Morgunblaðið - 13.11.2001, Blaðsíða 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 21
FUNDUR Hafrannsóknastofnunar í
Vestmannaeyjum var fjölsóttur og
voru um 70 manns á fundinum.
Fundarmenn voru ánægðir með
fundinn og töldu bilið milli heima-
manna og sérfærðinga hafa minnkað
og mál hafa skýrst.
Frummælendur á fundinum voru
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, og Einar Hjör-
leifsson fiskifræðingur. Jóhann sagði
að fundinum loknum að allir fund-
irnir 18 víðs vegar um land hefðu
verið góðir og eitthvað nýtt komið
fram á hverjum stað. Sami rauði
þráðurinn gengi þó í gegnum um-
ræðuna á landsvísu.
Viðar Elíasson var einn fundar-
manna á fundi Hafrannsóknastofn-
unar í Vestmannaeyjum sl. miðviku-
dagskvöld. Viðar gerir út netabátinn
Narfa VE og rekur Fiskverkun VE.
Viðar tók þátt í umræðum á fund-
inum og var hann spurður hvernig
honum hefði líkað fundurinn og svör-
in sem hann fékk við fyrirspurnum
sínum.
Netarallið gaf ekki
rétta mynd í vetur
Viðar spurði fulltrúa Hafró um
ástæður þess hvers vegna löngu-
kvótinn sem settur var á við nýbyrj-
að kvótaár væri 20% lægri en veiðin
á síðasta kvótaári. Hvað væri lagt til
grundvallar, og hvers vegna ekki
hefði verið klipið af löngukvóta
Norðmanna og Færeyinga í íslensku
lögsögunni þegar stofninn væri
greinilega í lægð miðað við ráðlegg-
ingar Hafró um löngukvóta.
Einar Hjörleifsson fiskifræðingur
svaraði fyrirspurninni og sagði að
bæði hefði langan minnkað í veiðinni
milli ára eins og í togararallinu og þá
gæfu afladagbækur til kynna minni
lönguveiði.
Viðar sagði þetta ekki skýra
ástand löngustofnsins. Stærstur
hluti löngunnar væri veiddur í net í
djúpköntunum og sl. vetur hefði net-
arallið verið endasleppt þar sem sjó-
mannaverkfallið varð til þess að rall-
ið var ekki klárað og gæfi það því
ekki neina mynd af stofni löngunnar
það ár. Þá sagði Viðar að engin svör
hefðu borist við því hvers vegna ekki
hefði verið dregið af kvóta Færeyj-
inga og Norðmanna. Hann telur að
langan sé skiptimynt fyrir stóru út-
gerðirnar í samningum milli þjóð-
anna um veiðar á kolmunna, síld og
loðnu. Þeir samningar nýtist strand-
veiðiflotanum ekki neitt.
Viðar sagði einnig að hann hefði
gagnrýnt samanburð Hafró á þorsk-
stofninum frá 1922 og 1983 en þar
fannst honum vanta að tekið væri
mið af umhverfisþættinum, stærð og
útbúnaði báta og veiðafæra sem væri
með allt öðrum og öflugri hætti en
áður var og hefði samanburðurinn að
hans mati verið frekar snöggsoðinn.
Viðari fannst ýmisleg mjög fróðlegt,
t.d. skýrslan um togararöllin og þó
sérstaklega fannst honum mikið til
koma um rannsóknirnar á reki lirf-
unnar eftir hrygningu frá Suður-
landsmiðum og norður fyrir land.
„Annars var þetta hálfgerður sátta-
fundur þar sem Hafró var að biðja
um gott veður, en fyrir um tveimur
árum var haldinn eins fundur þar
sem átti að virkja reynslu útgerðar-
manna og sjómanna en hefur ekki
enn orðið,“ sagði Viðar.
Viðar vonar að þessi fundur sé
fyrsta skrefið í þá átt enda sé for-
senda árangurs við ráðgjöf í kvóta-
setningu nytjastofna við Ísland,
samstarf þessara aðila ásamt pólitík-
usum.
Kokhraustir
þrátt fyrir mistök
Stefán Friðriksson er aðstoðar-
framkvæmdastjóri Vinnslutöðvar-
innar í Vestmannaeyjum og var einn
fundarmanna á fundi Hafró. Stefán
sagði þennan fund senda útgerðar-
mönnum og sjómönnum sömu skila-
boð og fyrir tveimur árum, en sagð-
ist þó bera þá ósk í brjósti að nú
meinti Hafró eitthvað með því að efla
samstarfið við sjómenn og útgerðar-
menn og þeir yrðu þátttakendur í
ráðgjöf stofnunarinnar við mat á
fiskistofnum við Ísland í framtíðinni.
Stefán spurði um síldina og kol-
munnann og hvort það gæti verið að
kolmunnastofninn væri stærri en
Hafró og alþjóðahafrannsóknaráðið
hefðu áður talið. Stefán nefndi sem
dæmi að við síldveiðar 900 mílur
norður í hafi hefði kolmunni veiðst
með síldinni þar á sama tíma og tvær
milljónir tonna hefðu mælst í ís-
lenskri lögsögu og taldi hann að út-
breiðsla kolmunnans gæti veið mun
meiri en áður hefði verið talið.
Fam kom að alþjóðahafrann-
sóknaráðið hefði viljað að kolmunna-
veiðin í heild úr sameiginlegum
stofni ætti að verða 650 þúsund tonn
og hafa Íslendingar gert kröfu um að
fá 20% af kvótanum, eða 120 þúsund
tonn. Stefán sagði að nú þegar væri
búið að veiða 1,5 milljónir tonn á
þessu ári og þar af hefðu Íslendingar
veitt 300 þúsund tonn mest í ís-
lenskri og færeyskri lögsögu.
Stefán sagð að það kæmi sér á
óvart hvað fiskifræðingarnir á Hafró
væru kokhraustir og öruggir með
sjálfa sig hvað varðaði þessa stofna í
ljósi stórkostlegra mistaka við mat á
þorskstofninum undanfarin ár. Þá
nefndi Stefán það sem dæmi um spár
Hafró að fyrir fjórum árum hefði
stofnunin týnt síldarstofninum en nú
hefði Hafró aftur á móti spáð góðri
síldveiði og mikið ætti að vera af
henni en svo vildi til að lítil veiði væri
búin að vera það sem af væri síld-
arvertíðinni.
Auka á ýsu- og ufsakvóta
Magnús Kristinsson, formaður út-
vegsbændafélags Vestmannaeyja,
tók í sama streng og flestir fundar-
manna og spurði hvort Hafró ætlaði
að taka mark á fundarmönnum í
þetta skipti og vinna með þeim, en
það hefði ekki verið gert fyrir tveim-
ur árum. Magnús lagði á það þunga
áherslu að nú auðnaðist mönnum að
vinna saman og að eitthvað gerðist í
þessum málum annað en orðin tóm.
Magnús sagði að stóru málin hjá
flestum væru að auka þyrfti kvóta í
ýsu og ufsa. Endurskoða þyrfti
möskvastærð vegna ýsuveiða en 155
millimetra möskvi væri of stór því of
mikið af ýsunni slyppi í gegn og væri
hún því hvort eð er dauð. Magnús
vildi þakka Hafró fyrir góðan og
fróðlegan fund.
Uppbyggilegar
umræður
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, var annar
frummælandi fundarins ásamt Ein-
ari Hjörleifssyni. Jóhann sagði í
spjalli við fréttaritara að hann hefði
verið ánægður með fundinn sem var
fjölsóttur og málefnalegur að honum
fannst. Jóhann fullyrti að áhugi og
fullur vilji væri á því innan Hafrann-
sóknastofnunar og hjá honum sjálf-
um að auka samstarfið við útgerð-
armenn og sjómenn.
„Fundir af þessu tagi eru nauð-
synlegir til að við á Hafró komum
okkar sjónarmiðum á framfæri við
sjómenn og útgerðarmenn á manna-
máli, tryggja að okkar skilaboð séu
skýr og við fáum að heyra milliliða-
laust frá sjómönnum hvað er í gangi
á hverjum tíma því þeir eru þeir að-
ilar sem eru með fingurna á púls-
inum í öllum þessum málum. Þá eru
umræður eins og áttu sér stað úti í
Eyjum uppbyggilegar og verðmætt
veganesti fyrir okkur,“ sagði Jó-
hann.
Þrátt fyrir skoðanaskiptin og
ágreininginn telur forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar bilið milli
manna ekki svo breitt í þessum mál-
um.
Forstjóri Hafrannsóknastofnunar að loknum fundinum í Eyjum
Sami rauði þráðurinn
á 18 góðum fundum
Morgunblaðið/Sigurgeir
Vestmannaeyjar
Nýtt í örbylgjuna. Tælenskir skyndiréttir frá veitingahúsinu Ban-Thai, Laugavegi 130.
Fást í verslunum Hagkaups, Nýkaups og 10-11. Nú á kynningarverði.
Opið í
hádeginu
frá kl. 11.30-13.30
og á kvöldin frá kl. 18-22
Framleitt samkvæmt
GÁMES-staðli (HACCP) sem
tryggir öryggi og gæði
GÁMES stendur fyrir: Greining áhættuþátta og mik-
ilvægra eftirlitsstaða. Þetta er þýðing á enska heitinu
HACCP (framborið hassap og er skammstöfun fyrir
Hazard Analysis and Critical Control Point) sem
margir kjósa frekar að nota. Þessi aðferð við að
tryggja öryggi matvæla er mjög að ryðja sér til
rúms víða um heim. Sýnt þykir að hún gefur góða
raun. Það hentar einnig vel að taka alla gæðaþætti
inn í þetta kerfi, en þá verður að tryggja að ekki sé
hnikað frá öryggiskröfum þótt breytingar séu gerðar
á almennum gæðakröfum fyrir vöru.
Ef þú hefur aldrei smakkað tælenskan mat,
prófaðu þá þessa rétti,10 tegundir
T & D ltd., Bergholt 2 - 270 Mosfellsbær - Sími 896 3536 - Fax 566 8978 - Netfang tomsab@simnet.is
Finndu bragð af Tælandi
Nú á kynningarverði
MSG
ber 2002. Um þessar mundir er unn-
ið við kafla á veginum þar sem farið
er út fyrir gamla veginn og sighætta
er. Einnig eru nokkrar beygjur rétt-
ar nokkuð af. Á þeim hluta að ljúka 1.
desember nk.
Morgunblaðið/Valdimar Guðjónsson
Unnið við vegagerð á Gaulverjabæjarvegi hjá Timburhólum.