufundur vetrarins í fræðslu-
samstarfi skógræktarfélaganna og
Búnaðarbanka Íslands.
Erindi flytur Björg Gunnars-
dóttir landfræðingur. Á undan fyr-
irlestri hennar leikur Sigurður
Rúnar Jónsson (Diddi fiðla) á
forna fiðlu.
Óvíða á byggðu bóli hefur eins
mikil skógeyðing átt sér stað og
hér á Íslandi undanfarin 1100 ár.
Til þess að segja til um útbreiðslu
skóga á fyrri öldum er margt að
sækja í fornrit og Íslendingasög-
urnar, segir í fréttatilkynningu.
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir. Boðið upp á kaffi.
Lýst eftir vitnum
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 9. nóvem-
ber sl. var ekið á bifreiðina OZ-764,
sem er rauð Alfa Romeo fólksbifreið.
Tjónvaldur fór af vettvangi.
Atvikið gerðist við gatnamót
Vegamótastígs og Grettisgötu á
bilinu kl. 21.10–22.
Vitni að atvikinu, svo og tjónvald-
ur sjálfur, eru beðin um að hafa sam-
band við lögregluna í Reykjavík.
TR kaupir aðeins
20–25% tannlækninga
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi greinargerð frá trygg-
ingaráði um gildandi reglur um tann-
lækningar og samskipti Trygginga-
stofnunar ríkisins við tannlækna.
Millifyrirsagnir eru blaðsins.
„Að undanförnu hefur Trygginga-
stofnun ríkisins verið nokkuð í frétt-
um, að mestu fyrir frumkvæði for-
ráðamanna Tannlæknafélags
Íslands, í kjölfar aðalfundar félagsins
í lok október. Í þeim málflutningi hef-
ur gætt verulegrar ónákvæmni og oft
verið hallað réttu máli annaðhvort
vísvitandi eða vegna misskilnings. Af
þeirri ástæðu telur tryggingaráð rétt
að fram komi nokkrar staðreyndir
um tannlækna og Tryggingastofnun
og hvernig hátti samskiptum þar á
milli.
Tryggingastofnun kaupir aðeins
um 20–25% af þeim tannlækningum
sem fram fara á Íslandi. Þannig kem-
ur Tryggingastofnun ekki nálægt 75-
80% allra tannlækninga hér á landi
þar sem tannlæknar setja sína eigin
gjaldskrá og starfa samkvæmt henni.
Þann hluta tannlækninga sem ríkið
greiðir, hefur Alþingi falið Trygg-
ingastofnun ríkisins að kaupa, í sam-
ræmi við reglugerðir sem settar eru
af heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu.“
Endurgreiðsla dugi fyrir
helmingi kostnaðar
„Um greiðslur Tryggingastofnun-
ar til tannlækna er fjallað í lögum um
almannatryggingar. Þar segir að
greiða eigi tannlæknum samkvæmt
gjaldskrá sem heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið setur, nema
semjist um annað. Tryggingastofnun
hefur greitt samkvæmt gjaldskrá, en
ekki samningi, allt frá árinu 1999.
Samkvæmt lögum á endurgjald
Tryggingastofnunar að duga fyrir
allt frá helmingi til fulls kostnaðar við
þær tannlækningar sem greiddur er
af ríkinu, allt eftir einstökum tegund-
um aðgerða og hvort um er að ræða
börn, lífeyrisþega eða aðra. Þar sem
verðlagning tannlækna er nú frjáls og
samkeppni á að ríkja milli þeirra er
ljóst að Tryggingastofnun greiðir
mishátt hlutfall m.v. það hlutfall sem
ríkið hafði afráðið að greitt yrði. Er
það misjafnt eftir þeim þóknunum
sem einstakir tannlæknar ákveða að
taka fyrir verk sín.
Með vaxandi dýrtíð er ljóst að
raungildi endurgreiðslu Trygginga-
stofnunar, samkvæmt reglugerð heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytis-
ins, hefur rýrnað og stendur nú undir
lægra hlutfalli tannlæknakostnaðar
en áður. Þar ræður þó mestu sá taxti
sem einstakir tannlæknar vinna eftir.
Ekki skulu bornar brigður á að í ein-
stökum tilvikum kann endurgreiðsla
Tryggingastofnunar aðeins að duga
fyrir um 50% af gjaldtöku dýrustu
tannlæknanna. Þess ber aftur á móti
að geta að hjá hinum ódýrari tann-
læknum stendur endurgreiðslan
ennþá undir u.þ.b. 90–95% hinnar
fyrirframákveðnu endurgreiðslu.
Þannig er það alfarið komið undir
gjaldskrá þeirra tannlækna sem af-
ráðið er að heimsækja, hversu langt
endurgreiðsla Tryggingastofnunar
fer, til að standa undir kostnaði við þá
heimsókn og mun svo verða áfram á
meðan verðlagning tannlækna verð-
ur frjáls, jafnvel þó svo að samningar
náist milli Tryggingastofnunar og
tannlækna.
Lögboðið endurgreiðsluhlutfall
vegna tannlækninga mun ekki nást
nema verðlagning tannlækna fyrir
þjónustu við tryggða einstaklinga
verði fastákveðin með samningum.
Tannlæknum er aftur á móti annt um
nýfengið frelsi sitt til þess að verð-
leggja þjónustu sína sjálfir á sam-
keppnisgrundvelli og á meðan svo er
þá mun endurgreiðsluhlutfallið alltaf
ráðast fyrst og fremst af verðlagn-
ingu tannlæknanna sjálfra.“
Viðræður hafa ekki
skilað niðurstöðu
„Eins og áður hefur komið fram
hefur ekki verið í gildi samningur
milli Tannlæknafélags Íslands og
Tryggingastofnunar ríkisins frá
árinu 1999 þegar Tannlæknafélagið
sagði upp samningi sínum við Trygg-
ingastofnun. Því miður hafa samn-
ingaviðræður, sem staðið hafa með
hléum allt frá uppsögn, ekki skilað
niðurstöðu. Þannig munu einhverjir
ráðamenn Tannlæknafélagsins á
þessum tíma hafa talið að þeir væru
betur komnir án samnings, heldur en
með samning. - Þetta mun nú vera
breytt. Samninganefnd Trygginga-
stofnunar hefur alltaf verið reiðubúin
að hitta samninganefnd Tannlækna-
félagsins að máli, hvenær sem er og
hvar sem er, hafi samninganefnd
þeirra óskað eftir því. Svo er enn,
samninganefnd Tryggingastofnunar
er reiðubúin til viðræðna við Tann-
læknafélag Íslands, hvenær sem þeir
óska.“
Vinnumarkaðsvef-
ur SA opnaður
OPNAÐUR hefur verið nýr vinnu-
markaðsvefur Samtaka atvinnulífs-
ins. Á vefnum er að finna ítarlegar en
aðgengilegar upplýsingar um ráðn-
ingar, starfslok, veikindarétt, hvíld-
artíma og margt fleira. Vefurinn er
opinn öllum félagsmönnum SA. Það
var Finnur Geirsson, formaður SA,
sem opnaði vefinn.
Á vefnum er að finna ítarlegar en
aðgengilegar upplýsingar um ráðn-
ingar starfsmanna og starfslok,
launakostnað, orlof, vinnutíma, hvíld-
artíma, veikindarétt, fæðingar- og
foreldraorlof, jafnréttismál, vinnu-
vernd og margt fleira, en vefurinn
verður stöðugt uppfærður með nýju
efni.
"SA og forverar þeirrar hafa á und-
anförnum árum gefið út mikið af upp-
lýsingaefni sem varðar starfsmanna-
hald sem mikið hefur verið notað af
fyrirtækjum. Nú hefur mikil vinna
verið lögð í að uppfæra þetta efni og
setja fram í aðgengilegu formi. Það
gefur færi á að bæta þjónustu við að-
ildarfyrirtæki á þessu sviði og auka
við og breyta þegar þörf gerist.
Vinnumarkaðsvefurinn er opinn
öllum félagsmönnum SA, en notenda-
nöfn og lykilorð hafa verið send aðild-
arfyrirtækjum og aðildarfélögum.
Notendanafn og lykilorð þarf að slá
inn þegar farið er inn á vefinn í fyrsta
sinn úr hverri vinnustöð.
Það er von SA að vefurinn eigi eftir
að reynast félagsmönnum verðmæt-
ur grunnur upplýsinga og að opnun
hans verði til að efla þjónustu sam-
takanna við þá. Leiðin inn á vinnu-
markaðsvefinn er í gegnum kjara-
málasíðu eða sérstakan hnapp á
heimasíðu SA, sa.is,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Ráðherrafundur Evrópuráðsins
Ræddu um baráttu
gegn hryðjuverkum
Á FUNDI ráðherra Evrópuráðsins í
Strassborg í síðustu viku voru meðal
annars á dagskrá umræður um
framlag Evrópuráðsins til barátt-
unnar gegn alþjóðlegum hryðju-
verkum. Sverrir Haukur Gunnlaugs-
son, ráðuneytisstjóri utanríkisráðu-
neytisins, sat fundinn fyrir hönd
Halldórs Ásgrímssonar utanríkis-
ráðherra.
Aðildarríkin 43 samþykktu yfir-
lýsingu um að auka skilvirkni marg-
víslegra samninga á vettvangi Evr-
ópuráðsins sem snúa að því að koma
í veg fyrir hryðjuverk og fjármögnun
þeirra. „Samningar Evrópuráðsins
eru grundvöllur fyrir víðtæku sam-
starfi aðildarríkjanna og hafa sér-
stöðu á alþjóðavettvangi,“ segir í
frétt frá utanríkisráðuneytinu um
fundinn. Efling mannréttinda í Evr-
ópu var einnig á dagskrá og lögð var
áhersla á að styrkja starf Mannrétt-
indadómstólsins í Evrópu en fjöldi
mála sem lagður er fyrir dómstólinn
hefur margfaldast undanfarin ár og
skapað álag sem bregðast þarf við að
mati fundarins.
Þá kemur fram í frétt ráðuneyt-
isins að eftirfarandi samningar hafi
verið undirritaðir af hálfu Íslands:
Viðbótarbókun við Evrópusamning-
inn um gagnkvæma aðstoð í saka-
málum, Evrópusamningur um vernd
mynd- og sjónvarpsefnis og bókun
við hann og viðbótarbókun um vernd
einstaklinga gegn rafrænni notkun
persónuupplýsinga.
Haustnámskeið
Barnageðlækna-
félagsins
HAUSTNÁMSKEIÐ Barnageð-
læknafélags Íslands verður haldið
mánudaginn 19. nóvember kl. 10–17
og þriðjudaginn 20. nóvember kl.
8.30–14 í sal Læknafélagsins í Hlíð-
arsmára 8 í Kópavogi. Námskeiðið
nefnist „Kynferðislegt ofbeldi gagn-
vart börnum og unglingum: Tilkynn-
ingaskylda og meðferð“.
Fyrirlesarar verða Diane H.
Schetky og Claude Bursztejn. Þá
verða ýmsir aðrir fyrirlesarar, m.a.
frá Barnaverndarstofu, Barna- og
unglingageðdeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss (BUGL), Barna-
húsi, Stuðlum, félagsþjónustu,
barnaverndarnefnd, lögreglu og
dómskerfi.
Skráning og allar upplýsingar fást
með tölvupósti og í síma. Nám-
skeiðsgjald er 20.000 kr.
FÓTAAÐGERÐASTOFA Hafdísar
var nýlega opnuð á Smiðjuvegi 4,
Kópavogi, í sama húsnæði og Hár-
smiðjan. Eigandi stofunnar er Haf-
dís Magnúsdóttir, löggiltur fótaað-
gerðafræðingur. Sérstök áhersla er
lögð á meðhöndlun líkþorna og
vörtumeðferð. Hafdís býður einnig
upp á sérstaka meðhöndlun við fót-
raka.
Hafdís lauk námi í fótaaðgerða-
fræði í Sandefjord, Noregi, árið
1990. Hún hefur starfað við fagið
nærri óslitið síðan, m.a. við Þjón-
ustuíbúðir aldraða á Dalbraut og
Skólabraut á Seltjarnarnesi og
hjúkrunarheimilunum Skjóli, Eir,
Foldabæ og Laugaskjóli.
Opið er alla virka daga frá kl. 9–
17, nema fimmtudaga frá kl. 9–13
og 17–20 og fyrsta laugardag í
mánuði frá kl. 10–14, segir í frétta-
tilkynningu.
Ný fótaað-
gerðastofa
Hafdís Magnúsdóttir
Íslenskir staðl-
ar um öryggi
upplýsinga
TVEIR íslenskir staðlar um stjórnun
upplýsingaöryggis verða gefnir út af
Staðlaráði Íslands 15. nóvember og
taka gildi 1. desember. Um er að ræða
staðalinn ÍST ISO/IEC 17799:2000
Upplýsingatækni – Starfsvenjur fyrir
stjórnun upplýsingaöryggis, sem er
íslensk þýðing á alþjóðlegum staðli,
og ÍST BS 7799-2:1999 Stjórnun upp-
lýsingaöryggis – 2. hluti: Forskrift
fyrir stjórnun upplýsingaöryggis,
sem er þýðing á breskum staðli.
Staðlarnir eru báðir upphaflega
breskir og báru auðkennið BS 7799.
Í inngangi ÍST ISO/IEC 17799 seg-
ir meðal annars:
„Upplýsingar ásamt stuðningsferl-
um, kerfum og netum eru mikilvægar
rekstrarlegar eignir. Leynd, réttleiki
og tiltækileiki upplýsinga geta verið
nauðsynleg til þess að viðhalda sam-
keppnishæfni, fjárstreymi, arðsemi,
hlítingu við lög og ímynd í viðskiptum.
Að fyrirtækjum og upplýsingakerfum
þeirra og netum steðja sífellt meiri
ógnir úr ýmsum áttum, svo sem af
svikum með aðstoð tölva, njósnum,
spellvirkjum, skemmdarverkum,
eldsvoðum og flóðum. Skaðvaldar, svo
sem tölvuveirur, tölvuþrjótar og þjón-
ustuáhlaup, verða sífellt algengari,
ágengari og háþróaðri. Um leið og
fyrirtæki reiða sig æ meira á upplýs-
ingakerfi og upplýsingaþjónustu
verða þau veikari fyrir þeim ógnum
sem steðja að öryggi þeirra. Sam-
tenging almenningsneta og einkaneta
og samnýting á upplýsingabúnaði
eykur vandann við að stýra aðgangi.
Telja má víst að staðlarnir eigi eftir
að hljóta mikla útbreiðslu á Íslandi
líkt og annars staðar. Þörf fyrir leið-
beiningar og handhæg verkfæri á
þessu sviði er brýn.“