Morgunblaðið - 13.11.2001, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 13.11.2001, Qupperneq 51
Tilkynnt um innbrot í 18 bíla um helgina UMFERÐIN gekk ágæt- lega um helgina þrátt fyr- ir mikinn veðurham á laugardag. Fimm öku- menn voru grunaðir um ölvun við akstur og 27 fyrir of hraðan akstur. Þá var lögreglu tilkynnt um 46 um- ferðaróhöpp, flest minniháttar. Þó urðu nokkur óhöpp þar sem meiðsli urðu á fólki. Á föstudagsmorgun var ekið á unga stúlku. Hún var flutt á slysa- deild en var ekki alvarlega slösuð. Rúmlega fimm á föstudag urðu tvö umferðarslys með stuttu milli- bili. Í fyrra óhappinu varð fjögurra bíla árekstur og voru tveir fluttir á slysadeild, en meiðsli reyndust ekki alvarleg. Í síðara tilvikinu var til- kynnt um alvarlegan árekstur í mið- borginni. Fjórir voru fluttir á slysa- deild, og þurfti tækjabíl slökkviliðsins til að ná einum út úr bílnum. Meiðsli ökumanna og far- þega reyndust nokkur. Dekk losnaði undan bíl Aðfaranótt laugardags var lög- reglu tilkynnt um árekstur á Breið- holtsbraut og voru ökumaður og far- þegi úr annarri bifreiðinni fluttir á slysadeild. Seinna sömu nótt var tilkynnt að innkaupakerra hefði fokið á bíl og valdið nokkrum skemmdum. Á sunnudagsmorgun var tilkynnt um nokkrar skemmdir á grindverki í Grafarvogi. Stuttu seinna fannst bif- reið sem grunur leikur á að hafi ver- ið notuð til verknaðarins. Seinna uppgötvuðust fleiri skemmdir sem ökumaður bifreiðarinnar hafði vald- ið. Síðdegis á sunnudag urðu nokkr- ar skemmdir á ökutæki þegar dekk undan bifreið, sem kom úr gagn- stæðri átt, lenti á henni. Dekkið reyndist hafa losnað undan bifreið- inni og var talið að það hafi ekki ver- ið fest nægilega vel þegar skipt var yfir á vetrardekkin. Á föstudagskvöld og aðfaranótt laugardags var nokkuð gott ástand í miðborg Reykjavíkur. Ölvun var miðlungs mikil og um 250 manns á rölti þegar mest var. Svipað ástand var á laugardagskvöld, lítið um ung- menni undir 16 ára aldri og ölvun í meðallagi. Lögreglan þurfti þó að sinna nokkrum verkefnum tengdum ölvun. Talsvert um innbrot í bíla að undanförnu Tilkynnt var um 35 innbrot um helgina, þar af 18 í bíla. Í flestum til- vikum voru hljómflutningstæki, veski, símar eða geisladiskar teknir úr bílunum. Ástæða er til að minna ökutækjaeigendur á að nokkuð hef- ur verið um innbrot í bíla að und- anförnu og því sérstök ástæða til að fara varlega og fjarlægja alla þá hluti sem virkað geta freistandi fyrir þjófa. Að sama skapi er mikilvægt að læsa bifreiðum en tilkynnt var um nokkur mál um helgina þar sem farið var inn í ólæstar bifreiðar og verðmæti tekin úr þeim. Tilkynnt var um átta innbrot í heimahús og níu í fyrirtæki. Klukk- an tíu á laugardagskvöld var til- kynnt um innbrot í verslun sem sel- ur skrifstofubúnað. Verðmætum var stolið en einnig voru nokkrar skemmdir unnar á vörum. Á sunnudagsmorgun var tilkynnt um innbrot í sýningarglugga í skart- gripaverslun og var nokkru af verð- mætum stolið. Á sunnudag var lögreglu í tvígang tilkynnt um menn sem ekki gátu greitt reikninginn eftir að hafa snætt mat á veitingastað. Í fyrra til- vikinu reyndi maðurinn að flýja vett- vang en var stöðvaður. Veðurofsinn um helgina hafði nokkur áhrif á verkefni lögreglu sem sinnti útköllum vegna hluta sem voru að fjúka, losnuðu upp eða brotnuðu. Tilkynnt var um nokkra staði þar sem hurðir eða gluggar fuku upp, þakplötur höfðu losnað eða voru að losna. Úr dagbók lögreglu 9.–12. nóvember FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2001 51 Tölvunámskeið á næstunni Horfðu til framtíðar Faxafeni 10 (Framtíð) · Sími 561 6699 tolvuskoli@tolvuskoli.is · www.tolvuskoli.is Hagnýtt tölvunám 1 60 kennslust. Venjuleg yfirferð. Windows, Word, Excel, Internetið og tölvupóstur. 19.11 - 14.12 kl. 08:30 - 12:00 Hagnýtt tölvunám 2 40 kennslust. Fyrir lengra komna. Word frh, Excel frh, Outlook. 20.11 - 13.12 kl. 17:30 - 21:00 Tölvunámskeið fyrir eldriborgara Grunnatriði Windows, grunnatriði ritvinnslu, jólakortagerð, internetið og tölvupóstur, leikir (kapall o.fl.) 4.12 - 6.12 kl. 13:00 - 16:30 Átt þú rétt á endurgreiðslu frá þínu stéttarfélagi? Tölvugrunnur / Windows 10.12 - 12.12 kl. 13:00 - 16:30 Heimasíðugerð frh. 26.11 - 28.11 kl. 08:30 - 12:00 Word 1 03.12 - 05.12 kl. 13:00 - 16:30 Tölvunámskeið fyrir Eflingarfélaga: Stutt og stök námskeið Access 3 3.12 - 6.12 kl 17:30 - 21:00 Excel 1 23.11 - 24.11. kl. 08:30 - 16:30 Excel 2 3.12 - 5.12 kl. 08:30 - 12:00 Outlook 16.11 - 17.11 kl 08:30 - 16:30 Windows 2000 19.11 - 22.11 kl 17:30 - 21:00 Word 1 3.12 - 6.12 kl 17:30 - 21:00 Námskeið á ensku! Excel á ensku 19.11 - 28.11 kl. 17:30 - 21:00 mánudag og miðvikudag HERMANN Lárusson og Er- lendur Jónsson sigruðu á Íslands- mótinu í tvímenningi sem fram fór um helgina. Þeir félagar áttu hreint ævintýralegan endasprett í mótinu, skoruðu 133 stig yfir meðalskori í þremur síðustu umferðunum og stóðu upp eftir 39 umferðir sem öruggir sigurvegarar. Til marks um hið mikla skor má nefna að heildarskor þeirra félaga var 306 stig yfir meðalskor og parið sem varð í 4. sæti í mótinu skoraði 217 stig. Þegar þremur umferðum var ólokið í mótinu spáðu „sérfræðing- arnir“ því að einvígið um titilinn stæði milli fyrrverandi Íslands- meistara, Steinars Jónssonar og Stefáns Jóhannssonar annars vegar og Reykjavíkurmeistaranna Jóns Hjaltasonar og Hermanns Frið- rikssonar hins vegar en Jón og Hermann höfðu leitt mótið frá því um miðbik þess. Jón og Hermann voru þá með 268 stig, Steinar og Stefán með 258 stig og Sverrir Ár- mannsson og Aðalsteinn Jörgensen voru í þriðja sæti með 207 stig. Önnur pör komu nánast ekki til greina. Þá hófst hinn ævintýralegi enda- sprettur Erlends og Hermanns sem voru þá með 175 stig og voru í 7. sæti. Þeir gátu teflt djarft á meðan topppörin reyndu að halda sínu og tóku minni áhættu. Lokastaða efstu para varð ann- ars þessi: Hermann Láruss. – Erlendur Jónss. 306 Steinar Jónss. – Stefán Jóhannss. 281 Jón Hjaltason – Hermann Friðrikss. 261 Ásmundur Pálss. – Guðm. Páll Arnarss.217 Júlíus Snorrason – Guðm. Pálsson 202 Anton Haraldss. – Sigurbjörn Haraldss.201 Páll Valdimarss. – Eiríkur Jónss. 191 Símon Símonarson – Sverrir Kristinss. 186 Páll Bergsson – Kristján Blöndal 145 Sverrir Ármannss. – Aðalst. Jörgensen 143 Mótið fór fram í skáksal Tafl- félags Reykjavíkur og voru þrengsli mikil. Keppnisstjóri og reiknimeistari var Sveinn R. Ei- ríksson. Stefanía Skarphéðinsdóttir var við stjórnvölinn og Guðmundur Ágústsson, forseti Bridssambands- ins, afhenti verðlaun í mótslok. Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Sigurvegararnir á Íslandsmótinu í tvímenningi sem fram fór um helgina. Talið frá vinstri: Stefán Jóhannsson, Steinar Jónsson, Hermann Lárusson, Erlendur Jónsson, Jón Hjaltason og Hermann Friðriksson. Óvænt endalok á Íslands- mótinu í tvímenningi BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Félag eldri borgara í Kópavogi Ágæt þátttaka var í Michell-tví- menningnum þriðjudaginn 6. nóv- ember. Lokastaða efstu para í N/S varð þessi: Magnús Halldórss. – Þórður Jörundss. 257 Bragi Björnsson – Þórður Sigfússon 255 Sigurður Jóhannss. – Siguróli Jóhannss. 240 Hæsta skor í A/V: Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 270 Einar Einarsson – Hörður Davíðsson 266 Einar Markússon – Steindór Árnason 55 Sl. föstudag mættu svo 22 pör og þá urðu úrslit þessi í N/S: Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 259 Lárus Hermannss. – Sigurður Karlss. 241 Magnús Halldórss. – Hannes Ingibergss.232 Hæsta skor í A/V: Rafn Kristjánss. – Oliver Kristófss. 287 Páll Hannesson – Kári Sigurjónss. 246 Ásta Erlingsd. – Sigurður Pálsson 240 Meðalskor báða dagana var 216. Fyrirlestur um íslenska vita KRISTJÁN Sveinsson sagnfræð- ingur heldur fyrirlestur í Sjó- minjasafni Íslands, Vesturgötu 8 í Hafnarfirði, miðvikudaginn 14. nóvember kl. 20.30. Fyrirlesturinn nefnir Kristján „Vitar og vitarekstur á Íslandi“ og er hann í boði Rannsóknarseturs í sjávarútvegssögu og Sjóminja- safns Íslands. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. „Í fyrirlestrinum fjallar Krist- ján um upphaf vitabygginga hér- lendis og þróun þeirra síðan. Greint verður frá mismunandi gerðum vita og vitatækja, vit- arekstrinum í heild og því hvernig íslensk vita- og leiðsögumál hafa tengst breytingum á leiðsögu- tækni. Kristján Sveinsson starfar nú við rannsóknir á sögu vitamála á Íslandi á vegum Siglingastofnun- ar,“ segir í fréttatilkynningu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.